Morgunblaðið - 27.06.2014, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2014
„Hérna geta börnin komið og leikið sér á afgirtu
svæði en þetta er enginn formlegur gæsluvöllur,
hérna eru allir á eigin ábyrgð,“ segir Róbert Ótt-
arsson, bakari og eigandi Sauðárkróksbakarís, sem
hefur sett upp leiktæki á útisvæði við bakaríið.
Frekari endurbætur standa fyrir dyrum á svæð-
inu, sem hlotið hefur nafnið Bakarastéttin, en þar
hafa viðskiptavinir bakarísins getað sest niður og
fengið sér kaffisopa og með því. Hyggst Róbert m.a.
setja upp veglegt upplýsingaskilti þar sem sögu
bakarísins verða gerð skil í máli og myndum en það
er með elstu bakaríum landsins. Brauðgerð á
Sauðárkróki hófst árið 1880 en á undanförnum 100
árum hafa eigendur bakarísins verið fjórir – alltaf á
sömu kennitölu.
Hugmyndin að leiksvæðinu er komin frá eigin-
konu Róberts, Selmu Barðdal Reynisdóttur kenn-
ara, en bakarinn tók sér síðan hamar og pensil í
hönd með aðstoð Ólafs Þorbergssonar smiðs. Selma
segir svona aðstöðu hafa vantað fyrir fjölskyldufólk
sem hefur viljað setjast úti í góða veðrinu og fá sér
kaffi.
„Núna geta börnin farið í leiktækin og verið í
sjón- og kallfæri við þá sem sitja utan við bakaríið,“
segir Selma en skjólsælt er sunnan við konditorí
bakarísins þar sem borð og stólar eru til staðar.
Þau Róbert lögðu allt kapp á að klára leiksvæðið
fyrir Lummudaga, bæjarhátíðina sem hófst á Sauð-
árkróki í gærkvöldi og stendur um helgina. Þar
verður margt á dagskrá, m.a. götumarkaður í Aðal-
götu á morgun, götugrill bæði í kvöld og annað
kvöld, knattspyrnumót, loftboltamót, sundpartí og
dansleikir. Líkt og á mörgum öðrum bæjarhátíðum
hefur hvert hverfi sinn einkennislit og keppast íbú-
ar við að skreyta húsakynni sín með margvíslegum
hætti. bjb@mbl.is
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Leiksvæði Róbert Óttarsson bakari og Selma Barðdal Reynisdóttir, eiginkona hans, á leiksvæðinu sem hefur
verið tekið í notkun við Bakarastéttina, útisvæði Sauðárkróksbakarís. Þar verða gerðar fleiri endurbætur.
Leikið við bakaríið
Afgirt leiksvæði við Sauðárkróksbakarí Tekið í
notkun á Lummudögum Með elstu bakaríum landsins
Kærunefnd húsamála úrskurðaði
nýlega að ekki væri hægt að rifta
húsaleigusamningi á þeirri forsendu
að leigjandi héldi kött í íbúðinni.
Málsvextir eru að leigusali rifti
leigusamningi á þeim grundvelli að
leigjandinn hefði hvorki látið sig vita
af kettinum né aflað samþykkis íbúa
í fjöleigninni.
Kvartað yfir kettinum
Í greinargerð leigusalans kom
fram að íbúar á jarðhæð hússins
hefðu kvartað yfir kettinum. Var því
haldið fram að kötturinn færi inn um
opna glugga og gerði þarfir sínar í
sandkassa á palli íbúðar á jarðhæð.
Leigjandinn hélt því fram að hann
hefði aldrei verið upplýstur um bann
við gæludýrahaldi í fjöleigninni og
ekkert kæmi fram um bannið í leigu-
samningnum.
Niðurstaða kærunefndarinnar var
sú að leigusalanum var ekki heimilt
að rifta leigusamningnum vegna
kattarhaldsins. Leiguíbúðin var með
sérinngang og taldi kærunefndin því
ekki þörf á samþykki annarra eig-
enda hússins fyrir kattahaldinu. Þá
hefði leigjandinn ekki vanrækt
skyldur sínar að öðru leyti og því
væru skilyrði til riftunar leigusamn-
ingi ekki uppfyllt.
isb@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Fjölbýli Stundum rekast mismun-
andi hagsmunir á í fjölbýlishúsum.
Vildi rifta
vegna
kattarins
Mátti ekki rifta
leigusamningnum
Biskup Íslands
hefur ákveðið að
skipa séra Svein
Valgeirsson í
embætti prests í
Dómkirkju-
prestakalli í
Reykjavíkur-
prófastsdæmi
vestra.
