Morgunblaðið - 27.06.2014, Side 23

Morgunblaðið - 27.06.2014, Side 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2014 Spakur Vökull hundur bíður þolinmóður eftir eiganda sínum sem skrapp í banka í miðborg Reykjavíkur. Eggert Nú eru að verða sex ár liðin frá því Íslend- ingar upplifðu þau skelfilegu boðaföll, sem síðan hafa verið kennd við „hrun“. Alla tíð síðan hefur það verið viðfangsefni þjóðarinnar að fást við alls kyns afleiðingar af þessum óförum. Við tölum þá stundum um „uppgjör við hrunið“. Með því orðalagi er meðal annars vísað til þess að þeir sem kunni að hafa brotið af sér í aðdragandanum eigi að verða dregnir til ábyrgðar. Það liggur í hlutarins eðli að dómstólar landsins gegna lykil- hlutverki í þessum uppgjörs- aðgerðum. Á þeirra fjörur ber sakamál gegn þeim sem taldir eru hafa brotið af sér með refsiverðum hætti. Dómstólar verða líka að leysa úr umfangsmiklum ágrein- ingsmálum um uppgjör fjár- viðskipta sem til var stofnað á „hruntímanum“. Öll gerum við þá afdráttarlausu kröfu að dómstólar vinni ötullega og markvisst að þessum verk- efnum. Við viljum líka, að minnsta kosti þegar við gefum okkur tíma til að hugsa, að við meðferð mál- anna fyrir dómi sé vandlega gætt að því, að þeir sem fyrir sökum eru hafðir, fái að njóta þess réttarör- yggis sem tíðkast í réttarríkjum. Einnig verður að tryggja að dóm- stólarnir fái tilstyrk til að geta dæmt um flókin og tæknileg fjár- málaviðskipti með markvissum hætti. Ég leyfi mér að fullyrða að ís- lenskir dómstólar hafi undanfarin misseri starfað að þessum þýðing- armiklu verkefnum án þess að hafa notið þess fjárhagslega tilstyrks sem er í reynd for- senda þess að vel tak- ist til. Hér verður þjóðin að taka sig verulega á. Það verður að stórauka fjárveit- ingar til dómstóla til þess að gera þeim kleift að vinna þessi verk á þann hátt sem við hljótum öll að vilja. Í þessu skyni þarf að tryggja nægilega mikinn mannafla og svo líka að gera störfin eftir- sóknarverð fyrir hina hæfustu lög- fræðinga, sem hafi yfir kostum að búa sem þarf til að fjalla um málin af hlutlægni og yfirvegun. Mér er ljóst að núverandi innan- ríkisráðherra, Hanna Birna Krist- jánsdóttir, hefur ríkan vilja til að hér verði úr bætt. Ég skora á aðra alþingismenn að leggjast nú á ár- arnar með henni og tryggja dóm- stólum þann fjárhagslega tilstyrk sem þarf til að fást við þessi þýðingarmiklu verkefni. Þennan málaflokk ber að taka út úr og tryggja fjárveitingar til hans þó að aðrar þarfir þurfi ef til vill að sitja á hakanum þar til betur árar. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » Það verður að stórauka fjárveit- ingar til dómstóla til þess að gera þeim kleift að vinna þessi verk á þann hátt sem við hljótum öll að vilja. Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er fyrrverandi hæstaréttardómari. Leggjumst á árar Í blaðagrein sem Heiðar Guðjónsson rit- ar í Morgunblaðið í gær gerir hann athuga- semdir við drátt sem orðið hafi á því að um- boðsmaður Alþingis af- greiði kvörtun sem fé- lag hans Ursus ehf. sendi embættinu í nóv- ember 2010. Vissulega er ástæða til að biðja Heiðar afsökunar á því að athugun umboðsmanns á málinu hefur ekki verið lokið. Ég tel rétt að skýra ástæður þess á þessum vett- vangi. Í upphafi vil ég nefna að frá árinu 2011 hefur embætti umboðsmanns þurft að takast á við mikla fjölgun nýrra kvartana án þess að unnt hafi verið að auka að ráði við fjölda starfs- manna. Þannig fjölgaði kvörtunum milli áranna 2010 og 2011 um 40% og þessi fjölgun hefur ekki gengið til baka. Lögð hefur verið áhersla á að afgreiða þær kvartanir sem hafa bor- ist sem fyrst en það er ljóst að ekki hefur verið