Morgunblaðið - 27.06.2014, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 27.06.2014, Qupperneq 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2014 ✝ RagnheiðurJónsdóttir fæddist 5. maí 1943 á Akureyri. Hún lést á krabbameins- lækningadeild Landspítalans 21. júní 2014. Foreldrar henn- ar voru Jón Péturs- son, f. 3.8. 1915 í Miklagarði í Eyja- firði, d. 28.10. 2000, og kona hans Auður Pálmadóttir, f. 16.1. 1917 í Gull- brekku í Eyjafirði, d. 25.3. 1978. Systkini hennar eru Gunnar, f. 30.5. 1942, Pétur, f. 13.8. 1944, Pálmi Geir, f. 28.3. 1946, Kristinn Örn, f. 14.4. 1950 og Anna Mar- grét, f. 8.2. 1956, d. 18.3. 2004. Eftirlifandi eiginmaður Ragn- heiðar er Erling Aðalsteinsson, f. 27.6. 1938 í Seljateigshjáleigu í Reyðarfirði, klæðskerameistari og kaupmaður. Þau gengu í hjónaband 31.12. 1969. Foreldrar hans voru Sæbjörg Jónasdóttir, f. 29.8. 1915 í Seljateigshjáleigu í Reyðarfirði, d. 30.9. 2007 og Aðalsteinn Bragi Agnarson, f. 13.11. 1915 á Fremstagili í Langa- dal, d. 17.3. 1999. Uppeldisfaðir Erlings var Ingólfur Pétursson, f. 21.12. 1906, í Undirtúni í Eyr- arsveit, d. 9.6. 1985. Börn Ragn- Þórkatla Ragna, f. 30.1. 2002. Barnabörn Adolfs eru Þorgrím- ur, Sigurlaug og Þorbjörg. Ragnheiður lauk Gagnfræða- skólaprófi frá Gagnfræðaskóla Akureyrar og fór eftir það einn vetur í húsmæðraskólann á Laugalandi. Ragnheiður vann við verslunarstörf á Akureyri en hélt svo til Englands og Svíþjóðar og vann þar ýmis störf áður en hún hóf störf sem flugfreyja hjá flug- félaginu Loftleiðum 1967. Árið 1973 fluttu þau Erling til Akur- eyrar og hóf Ragnheiður þá nám í tækniteiknun og útskrifaðist frá Iðnskólanum á Akureyri 1976. Hún vann sem tækniteiknari hjá Slippstöðinni á Akureyri í fjölda ára og síðar sem bankaritari í Landsbankanum á Akureyri og í Reykjavík eftir að þau Erling fluttu aftur til Reykjavíkur árið 2001. Ragnheiður var þátttakandi í ýmiskonar félagsstarfi og sinnti formennsku og öðrum emb- ættum innan þeirra. Hún var fé- lagi í Zontaklúbbi Akureyrar, fé- lagi í Sinawik á Akureyri, félagi í Svölunum og tók virkan þátt í starfi Oddfellow-hreyfingarinnar bæði á Akureyri og í Reykjavík. Útför Ragnheiðar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 27. júní 2014, og hefst athöfnin kl. 13. heiðar og Erlings eru: 1) Björg, f. 15.7. 1970 í Reykja- vík, þjóðfræðingur. 2) Ingimar Örn, f. 17.4. 1974 á Ak- ureyri, flugstjóri, sambýliskona Krist- ín Katrín Guð- mundsdóttir, f. 24.8. 1978, og sonur þeirra Arnar Freyr, f. 18.10. 2010, dóttir Kristínar er Sigur- rós, f. 10.6. 2002. 3) Auður Jóna, f. 29.12. 1978 á Akureyri, flug- freyja og viðskiptafræðingur, sambýlismaður Sigurður Hauk- ur Gestsson, f. 30.8. 1968. Börn Sigurðar eru Tanja Dögg, Sig- urjón Daði, Gestur Breiðfjörð og Styrmir Haukur. Fyrir átti Er- ling börnin: 1) Guðbjörg, f. 10.7. 1958 í Reykjavík, doktor í við- skiptafræði, maki Carl-Henric Nilsson, f. 10.5. 1961. Börn þeirra eru Katla f. 2.5. 1982, Carl, f. 29.4. 1986 og Edda, f. 12.6. 1996. Barnabörn Guð- bjargar eru Folke og Elise. 5) Adolf Ingi, f. 8.9. 