Morgunblaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 1
„Það er alltaf
vont þegar töf
verður á endur-
greiðslum og
þeim frestað, en
við erum ekki enn
farin að sjá
hversu mikil áhrif
þetta mun hafa á
verkefni hjá okk-
ur,“ segir Helga
María Reykdal, framkvæmdastjóri
hjá True North. Endurgreiðsla
vegna kvikmyndaverkefna nær
þrefaldast á árinu og fyrir vikið
hefur fjármálaráðherra nýtt sér
heimild til að fresta endur-
greiðslum til framleiðenda vegna
kvikmyndaverkefna. »12
Ben Stiller
Næstum þreföld
endurgreiðsla
„Það virðist nú ekki vera nein breyting, áfram-
haldandi sama gosvirkni nema það er vaxandi
rennsli út í Jökulsá á Fjöllum,“ segir eldfjalla-
fræðingurinn Haraldur Sigurðsson sem fór að
eldstöðvunum í gær. Hann segir að áin færist
austar eftir því sem hún flæmist undan hrauninu.
„Það er töluvert sjónarspil þegar hraunið
rennur út í ána, þá verður gufa og smáspreng-
ingar en ekkert alvarlegt. Að öðru leyti er virkn-
in sú sama á þessu svæði,“ segir Haraldur. Hann
segir engin merki vera um að gosið sé að deyja
út og hyggst hann dvelja við gosstöðvarnar enn
um sinn.
Mikið gas streymir upp úr gígunum í Holu-
hrauni og teljast aðstæður nokkuð hættulegar.
Friðrik Daníelsson, efnaverkfræðingur Vinnu-
eftirlitsins, segir þá sem fara hvað næst gígunum
hreinlega þurfa að vera með reykköfunarbúnað,
ætli þeir að vera við öllu búnir.
Ráðlagt að loka gluggum
Bláa móðu hefur borið yfir Austurland frá
gosstöðvunum. Hár styrkur brennisteinsdíoxíðs
mældist á Reyðarfirði í gær og var börnum og
fólki sem viðkvæmt er fyrir ráðlagt að halda sig
innandyra og loka gluggum.
Á fundi ríkisstjórnarinnar í gær var ákveðið
að skipa samráðshóp um viðbrögð við náttúruvá.
Er honum ætlað að yfirfara kostnað og fjárþörf
vegna yfirstandandi náttúruhamfara. Hópnum
er jafnframt falið að fjalla um álitamál sem upp
kunna að koma, sem og aðgerðir sem mögulega
þarf að grípa til eftir því sem hamförunum vind-
ur fram. Vísindamenn hafa sett fram nokkrar til-
gátur um mögulega framvindu umbrotanna í
Bárðarbungu en enn ríkir þó mikil óvissa um það
sem koma skal.
Áin flæmist undan hrauninu
Morgunblaðið/RAX
Mikil óvissa ríkir um framvindu náttúruhamfaranna
Gosvirknin stöðug og mikið gas streymir úr gígunum Jökulsá færist austar
MHættulegar gastegundir í Holuhrauni »14-15
Holuhraun Haraldur Sigurðsson virðir fyrir sér logandi hraunið falla í Jökulsá á Fjöllum. Hann segir töluvert sjónarspil verða þegar hraunið rennur út í ána.
F I M M T U D A G U R 1 1. S E P T E M B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 212. tölublað 102. árgangur
ENDURVÖKTU
HUGMYND FRÁ
ÁRINU 1770
ÁHUGI
ERLENDRA
FJÁRFESTA
VARPAR LJÓSI
Á ÍSLENSKU
KONUNA
VIÐSKIPTAMOGGINN LJÓSMYNDIR 10GÆÐASALT 16
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Bjarni Benediktsson, fjármálaráð-
herra og formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, sagði í ræðu sinni á Alþingi í gær
að samanlögð áhrif skattalækkana á
árunum 2014 og 2015, ásamt hækkun
bóta og lækkun húsnæðisskulda skil-
uðu einstaklingum 40 milljörðum
króna í hærri ráðstöfunartekjur en
árið 2013. „Þessir fjörutíu milljarðar
samsvara um 5 prósenta aukningu á
ráðstöfunartekjum miðað við eins og
þær voru þegar vinstristjórnin fór
frá,“ sagði Bjarni.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra sagði í stefnuræðu
sinni að framtíð Íslands byggði til-
veru sína á því að menn berðust sam-
an fyrir því að nýta auðlindirnar,
tækifærin, þekkinguna og mannauð-
inn á skynsamlegan hátt, til að skapa
það samfélag velferðar, jöfnuðar, at-
vinnu og réttlætis sem allir vildu til-
heyra.
Dólgafrjálshyggja var Katrínu
Jakobsdóttur, formanns Vg, ofarlega
í huga en hún lýsti stefnu Sjálfstæð-
isflokksins með þeim hætti um leið og
hún gagnrýndi skattstefnu stjórn-
valda, sem hún kallaði sérhagsmuna-
stefnu.
Jón Þór Ólafsson, pírati, minnti á
mikilvægi netsins, heilbrigða um-
gjörð þess enda væri það uppspretta
nýsköpunar og hagvaxtar.
40 milljörðum meira í ráðstöfunartekjur
Hækkun ráðstöfunartekna nemur 5 prósentum frá árinu 2013 Internetið verði uppspretta nýsköp-
unar og hagvaxtar Auðlindir nýttar á skynsamlegan hátt til að skapa samfélag velferðar
MStöðugleiki »4
Morgunblaðið/Kristinn
Alþingi Bjarni Benediktsson við umræðurnar í gærkvöldi.
Stjórnvöld á
Vesturlöndum
nota tölvuárásir í
meiri mæli til að
ná markmiðum
sínum, þ.á m til
eftirlits með eig-
in borgurum. Í
nokkrum Evr-
ópulöndum hefur lögregla fengið
heimild til að koma spilliforritum
fyrir í tölvum grunaðra glæpa-
manna. Þetta kom fram í fyrirlestri
finnska netöryggissérfræðingsins
Mikko Hypponen í gær. »12
Spilliforrit í tölvur
grunaðra manna
Fyrirhuguð
arðgreiðsla eign-
arhaldsfélagsins
Stoða, áður FL
Group, til er-
lendra hluthafa
að fjárhæð 805
milljónir króna
var stöðvuð af
Seðlabanka Ís-
lands sl. vor.
Taldi Seðla-
bankinn að slík arðgreiðsla, þar sem
krónum yrði skipt í erlendan gjald-
eyri, væri óheimil samkvæmt lögum
um gjaldeyrismál. »Viðskipti
SÍ stöðvaði 800
milljóna arðgreiðslu
Taldi arðgreiðslu
Stoða ólögmæta.