Morgunblaðið - 27.06.2014, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 27.06.2014, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2014 Náðu þér í aukin ökuréttindi Fagmennska og ökufærni í fyrirrúmi Öll kennslugöng innifalin www.bilprof.is Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 og 894 2737 • Opið 10-17 alla daga Næsta námskeið hefst 2. júlí ÖKUSKÓLINN Í MJÓDD – yfir 40 ár í fagmennsku Meirapróf Þekking og reynsla í fyrrirúmi Sigurður Már Jónsson ritaði ádögunum pistil á mbl.is og fjallaði um viðskiptaumhverfið ís- lenska. Þar nefnir hann að ein helsta röksemd fyrir aðild að ESB sé sú að með henni verði viðskiptaum- hverfið miklu auð- veldara hér á landi.    Nú er það aðvísu svo að regluverk ESB er ekki endilega hjálp- legt fyrirtækjarekstri, en það sem Sigurður Már vekur athygli á eru viðhorf frumkvöðla til uppbygg- ingar innlendrar fyrir- tækjastarfsemi.    Hann bendir á viðtal á mbl.is viðÞorstein Baldur Friðriksson, stofnanda Plain Vanilla, sem sé meðal þeirra fyrirtækja sem séu í hvað hröðustum vexti hér á landi.    Fyrirtækið sé að stórum hluta íeigu erlendra fjárfesta en stofnandinn segi gott að byggja það upp hér. Það verði alls ekki flutt úr landi.    Þá vitnar Sigurður Már til er-lenda fjárfestisins og frum- kvöðulsins Bala Kamallakharan sem vilji hvergi vera nema hér. Hér séu tækifærin og Ísland sé heppi- legur staður til fjárfestinga.    Sigurður Már nefnir ýmis fleiridæmi um frumkvöðla og ný- sköpunarfyrirtæki sem vilji vera með starfsemi hér og gangi vel.    Þetta er ágæt áminning því aðstundum vill gleymast í hávað- anum af áróðri ESB-sinnanna sem vilja tala landið niður að hér eru mikil tækifæri og margir hafa kos- ið að nýta sér þau með góðum ár- angri. Sigurður Már Jónsson Tölum tækifærin á Íslandi ekki niður STAKSTEINAR Veður víða um heim 26.6., kl. 18.00 Reykjavík 12 alskýjað Bolungarvík 13 rigning Akureyri 15 alskýjað Nuuk 7 skýjað Þórshöfn 10 alskýjað Ósló 12 þrumuveður Kaupmannahöfn 17 léttskýjað Stokkhólmur 16 heiðskírt Helsinki 12 heiðskírt Lúxemborg 20 heiðskírt Brussel 21 heiðskírt Dublin 16 skýjað Glasgow 17 léttskýjað London 20 léttskýjað París 23 heiðskírt Amsterdam 20 léttskýjað Hamborg 20 heiðskírt Berlín 20 léttskýjað Vín 21 léttskýjað Moskva 15 skýjað Algarve 22 heiðskírt Madríd 27 léttskýjað Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 27 léttskýjað Róm 25 léttskýjað Aþena 36 skýjað Winnipeg 18 léttskýjað Montreal 22 léttskýjað New York 26 skýjað Chicago 19 alskýjað Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 27. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:00 24:03 ÍSAFJÖRÐUR 1:36 25:36 SIGLUFJÖRÐUR 1:19 25:19 DJÚPIVOGUR 2:15 23:46 Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Ég er mikið notaður í að bera þunga hluti eins og rúm og annað slíkt,“ sagði Hermann Hreiðarsson fótboltakappi og annar eigandi Hót- el Stracta á Hellu. Margt var um manninn við hótelið í gær þar sem unnið var á fullu við lokafrágang þess. Ekki seinna vænna því hótelið er fullbókað yfir landsmót hestamanna á Gadd- staðaflötum á Hellu sem hefst á sunnudaginn næsta og lýkur að viku liðinni 6. júlí. Fyrstu gestirnir eru þegar komnir en flestir koma um helgina. „Þetta verður allt klárt fyrir landsmót,“ sagði Hreiðar Her- mannsson, hóteleigandi og faðir Hermanns, glaður í bragði. Feðg- arnir undu sér vel í atganginum því bæði var unnið inni og úti við frá- ganginn og hvergi sást slegið slöku við. Á hótelinu eru 124 gistieiningar, rými fyrir 280 næturgesti og jafnvel fleiri. Einingarnar á hótelinu eru nokkrar og þar getur verið um að ræða lítil tveggja manna herbergi, aðstöðu í litlum parhúsum eða lúx- ussvítur sem eru sjálfstæð hús. Sitja úti með teppi „Við vitum að á Íslandi er ekki alltaf hægt að sitja úti og því höfum við rými þar sem hægt er að sitja úti í skjóli og með teppi. Einnig ætlum við að reisa tjald og koma fyrir skjá þar sem hægt verður að fylgjast með landsmótinu í beinni,“ sagði Her- mann. Afþreying verður í fyrirrúmi á hótelinu. „Við viljum að fólk geti notið þess að vera á hótelinu og sé ekki eingöngu hér rétt til að sofa,“ sagði Hreiðar. Hótelið verður klárt fyrir landsmót Morgunblaðið/Eggert Feðgar Hermann Hreiðarsson og Hreiðar Hermannsson voru á fullu við að leggja lokahönd á frágang hótelsins og undu sér vel í atganginum.  Unnið af krafti við lokafrágang á Hótel Stracta á Hellu  Landsmótið í beinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.