Morgunblaðið - 27.06.2014, Síða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2014
SVO ÞÆGILEGIR
AÐ ÞÚ GETUR
GENGIÐ
ENDALAUST.
HVER ÆTLI SÉ
SÁTTUR VIÐ
ÞAÐ.
Þú færð GO walk skó í
Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni og
Smáralind | Intersport, Reykjavík | Dion, Glæsibæ | Skóhöllinni Firði,
Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi | Blómsturvellir, Hellisandi |
Heimahornið, Stykkishólmi | Hafnarbúðin, Ísafirði | Skóhúsið, Akureyri
| Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum | Lónið, Höfn í
Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum | Palóma,
Grindavík | Skóbúðin, Keflavík
4Viðhaldsfrítt yfirborð
4Dregur ekkert í sig
4Mjög slitsterkt
48, 12, 20 & 30mm þykkt
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
UTANHÚSKLÆÐNING ® BORÐPLÖTUR ® SÓLBEKKIR ® GÓLFEFNI
þolir 800°C hita og er frostþolið
Nýtt efni frá
BORÐPLÖTUR
Renndu við og skoðaðu úrvalið
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Katrín Ólafsdóttir, lektor í hagfræði
við Háskólann í Reykjavík, segir að
vandi lífeyriskerfisins liggi hjá op-
inbera lífeyriskerfinu. Sá vandi verði
greiddur með skattfé enda séu
greiðslur úr sjóð-
unum til lífeyris-
þega tryggðar.
Aðspurð hvort til-
mæli forstjóra
FME um að
hækka lífeyris-
aldur til að draga
úr halla í lífeyris-
kerfinu endur-
spegli hvernig
umhorfs sé í kerf-
inu sem heild segir hún svo ekki
vera. „En það má velta því fyrir sér
hvort lífeyrisgreiðslur þykja nægi-
legar. Eftir því sem fólk fer síðar á
lífeyri verður til meiri peningur til að
greiða út,“ segir hún.
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri
FME, benti á tvær leiðir til að draga
úr halla í lífeyriskerfinu á blaða-
mannafundi um stöðu lífeyrissjóða á
þriðjudaginn. Annars vegar hækka
iðgjöld og hins vegar hækka eftir-
launaaldur. Hallinn í opinbera kerf-
inu er um 490 milljarðar en um 68
milljarðar í almenna kerfinu.
Kerfin ólík
Katrín segir að lífeyriskerfin séu
mjög ólík. Lífeyrisþegar hjá hinu op-
inbera hafi áunnið sér mun meiri
réttindi en greitt sé í sjóðinn. Þannig
sé því ekki farið hjá almenna trygg-
ingakerfinu. Ef peningar eru ekki
fyrir hendi verður að draga úr lífeyr-
isréttindum.
Heildartryggingafræðileg staða
lífeyrissjóða segir til um það hvort
núverandi eignir standi undir því
sem þegar er búið að lofa í formi líf-
eyris og hvort framtíðariðgjöld muni
standa undir framtíðarlífeyri.
Fram kom á blaðamannafundin-
um að heildartryggingafræðileg
staða lífeyrissjóða sem störfuðu án
ábyrgðar hins opinbera hefði í árslok
2013 verið að meðaltali góð. Hallinn
hefði að vegnu meðaltali verið 2%
eða 68 milljarðar og batnað verulega
frá bankahruni.
Þennan halla má að einhverju leyti
rekja til bankahrunsins 2008, segir
Katrín.
Aðspurð hvort sá halli sé ásætt-
anlegur segir Katrín svo vera, þótt
vissulega væri betra að vera réttum
megin við núllið. Fari hlutfallið langt
niður fyrir núll þurfi að grípa til að-
gerða.
Heildartryggingafræðileg staða
lífeyrissjóða sem eru með ábyrgð
ríkis og sveitarfélaga er hins vegar
neikvæð um 38% og nemur hallinn
596 milljörðum króna.
