Morgunblaðið - 28.08.2014, Síða 91
ÍSLENDINGAR 91
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
„Á árunum 1987 til 1995 var ég
tímabundið sett til afleysinga sem
sýslumaður eða bæjarfógeti á nokkr-
um stöðum á landinu.“ Einnig var
Hjördís varadómari í Félagsdómi
2004-2007. Auk dómstarfanna hefur
hún komið að kennslu, fyrst við
Menntaskólann við Sund og síðar við
lagadeild Háskóla Íslands og verið
prófdómari þar og við Háskólann á
Akureyri, einnig leiðbeint við meist-
araritgerð við Háskólann í Reykja-
vík. „Á árunum 1988-1994 var ég
leiðbeinandi íslenskra laganema,
sem tóku þátt í norrænni málflutn-
ingskeppni, kölluð Sporrong-
Lönnroth keppnin.“
Hjördís hefur setið í ýmsum
nefndum í gegnum tíðina, m.a. í
kærunefnd jafnréttismála, og var
formaður þverfaglegrar siðanefndar
vegna gagnagrunns á heilbrigðis-
sviði.
Situr í fjölmörgum nefndum
Eftir að Hjördís hætti störfum
sem hæstaréttardómari hefur hún
gegnt formennsku í ýmsum nefnd-
um, m.a. í nefnd óháðra sérfræðinga
sem forsætisráðherra skipaði 2010
til þess að rannsaka og yfirfara
einkavæðingu í orkugeiranum og í
rannsóknarnefnd kaþólsku kirkj-
unnar á Íslandi 2011 til 2012 sem
fjallaði um viðbrögð og starfshætti
kaþólsku kirkjunnar á Íslandi vegna
ásakana um kynferðisbrot eða önnur
ofbeldisbrot. Hún situr í réttar-
farsnefnd frá 2012 og í stjórn Mann-
réttindastofnunar Háskóla Íslands
frá stofnun hennar 1994 og er for-
maður nefndar um dómarastörf frá
2010.
„Félagsstörf hafa einkum tengst
mannréttindum eða dómskerfinu, ég
var til dæmis formaður Amnesty
International á Íslandi 1984-1986 og
formaður Dómarafélags Íslands
2003-2006. Ég hef skrifað nokkrar
greinar í íslensk og erlend fagtímarit
og ritsöfn, og einnig haldið fyrir-
lestra hérlendis og erlendis. Við-
fangsefnið hefur oftast tengst rétt-
arheimspeki eða mannréttindum.“
Fjölskylda
Börn Hjördísar eru Hákon Kjalar
Hjördísarson, f. 5.5. 1976, smiður, og
Ólöf Embla Eyjólfsdóttir, f. 12.3.
1980, heimspekingur, maki: Ólafur
Eiríksson tölvunarfræðingur, barn
þeirra: Þorsteinn Kjalar Ólafsson, f.
20.4. 2011.
Fyrrverandi makar Hjördísar:
Böðvar Guðmundsson, f. 9.1. 1939,
rithöfundur, og Eyjólfur Kjalar Em-
ilsson, f. 25.11. 1953, prófessor í
heimspeki.
Systkini Hjördísar: Inga Huld Há-
konardóttir, f. 15.3. 1936, d. 27.5.
2014 sagnfræðingur, Auður Hildur
Hákonardóttir, f. 28.4. 1938, lista-
maður.
Foreldrar Hjördísar: Hákon Guð-
mundsson, f. 18.10. 1904, d. 6. janúar
1980, yfirborgardómari í Reykjavík,
áður hæstaréttarritari í Bjarkahlíð í
Reykjavík, síðar Straumum í Ölfusi,
og Ólöf Dagmar Árnadóttir, f. 14.10.
1909, d. 7.7. 1993, fimleikakennari og
rithöfundur. Þau bjuggu í Bjarkahlíð
í Reykjavík, síðar Straumum í Ölf-
usi, en Ólöf var síðast búsett á Sel-
fossi.
