Morgunblaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2014 ✝ Magnús JóelJóhannsson fæddist á Gufuskál- um á Snæfellsnesi 28.11. 1922. Hann lést á Dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu Grund 25. ágúst 2014. Foreldrar Magn- úsar voru Sigríður Ólöf Andrésdóttir frá Fremribrekku, Dalasýslu, f. 1880, d. 1969, og Jóhann Magnússon, fæddur í Hrísdal, Hnappadalssýslu 1894, d. 1938. Börn þeirra hjóna voru: Andrés Jón, f. 1920, d. 1920 (lést úr barnaveiki), Helga, f. 1921, dánardagur ókunnur, Magnús Jóel, f. 1922, d. 2014, Ásgeir Jón, f. 1925, d. 2005, og Ingibjörg Sigrún, f. 1928, d. 2006. Áður var Sigríður gift Jóni Guð- mundssyni, f. 1881, d. 1918. Börn þeirra voru: Anna Herdís, f. 1910, d. 1996, Páll Vídalín, f. 1912, d. 2004, Valgerður, f. 1913, d. 1994, Kornelía, f. 1915, d. 1919. Haraldur, f. 1916, d. 1916 (lést úr barnaveiki), Guð- mundur, f. 1917, d. 1997. arfjarðar og bjó um ævina ýmist þar eða í Reykjavík. Magnús stundaði sjómennsku þar til hann lauk námi í vélsmíði og rennismíði frá Iðnskólanum í Hafnarfirði 1948. Hann vann við vélsmíði, m.a. í Landssmiðjunni og Héðni þar til hann keypti vél- smiðjuna Hrímni árið 1962 ásamt bróður sínum Jóni Ás- geiri. Magnús rak vélsmiðju þar til hann gerðist húsvörður í Melaskóla 1980 og starfaði hann þar til ársins 1992. Magnús ólst lengst af upp í torfbæ, þar sem kveðskapur, rímnagerð og bundið mál var viðhaft dags daglega. Það lagði grunninn að einlægum áhuga hans og eljusemi við að safna ís- lenskum kvæðalögum og bjarga þeim frá glötun. Afrakstur þessa má finna á upptökum sem Kvæðamannafélagið Iðunn geymir í fórum sínum, en þar var hann gerður að heið- ursfélaga 1999. Eftir Magnús liggur fjöldi ljóða og kvæða sem sýna vel þá miklu þekkingu og vald er hann hafði á íslenskri tungu og bragfræði. Kvæðasafn hans er varðveitt á Þjóð- skjalasafni Íslands. Í mörg ár batt hann inn bækur af mikilli snilld og eftir hann liggur fjöldi fagurlega innbundinna bóka. Minningarathöfn Magnúsar fór fram í kyrrþey, að hans eig- in ósk, 5. september 2014. Árið 1954 kvænt- ist Magnús Rós Pét- ursdóttur, f. 1925. Dætur þeirra eru: 1) Margrét 1955, gift Valgeiri Páls- syni, f. 1953. Þau eiga tvær dætur. Eldri dóttirin er Heiðdís, f. 1982, gift Erling Tóm- assyni, f. 1978, þeirra börn eru Valgeir Heiðar, f. 2009, og Hlíf, f. 2011. Yngri dóttirin er Inga Rós, f. 1984, gift Brynjari Smára Bjarnasyni, f. 1984. 2) Sigríður, f. 1958, gift Jóni Sigurðssyni, f. 1953. Börn þeirra eru Að- alheiður Kristín, f. 1986, gift Brynjari Magnússyni, f. 1986 og Magnús Jóel, f. 1989. 3) Guð- laug, f. 1962, gift Gunnari Gísla Guðnasyni, f. 1960. Þau eiga tvær dætur. Eldri dóttirin er María Dís, f. 1989, hennar dóttir er Emilía Ýr Guðmundsdóttir, f. 2010. Yngri dóttirin er Rós, f. 1999. Magnús bjó lengst af í æsku á Barðastöðum í Staðarsveit. Hann flutti ungur til Hafn- Ég er þakklát fyrir að hann pabbi minn fékk loks lausn undan andstyggilegum heilabilunarsjúk- dómi. Ég vil ég minnast hans sem þess manns sem hann í rauninni var. Langvarandi veikindi hans skekkja án efa minningu margra þeirra er honum