Vinna þarf bug á vandanum
Katrín bendir á að jafnvel þótt
fjármuni vanti í opinberu lífeyris-
sjóðina muni greiðslur ekki verða
skertar, líkt og hjá almennu lífeyr-
issjóðunum, væru þeir í sömu spor-
um. „Það þarf að vinna bug á þessum
vanda,“ segir hún.
Ef litið er á áfallna trygginga-
fræðilega stöðu sjóða með ábyrgð
laungreiðenda árið 2013 sést að hall-
inn er 490 milljarðar og hlutfallið
-47%, samkvæmt gögnum FME. B-
deild Lífeyrissjóðs starfsmanna rík-
isins stendur þeirra verst; hallinn er
379 milljarðar eða -64%.
Unnur sagði að það myndi taka
sjóðinn 15-20 ár að brenna það fé
sem í honum er. „Það er ekki handan
við hornið,“ sagði hún. Fram kom á
fundinum að svo sjóðurinn tæmdist
ekki þyrfti að bæta árlega tíu millj-
örðum í hann frá og með árinu í ár.
Vandinn er hjá opin-
berum lífeyrissjóðum
Tveggja prósenta halli á almennum sjóðum sagður viðunandi
Morgunblaðið/Ernir
Vinnumarkaður Staða lífeyriskerfisins sem almennir launþegar greiða í er
með öðrum hætti en lífeyriskerfisins sem starfar með ábyrgð ríkisins.
490 milljarða halli
» Hallinn í opinbera lífeyris-
kerfinu er um 490 milljarðar
eða 38%.
» Það mun taka 10-15 ár að
brenna það fé sem er í B-deild
Lífeyrissjóðs starfsmanna rík-
isins, sem stendur þeirra verst.
» Hallinn í almenna lífeyris-
kerfinu er um 68 milljarðar eða
2%.
Katrín Ólafsdóttir
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Framtakssjóður Íslands (FSÍ)
hyggst vera áfram áhrifafjárfestir í
upplýsingatæknifyrirtækinu Adv-
ania eftir tveggja milljarða króna
hlutafjáraukningu í tengslum við
kaup AdvInvest, sem er í eigu
sænskra fjárfesta í upplýsingatækni,
á 51% hlut í félaginu. Sjóðurinn á nú
71% í Advania.
Hafliði Helgason, upplýsinga-
fulltrúi FSÍ, segir í samtali við
Morgunblaðið að sjóðurinn horfi til
þess að vera áhrifafjárfestir í fé-
lögum sem hann eigi í. Viðmiðið sé að
fara ekki mikið undir 20% og það
markmið hafi náðst með ágætum í
þessum samningi.
Tilkynnt var í gær að stjórn Adv-
ania hefði boðað til hluthafafundar
þar sem tekin verður fyrir tillaga
stjórnar um að auka hlutafé um tvo
milljarða króna og að AdvInvest
muni ganga í hluthafahópinn.
ViðskiptaMogginn greindi frá því
fyrr í mánuðinum að umtalsverð
hlutafjáraukning væri í pípunum hjá
Advania. Á síðustu tveimur árum
hefur verið meira en tveggja millj-
arða króna tap á rekstri fyrirtæk-
isins en í árslok 2013 nam eiginfjár-
hlutfall þess aðeins um 10%.
Hlutafjáraukningin verður nýtt til
þess að greiða niður skuldir félags-
ins við lánastofnanir og þar með
auka eiginfjárhlutfall þess í 22,5%,
segir í tilkynningu.
Framtakssjóðurinn hefur fram-
selt forkaupsrétt sinn að nýju
hlutafé til AdvInvest. Hann hefur
janframt skuldbundið sig til að selja
AdvInvest hluta af núverandi eign
sinni til að tryggja þeim 51% eign-
arhlut í félaginu. AdvInvest býður
öðrum hluthöfum félagsins, sem eru
liðlega 40, að ganga inn í viðskiptin á
sömu kjörum og FSÍ.
FSÍ áfram með
áhrif í Advania
Svíar kaupa
meirihluta og
hlutafé aukið
Morgunblaðið/Ómar
Hlutafjáraukning Eiginfjárhlutfall
verður aukið í 23% úr um 10%.