Úr frændgarði Hjördísar Bjarkar Hákonardóttur
Hjördís Björk
Hákonardóttir Þorbjörg Olgeirsdóttir
húsfreyja, frá Garði í Fnjóskadal
Gísli Ásmundsson
bóndi á Þverá í Dalsmynni,
S-Þing., f. í Rauðuskriðu
Auður Gísladóttir
húsfreyja og rak síðar matsölu
fyrir kostgangara í Miðstræti
Garðar
Gíslason
stórkaup-
maður
Ásmundur Gíslason
prófastur á Hálsi í
Fnjóskadal
Einar Ásmundsson
hrl. og ritstjóri
Morgunblaðsins
Kristján
Garðarsson
Gíslason
stórkaupmaður
Garðar Gíslason
fv. hæstaréttar-
dómari
Árni Jónsson
prófastur og þingmaður á
Skútustöðum í Mývatnssveit
Hjálmar Jónsson
bóndi á Ljóts-
stöðum í Laxárdal
Ragnar H. Ragnar
tónlistarskóla- og
söngstjóri á Ísafirði
Ólöf Dagmar Árnadóttir
rithöfundur og fimleika-
kennari í Reykjavík
Inga Árnadóttir
húsmóðir í Reykjavík
Þóra Árnadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Þór Vilhjálmsson
fv. hæstaréttar-
dómari
Ármann Kristinss.
sakadómari í
Reykjavík
Þuríður Helgadóttir
húsfreyja, f. í Kasthvammi í Laxárdal
Jón Árnason
bóndi á Litluströnd við Mývatn
Gróa Árnadóttir
húsfreyja, frá Dyrhólum í Mýrdal
Jón Einarsson
bóndi og oddviti á
Hvoli í Mýrdal, V-Skaft.
Ragnhildur Jónsdóttir
húsfreyja á Hvoli og Stóra-Hofi
Guðmundur Þorbjarnarson
bóndi og félagsmálafrömuður á Hvoli í
Mýrdal og síðar á Stóra-Hofi á Rangárvöllum
Hákon Guðmundsson
yfirborgardómari í Reykjavík
Ingibjörg Þorkelsdóttir
húsfreyja, ættuð úr Landeyjum
Þorbjörn Einarsson
bóndi í Gíslholti í Holtum, Rang., f. í Landeyjum
Hjálmar H. Ragnarss.
tónskáld og fv.
rektor Listaháskólans
Anna ÁslaugRagnarsd.
píanóleikari
Sigríður Ragnarsd.
skólastjóri Tónlistar-
skólans á Ísafirði
Ágúst Sigurmundsson mynd-skeri fæddist 28. ágúst 1904á Brimbergi við Seyðisfjörð.
Foreldrar hans voru Sigurmundur
læknir Sigurðsson, f. 1877, d. 1962,
og Guðlaug Þórelfa Þórarinsdóttir, f.
1873, d. 1946, dóttir Þórarins Hró-
bjartssonar, bónda í Austurkoti á
Vatnsleysuströnd.
Þegar Ágúst var 7 ára gamall
flutti hann til Reykjavíkur, í stein-
húsið við Ingólfsstræti 23, og ólst
þar upp hjá móður sinni og stjúpa,
Oddi Bjarnasyni. Þar átti Ágúst
heimili sitt æ síðan og vinnustofu en
hún var í viðbyggingu sem byggð
var 1906. Steinhúsið stendur á horn-
inu við Spítalastíg og þar býr ennþá
einn afkomenda Ágústs.
Ágúst fékk snemma áhuga á
myndlist. Hann stundaði fyrst
teikninám í kvöldskóla sem Stefán
Eiríksson rak. Um 17 ára aldur hóf
hann tréskurðarnám hjá Stefáni og
lauk sveinsprófi með ágætiseinkunn
árið 1925. Hann kenndi síðan tré-
skurð um nokkurt árabil í Mynd- og
handíðaskóla Íslands en annars
starfaði hann sjálfstætt alla sína tíð.
Ágúst var í senn myndhöggvari og
myndskeri í tréskurðarverkum sín-
um. Af verkum hans má nefna pré-
dikunarstólana í Saurbæjarkirkju á
Hvalfjarðarströnd og Ísafjarðar-
kirkju, kristmyndina í Neskirkju og
ræðustól Menntaskólans í Reykja-
vík. Einnig voru þekktar hinar fjöl-
mörgu smástyttur hans (15-25 cm
háar) úr lífi alþýðunnar, verka-
manna og -kvenna, en annars er
ómögulegt að hafa tölu á þeim fjölda
tréskurðarverka, sem Ágúst gerði á
sínum langa starfsferli, rúmum fjór-
um áratugum.
Ágúst málaði einnig og liggja eftir
hann nokkur olíumálverk.
Eiginkona Ágústs var Elínborg
Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 15.9.
1911, d. 6.7. 1994. Foreldrar hennar
voru Sigurjón Benjamínsson, bóndi
á Nautabúi í Hjaltadal, og k.h. Elín-
borg Pálsdóttir frá Kjarvalsstöðum.
Börn Ágústs og Elínborgar eru
þrjú: Auður, Elín Sigurborg og
Sigurður Björn.
Ágúst lést 28.6. 1965.
