Morgunblaðið - 27.06.2014, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2014
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
PARKETFLÍSAR
ekkert að pússa og lakka
Ingvar S. Birgisson
isb@mbl.is
Í haust munu nemendur í sjötta og
sjöunda bekk í Vættaskóla – Engj-
um í Reykjavík þurfa að sækja nám
við Vættaskóla – Borgir. Vættaskóli
varð til við sameiningu Engja- og
Borgaskóla árið 2012 en þá voru fjöl-
margar unglingadeildir grunnskóla
sameinaðar í Reykjavík. Við samein-
ingu grunnskólanna var sagt við for-
eldra að börn, sem ekki væru í ung-
lingadeild, færu í skóla í sínu
heimahverfi.
„Fólk er frekar óánægt“
„Fólk er frekar óánægt með þetta
miðað við þá sem ég hef talað við.
Upphaflega þegar skólarnir voru
sameinaðir var talað um að ekki ætti
að hreyfa við yngri bekkjunum held-
ur eingöngu unglingadeildinni,“ seg-
ir Anna Sóley Karlsdóttir, formaður
foreldrafélagsins í Vættaskóla.
Aðspurð hvort þessi ákvörðun hafi
verið tekin í samráði við foreldra
svarar Anna Sóley neitandi. „Þetta
var bara ákveðið og við höfðum ekk-
ert um það að segja. Við vorum boð-
uð á fund þar sem farið var yfir
skipulag næsta veturs. Á fundinum
mátti koma með athugasemdir en
við heyrðum að það var búið að
ákveða þetta þá þegar. Ég veit að
foreldrar yngri barna í skólanum
eru mjög ósáttir því þetta var ekki
kynnt fyrir þeim. Þótt þessar breyt-
ingar muni ekki hafa áhrif á þá
næsta vetur þá kemur að því.“
Fleiri og fjölbreyttari hópar
Vilborg S. Vilbergsdóttir, skóla-
stjóri Vættaskóla, segir að aðal-
ástæðan fyrir breytingunum sé sú
að með þeim sé hægt að skipta nem-
endum í fleiri og fjölbreyttari náms-
hópa, sem eigi að skila nemendum
betra tækifæri til náms. Félagslegi
þátturinn skiptir einnig máli í þessu
samhengi og mun þessi sameining
auka möguleika nemenda á því sviði.
Ákveðið var að nemendur um-
ræddra árganga sameinuðust í
Vættaskóla – Borgum þar sem þar
er nýtt sérhæft stuðningsúrræði
fyrir miðstig og félagsmiðstöðin er
þar og auk þess býður húsnæðið í
Borgum upp á meira rými fyrir mið-
stigið. Svo hafa göngustígarnir milli
skólanna verið bættir.
Gönguferð Göngustígarnir milli tveggja starfsstöðva Vættaskóla hafa ver-
ið bættir og lýsing aukin til að auðvelda ferðir milli staðanna.
10-15 mínútna gönguleið
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Borgarvegur
Móavegur
Borgarholts-
skóli
Kelduskóli
- Vík
Mo
sav
egu
r
Hamravegur
Breiðavík
Væ
tta
bo
rg
ir
St
ran
dv
eg
ur
Vættaskóli
- Engi
Vættaskóli
- Borgir
Nemendur sendir út
fyrir heimahverfið
Formaður foreldrafélagsins óánægður með breytingarnar Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Tilskipun Evrópusambandsins um að
hækka beri innistæðutryggingar úr
rúmlega 20.000 evrum í 100.000 evr-
ur, sem samþykkt
var nýlega, var
rædd á fundi
utanríkismála-
nefndar Alþingis í
gær, en Guðlaug-
ur Þór Þórðarson,
þingmaður Sjálf-
stæðisflokks, ósk-
aði þess að málið
yrði rætt þar, í
ljósi þess að til
stendur að þessi
tilskipun verði tekin upp í EES-samn-
inginn. Var samþykkt að málið yrði
tekið upp á ný í byrjun ágúst þegar
sérfræðingar fjármálaráðuneytis
gætu farið yfir þessi mál með nefnd-
inni, en þeir eru nú í sumarleyfi.
Guðlaugur Þór segir að væri þessi
tilskipun Evrópusambandsins leidd í
lög hér á landi myndi það þýða að
engin leið væri fyrir íslenska ríkið að
standa við skuldbindingar trygging-
arsjóðs, færi svo að einn bankinn
kæmist í þrot. Hann nefnir sem dæmi
að fyrir tveimur árum hafi innistæður
á Íslandi numið rúmlega landsfram-
leiðslu. Var þá áætlað að það myndi
taka tryggingarsjóðinn tæpa öld að
safna fyrir innistæðum færi svo að
einn bankinn færi í þrot.
„Ég fæ ekki séð hvernig við gætum
lifað með þessu,“ segir Guðlaugur Þór.
