Morgunblaðið - 27.06.2014, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 178. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Luis Suárez er hættur
2. Workforce A liðið fyrst í mark
3. Tók kynferðislegar myndir af líkum
4. Suárez í níu leikja bann
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómplata sem hefur að geyma
tónlistina í væntanlegum söngleik
Ívars Páls Jónssonar, Revolution In-
side the Elbow of Ragnar Agnarsson
the Furniture Painter, sem sýndur
verður í New York-borg í sumar, hlýt-
ur afar jákvæða dóma í tímaritinu
Rust og á vefnum Sound of Confu-
sion. Tónlistina samdi Ívar Páll og
segir í Rust að hún sé meistaraverk
og ótrúlegt afrek. Í The Sound of
Confusion segir m.a. að tónlistin sé
unnin af miklu sjálfsöryggi.
Morgunblaðið/Golli
Olnbogabyltingin
hlýtur lofdóma
Dagur B. Egg-
ertsson borg-
arstjóri opnar í
dag kl. 16 sýn-
inguna The Art of
Being Icelandic í
Ráðhúsi Reykja-
víkur. Á henni er
sjónum beint að
íslenskum bókmenntum í þýðingum
og umgjörð hennar íslensk hönnun.
Dagur opnar sýningu
Trommuleikarinn Jón Geir Jó-
hannsson leyfir vinum sínum á
Facebook að fylgjast
með hvernig undirbún-
ingur Skálmaldar-
manna fyrir Reykjavík-
urmaraþon Íslands-
banka gengur.
Nýjustu myndina
sem hann birtir
af sér nefnir
hann „Eftir-
hlaupabugun“ og
vekur uppátækið
mikla kátínu sem
og hvatningarorð.
Þreyttur trommari
hvattur áfram
Á laugardag og sunnudag Hæg suðvestlæg eða breytileg átt.
Skýjað vestan- og suðvestanlands og sums staðar súldarloft, eink-
um við ströndina, annars skýjað með köflum. Hiti 10-18 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt.
Skýjað og súld eða dálítil rigning af og til um landið vestanvert, en
lengst af þurrt og bjart veður norðaustantil. Hiti yfirleitt 10-18 stig.
VEÐUR
Alsír, Bandaríkin, Belgía og
Þýskaland tryggðu sér síð-
ustu fjögur sætin í 16-liða
úrslitum heimsmeist-
aramótsins í knattspyrnu í
gær þegar riðlakeppninni
lauk með fjórum leikjum.
Alsír náði að tryggja sér
sæti í 16-liða úrslitum á HM
í fyrsta skipti á kostnað
Rússa eftir uppgjör liðanna
í gærkvöldi. Ekkert verður
leikið á HM í dag en 16-liða
úrslit hefjast á morgun. »1
Besti árangur
Alsírbúa á HM
Ljóst er að Luiz Suárez leikur ekki
með landsliði Úrúgvæ á morgun þeg-
ar það mætir landsliði Kólumbíu í 16-
liða úrslitum heimsmeistaramótsins í
knattspyrnu í Río de Janeiro. Hann
var dæmdur í níu leikja bann
með landsliði Úrúgvæ og úti-
lokaður frá öllum opinber-
um knattspyrnuleik
næstu fjóra mánuði af
Alþjóða knattspyrnu-
sambandinu FIFA. Suárez leik-
ur því ekki með Liverpool eða
öðru félagsliði fyrr en í lok
október. »1
Suárez verður frá
keppni til októberloka
„Það er ekkert gaman að hafa ekki
tækifæri til þess að verja titilinn frá
því í fyrra. En maður var með þetta á
bak við eyrað að þetta gæti gerst,“
sagði Guðmundur Ágúst Krist-
jánsson, Íslandsmeistari síðasta árs í
holukeppni karla í golfi, en Guð-
mundur Ágúst fékk ekki keppnisrétt í
mótinu í ár. Íslandsmótið hefst nú
fyrir hádegi á Hvaleyrinni. »4
Íslandsmeistarinn fékk
ekki keppnisleyfi
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Púkamótið í knattspyrnu fer fram á
Ísafirði í dag og á morgun og er nú
haldið í 10. sinn. „Helsti tilgangurinn
er að byggja upp og styrkja æskuna
á svæðinu,“ segir Ísfirðingurinn Jó-
hann Torfason, helsti hvatamaður
viðburðarins og skipuleggjandi.