kynntust seinni árin og gefa af honum ranga mynd. Pabbi átti fjölbreytt áhugamál. Ber þar helst að nefna ljóðagerð og kveðskap. Frá blautu barns- beini ólst hann upp við að amma hans, Helga, hafði dagleg sam- skipti við þau systkini í bundnu máli. Eftir pabba liggur fjöldi vísna og kvæða sem bera vitn- eskju um afburðatök hans á ís- lenskri bragfræði. Hann var líka oft fenginn til að kenna bæði brag- fræði og kveðskap, ýmsum hópum og einstaklingum. Pabbi var náttúrubarn, naut þess að ferðast um landið, veiða silung í lækjum og vötnum, horfa á fjölbreytni náttúrunnar, dýralíf- isins, gróðurs og blóma. Hann hafði dálæti á dýrum, bar til þeirra elsku hvort sem það var ánamaðkurinn í jörðinni, fuglar á heiðum, húsdýr eða gæludýr á heimilum. Hann var laginn við að laða þau að sér. Pabbi var líka ein- staklega barnelskur maður. Þeg- ar hann var t.d. að vinna í garð- inum sínum fylgdi honum ávallt barnahópurinn úr nágrenninu. Barnabörnin hans áttu yndislega tíma með afa sínum þar sem hann lék við þau á þeirra forsendum. Ljóðin hans bera þessu öllu glöggt vitni. Hann pabbi hellti sér ávallt út í áhugamálin af miklum krafti. Um tíma týndi hann sér í taflmennsku, svo í silungsveiði. Þá leigði hann tvö vötn til tuttugu ára á hinu horni landsins – fór mörg sumur með fjölskylduna austur á land þar sem við lágum í tjaldi uppi á heiði vikum saman og veiddum. Hann lærði söng og var í kórum á yngri árum. Á ferðalögunum um landið söng hann ávallt í bílnum og þannig lærðum við dætur hans mörg skemmtileg lög og texta. Hann var smiður góður og hagur í höndum. Í mörg ár batt hann inn bækur sem óður væri og nutu margir góðs af því. Vinnusemin var hans vörumerki. Hann var greiðvikinn, víðlesinn, fróður, framsýnn og uppfinningasamur, en ekki síst hafði hann mikla kímnigáfu. Það var aldrei leiðin- legt nálægt honum pabba, þvílíkt hugmyndaflug og húmor sem hann hafði og þrátt fyrir veikindin hélst honum á húmornum og góð- mennskunni fram til hins síðasta. Það varð gæfa okkar systra að alast upp við ást og umhyggju beggja foreldra. Pabbi hafði sterkar stjórnmála- skoðanir, var mikill sósíalisti og barðist fyrir þjóðfélagslegum jöfnuði og jafnrétti öllum til handa. Hann hafði sterkar skoð- anir á trúmálum og lýsti yfir trú- leysi sínu hispurslaust. Hann ein- kenndi karlmennska síns tíma, sem var helst fólgin í því að standa vörð um samfélagslegt siðferði, réttlæti, framfærsluskyldur gagn- vart fjölskyldunni og þjóðrækni. Hann elskaði landið sitt og þjóð. Hann var stoltur af íslenskri menningararfleifð, dáði Íslend- ingasögurnar sem hann las allar með reglulegu millibili árum sam- an. Ég minnist hans með ást, gleði, stolti og þakklæti. Sigríður Magnúsdóttir. Elsku hjartans pabbi minn! Nú hefur þú fengið hvíld frá veikindum þínum. Í um 14 ár barðist þú við Alzheimer-sjúk- dóminn sem dró svo mikið úr lífs- gæðum þínum og okkar allra. Þú varst frábær og afkastamik- ill hagyrðingur og eftir þig liggur mikið magn af ljóðum sem við eig- um eftir að njóta áfram. Ég sit hér og lít yfir farinn veg. Fyrst og fremst er hugur minn fullur af þakklæti fyrir þau for- réttindi