1962 í Reykja- vík, íþróttafréttamaður, maki Þórunn Sigurlaug Sigurð- ardóttir, f. 31.1. 1964. Börn þeirra eru: Elva Dröfn, f. 28.8. 1980, Marinó Ingi, f. 6.9. 1996 og Sagt er að enginn viti hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Ég held að áður hafi ég talið mig vita nokk- urn veginn hvað við áttum í henni mömmu. Ástkæra og góða mömmu sem studdi okkur í öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur og einstaka ömmu sem var alltaf til í að leira, lita og föndra og keypti sér ekki ást og virðingu heldur ávann sér hana með ást sinni og alúð. Við öll sem vorum svo heppin að fá að kalla hana mömmu og ömmu fengum mikið í okkar hlut, en það gerir missinn líka mikinn. Það sem ég vissi kannski ekki fyrir, en hef síðan orðið vitni að, er hversu miklum styrk og æðruleysi hún bjó yfir og hvað þau pabbi sýndu marga af þessum kostum í veikindum hennar. Þau virtust frekar eflast við hverja raun, en því miður var nóg af þeim. Ég hef aldrei verið jafn stoltur af foreldr- um mínum og ég er í dag. Mamma skilur eftir sig góða og nána fjölskyldu og stóran hóp vina, en ræktarsemi þessara góðu hópa við foreldra mína verður aldrei fullþökkuð. Hún hafði oft á orði hversu þakklát hún væri fyrir hvað þau ættu góða að og hvað fólk væri duglegt að sinna þeim og kíkja í heimsókn. Mamma kom úr hópi góðra systkina, en varð stundum að láta í minni pokann fyrir kaldhæðni og gríni bræðra sinna. Undir lokin var þó eins og hún væri staðráðin í að veita þeim verðuga keppni, eins og einhver púki væri að brjótast út í henni undir lokin með tilsvör- um og kveðjum til sinna nánustu. Þegar við vættum vangana síð- ast saman sagði hún: „Þú ert alveg eins og Peddi bróðir“ og það var ekkert nema hrós frá henni því hún hélt mikið upp á systkini sín og fjölskyldur þeirra og var stolt af „Oddeyrargötusvipnum“. Við munum syrgja og gráta saman, því mömmu verður sárt saknað. En við skulum líka gleðj- ast og hlæja saman, því við feng- um að njóta hennar og þess sem hún hafði upp á að bjóða, og vera þakklát fyrir það. Ingimar Örn. Við sjáum, að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóstið þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt og svanur á bláan voginn. (Davíð Stefánsson) Elsku mamma mín. Nú skilur leiðir og á kveðjustund er erfitt að hugsa til þess að svo sé og verði. Þú hefur nálgast veikindi þín af yf- irvegun og reisn og þó svo að þú hafir lotið í lægra haldi ertu í mín- um augum sigurvegari. Takk fyrir að vera þú, ljúf og góð, traust og trú og þolinmóð. Ég flyt þér, móðir, þakkir þúsundfaldar, og þjóðin öll má heyra kvæði mitt. Er Íslands mestu mæður verða taldar, þá mun það hljóma fagurt, nafnið þitt. Blessuð sé öll þín barátta og vinna. Blessað sé hús þitt, garður feðra minna, sem geymir lengi gömul spor. Hafðu hjartans þakkir, blessun barna þinna, – og bráðum kemur eilíft vor. (Davíð Stefánsson) Minningin um mikla mann- eskju, góða móður og vin lifir og lýsir okkur. Sofðu rótt mamma mín. Björg. Góða stjúpan. Ég hef aldrei skilið þetta með vondu stjúpuna í ævintýrunum. Ragna kenndi mér að stjúpur eru ekki vondar. Hún var góða stjúpan. Adolf. Elsku