unnt að ljúka þeim mál- um sem þarfnast ítarlegri athugunar og úrvinnslu innan þess tíma sem ég hef talið þörf á miðað við hlutverk umboðsmanns. Þá hefur þessi fjölg- un kvartana leitt til þess að embætti umboðsmanns hefur nánast ekkert getað sinnt frumkvæðisathugunum og dráttur hefur orðið á athugunum og afgreiðslum mála þar sem t.d. starfshættir og málsmeðferð á ein- stökum sviðum innan stjórnsýsl- unnar hafa verið til athugunar. Ástæðan er fyrst og fremst sú að slíkar athuganir eru oft margþættar og tímafrekar. Stundum kann að vera rétt að bíða og sjá hver viðbrögð stjórnvalda verða. Fjárveit- ingavaldið hefur ekki talið unnt að verða við óskum um aukna fjármuni til að fjölga starfsfólki svo hægt sé að sinna þess- um þætti að einhverju marki. Efni þess máls sem kvörtun Ursusar ehf. fjallar um hefur í meg- inatriðum verið lýst í grein Heiðars og frétt- um af málinu. Það skal ítrekað að efnislega snýst málið um tvö at- riði sem þó eru tengd. Félag Heiðars var aðili að samkomulagi um kaup á hlut- um í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. en Eignasafn Seðlabanka Íslands ehf. var meðal seljenda. Áður en til endanlegrar undirritunar á kaup- samningi kom hafði seðlabankastjóri lýst því yfir við fyrirsvarsmann Ur- susar ehf. að vegna athugunar sem gjaldeyriseftirlit Seðlabanka Íslands hefði hafið á tiltekinni skuldabréfaút- gáfu Ursusar ehf. og viðskiptum með þau bréf væri ekki unnt að að ganga frá söluferlinu nema að ljóst væri að gjaldeyriseftirlitið teldi ekki tilefni til að kæra ætluð brot. Ég mun ekki á þessum vettvangi fjalla frekar um þessi samskipti aðila eða einstök at- riði þessa þáttar í kvörtuninni en nið- urstaða kaupendahópsins varð síðan að falla frá kaupunum 21. nóvember 2010 eða áður en félagið sendi kvört- un sína til umboðsmanns. Hitt atriðið í kvörtuninni beindist að grundvelli þess að gjaldeyriseft- irlitið hóf áðurnefnda rannsókn á við- skiptum með skuldabréf Ursusar ehf. og þá meðal annars skýrleika þeirra reglna sem Seðlabanki Ís- lands taldi eiga við í málinu sem refsiheimild og þar með grundvelli rannsóknar um meinta refsiverða háttsemi. Einnig var kvartað yfir meðferð Seðlabankans á málinu og samskiptum við Ursus ehf. Það hefur áður komið fram í fréttum að rann- sókn þessa máls af hálfu lögreglu var endanlega hætt með ákvörðun rík- issaksóknara 23. apríl 2012. Á þeim tíma sem mér barst kvört- un Ursusar ehf. í lok nóvember 2010 bárust einnig fleiri ábendingar og kvartanir vegna þeirra reglna sem settar höfðu verið um hin svonefndu gjaldeyrishöft og eftirlit af hálfu Seðlabanka Íslands með þeim. Þessi mál urðu til þess að ég staðnæmdist við tiltekin atriði sem lutu að útgáfu og birtingu þeirra reglna sem Seðla- banki Íslands hafði fengið heimild til að gefa út um þessi mál, að fengnu samþykki ráðherra. Ég hafði þá sér- staklega í huga hvort sú umgjörð sem þessum málum væri búin í lög- um og reglum væri nægjanlegur grundvöllur til rannsóknarathafna stjórnvalda sem byggðar væru á því að um meinta refsiverða háttsemi hefði verið að ræða. Ég átti af þessu tilefni í samskiptum við ráðuneyti og Seðlabanka Íslands og fékk síðan upplýsingar um að fyrirhugað væri að leggja fram frumvarp til breyt- inga á lögum um gjaldeyrismál. Ég taldi því rétt á þeim tíma að bíða um stund með frekari athugun mína á þessum málum, þ.m.t. kvörtun Urs- usar ehf. Umrætt frumvarp var síðan lagt fram á Alþingi og afgreitt þar í maí 2011 sem lög nr. 127/2011. Þrátt fyrir þær breytingar sem gerðar voru á lögunum stóðu enn eftir álita- mál um samþykki og birtingu á áð- urgildandi reglum og hvort þær hefðu að efni til verið fullnægjandi grundvöllur rannsóknar