að hafa fengið að vera dóttir þín. Þú kenndir mér svo margt, þér var svo margt til lista lagt. Þú varst fyrst og fremst mannvinur, mannréttindamaður, náttúruunnandi, dýra- og blóma- vinur og umfram allt barnavinur. Þessir eiginleikar í fari þínu hafa mótað mig sem manneskju og ekki síst styrkt mig í mínu ævi- starfi sem kennari. Minningar mínar frá æskuár- um eru yndislegar. Þú og mamma bjugguð okkur fallegt og gott heimili en fyrst og síðast voruð þið alltaf til staðar fyrir okkur. Ég á margar góðar minningar frá sjón- varpslausum fimmtudagskvöldum þegar þú last upp fyrir okkur nýj- ustu ljóðin þín og kenndir okkur þannig að meta ljóð eins og amma þín, Helga, hafði kennt þér að meta þegar þú varst ungur. Takk fyrir þetta, elsku pabbi, þetta hef- ur oftar en þig grunar nýst mér í leik og starfi. Ekki er hægt að minnast þín án þess að minnast óteljandi ferða- laga á Snæfellsnesið til að líta æskustöðvar þínar sem voru þér svo kærar. Þangað sóttir þú hug- arró þína og efnivið í yndislega ljóðabálka. Þú talaðir oft um æskuár þín á Barðastöðum. Marg- ar sögur hef ég heyrt þig segja frá þessum tíma og það er alveg á hreinu að þér leið á fáum stöðum betur en á Snæfellsnesinu. Ferða- lög okkar á sumrin enduðu oft úti á Nesi, þar var tjaldað, gengið um, farið í berjamó og allt fallega Snæ- fellsnesið skoðað vel og vandlega. Ég fór í sumar með fjölskyld- una mína á Nesið, sýndi börnun- um mínum og barnabarni hvar þú ólst upp og hvaða staði þú talaðir mest um. Við áttum yndislega stund þar og munum við halda minningu þinni um þennan draumastað á lofti um ókomin ár. Pabbi minn, ég sakna þín en hef reyndar gert það í mörg ár, vegna þess að sá pabbi sem fór núna frá mér er ekki sá sami og fór fyrir nokkrum árum og ég hef syrgt svo ákaflega. Takk fyrir allt, minning þín mun lifa áfram með okkur og við höldum áfram að segja af þér sögur, lesa ljóðin þín, hlæja og skemmta okkur. Ég læt hér að lokum fylgja ljóð eftir þig, eitt af svo mörgum sem eru mér svo kær. Ég raða í hleðsluna heilmörgum nothæfum steinum, og hagræði öllum svo fái þeir lengur staðið. Framkvæmd þessi var aðeins ætluð mér einum, enginn veit betur en ég hve vandlegáer hlaðið. Og þannig hef ég um ævinnar örðugu stundir ávallt verið að reyna við hleðslunáað glíma, og lagfæra það, sem fannst mér að allt væri undir að aflaga færi hvergi – á meðan var skíma. En nú er farið að hrynja úr hleðslunni minni, hvernig, sem reyni ég þrotlaust að styrkja og bæta. Grunur í huga minn læðist og líkt er sem finni ég lögmál sem mér er fullkomin ofraun að mæta . (Magnús J. Jóhannsson) Yngsta yndið þitt, Guðlaug. Fyrstu minningar mínar um Magnús tengdaföður minn eru þegar hann fyrir um 42 árum sat á kvöldin á friðarstóli í stofunni að loknum ströngum vinnudegi og um helgar er hann ræktaði garð- inn og hlúði að fjölda fagurra blóma. En hann ræktaði einnig garðinn sinn í óeiginlegri merk- ingu. Fjölskyldam átti hug hans allan. Frá fyrstu stundu tók hann mér, stráklingnum sem var að gera hosur sínar grænar fyrir elstu dótturinni, opnum örmum. Barnabörnum sínum var hann sem besti leikfélagi og