mamma mín, ég kveð þig með söknuð í hjarta og þakklæti fyrir lífið sem þú gafst mér og allt það sem þú hefur kennt mér. Sestu hérna hjá mér, systir mín góð. Í kvöld skulum við vera kyrrlát og hljóð. Í kvöld skulum við vera kyrrlát af því, að mamma ætlar að reyna að sofna rökkrinu í. Mamma ætlar að sofna. Mamma er svo þreytt. – Og sumir eiga sorgir, sem svefninn getur eytt. Sumir eiga sorgir, og sumir eiga þrá, sem aðeins í draumheimum uppfyllast má. Í kvöld skulum við vera kyrrlát og hljóð. Mamma ætlar að sofna, systir mín góð. (Davíð Stefánsson) Þetta ljóð fékk ég að láni úr Svörtum fjöðrum sem þú gafst mér og var þér sérstaklega kær. Ég geymi hana fyrir þig þar til við hittumst næst. Þín Auður Jóna. Ég man svo vel eftir því þegar ég hitti Rögnu fyrst fyrir ná- kvæmlega sex árum, í sjötugsaf- mæli Erlings. Ég var að hitta tengdafjölskylduna í fyrsta skipti og var því stressuð eftir því. Ragna kom og faðmaði mig að sér, svo glaðleg og geislandi – sólbrún í ljósum blómakjól. Allt kvöldið var hún að koma til mín og athuga hvernig ég hefði það, hafði svo miklar áhyggjur af því að ég þekkti engan. Mér finnst þetta lýsa Rögnu vel, hún var svo ein- staklega umhyggjusöm. Allt frá þessum fyrstu kynnum okkar fékk ég einstakar móttökur í hvert skipti sem við hittumst. Sama á við um Sigurrós, dóttur mína, henni var tekið opnum örmum eins og hún væri þeirra eigið barnabarn og fyrir það þakka ég með hlýhug. Árið sem Ragna og Erling leyfðu Arnari Frey að vera hjá sér á daginn var okkur og honum ómetanlegt. Arnar Freyr fékk að eyða deginum í endalausri ást og umhyggju hjá ömmu sinni og afa sem alltaf höfðu nóg fyrir stafni fyrir hann. Hann lærði svo margt gott sem hann mun alltaf búa að. Þó samveran með tengdamóð- ur minni hafi ekki verið löng, í ár- um talið, á ég svo margar dásam- legar minningar um þessa góðu konu. Þessar stundir mun ég varð- veita í hjarta mínu og deila þeim til barnabarns hennar um ókomin ár. Hvíl í friði, elsku Ragna mín, og ég skal passa vel upp á strákana þína. Þín Kristín (Stína). Rögnu tengdastjúpu hitti ég fyrst fyrir 36 árum, þegar hún var aðeins 35 ára og ólétt að yngstu mágkonu minni, Auði. Ég dáðist að því hvað hún var glæsileg kona auk þess sem hún var hlý og vin- gjarnleg. Hún átti fallegt heimili í húsinu sem hún ólst upp í og þang- að var gott að koma. Ragna var einstaklega greið- vikin og var alltaf boðin og búin að hjálpa til með hvað sem var. Þegar við Adolf vorum búin að eignast Elvu Dröfn taldi hún ekki eftir sér að sækja hana í hádeginu í vinn- una til mín þegar hún var búin að vinna og vera með hana þar til Adolf var búinn í skólanum. Eftir að við fluttum suður til Reykjavíkur lagði Ragna sig alltaf fram um að vera í góðu sambandi og eftir að þau Erling fluttu síðan varð það samband enn nánara. Börnunum mínum var hún af- skaplega góð amma. Hún gaf sér alltaf tíma til að leika við þau, sinna þeim og fræða og fyrir það er ég afskaplega þakklát. Ragna var því miður ekki heilsuhraust, því auk krabba- meinsins barðist hún árum saman við gigt. En þrátt fyrir það lék allt í höndunum á henni og ég á