Morgunblaðið - 27.06.2014, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2014
Gylfaflöt 7, Grafarvogi | Sími 587 8700 | www.krumma.is
Verð
15.900 kr
.
Hjól fyrir börn
tveggja ára og eldri
Ljósmynd/Óli Haukur/Ozzo Photography.
Með hafið að baki Þetta er myndin af þeim Braga og Andra sem prýðir nýja diskinn þeirra.
unglingastarfi, því það er svo þrosk-
andi að spila á hljóðfæri.“
Óli Hólm er gull af manni
Þegar Bragi er spurður að því
hvers vegna þeir völdu sér nikkuna
sem hljóðfæri segir hann það hafa
komið til af því að afi þeirra heitinn,
Einar Baldvin Ragnarsson, hafi
haft mikið dálæti á harmon-
ikkutónlist. „Þegar við vorum litlir
strákar fengum við oft lánaðar plöt-
ur með harmonikkutónlist hjá
ömmu og afa, fórum með þær heim
og spiluðum þær vel og lengi. Við
settum okkur mjög ungir það mark-
mið að læra að spila á þetta hljóð-
færi og stóðum við það.“ Þeir harm-
onikkubræður gáfu út sinn fyrsta
disk um jólin 2012 sem innihélt jóla-
lög. Nú hafa þeir gefið út annan
disk sem er eingöngu með lögum
hljómsveitarinnar Nýdanskrar.
„Þetta kom þannig til að við hit-
uðum upp fyrri Nýdanska á tón-
leikum þeirra í Hörpu síðastliðið
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
V
ið erum úti á sjó núna
bræðurnir, erum á
Hvanney, sem er snur-
voðarbátur, yfir sumar-
tímann, veiðum þá
meðal annars skarkola, ýsu, stein-
bít, þorsk og langlúru. En við förum
á net í haust og þannig verður það
fram á vorið, þá veiðum við aðallega
þorsk en líka ufsa,“ segir Bragi
Fannar Þorsteinsson og bætir við
að pabbi þeirra tvíburabræðra, hans
og Andra Snæs, sé skipstjóri á
Hvanney sem gerir út frá Höfn í
Hornafirði. Þeir bræður eru 22 ára
en engir nýgræðingar í sjómennsk-
unni, þeir byrjuðu að stunda sjóinn
fimmtán ára. „Við fórum alltaf á sjó
á sumrin en vorum auðvitað í skóla
á veturna. Síðan fluttum við suður
til Reykjavíkur fyrir fjórum árum
til að mennta okkur enn frekar. Við
útskrifuðumst úr Stýrimannaskól-
anum núna í vor, erum orðnir lög-
giltir skipherrar. Þá höfum við rétt-
indi til að vera skipstjórar á
varðskipum,“ segir Bragi og bætir
við að þeir hafi einnig farmannsleyfi
á fraktara og réttindi sem fiski-
menn á öllum stærðum af fiskiskip-
um.
Kannski skipherra á
skemmtiferðaskipi
Þeir Bragi og Andri hafa snúð
aftur heim, eru fluttir úr borginni
til heimabyggðarinnar austur á
Höfn. „En framtíðin er óráðin hjá
okkur bræðrum, hvar við munum
búa og starfa í framtíðinni. Það eru
margir möguleikar í stöðunni, nám-
ið okkar býður líka upp á starf í út-
löndum, einn af draumunum er að
vera skipherra á skemmtiferðaskipi.
Þetta kemur allt í ljós. Mér finnst
alltaf best að búa þar sem ég bý
hverju sinni, ég er þannig maður,
og mér leið mjög vel í Reykjavík.“
Þeir Bragi og Andri eru gjarn-
an kallaðir harmonikkubræðurnir,
enda eru þeir listaflinkir að þenja
dragspilið. „Nikkurnar hafa alltaf
fylgt okkur. Við vorum bara smá-
strákar þegar við byrjuðum að læra
að spila, vorum níu ára þegar við
fórum í tónlistarskóla Austur-
Skaftafellssýslu. En þegar við flutt-
um í bæinn fórum við að spila sam-
an upp á eigin spýtur og það var
mjög gott fyrir okkur, til að þroska
okkur og þróa, og finna sjálfstæðið í
spilamennskunni,“ segir Bragi og
bætir við að þeir grípi líka stundum
í píanó. Áður fyrr var harmonikku-
félag á Höfn sem var lagt niður, nú
er lag fyrir þá bræður að endur-
vekja það og kenna æskunni á
harmonikku. „Það væri virkilega
gaman að vera í slíku barna- og
Gott er að
eiga góðan
vin í bróður
Þeir ganga undir nafninu harmonikkubræðurnir, tví-
burabræðurnir Bragi Fannar og Andri Snær Þor-
steinssynir. Nýlega gáfu þeir út sinn annan disk og er
hann fullur af lögum hljómsveitarinnar Nýdanskrar.
Bræðurnir sækja sjóinn enda fæddust þeir og ólust
upp á Höfn í Hornafirði. Þeir ætla að stíga á svið með
nikkurnar á Humarhátíðinni á Höfn um helgina og
gleðja sig sjálfa og aðra.
Innlifun Bræðurnir spila hér ungir að árum og vanda sig greinilega.
Mikið verður um dýrðir í menningar-
miðstöð Fljótsdalshéraðs í Slátur-
húsinu á Egilsstöðum um helgina. Í
kvöld kl. 20 verður „Musical Jugg-
ling“ sem er dagskrá með sirkus-
listamönnunum Jay Gilligan og Kyle
Driggs. Þeir eru bandarískir og
heimsfrægir fyrir „juggl“, en þá
kasta menn hringjum á loft og milli
sín. Þeir eru einnig tónlistarmenn og
semja sjálfir tónlistina fyrir sýningar
sínar. Sýningin sem gleður augað.
Frítt fyrir 17 ára og yngri.
Á morgun laugardag hefst kl. 17
Jazzhátíð Egilsstaða (JEA). Venju
samkvæmt verður blandað saman
djass- og blústónlist. Fram koma
hljómsveitin Kaleo, KK Band og
djasshljómsveitin AT Nordic Quartet
en hana skipa Íslendingarnir Andrés
Þór og Einar Valur Scheving, Norð-
maðurinn Anders Lonne Gronseth og
Daninn Andreas Dreier. Einnig spilar
hljómsveitin Dútler tríó sem leikur
fjölbreytta tónlist allt frá Jeff Beck
og Jaco Pastorius yfir í Stevie Won-
der og Jimi Hendrix. Nýstofnuð
hljómsveit að austan, Georgy&Coer,
ætlar að flytja splunkunýtt frum-
samið efni í bland við tökulög.
Umhverfi Frystiklefans gefur
áheyrendum færi á að hlusta á og sjá
tónlistarmennina í miklu návígi og
óhætt að lofa góðri stemningu.
Nánar á: jea.is og slaturhusid.is.
Forsala miða á midi.is.
Margt í boði á Jazzhátíð Egilsstaða í Sláturhúsinu
Kaleo, „juggl“ og fleira flott
Listamenn Jay Gilligan og Kyle Driggs verða með „Musical Juggling“.