væntum- þykjan leyndi sér ekki. Ungur að árum þurfti hann að sjá fyrir sér. Hann stundaði sjó- mennsku um skeið, bæði á bátum og togurum og gerði að auki út eigin trillu. Hann lærði rennismíði og rak eigin vélsmiðju er ég tengdist honum fjölskyldubönd- um. Magnús var mikill hagleiks- maður. Hugvitssemi hans og verklagni var einstök. Ég minnist þess er ég eitt sinn þóttist aðstoða hann við að flytja smiðju sína. Út- sjónarsemi hans við að flytja níð- þungar og fyrirferðarmiklar vélar var slík að ég horfði fullur aðdáun- ar á hann vinna fremur en að reyna að hjálpa til. Þessara hæfi- leika Magnúsar fengu dætur hans að njóta í ríkum mæli eftir að þær ásamt mökum stofnuðu eigin heimili. Ávallt var hann boðinn og búinn að hjálpa til við hvaðeina sem gera þurfti. Þá var gott að hafa hann sér til fulltingis. Magnúsi féll aldrei verk úr hendi. Hann hafði mörg áhugamál og var sískapandi. Með móður- mjólkinni öðlaðist hann þann ein- staka hæfileika að setja saman vísur. Hann var fljúgandi hag- mæltur. Ferskeytlur eftir hann er ekki hægt að telja frekar en Vatnsdalshólana. Þó er fjarri að hann hafi einungis ort ferskeytlur. Eftir hann liggur fjöldi ljóðabálka. Oft kvað hann dýrt og í ljóðunum gætir í senn rómantíkur og heitra tilfinninga. Svört fyndni og dálítil kerskni áttu einnig greiða leið inn í mörg ljóða hans. Hann naut þess að flytja ljóð af síðastgreindu gerðinni og segja um leið gaman- sögur sem tengdust kveðskapn- um. Þá gat tengdapabbi verið í essinu sínu og leiftrandi frásagn- argleði hans naut sín. Í mörg ár starfaði hann í kvæðamannafélag- inu Iðunni. Hann sökkti sér í rímnakveðskap og hafði mikið yndi af. Þau voru ófá rímnalögin og stemmurnar sem hann kvað. Í þeim efnum hafa vafalaust fáir staðið honum á sporði. Eftir miðj- an aldur lærði Magnús bókband. Þar gaf hann og sköpunargleðinni lausan tauminn og útbjó t.d. bók- ina „Geðbót“ sem var lítill kassi utan um koníakspela og fjögur staup. Þessa „bók“ hafði hann gaman af að gefa og fékk hún góð- ar viðtökur. Magnús hafði mikinn áhuga á þjóðmálum. Snemma varð hann róttækur í stjórnmálaskoðunum og hélt fast við sínar skoðanir. Okkar stjórnmálaskoðanir fóru kannski ekki saman. Við bárum virðingu fyrir skoðunum hvor annars og gættum þess að láta þær ekki hafa áhrif á okkar vin- áttu og góðu tengsl. Hin síðustu ár voru Magnúsi erfið er heilsa hans fór að bila og minnisglöp gerðu vart við sig í rík- um mæli. Hann hefur nú fengið langþráða hvíld. Kæran tengdaföður og mikinn sómamann kveð ég með virðingu og þakklæti. Valgeir Pálsson. Nú hefur hann Magnús tengda- pabbi loksins fengið langþráða hvíld. Í huga manns þyrlast upp minningar. Það lék allt í höndun- um á honum, hvort heldur það þurfti að byggja undir efri hlutann á stofuskápnum, smíða stækkun- arplötur í borðstofuborðið eða hvað annað sem þurfti að breyta eða laga. Það voru ófá skiptin sem við fjölskyldan gistum hjá tengda- foreldrunum, fyrst í Skaftahlíð- inni, meðan við bjuggum uppi á Skaga, síðan þegar við fluttum í bæinn og vorum að leita að íbúð og ekki voru færri gistiferðirnar austur á Eyrabakka meðan þau bjuggu