Morgunblaðið - 27.06.2014, Page 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2014
4ra rétta seðill og
nýr A la Carte í P
erlunni
Perlan • Sími 562 0200 • Fax 56
2 0207 • perlan@perlan.is • ww
w.perlan.is
Gjafabréf
Perlunnar
Góð gjöf við öll
tækifæri
Sumar
Klukkan á þinghúsi Bólivíu, í höfuð-
borginni La Paz, snýr nú öfugt. Vís-
arnir snúast rangsælis og tölurnar
eru einnig rangsælis. Utanríkis-
ráðherra Bólivíu, David Choquehu-
anca, kallar nýju klukkuna „klukku
suðursins.“ Segir
hann að breyt-
ingin sé til þess
gerð að fá Bólivíu-
menn til að fagna
uppruna sínum.
Þá vill hann sýna
landsmönnum
sínum að það sé í
lagi að draga al-
menn viðmið í efa
og hugsa á skap-
andi vegu. „Hver
segir að klukkan þurfi sífellt að ganga
í sömu áttina? Afhverju þurfum við
alltaf að hlýða? Getum við ekki verið
skapandi?“ spurði Choquehuanca á
blaðamannafundi.
„Við þurfum ekki að flækja málin,
en við þurfum að vera meðvituð um
að við búum í suðrinu, ekki norðrinu,“
bætti hann við. Þá sagði hann að er-
lendir erindrekar á G77 fundinum,
sem nýlega var haldinn í landinu,
hefðu allir fengið að gjöf klukku sem
gengi rangsælis.
Á valdatíma núverandi forseta,
Evo Morales, hefur Bólivía lagst í
viðamiklar aðgerðir til að menning
innfæddra verði höfð í hávegum. Til
að mynda hafa yfirvöld tekið í gagnið
nýjan fána innfæddra sem er nú
flaggað við hlið þjóðfána landsins.
Klukka suð-
ursins geng-
ur rangsælis
Bólivía breytir
gangi klukkunnar
Þinghúsklukkan
í La Paz, Bólivíu
Nærri 400 manns hafa látist í Ebólu-
faraldri í Vestur-Afríku. Útbreiðsla
sjúkdómsins hófst í Gíneu fyrir fjór-
um mánuðum en hann hefur síðan
breiðst út til nágrannaríkjanna
Síerra Leóne og Líberíu. Heimildir
herma að fjölgun tilfella eigi sér ein-
hverja skýringu í því að sumir af
þeim sem sýkjast neiti að fara til
læknis og vilji heldur notast við and-
legar lækningar.
Níutíu prósent af þeim sem sýkj-
ast af sjúkdómnum deyja af völdum
hans. Engin lækning er til við hon-
um. Þá hefur enn ekki tekist að
framleiða bóluefni sem komið getur í
veg fyrir smit. Ebóla er því einn af
skæðustu sjúkdómum veraldar.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
sagði í tilkynningu í gær að ástandið
væri alvarlegt og hætta væri á al-
þjóðlegri útbreiðslu. Veirunnar hef-
ur aldrei orðið vart utan Afríku síð-
an hún kom fyrst fram á sjónarsviðið
árið 1976.
Ebóla gýs
upp í Afríku
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Nouri al-Maliki, forsætisráðherra
Íraks, staðfesti í viðtali við BBC í
gær að sýrlenskar orrustuþotur
hefðu sprengt stöðvar uppreisnar-
manna nálægt landamærabænum
Qaim á þriðjudaginn. Hann sagði að
ríkisstjórn sín hefði ekki beðið um
árásina en bætti við að allar árásir á
uppreisnarmenn væru kærkomnar.
Þá sagði Maliki að hægt hefði ver-
ið að koma í veg fyrir aukin yfirráð
uppreisnarmanna ef bandarískar
herþotur hefðu komið fyrr til lands-
ins. Eftir árásir undanfarin misseri
keypti Írak tugi herþotna af Banda-
ríkjunum en Maliki sagði kaupin
hafa gengið hægt fyrir sig.
