Morgunblaðið - 27.06.2014, Page 21

Morgunblaðið - 27.06.2014, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2014 Skúli Halldórsson sh@mbl.is John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti í gær rúss- nesk stjórnvöld til að sýna fram á að þau væru í raun að vinna að afvopn- un uppreisnarmanna í Austur-Úkra- ínu. „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir Rússa að sýna að þeir séu að af- vopna skæruliðana og vilji þannig taka þátt í pólitísku samstarfi,“ sagði Kerry við blaðamenn. Yfirvöld í Rússlandi neita að hafa látið aðskilnaðarsinnum í té vopn yf- ir landamæri ríkjanna. Bandaríkin og Evrópusambandið hafa hótað frekari aðgerðum gegn Rússlandi ef stjórnvöld þar í landi bregðast ekki fljótt við ástandinu og hjálpa úkra- ínskum stjórnvöldum. Vopnahlé hefur ríkt á svæðinu í nokkurn tíma en því á að ljúka í dag. Þrátt fyrir það skutu aðskilnaðar- sinnar niður þyrlu á þriðjudaginn var og árásin olli níu dauðsföllum. Þá hafa þeir ásakað ríkisstjórnina um að halda ekki vopnahléið í heiðri. Segja þeir að úkraínskt herlið hafi gert sprengjuárásir á þorp þeirra meðan á því stóð. Viðræður um áframhaldandi vopnahlé munu halda áfram í dag. Viðskiptasamningur við ESB Vladimír Pútín Rússlandsforseti átti í löngum samræðum við leiðtoga Úkraínu, Þýskalands og Frakklands á miðvikudaginn. Þá fundaði hann með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, í fyrradag, um bága stöðu almennings í Austur-Úkraínu og sagði Pútín eftir fundinn að flótta- mönnum færi fjölgandi Rússlands- megin við landamærin. Þau ræddu einnig um að framlenging á vopna- hléi væri nauðsynleg. Í dag er áætlað að forseti Úkraínu, Petro Porosénkó, muni fara til Brussel og skrifa þar undir víðtækan viðskiptasamning við ESB. Atvinnu- rekendur í Úkraínu binda miklar vonir við samninginn við ESB og vonast til að hann muni opna nýja markaði fyrir þeim. Aðspurður um ástandið í heimalandinu í gær sagði Porosénkó: „Pútín þarf að sýna stuðning við okkur með athöfnum, ekki eintómum orðum.“ Þá sagði hann stuðning Rússa hingað til hafa verið ófullnægjandi. Þúsundir manna eru taldar hafa flúið heimili sín í Austur-Úkraínu og farið yfir landamærin til Rússlands. Uppreisnin í Úkraínu á rætur að rekja til þess þegar Viktor Janúkó- vits ákvað á síðustu stundu, í nóv- ember síðastliðnum, að skrifa ekki undir viðskiptasamning við ESB, þann sama og Porosénkó mun skrifa undir í dag. Eftir nokkurra mánaða mótmæli flúði Janúkóvits landið og var steypt af stóli forseta. Á fimmta hundrað manns hafa látist í átökum á svæðinu síðan í apríl. AFP Aukinn þrýstingur John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir það gríðarlega mikilvægt að Rússar sýni stuðning við yfirvöld Úkraínu. Rússar hafa verið sakaðir um að hjálpa aðskilnaðarsinnum í nágrannaríkinu. Kerry þrýstir á Rússa  Þúsundir manna hafa flúið heimili sín í Austur-Úkraínu  Vopnahléi í landinu mun ljúka í dag að öllu óbreyttu Ástralska ríkisstjórnin kynnti í gær nýjar áætlanir í leitinni að malasísku farþegaþotunni, MH 370. Leitinni verður nú beint suður á bóginn, að svæði sem er um 1800 kílómetra vestan við vesturströnd Ástralíu. Í skýrslu sem ríkisstjórnin gaf út í gær kemur fram að leitarsvæðið muni þekja 60 þúsund ferkílómetra. Tvö skip, eitt kínverskt og eitt ástralskt, vinna nú að því að kort- leggja hafsbotninn á hinu nýja leitar- svæði. Talið er að sú vinna muni ekki taka lengri tíma en ár. Kafbátar munu grandskoða hafsbotninn en nú þegar hefur verið leitað á yfirborði hafsins að braki. Sérfræðingar segja þó að ef brak væri til staðar þá væri það nú sokkið til botns. Líklega á sjálfstýringu Margir mismunandi aðilar, sem vinna hver í sínu lagi, hafa komist að því að þetta svæði sé líklegasti staðurinn til að finna farþegaþotuna. Fremst í flokki fer þó fyrirtækið In- marsat, sem starfrækir stóra gervi- hnattaþjónustu. Miklar líkur eru taldar vera á því að þotan hafi verið á sjálfstýringu þegar hún brotlenti, vegna þess hve bein leið hennar var. Meira en hundrað dagar eru liðnir síðan far- þegaþotan hvarf og ættingjar far- þeganna eru enn fullir óþreyju. Leit- in að þotunni er nú orðin ein sú dýrasta í sögunni. Þá hefur leitin vakið athygli á því hversu lítið er um góð kort af hafsbotnum heimsins. Áhöfnin meðvitundarlaus Við lestur skýrslu ástralskra yfir- valda, sem er 64 blaðsíður, er ljóst að rannsakendur gera ráð fyrir að áhöfn farþegaþotunnar hafi verið meðvitundarlaus meirihluta flugs- ins. Hitt er einnig ljóst að enn er að- eins hægt að geta sér til um orsakir þessa dularfulla hvarfs. Ástralía tilkynnir nýtt leitarsvæði  Farþegaþotan hvarf fyrir meira en hundrað dögum AFP Skimað Ástralskur hermaður leitar að ummerkjum eftir farþegaþotuna. Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þéri i Alvöru blandarar fyrir veitingastaðinn kaffihúsið, ísbúðina & booztbarinn Ýmsir ánægðir viðskiptavinir • World Class & flestir líkamsræktarstaðir íslands • Kaffi Tár & Te & Kaffi • Heilsuhúsið & Lifandi Markaður • Ýmsir veitingastaðir s.s. Vox, Perlan, Ruby Tuesday ofl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.