Morgunblaðið - 27.06.2014, Side 6
BAKSVIÐ
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Von er á tveimur risavöxnum
skemmtiferðaskipum til landsins í
dag með um fimm þúsund farþega
um borð. Búist er við því að á annað
hundrað farartæki muni flytja þá til
ólíkra áfangastaða á landinu meðan
á dvöl þeirra stendur.
Skipin sem um ræðir eru hið
bandaríska Celebrity Infinity, sem
vegur 90 þúsund tonn og ber 2.000
farþega, og hið ítalska Costa Pac-
ifica, sem vegur 115 þúsund tonn og
ber 3.000 farþega. „Við gætum ekki
tekið við fleiri svona stórum skipum í
einu. Við erum nýbúin að stækka
hafnarbakkann í 650 metra. Þar get-
um við komið fyrir tveimur svona
300 metra skipum,“ segir Ágúst
Ágústsson hjá Faxaflóahöfnum. Að
sögn hans lauk svo í gær gerð bíla-
stæða þar sem rútur og leigubílar
geta tekið á móti farþegum. 60-70%
fólks sem kemur með skipunum fara
í skipulagðar ferðir sem seldar eru
um borð.
Ferðaþjónustufyrirtækið Atlantik
er eitt þeirra sem sérhæfa sig í mót-
töku skemmtiferðaskipa og er Costa
Pacifica á þeirra vegum. „Það koma
skip til okkar á nánast hverjum
degi,“ segir Gunnar Rafn Birgisson,
eigandi Atlantik.
Meginþorrinn venjulegt fólk
Hann segir að flestir gestir fari
gullna hringinn, þótt sumir fari í
jeppaferðir, hellaskoðun, hvalaskoð-
un og í Bláa lónið. Fyrirtækið hafi
verið starfandi í 36 ár og skipum
fjölgi ár frá ári. „Það er kannski ekki
sami vöxtur í komum skemmtiferða-
skipa og í annarri ferðaþjónustu, en
skipin eru alltaf að stækka og þ.a.l.
koma fleiri farþegar í land,“ segir
Gunnar. Hann segir að ekki sé endi-
lega ríkt fólk um borð. „Meginþorr-
inn er bara venjulegt fólk.“
Fimm þúsund manns frá borði
Risastórt Hið ítalska Costa Pacifica vegur 115 þúsund tonn.
Tvö risavaxin skemmtiferðaskip verða samtímis í Reykjavíkurhöfn Gætu ekki tekið við þriðja
skipinu Framkvæmdum við stækkun hafnarbakkans nýlokið Skip nánast á hverjum degi
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2014
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
Sumarútsölur fóru af stað með krafti í gær
í Kringlunni og Smáralind en undanfarin
ár hafa útsölur hafist um svipað leyti í
verslunarkjörnunum tveimur. „Þetta er
með svipuðu móti og undanfarin ár en út-
salan byrjaði á sama vikudegi í fyrra.
Lokadagur útsölunnar verður fyrr á ferð-
inni en áður en hann verður laugardaginn
3. ágúst og þá verðum við með svokallaða
gangasölu. Hún hefst fimmtudaginn 31.
júlí en við höfum gjarnan verið með útsöl-
una fram í aðra viku í ágúst. Við erum því
að stytta hana um eina viku í ár,“ segir
Sigurjón Örn Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Kringlunnar.
Um 115 verslanir eru í Kringlunni og
mun meirihluti þeirra taka þátt í útsölunni.
„Verslanirnar taka ekki allar þátt í útsöl-
unni en stærsti hlutinn gerir það. Útsölu-
tímabilið er skilgreint með ákveðnum
hætti en verslanirnar hafa svo frjálsar
hendur með það hvort þær byrja og hætta
samkvæmt því eða ekki,“ segir Sigurjón.