marga hluti sem hún bjó til og mér þykir vænt um. Hún prjónaði á mig uppáhaldspeysuna mína og síðan aðra eins þegar ég var búin að gatslíta henni, glæsilegan kjól og ekki síst saumaði hún fallegar diskamottur sem eru notaðar nán- ast daglega á okkar heimili. Börn- in fengu skreytta og merkta jóla- sokka og ófá eru handunnu kortin sem við fengum frá henni. Allt þetta á ég til að minna mig á Rögnu, en ég á eftir að sakna hlýjunnar og gæskunnar sem fylgdi henni alltaf. Ég er þakklát fyrir að hafa átt hana sem tengda- stjúpu í öll þessi ár. Þórunn (Systa). Aðfaranótt 21. júní kvaddi kær systir og mágkona, Ragnheiður Jónsdóttir, eftir löng og erfið veik- indi. Ragna var fædd og uppalin á Akureyri, næstelst sex systkina. Hún fór fljótt að vinna og var víð- sýnni en við hin systkinin. Vann bæði hér heima og erlendis, var flugfreyja hjá Loftleiðum auk annarra starfa. Hún var vinsæl bæði í leik og starfi og eignaðist marga vini strax í æsku sem hafa haldið vinskapnum sem kom vel í ljós nú í veikindum hennar. Skáta- gilið var aðalleikvangur hverfisins og hefur hópurinn sem ólst upp á þessum tíma hist nokkrum sinn- um og átti Ragna sinn hlut í að af því hefur orðið. Hún var óskorað- ur leiðtogi okkar systkinanna og þegar þurfti að taka ákvarðanir vegna afmæla eða annarra tilefna var oft viðkvæðið hjá okkur bræðrum hennar þegar við vorum komnir í vandræði: „Hvað segir Ragna systir um þetta?“ Þá var hringt og hún leysti málin. Þannig var hún, lét verkin tala. Hún var listræn og smekkleg og málaði fal- legar myndir og verður að segjast eins og er að margar þær myndir sem hún málaði nú undanfarið eru hrein listaverk og ótrúlegt hvern- ig hún gat gert þetta í sínum veik- indum. Okkur þykir afar vænt um mynd sem hún gaf okkur nú í vor af sumarbústaðnum okkar „Gull- brekku“ sem er einstaklega falleg og vel gerð. Heimili þeirra Rögnu og Erlings ber vott um smekkvísi og listfengi þeirra, falleg verk prýða veggi og kappkostað að fólki líði vel þar innandyra. Þau hjónin gistu oft hjá okkur þegar þau komu til Akureyrar og eigum við margar góðar minningar frá þeim heimsóknum, enda ávallt au- fúsugestir. Síðustu ár hafa verið erfið en mikil viljafesta Rögnu réð ríkjum og var ótrúlegt að fylgjast með henni hvernig hún komst yfir hvert áfallið á fætur öðru sem yfir hana gekk. En þrekið var ekki endalaust og leiðarlokin ekki umflúin. Að lokum viljum við, börnin okkar og fjölskyldur þeirra þakka Rögnu fyrir trygga vináttu og góðvild í okkar garð og biðjum góðan Guð að vaka yfir Erling og fjölskyldunni allri. Kristinn Örn Jónsson, Gísley Þorláksdóttir. Nú er Ragna okkar dáin eftir langa baráttu við illvígan sjúk- dóm, sem hún tókst á við með ein- stöku æðruleysi. Það var mikið happ fyrir Erling bróður minn þegar hann kvæntist Rögnu. Hún reyndist honum góður lífsföru- nautur. Saman sköpuðu þau sam- henta, farsæla fjölskyldu og í lok starfsævinnar gátu þau glöð litið yfir farinn veg. Ragna var fædd og uppalin á Akureyri og þar bjuggu þau Er- ling meðan þau ólu upp sinn barnahóp. Þau bjuggu lengst af á Oddeyrargötunni þar sem Ragna hafði alist upp. Þótt