Frestur til að
sækja um emb-
ættið rann út 30. maí sl. og voru tíu
umsækjendur um embættið, sjö
prestar og þrír guðfræðingar.
Embættið veitist frá 1. september.
Sveinn hefur verið prestur í Eyr-
arbakkaprestakalli. Það saman-
stendur af Eyrarbakka-, Stokks-
eyrar- og Gaulverjabæjarsóknum.
Sveinn tók tímabundið við starfi
prests við Dómkirkjuna haustið
2012 og þjónaði þar í eitt ár.
gudni@mbl.is
Séra Sveinn skip-
aður í Dómkirkju-
prestakalli
Séra Sveinn
Valgeirsson
Pokasjóður lagði
25 milljónir
króna til kaupa
á DaVinci að-
gerðarþjarka
fyrir Landspít-
ala. Hafa þar
með safnast alls
110 milljónir og
eru kaupin því
komin í höfn en
samkomulag var
á milli Söfnunarsjóðs um aðgerð-
arþjarka og Landspítala að sjóð-
urinn fjármagnaði allt að helmingi
kaupverðs þjarkans. Landspítali
sér svo um að fjármagna hinn
helminginn. Áætlað er að bún-
aðurinn verði tekinn í notkun í
vetur.
Í gær staðfesti Kristján Þór Júl-
íusson heilbrigðisráðherra, ásamt
Páli Matthíassyni, forstjóra Land-
spítala og Brynjólfi Bjarnasyni,
formanni stjórnar Söfnunarsjóðs-
ins, samkomulag um fjármögnun
þjarkans. Búnaðurinn nýtist til
margvíslegra skurðaðgerða, sér-
staklega við þvagfæraskurðlækn-
ingar sem og aðgerðir á grind-
arholslíffærum kvenna.
Kaup á aðgerðar-
þjarka tryggð
Samkomulag ríkir
um fjármögnun.
Sauðfjársetur á Ströndum heldur
sína árlegu Furðuleika sunnudag-
inn 29. júní og hefjast þeir kl.
13:00. Leikarnir fara fram á Sæ-
vangsvelli við Steingrímsfjörð og
eru lokapunkturinn á bæjarhátíð-
inni Hamingjudögum á Hólmavík.
„Keppt verður í íþróttagreinum
sem eiga það sameiginlegt að
vera afbragðs skemmtun og hafa
ekki hlotið viðurkenningu al-
þjóðaólympíunefndarinnar,“ segir
m.a. í tilkynningu. Meðal þess sem
fólk getur prófað á Furðuleikum
er t.d. öskurkeppni, kvennahlaup,
þar sem karlarnir hlaupa með
konur sínar á bakinu, ruslatínsla,
girðingastaurakast, farsímakast
og fleira. Þá má einnig nefna sýn-
ingargreinina trjónufótbolta sem
hefur notið gífurlegra vinsælda
undanfarin ár, segir í tilkynning-
unni.
Furðuleikar Trjónufótboltinn hefur notið
gífurlegra vinsælda undanfarin ár.
Keppt í furðugrein-
um á Ströndum
Veiðidagur fjöl-
skyldunnar verð-
ur haldinn næst-
komandi sunnu-
dag, 29. júní. Þá
gefst lands-
mönnum kostur
á að veiða án
endurgjalds í
fjölmörgum
vötnum víðsvegar um landið.
Landssamband stangveiðifélaga
hefur staðið fyrir Veiðidegi fjöl-
skyldunnar í á þriðja áratug ásamt
veiðiréttareigendum.
Hugmyndin á bak við daginn er
að kynna stangveiði sem fjöl-
skylduíþrótt. Í ár verður 31 vatn í
boði á veiðideginum. Vötnin má
finna á www.landssambandid.is.
Veiða má frítt í 31
vatni um land allt
Í dag, 27. júní, er alþjóðlegur bar-
áttudagur fólks með samþætta
sjón- og heyrnarskerðingu. Fjóla,
sem áður hét Daufblindrafélag Ís-
lands, stendur fyrir dagskrá í til-
efni dagsins í húsi Blindrafélagsins,
Hamrahlíð 17. Klukkan 13 hefst
sýning á helstu hjálpartækjum sem
nýtast fólki sem bæði sér og heyrir
illa. Kl. 15 verða stuttir fyrirlestrar
um hvað fólki með samþætta sjón-
og heyrnarskerðingu stendur til
boða hjá ríki og sveitarfélögum.
Allir eru velkomnir á dagskrána.
Fjóla með dagskrá
STUTT