Byrja fyrr en áður
Sumarútsölurnar hófust klukkan átta í
gærmorgun í Smáralind en að sögn Sturlu
Gunnars Eðvarðssonar, framkvæmda-
stjóra Smáralindar, fer útsalan fram með
svipuðum hætti og áður. „Útsalan hefst á
svipuðum tíma og í fyrra og stendur fram
yfir verslunarmannahelgi. Meirihluti versl-
ana tekur þátt í henni en þetta eru mis-
jafnar vörur og þær fara ekki allar á út-
sölu. Útsalan fer vel af stað og það var góð
traffík þegar við opnuðum,“ segir Sturla
og bætir við að sumarútsölur byrji fyrr en
á árum áður. „Maður finnur fyrir því að
það er beðið eftir þessu og útsölurnar eru
farnar að færa sig framar. Þegar ég byrj-
aði fyrst í þessum bransa hófust útsöl-
urnar alltaf eftir verslunarmannahelgi en
það eru breyttir tímar,“ segir Sturla.
Sumarútsölur hefjast með krafti
Hefjast um svipað leyti og í fyrra Standa fram yfir ágúst Meirihluti verslana með
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Útsala Meirihluti verslana tekur þátt í sumarútsölunum sem hófust í gær.
Liðið Workforce A var fyrst í mark í WOW
Cyclothon-hjólreiðakeppninni. Tók það hópinn
einungis 39 klukkustundir, 12 mínútur og 45
sekúndur að hjóla hringinn í kringum landið.
Setti liðið nýtt met en gamla metið, frá árinu
2012, var 40 klukkustundir og 57 mínútur. Fast á
eftir var liðið Örninn Trek og í þriðja sæti yfir
marklínuna komu hjólreiðakappar í Hleðslulið-
inu. Emil Þór Guðmundsson, Ingvar Ómarsson,
Óskar Ómarsson og Tigran Korkotyan hjóluðu
fyrir sigurliðið en bílstjórar liðsins voru Sölvi
Sig. og Ingi Már Helgason.
Morgunblaðið/Eggert
Sigurliðið í WOW Cyclothon setti nýtt met
Lokametrarnir við Rauðavatn voru spennuþrungnir
Hesthúsaeigend-
ur í Almannadal
bíða nú nið-
urstöðu úrskurð-
arnefndar um-
hverfis- og
auðlindamála um
hvort þeim verði
heimilt að skrá
lögheimili á efri
hæð hesthúsa
sinna, að sögn
Bjarna Jónssonar, formanns Félags
hesthúsaeigenda í Almannadal.
Bjarni kærði málsmeðferð og synj-
un Reykjavíkurborgar í maí s.l.
Reykjavíkurborg hefur skilað
greinargerð vegna kæru hesthúsa-
eigendanna. Borgin bendir m.a. á
að svæðið í Almannadal sé skil-
greint sem opið svæði til sérstakra
nota. Ekki sé gert ráð fyrir fastri
búsetu á slíku svæði.
Borgin krefst þess að hin kærða
synjun skipulagsfulltrúa borg-
arinnar verði staðfest. Hún segir að
málsmeðferð skipulagsbreytingar
sem kærð er hafi að öllu leyti verið í
samræmi við ákvæði skipulagslaga
og stjórnsýslulaga.
gudni@mbl.is
Reykjavík
vill fá synjun
staðfesta
Vilja fá lögheimili
á efri hæð hesthúsa
Bjarni Jónsson
Í heild koma til landsins 89
skemmtiferðaskip í sumar sam-
kvæmt vef Faxaflóahafna. Þar
af eru um 60 þeirra á vegum
Atlantik. Hafa skipin gjarnan
viðkomu á fleiri en einum stað
við landið. Meðal annars munu
12 skip hafa viðkomu í Grímsey.
Nokkur fyrirtæki hafa verið
að hasla sér völl í móttöku
skemmtiferðaskipa. Þar á með-
al eru Iceland travel, Farvegur,
Guðmundur Jónasson, Snæ-
land-Grímsson og Allra handa.
89 skip
12 KOMA VIÐ Í GRÍMSEY