Erling og Ragna væru ólík voru þau ákaf- lega samrýnd. Þannig bjuggu þau sér myndarheimili hvar sem þau settu sig niður og sköpuðu sér saman lífsviðurværi. Þau ferðuð- ust mikið og fóru víða því alls stað- ar áttu þau vini og kunningja sem tóku vel á móti þeim og launuðu þannig fyrir höfðingsskap og greiðvikni sem þau sýndu öllum. Við sem þekktum Rögnu minn- umst afar merkilegrar konu. Ró- semi hennar og yfirvegun var ein- stök og hún var ákaflega hlýleg, glaðlynd og umhyggjusöm. Alltaf var hún tilbúin að hjálpa og veita stuðning. Þess nutum við og börn okkar ríkulega. Þetta er ef til vill dálítið hástemmd lýsing en svona var Ragna og svona munum við minnast hennar. Við sendum Erling og börnun- um samúðarkveðjur. Pétur og Nanna Huld. Dásamleg kona, mágkona mín, Ragnheiður Jónsdóttir, hefur safnast til feðra okkar, langt um aldur fram, eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Ég þekkti Rögnu, mágkonu mína, eiginkonu elsta bróður míns, Erlings, alltaf undir nafninu Ragna, en ég vissi samt að hún hét Ragnheiður. Við kynntumst, þegar ég var kornung stúlka, og hún og Erling að hefja búskap saman á Rauða- læk, hér í Reykjavík. Ég kom með þáverandi kærasta mínum, síðar eiginmanni og nú um langa hríð fyrrverandi eiginmanni, Viðari, í heimsókn til þeirra á heimili þeirra við Rauðalæk. Þá, eins og allar götur síðan, tóku þau Ragna og Erling á móti okkur eins og við værum fullorðið fólk og jafningjar. Þessi fyrstu kynni við Rögnu gerðu það að verkum, að aldrei var farið um Ak- ureyri án þess að heilsa upp á þau og alltaf sami höfðingsskapurinn og gestrisnin, sem þar ríkti á bær. Mér er minnisstætt, þegar við Viðar sóttum þau heim á Akureyri í janúar, 1973, í fyrsta sinn og vor- um þá í skíðaferð og þá var þeirra fyrsta barn, Björg, aðeins tveggja ára. Þvílíkar móttökur. Við feng- um að gista, njóta þeirra fé- lagsskapar og Björg var þvílíkur gleðigjafi, að mér er enn minnis- stætt. Síðar komu aðrir gleðigjaf- ar, þau Ingimar og Auður og alltaf voru móttökurnar þær sömu, í ótrúlega höfðinglegum heimsókn- um, aðallega á Oddeyrargötu, áð- ur en þau elskulegu hjón fluttu aftur á mölina hér. Við fórum með Hilmari bróður og Óliver, syni hans, í ógleyman- lega útilegu í Vaglaskóg, í svona Mallorkaveðri og svömluðum öll í Fnjóská og grilluðum þess á milli. Og allar götur síðan vorum við þau sem þáðu, en veittum svo lítið, þegar Ragna og Erling áttu í hlut. Á því bið ég einlæglega forláts, en er það ekki svo að maður heldur alltaf að það sé nægur tími til stefnu? Aldrei nokkurn tíma varð ég nokkurs áskynja, nema einlægs áhuga Rögnu á því sem ég og börnin mín vorum að taka okkur fyrir hendur. Hún sýndi þessa óumræðilegu hlýju og umhyggju, sem fæstum okkar er gefið að sýna. Mér sýndi hún einstaka hlýju og vináttu, jafnvel þótt ég trassaði að hafa samband við hana svo misserum skipti. Hún var ein- stök fjöskyldumanneskja, sem sést af arfleifð þeirri sem hún skil- ur eftir sig: frábæran eiginmann, dásamleg börn, tengdabörn, stjúpbörn og barnabörn. Fingra- för Rögnu, hvað varðar ást og um- hyggju, munu umlykja þessa fjöl- skyldu