Morgunblaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2014 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Að mati ákveðinna þingmanna Fram- sóknarflokksins má búast við að frumvarp til fjárlaga fyrir næsta ár taki breytingum í meðförum þings- ins, ekki síst hækkun neðra þreps virðisaukaskatts, sem margir þing- menn Framsóknar telja að muni koma illa við marga þeirra sem minnst mega sín. Sigrún Magnúsdóttir, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, sagði hér í Morgunblaðinu í gær að það hefði náðst samkomulag um að hleypa þessu svona áfram og að framsóknarmenn ætluðu að fylgjast með hvernig þessu yrði tekið og hvernig umræðan þróaðist. Samkvæmt samtölum blaðamanns við nokkra þingmenn Framsóknar- flokksins í gær er ljóst að stór hluti þingflokksins reiknar með að fjár- lagafrumvarpið muni taka breyting- um í meðförum þingsins, ekki síst reikna þingmenn með því að tekist verið á um hækkun matarskattsins svonefnda, úr 7% í 12%, sem þeir telja að geti komið illa við marga og tilgreina sérstaklega lágt launaða einstaklinga, öryrkja og ellilífeyris- þegar. Þeir telja þó vissulega að hækkun barnabóta um 13% muni nýtast stórum hópi launþega, til þess að jafna út þá kaupmáttarskerðingu sem þeir annars hefðu orðið fyrir, vegna hækkunar á matvöru. Misræmi í tölum Ákveðins misræmis gætti í tölum í hinu prentaða eintaki að fjárlaga- frumvarpi næsta árs samanborið við tölur í glærukynningu á frumvarpinu sem Bjarni Benediktsson fjármálará- aðherra sýndi á fundi með fjölmiðla- fólki í fyrradag. Þannig kom fram í hinu prentaða eintaki að efra þrep virðisaukaskatts- ins myndi lækka úr 25,5% í 24,5% um næstu áramót og um þarnæstu ára- mót úr 24,5% í 24% og lægra virð- isaukaskattsþrepið hækki um næstu áramót úr 7% í 11%. En í glærukynn- ingunni og leiðréttri útgáfu frum- varpsins á vef Alþingis kemur fram að almenna skatthlutfallið í virðis- aukaskatti lækki úr 25,5% í 24% 1. janúar nk. og lægra skatthlutfallið í virðisaukaskatti hækki úr 7% í 12% hinn 1. janúar 2015. Fjármálaráðuneytið skýrði mis- ræmið í gær á þann veg að tölur í frumvarpinu sjálfu væru úreltar því forsendur hefðu breyst frá því talna- vinnu við frumvarpið lauk í sumar. Reikna með að frumvarpið taki breytingum á þingi  Margir framsóknarþingmenn á móti hækkun matarskatts Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra Íslands, gerði tækifæri Íslands að umræðuefni í stefnuræðu sinni á Alþingi í gærkvöldi. Sagði hann öflin sem nú takast á í einstöku sjónarspili á hálendi landsins hafa skapað land gjöfult með gnægð auð- linda. „Landið sér okkur fyrir nægri umhverfis- vænni orku og úr fegurð og aðdráttarafli náttúr- unnar og auðlindum sjávar verða til gríðarlega mikil verðmæti. Mannauður okkar og hugvit bætir sífellt við þau verðmæti, enda vinnur nú stærri hluti þjóðarinnar að rannsóknum en annars staðar í Evr- ópu,“ sagði Sigmundur í upphafi stefnuræðu sinnar. Ábyrg efnhahagsstjórn Sigmundur sagði það ánægjuefni að sjá hversu almenn þátttaka væri í leiðréttingarleið ríkisstjórn- arinnar. „Það er fagnaðarefni og athygli vert að sjá hver almenn þátttaka er í aðgerðunum, en lang- flestir þeirra sem voru með verðtryggð lán á heim- ilum sínum sóttu um. Svo almenn þátttaka hlýtur að vera þingmönnum stjórnarandstöðunnar umhugs- unarefni, þegar haft er í huga hversu hatrammlega þeir börðust gegn þessum víðtækustu aðgerðum til hjálpar heimilum eftir efnahagshrunið.“ Sigmundur kom einnig inn á hagvaxtarspá Seðla- banka Íslands sem spáir rúmlega 3 prósenta hag- vexti á þessu ári og tæplega 4 prósenta árið 2015. „Með sameiginlegu átaki ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins hefur tekist að auka kaupmátt og koma verðbólgu niður fyrir markmið Seðlabank- ans og hefur verðbólgan nú haldist undir verðbólgu- markmiði bankans í sjö mánuði samfellt,“ sagði Sig- mundur og bætti við að stöðugleiki og vöxtur sem styðst við ábyrga stjórn efnahagsmála væri enda inntak ríkisfjármálaáætlunar næstu ára. „Lækkun skatta, endurskoðun á uppbyggingu skattkerfisins, afnám fjármagnshafta og aðgerðir ríkisstjórnarinn- ar til að lækka höfuðstól verðtryggðra húsnæðis- lána setja mark sitt á fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2015. Skuldahlutfall ríkissjóðs af landsframleiðslu hef- ur einnig farið stöðugt lækkandi og verður 74% í lok árs 2015.