Þar kæmi til að erfiðara yrði að fara
hina svonefndu „íslensku leið“, og láta
tryggingarsjóð fá forgangskröfur, þar
sem þeir sem fjármagna banka væru
nú varari um sig og hefðu sérvarin
skuldabréf með veðum, svo að þeir
myndu ekki lenda í svipuðum sporum
og kröfuhafar gerðu eftir hrunið 2008.
Hitt atriðið sem stæði í veginum væri
það að í tilskipuninni væri nú tryggt að
ríkisábyrgð yrði á innistæðunum,
þannig að ríkið yrði að tryggja fjár-
mögnun tryggingarsjóðsins.
„Hér yrði því komið á ríkisábyrgð á
innistæðum upp að 100.000 evrum.
Það eru því gríðarlegir hagsmunir í
húfi, eins og við þekkjum. Við verðum
að koma í veg fyrir að þetta fari inn í
íslenska löggjöf,“ segir Guðlaugur
Þór.
Ný tilskipun rædd
í byrjun ágúst
Gengur ekki upp hér, segir þingmaður
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Íbúar við Grettisgötu sem látið hafa
sig varða afdrif silfurreynis sem
stendur við lóð á Grettisgötu 17
hafa kært Reykjavíkurborg til úr-
skurðarnefndar umhverfis- og auð-
lindamála vegna deiliskipulags-
breytinga á lóðinni.
Jafnframt var gerð krafa um
bráðabirgðaúrskurð um stöðvun
framkvæmda þann 19. júní sl.
Reykjavíkurborg hafði frest til
gærdagsins til þess að skila gögn-
um til umhverfis- og auðlinda-
nefndar vegna bráðabirgðaúrskurð-
arins.
Fjarlægja á rúmlega aldar-
gamlan silfurreyni, sem stendur við
húsið að Grettisgötu 17, til að
byggja hótel samkvæmt deiliskipu-
lagi. Nágrannar kvarta undan því
að grenndarkynning hafi vart farið
fram á fyrirhuguðum fram-
kvæmdum en ein auglýsing birtist í
Fréttablaðinu á Þorláksmessu. Að
auki stendur til að flytja húsið sem
nú er Grettisgata 17.
Forgangskrafa
Um er að ræða stöðvunarkröfu á
framkvæmdum. Samkvæmt upplýs-
ingum frá úrskurðarnefndinni fara
slíkar kröfur í forgang. Ekki feng-
ust upplýsingar um hvenær úr-
skurðar væri að vænta. Nokkrar
stöðvunarkröfur eru til meðferðar
hjá nefndinni en til stendur að úr-
skurða í málinu. „eins fljótt og
hægt er“. vidar@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Silfurreynir Krafist er bráðabirgða-
úrskurðar um framkvæmdastopp.
Krefjast stöðvunar
á framkvæmdum
Unglingadeildir í mörgum skólum í Reykjavík hafa á síðustu ár-
um verið sameinaðar til að hagræða í rekstri borgarinnar. Þess-
ar sameiningar grunnskólanna mættu víða harðri andstöðu for-
eldra sem telja börnin sín eiga að geta sótt skóla í
heimahverfinu sínu. Einna víðtækust var sameining skóla í Graf-
arvogi þar sem Korpuskóli og Víkurskóli sameinuðust í Keldu-
skóla og unglingadeildir Húsaskóla og Hamraskóla voru fluttar í
Foldaskóla. Þá voru Engjaskóli og Borgaskóli sameinaðir í
Vættaskóla.
SAMEINING UNGLINGADEILDA
Sæbjörg, skólaskip Slysavarnaskóla sjómanna, er á leið
í slipp á Akureyri, en á leiðinni norður verða haldin
námskeið fyrir sjómenn á ákveðnum stöðum.
Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjó-
manna, segir að vegna kreppunnar hafi skipið ekki far-
ið á ströndina síðan 2008. „Segja má að við séum að
blása lífi í sumarsiglingarnar,“ segir hann.
Tveggja daga endurmenntunarnámskeið hófst í
Vestmannaeyjum í gær og þar var auk þess námskeið
fyrir smábátasjómenn í gær. Eftir helgi verður
endurmenntunarnámskeið í Neskaupstað og síðan á
Akureyri áður en skipið fer í slipp. Að loknu sumar-
leyfi verður síðan haldið uppteknum hætti með nám-
skeiðum, sem byrja í Reykjavík 1. september.
Blása lífi í sumarsiglingar Sæbjargar
Námskeið fyrir sjómenn og skólaskipið í slipp á Akureyri
Ljósmynd/Hilmar Snorrason
Skólaskip Sæbjörg var í Vestmannaeyjum í gær og fer síðan til Neskaupstaðar. Þaðan liggur leiðin til Akureyrar.
Hagræðing í skólastarfi
Morgunblaðið/Golli
Vættaskóli Árið 2012 voru Engjaskóli og Borgaskóli sameinaðir í Vætta-
skóla. Núna mun allt miðstig Vættaskóla starfa í Vættaskóla – Borgum.