„Satt að segja hefðum við átt að
kaupa þotur frá öðrum löndum, svo
sem frá Bretlandi, Frakklandi eða
Rússlandi. Ef við hefðum haft stuðn-
ing úr lofti þá hefði verið hægt að
koma í veg fyrir það sem hefur nú
gerst,“ sagði Maliki. Þá sagði hann
að stjórnvöld væru nú í viðræðum
við Rússa um kaup á herþotum og að
þær myndu koma til landsins innan
þriggja daga. „Með hjálp Guðs þá
munu þoturnar verða til að hrekja
hryðjuverkamennina úr fylgsnum
sínum,“ sagði Maliki.
Sameiginlegur óvinur
Árásir sýrlenska flughersins sýna
hvernig átökin í Írak og Sýrlandi eru
að sameinast, þar sem ISIS-
samtökin eru sameiginlegur óvinur.
Hópar manna sem eitt sinn stríddu,
hafa nú sameinast undir merkjum
ISIS-samtakanna og því þurfa ríkis-
stjórnir landanna að starfa saman til
að vinna bug á uppreisninni. Brátt
gætu fjarstýrð árásarflygildi frá
Bandaríkjunum látið að sér kveða í
baráttunni gegn ISIS. Undirstrikar
það enn frekar þá miklu ógn sem
þykir stafa af samtökunum.
Stjórnvöld í Íran eru einnig
áhyggjufull um ástandið sem ríkir í
nágrannaríkinu og hafa nú eflt
gæslu við landamæri ríkjanna.
Bandarísk yfirvöld hafa lagt mikla
áherslu á að uppreisnin verði aðeins
sigruð af herliði Íraks, en ekki ann-
arra þjóða. Ekki er mikill stuðn-
ingur á meðal almennings í Banda-
ríkjunum við enn annað stríði.
Maliki óhæfur
Maliki forsætisráðherra stefnir nú
að nýjum stjórnarmeirihluta fyrir
lok júní til að vera betur í stakk bú-
inn fyrir komandi átök. Stjórnvöld
Bandaríkjanna vilja þó að meirihlut-
inn verði myndaður sem fyrst, til að
koma í veg fyrir frekari óstöðug-
leika.
Fjölmargir óttast að Írak muni
liðast í þrennt í kjölfar átakanna sem
nú standa yfir. Maliki hefur mætt
mikilli gagnrýni í heimalandinu frá
andstæðingum sínum, sem segja
hann óhæfan til að sameina fólkið í
landinu og tryggja jafnvægi.
Bandarísk yfirvöld eru líklega
sammála þessum fullyrðingum að
einhverju leyti, og talsmenn þeirra
hafa sagt að Írak þurfi róttækar
breytingar á sinni pólitísku stefnu.
Þau hafa þó ekki enn kallað eftir
nýjum leiðtoga og halda áfram opin-
berum stuðningi við Maliki.
Sýrland kemur til aðstoðar
Sýrlenski flugherinn gerði árás á uppreisnarmenn við landamæri Íraks
Stjórnvöld í Írak kaupa tugi orrustuþotna frá Bandaríkjunum og Rússlandi
AFP
Undir þrýstingi Maliki glímir við
mikla uppreisn í landi sínu.
Stuðningsmenn fylgjast með leik Portúgals og
Gana á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í
gær. Þegar litið var af leiknum mátti næstum sjá
alla heimsins liti prýða áhorfendastúkur vall-
arins. Leikurinn fór fram í höfuðborg Brasilíu,
sem er samnefnd landinu. Borgin er á heims-
minjaskrá UNESCO vegna einstaks arkitektúrs
sökum þess að hún var byggð á 41 mánuði á ár-
unum 1956 til 1960.
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu í algleymingi
AFP
Litríkir stuðningsmenn liða á HM