Félagarnir Jóhann Torfason, Guð-
mundur Ólafsson og Haraldur Leifs-
son komu saman fyrir um áratug og
ræddu um að endurvekja gamlar
minningar á fótboltavellinum. „Ís-
firðingar eru alltaf kallaðir púkar og
við ákváðum að halda púkamót,“
segir Jóhann um mótið. Hann segir
að hugsunin hafi fyrst og fremst ver-
ið að fá saman brottflutta Ísfirðinga
en mótið sé engu að síður fyrir alla
eldri en 30 ára sem hafa gaman af
því að spila knattspyrnu. „Við byrj-
uðum á því að kalla á gullaldarlið Ís-
firðinga, sem vann sér sæti í efstu
deild fyrir tímabilið 1962, og gerðum
leikmennina að heiðursfélögum,“
rifjar Jóhann upp. „Þetta fór rólega
af stað en hefur undið upp á sig og
nú taka um 70 spilarar þátt í
mótinu.“
Styrkja góð málefni
Aðstandendur Púkamótsins hafa
byggt upp sjóð til þess að styrkja
framgang knattspyrnunnar á
svæðinu. Ásamt Knatt-
spyrnusambandi Íslands
gáfu þeir gervigrasvöll við
grunnskólann á Ísafirði og
þeir hafa styrkt þjálfara og
dómara til að afla sér auk-
innar menntunar. „Mótið
styrkir þennan sjóð og
fyrir vikið getum við
styrkt góð málefni,“ seg-
ir Jóhann. Hann bætir
við að það hafi komið til
tals að skrifa sögu knatt-
spyrnunnar fyrir vestan
og verði hugmyndin að
veruleika sé gott að eiga fjármagn í
handraðanum.
Vinátta
Þótt gjarnan sé hart barist á vell-
inum og enginn sé annars bróðir í
leik eru allir vinir utan vallar og sú
vinátta, sem á sér engin landamæri,
endist oft ævilangt. „Fótboltamenn
njóta þess að eiga góðar stundir
saman og sá er helsti tilgangur
mótsins; að sýna sig og sjá aðra,“
segir Jóhann. „Þessi vinátta er
okkur öllum mikilvæg og við vilj-
um viðhalda henni og styrkja,
byggja upp þennan anda, búa til
þetta stóra hjarta sem ég þekki
svo vel úr KR, mínu góða félagi
í Reykjavík, og mun aldrei
gleyma.“
Púkar styrkja yngri púka
Púkamótið í
knattspyrnu á
Ísafirði í 10. sinn
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Púkar Björn Helgason, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, til vinstri með nokkrum öðrum púkum að vestan.
Knattspyrnusamband Íslands
(KSÍ) heldur stjórnarfund á Ísa-
firði í dag. Geir Þorsteinsson,
formaður KSÍ, segir að
gjarnan hafi verið haldinn
einn stjórnarfundur úti á
landi árlega og stjórnar-
menn noti tækifærið og
ræði við forystumenn
knattspyrnumála á svæð-
inu sem og bæjaryfirvöld.
„Vestfirðingar eru stór-
huga og meðal annars virðist vera
ákveðinn vilji til að byggja knatt-
hús, sem einnig má nota undir
ýmsar samkomur,“ segir Geir.
Gömlu hetjurnar Björn Helga-
son, Pétur Sigurðsson, púkapabbi
Vestra, og Jens Kristmannsson,
púkapabbi Harðar, auk Skaga-
mannanna Jóns Gunnlaugssonar
og Gunnars Sigurðssonar, verða
heiðursgestir á leik BÍ/Bolungar-
víkur við ÍA á Ísafirði á morgun.
Vilja byggja knatthús
VESTFIRÐINGAR STÓRHUGA
Jóhann
Torfason