“ Þá sagði Sigmundur atvinnuþátttöku hafa aukist stöðugt og atvinnuleysi nú með allra minnsta móti í Evrópu. Ríkisstjórn ríka fólksins Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, minnti þingmenn á að andspænis náttúruöflunum stæðum við öll jöfn og þannig væri það í lífinu einn- ig. Þannig andmælti hann m.a. auknum kostnaði al- mennings í heilbrigðiskerfinu og færslu skattbyrða milli stétta. „Allt svigrúm í ríkisrekstri er sem fyrr nýtt í þágu þeirra sem best standa. Ríkisstjórn ríka fólks- ins barðist á hæl og hnakka síðasta vetur við að létta sanngjörnum veiðigjöldum af stórútgerðinni sem þó skilar metafkomu. Skattbyrði hefur skipu- lega verið flutt af allra tekjuhæstu einstaklingunum yfir á meðaltekjufólk og lágtekjufólk,“ sagði Árni í ræðu sinni. Hann sagði Samfylkinguna styðja af- nám vörugjalda en telur þó enga ástæðu til að leggja álögur á lífsnauðsynjar til að fjármagna þá tilfærslu. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráð- herra, sagði í ræðu sinni að enginn einn aðili bæri ábyrgð á stöðugleika og að vinnuveitendur gætu ekki einhliða kalla eftir ábyrgð launþegahreyfing- anna á sama tíma og laun stjórnenda hækka. „Að sama skapi er það ríkisvaldsins að tryggja að jafn- vægi ríki milli þess sem gerist á almenna vinnu- markaðnum og á hinum opinbera. Um þessi grunn- atriði verður að vera samstaða þótt tekist sé hart á um kaup og kjör,“ sagði Bjarni og endaði ræðu sína á að minna á að með hallalausum fjárlögum og að- haldi í rekstri, skattalækkunum og öðrum aðgerð- um hefði þessi ríkisstjórn markað leiðina í rétta átt, þjóðinni til heilla. Morgunblaðið/Kristinn Stjórnmál Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hlustar á Árna Pál Árnason, formann Samfylkingarinnar, flytja ræðu sínu á Alþingi í gærkvöldi en sjónvarpað var beint frá fundi Alþingis. Stöðugleiki og hagvöxtur  Atvinnuleysi með því allra minnsta í Evrópu  Endurfjármögnun lána vottur um aukið traust á stjórn efnahagsmála  Samfylkingin styður afnám vörugjalda Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, gagnrýndi fjárlagafrumvarp rík- isstjórnarinnar í gærkvöldi. Hún sagði fyrirhugaðar breytingar á virðisaukaskattsþrepum sem fela ættu í sér einföldun með fækkun skattþrepa vera í raun og veru eng- ar. Verið væri að fækka skatt- þrepum úr tveimur í tvö. Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pí- rata, sagði fyrsta forgangsmál Pí- rata á þinginu vera tillögu um að á Ísland verði skapað vistkerfi eins og best verður á kosið fyrir hagnýtingu internetsins ásamt réttindavernd netnotenda. Guðmundi Steingríms- syni, formanni Bjartrar framtíðar, voru þjóðlegar áherslur forsætisráð- herra í huga og varaði við var- hugaverðum þjóðrembingi um leið og hann lýsti mikilvægi þess að leysa mál í samstarfi við aðrar þjóðir. Þjóðrembingur, netið og skattar Alþingi Katrín Jakobsdóttir í ræðustól. Brynjólfur Þorkelsson Framkvæmdastjóri binni@remax.is Sylvía GWalthersdóttir Löggiltur fasteignasali sylvia@remax.is „...veittu mér framúrskarandi þjónustu í alla staði“ „Katrín heiti ég. Þau hjónin Binni og Sylvía sáu um að selja húsið mitt sumarið 2013 og veittu mér framúrskarandi þjónustu í alla staði. Haldið var opið hús þar sem þau sáu um að bjóða fólkið velkomið og fylgdu opna húsinu svo eftir en það leiddi til sölu sem allir voru sáttir við. Ég mæli hiklaust með þessum sætu hjónum“ 820 8080 Hringdu núna ogpantaðu frítt söluverðmat

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.