Merkir Íslendingar
Ágúst Sigurmundsson
95 ára
Halldór Steinþórsson
90 ára
Ólafía Helgadóttir
Ólöf Elíasdóttir
85 ára
Anna Sigurjóna
Halldórsdóttir
Elín Sólmundardóttir
Hólmfríður Friðsteinsdóttir
Sigrún Sigurðardóttir
80 ára
Ingi Sigurðsson
Kristinn V. Jóhannsson
Sigríður Sigurbjörnsdóttir
75 ára
Guðrún Pétursdóttir
Heiðveig Guðmundsdóttir
Kamma Agneta Níelsdóttir
Karl-Erik Rocksén
Lúðvík Leósson
Þuríður Kristín
Guðlaugsdóttir
70 ára
Björg Magnúsdóttir
Elín B. Sigurgeirsdóttir
Hjördís Björk Hákonardóttir
Jörgen Ernst Moestrup
Karl S. Hallgrímsson
Kjartan Skaftason
Sigurður Valtýsson
60 ára
Ásdís Magnúsdóttir
Baldur Guðmundsson
Edda Ásrún
Guðmundsdóttir
Ellert Þór Hlíðberg
Guðríður Bachmann
Jóelsdóttir
Leó Geir Torfason
Magnús Gunnar
Þorsteinsson
Margrét Lilja
Guðmundsdóttir
Sigfús Axfjörð Gunnarsson
Sigrún Adolfsdóttir
Sólveig H. Þorsteinsdóttir
Unnur Sigrún
Bjarnþórsdóttir
Valdimar Þorgeirsson
50 ára
Alma Jónsdóttir
Árdís Olga Sigurðardóttir
Dögg Árnadóttir
Gísli Kristjánsson
Guofen Kan
Valgerður Árný
Rúnarsdóttir
Þröstur Hreinsson
40 ára
Atli Karl Ingimarsson
Cédric Henri Roserens
Friðný Sigurðardóttir
Guðrún Eygló
Bergþórsdóttir
Hildur Steindórsdóttir
Hólmfríður Einarsdóttir
Lilja Guðrún
Jóhannesdóttir
Margrét Óskarsdóttir
María Kristín
Gunnarsdóttir
30 ára
Einar Ottó Antonsson
Gréta Björg Ólafsdóttir
Ingi Steinn Guðmundsson
Karolina Daria Pawlik
Laufey Jónsdóttir
Margrét G. Jónsdóttir
Przemyslaw Lewandowski
Rakel Sif Ragnarsdóttir
Sigríður Inga Viggósdóttir
Sóley Jónsdóttir
Tinna Kristjánsdóttir
Unnar Þór Þórunnarson
Til hamingju með daginn
30 ára Eydís er Reykvík-
ingur og læknaritari og er
í kvöldskóla í FB.
Maki: Þorvaldur Örn
Valdimarsson, f. 1981,
nemi í kerfisstjórnun.
Sonur: Benedikt Freyr, f.
2006.
Foreldrar: Benedikt Þór
Valsson, f. 1952, hagfræð-
ingur hjá Landssambandi
ísl. sveitarf., og Þuríður
Nikulásdóttir, f. 1951, líf-
eindafræðingur á Vefja-
rannsóknastofu.
Eydís Bene-
diktsdóttir
30 ára Sverrir býr í
Reykjavík og er kenn-
aranemi.
Maki: Kristín Stefáns-
dóttir, f. 1985, verkfræð-
ingur og forritari hjá
Reynd.
Sonur: Benedikt Ísak, f.
2011.
Foreldrar: Steindór
Sverrisson, f. 1961, sjó-
maður, og Kolbrún
Hauksdóttir, f. 1958,
sjúkraliði. Þau eru bús. í
Kópavogi.
Sverrir Hrafn
Steindórsson
30 ára Hrafn Ingi er frá
Sandgerði en býr í
Reykjanesbæ og er raf-
virki hjá Bergraf.
Maki: Kristín Björk Hall-
varðsdóttir, f. 1986, leik-
skólakennari á Gimli.
Börn: Edda Guðrún, f.
2006, og Hilma Björk, f.
2011.
Foreldrar: Reynir Þór
Ragnarsson, f. 1950,
framkv.stj. Bergraf, og
Þórunn B. Tryggvadóttir,
f. 1951, kennari.
Hrafn Ingi
Reynisson
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
TAX FREE
af öllum s
nyrtivörum
í ágúst
Seljum einnig:
Velúrgalla, peysur,
toppa, buxur, pils,
leggings o.m.fl.
Allar töskur á
40%
afslætti