þar. Alltaf var tengdapabbi á kafi í bókbandinu og ekki margt sem gat truflað hann nema helst matur og kaffi, en ef maður kom í gætt- ina á herberginu og spurði hvort ekkert ætti að spila á þessum bæ, þá var hann ekki lengi að leggja frá sér það sem hann var að fást við og koma inn í stofu eða eldhús og við spiluðum heilu kvöldin þeg- ar við gistum hjá þeim, það voru notalegar stundir. Annað sem fékk hann frá bókbandinu var ef barnabörnin vantaði leikfélaga, þá var hann boðinn og búinn að ger- ast hestur eða hvað annað sem þeim datt í hug. Af eftirfarandi kvæði eftir hann má glöggt sjá hversu vænt honum þótti um þau. Börn dætra minna Þau eru eins og kerti sem kveikt er á í skugga, komin til að bæta úr myrkrinu og hugga. Afi, gamli karlinn, á alla þessa krakka og ætti fyrir geislana sína björtu að þakka. (Magnús J. Jóhannsson) Að lokum, Magnús, takk fyrir allt og allt. Gunnar Gísli. Nú kveð ég þig, afi minn, í hinsta sinn. En nú ertu fallinn frá eftir áralanga baráttu við alzheim- er-sjúkdóminn. Margar minning- ar hafa streymt fram í hugann undanfarna daga. Ljóð og kvæði enduróma í minningunni. Það er mér svo minnisstætt þegar ég sat í fanginu á þér í Skaftahlíðinni og hlustaði á þig fara með ljóð og binda inn bækur. Það er mér einn- ig minnisstætt þegar ég var sex ára og fór með þér í bílskúrinn að skoða ánamaðkana sem þú varst að rækta fyrir veiði næsta sumars. Það kemur samt sterkast upp í hugann tíminn sem þú áttir á Eyr- arbakka, þegar þú sýndir mér hvernig þú bast inn bækur, þegar þú fékkst litla rennibekkinn og þegar þú tókst framan af fingr- inum með stóru söginni. Einnig þegar mömmu og ömmu stóð ekki á sama, því þær fundu fyrir vits- munalegum breytingum hjá þér og þær vildu alls ekki að þú keyrð- ir með okkur krakkana í bílnum. Þá fengum við þig samt til að skutla okkur upp á Selfoss í sund og jafnvel að sækja okkur aftur. Þú kenndir okkur snemma mann- ganginn í skák og á einhvern undraverðan hátt unnum við þig alltaf. Afi minn, þú gast alltaf leikið við okkur eins og jafnaldri. Það var enginn sem hefði getað leyst hlutverk þitt eins og þú gerðir. Það var enginn sem hefði geta leg- ið í gólfinu og leikið hest eins og þú. Það var enginn sem hefði get- að farið með krakkaskarann út í búð og sungið yfir alla verslunina „Hver vill kaupa krakka, tvo í ein- um pakka?“. Það hefur aldrei verið neinn til eins og þú. Afi minn, þú komst helgi eftir helgi mánuðum, jafnvel árum, saman og hjálpaðir foreldr- um mínum að byggja húsið sitt á Eyrarbakka. Ég sem barn naut þess að hafa mikil samskipti við þig á þessum tíma. Ég á alla tíð eftir að þakka þér, hve ljóðin þín hafa veit mér margar gleðistund- ir. Þau eru til staðar þegar ég þarf á þeim að halda og þá sérstaklega þegar ég hugsa til þín. Ég mun minnast þín eins og þú varst áður en sjúkdómurinn hertók þig. Ég ætla að muna eftir þér syngjandi, kveðandi og fræðandi. Ég ætla að muna eftir þér eins og þú varst þegar við fórum saman í ferðalög- in upp á Snæfellsnes. Þegar þú gast ekki hamið ástríðuna og hafð- ir ekki nægan tíma til að segja okkur sögur og rifja upp með okk- ur æsku