og ég bið góðan guð að varðveita ykkur öll og styrkja í þessum mikla harmi ykkar. Agnes Bragadóttir. Virðuleiki og reisn er það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar maður minnist Rögnu frænku. Ég var þess alltaf fullviss að blóðið sem rann um æðar þessarar fögru frænku minnar væri ögn blárra en gerist og gengur á Fróni. Fas hennar og framkoma voru óað- finnanleg, eins og aðalskonu sem hlotið hefur stranga þjálfun meðal hefðarmeyja. Fatasmekkur henn- ar og ytra útlit voru í sama anda, hún var glæsileikinn uppmálaður. Á bak við þessa glansmynd bjó hins vegar kona með járnharðan vilja og baráttuþrek sem hvaða heljarmenni hefði mátti prísa sig sælt að vera hálfdrættingur við. Armóður og sjálfsvorkunn voru eitur í beinum Rögnu frænku, auk þess sem slíkt rímaði hvorki við hennar ytri né innri mann. Mér þótti ákaflega vænt um Rögnu frænku. Hún var einstak- lega viðræðugóð, hugulsöm og nærgætin. Hin asalausa glettni hennar yljaði líka og veitti vellíð- un, það var alltaf ljúft að hitta hana. Ragna frænka var gæfumann- eskja, allt sem hún kom nálægt bar þess merki. Hún bjó í farsælu hjónabandi og við barnalán. Meðan ég samdi þessi fátæk- legu minningarorð slokknaði þrisvar á tölvunni. Ég er sannfærð um að hún frænka mín átti þar hlut að máli, hún var ekki mikið gefin fyrir að láta hæla sér. Okkur þótti öllum mikið til Rögnu koma og ég er óendanlega þakklát fyrir samfylgdina við þessa mögnuðu frænku mína. Kæru Erling, Björg, Ingimar og fjölskylda og Auður, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guðrún Ingólfsdóttir. Það er komið að leiðarlokum hjá Rögnu frænku okkar eftir erf- ið veikindi. Okkur setur hljóðar og spyrjum okkur hver stjórni því að kona á besta aldri sé kölluð frá fjölskyldu sinni og ástvinum, og litla ömmustráknum sem nú fer á mis við að kynnast sinni yndislegu ömmu, en við vitum að foreldrar hans, afi og föðursystur verða dugleg að halda minningu hennar á lofti. Við systurnar eigum svo marg- ar minningar um hana Rögnu okkar, Rögnu sem var okkur svo miklu meira en frænka. Hún var okkur líka sem stóra systir og vin- kona og einnig var hún besta vin- kona foreldra okkar og mömmu okkar var hún líka eins og systir. Því finnst okkur táknrænt að hún skuli vera borin til grafar á tveggja ára dánardegi hennar, 27. júní. Hún bjó inni á okkar heimili í nokkur ár á meðan við vorum að alast upp og það eru margar minn- ingar sem við eigum um þá sam- búð, sem var mjög skemmtileg og gefandi fyrir okkur öll. Ragna var flugfreyja og það var heilt ævintýri að fá að fara í fata- skápinn hennar sem stóð okkur alltaf opinn og okkur systrum gef- ið ótakmarkað leyfi til að kíkja í skápinn og fá að láni öll hennar föt og fylgihluti. Og okkur er alltaf Ragnheiður Jónsdóttir HINSTA KVEÐJA Við sjáum að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær, og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóst þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt, og svanur á bláan voginn. (Davíð Stefánsson) Blessuð sé minning þín. Edda Snorradóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.