á refsiverðri háttsemi. Þau mál hafa frá þessum tíma m.a. verið til umfjöllunar hjá ákæruvaldi og dómstólum. Með hlið- sjón af því hvernig starfssvið um- boðsmanns er afmarkað hef ég talið rétt að sjá hver yrði framvinda þeirra á þeim vettvangi. Fram hefur komið að ákæruvaldið hefur í nokkr- um tilvikum, svo sem í máli Ursusar ehf., ekki talið að fyrir hendi væri fullnægjandi refsiheimild vegna hinna meintu brota og þar hefur einnig haft áhrif að skort hefur á að samþykki ráðherra lægi fyrir við út- gáfu á tilteknum reglum. Mál af þessum toga var meðal annars til umfjöllunar á vettvangi dómstóla sl. vor. Mér er hins vegar ekki kunnugt um að ákæruvald og dómstólar hafi tekið afstöðu til þess hvaða þýðingu það kunni að hafa um gildi þeirra reglna sem seðlabankinn hefur gefið út og birt ef samþykki ráðherra hef- ur ekki verið birt samhliða í Stjórn- artíðindum. Í samskiptum mínum við fulltrúa Ursusar ehf. hef ég gert þeim grein fyrir að með tilliti til atvika í málinu og lagaumhverfis þess muni endan- leg afgreiðsla mín á málinu öðru fremur snúast um almenn atriði við framkvæmd Seðlabanka Íslands á rannsóknum vegna meintra brota á reglum um gjaldeyrisviðskipti, þótt þar verði m.a. höfð hliðsjón af atvik- um í máli félagsins. Kvörtun þess hefur einnig orðið mér tilefni til þess að beina sjónum mínum að því hvern- ig Seðlabanki Íslands hefur staðið að stofnun einkahlutafélaga til þess að fara með þær eignir sem hann eða ríkið hefur fengið til fullnustu á kröf- um sem það hefur átt á hendur fjár- málafyrirtækjum í kjölfar þeirra um- skipta sem urðu á starfsemi á þeim markaði haustið 2008. Þar reynir m.a. á lagaheimildir til slíks og með- ferð trúnaðarupplýsinga innan seðla- bankans. Ég ítreka að því miður hefur af- greiðsla umboðsmanns Alþingis á kvörtun Ursusar ehf. tekið lengri tíma en ég hefði kosið og hef miðað við í starfi mínu. Ég hef hér að fram- an bæði lýst þeim almennu vand- kvæðum sem verið hafa á því að emb- ætti umboðsmanns Alþingis hafi getað afgreitt þau mál sem embættið fjallar um innan ásættanlegs tíma og einnig hvaða sérstöku ástæður hafa komið til í því máli sem Heiðar Guð- jónsson gerir að umtalsefni í grein sinni. Ástæðan er fyrst og fremst sú að athugun mín á því máli hefur beinst að almennum atriðum í stjórn- sýslu þeirra mála sem um er fjallað í kvörtun félagsins. Ég hef talið rétt, með hliðsjón af því hvernig starfssvið umboðsmanns er afmarkað, að fylgj- ast með úrvinnslu tiltekinna atriða hjá stjórnvöldum og dómstólum áður en ég sendi frá mér afgreiðslu mína á málinu. Þar sem ég hafði hafið athug- un á þessum almennu atriðum og ekki var ljóst hver yrði framvinda hluta þeirra á vettvangi dómstóla þegar ég fór í leyfi frá daglegum störfum kjörins umboðsmanns Al- þingis 15. febrúar sl. tókst ekki að ljúka málinu fyrir þann tíma. Hins vegar var talið rétt að ég ynni áfram að málinu og hafði ég gert ráð fyrir að birta niðurstöðu mína þegar ég kem aftur til starfa 1. júlí nk. að loknu leyfi. Ég tek að síðustu fram að sá tími sem kvörtun Ursusar ehf. hefur verið til meðferðar hjá um- boðsmanni Alþingis heyrir til und- antekninga og skýrist annars vegar af því að í upphafi var talið rétt að bíða eftir endanlegri niðurstöðu stjórnvalda og hins vegar af þeirri al- mennu athugun sem unnið hefur ver- ið að eftir að kvörtunin barst. Eftir Tryggva Gunnarsson » Fjárveitingavaldið hefur ekki talið unnt að verða við óskum um aukna fjármuni til að fjölga starfsfólki svo hægt sé að sinna þessum þætti að einhverju marki. Tryggvi Gunnarsson Höfundur er umboðsmaður Alþingis. Umboðsmaður Alþingis svarar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.