þína. Ég ætla að muna eftir þér í blágráu peysunni með alpahúfuna og með yfirvarar- skeggið fullt af tóbaki. Ég á eftir að sakna þín alla mína daga. Ég læt fylgja með tvær stökur úr ljóðinu Staðarsveit, sveitin mín. Hvergi leit ég fegri’ á foldu friði vígðan unaðsreit. Þakklátur í þinni moldu þæði ég hvíldir Staðarsveit. Til þín laðist ljós og friður, ljúfa, æskubyggð, sælla barna söngvakliður, sífeld gleði, eilífð tryggð. (Magnús Jóel Jóhannsson.) Barnabarnið þitt, Aðalheiður Kristín Jónsdóttir. Elsku afi. Okkur langar að minnast þín með nokkrum orðum. Nú myndir þú reyndar hlæja upp- hátt, að við skyldum tala til þín eftir andlátið. Líf eftir dauðann Magnús J. Jóhannsson Það var í þá gömlu góðu daga að við Snorri, ungir að árum, urðum sam- ferða fjölda annarra ungmenna í að læra sund. Fljót- lega veitti ég athygli fjörmiklum pilti, fyndnum og glöðum í til- svörum, sem í hvívetna bauð af sér góðan þokka. Árin liðu og fyrr en varði var hann kominn á fulla ferð í félagsmálaþátttöku. Hann varð formaður ungmenna- félags, sambandsstjóri, hafði nokkur afskipti af stjórnmálum og verkalýðsstarfi, og ætíð var vettvangur starfsins að færast inn á ný svið. Fólki er í fersku minni langvarandi kennslustarf hans og atorka varðandi þróun fræðslumála ásamt frábæru starfi hans sem rithöfundar. Í hlutverki Rótarýhreyfingarinnar naut hann sín með ágætum. Það var hátíðarstund þegar nærfellt tuttugu manna hópur félaga af Borgarnessvæðinu lagði leið sína austur í Rangárþing í þeim til- gangi að fylgja eftir kjöri Snorra sem umdæmisstjóra með viðeig- andi þátttöku. Það lætur að líkum að Snorri yrði eftirsóttur liðsmaður menn- ingarhreyfinga margs konar, og hlutverkum sem hann tók að sér skilaði hann með reisn. Það var Snorri Þorsteinsson ✝ Snorri Þor-steinsson fædd- ist 31. júlí 1930. Hann lést 9. júlí 2014. Útför hans fór fram 18. júlí 2014. því í stíl við fé- lagslegan þegnskap hans þegar leitað var eftir því á vett- vangi Sögufélags Borgarfjarðar hvort nefna mætti nafn hans með það fyrir augum að hann tæki sæti í stjórn félags- ins. Svaraði hann því þegar játandi að slíkt væri heimilt. Það kom svo nokkuð fljótlega að því að hann yrði formaður, en í því fólst brátt gífurleg vinna við bókhald, umsjón og skráningu íbúatals, þátttöku í ritstjórn Borgfirðingabókar og grundvall- arbaráttu fyrir lokafrágangi Borgfirskra æviskráa auk al- mennrar framkvæmdastjórnar. Þetta allt þakkar félagið nú af al- hug að leiðarlokum. Snorri var áheyrilegur maður í ræðustól og kunni þar vel til verka, enda kennari í ræðu- mennsku. Ósjaldan kom hann fram sem upplesari eða umsjón- armaður efnis og fór það vel úr hendi. Þegar fjalla skal um jafn fjölhæfan mann og Snorra Þor- steinsson vakna óteljandi spurn- ingar um það hvers helst beri að geta. Það er raunar ástæðulaust að reyna að komast yfir allt í stuttri grein og næsta víst að mörgu til viðbótar hefði hann vilj- að koma til leiðar ef honum hefði enst heilsa og líf. Aðstandendum votta ég samúð og árna Snorra fararheilla yfir landamærin miklu. Bjarni Valtýr Guðjónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.