Morgunblaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2014
Ó, blessuð vertu,
sumarsól,
er sveipar gulli dal
og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá.
Nú fossar, lækir, unnir, ár
sér una við þitt gyllta hár,
Hilmar Helgason
✝ Hilmar Helga-son fæddist 10.
apríl 1939. Hann
lést 16. ágúst 2014.
Útför Hilmars fór
fram 27. ágúst 2014.
nú fellur heitur
haddur þinn
á hvíta jökulkinn.
(Páll Ólafsson)
Elsku Erla,
Helga, Gréta,
Brynja og fjöl-
skyldur, við send-
um okkar innileg-
ustu samúðar-
kveðjur og risa-
knús.
Jóhanna Margrét (Magga)
og fjölskylda.
✝ Jóhannes ÞórirReynisson
fæddist í Reykjavík
21. október 1952.
Hann varð bráð-
kvaddur 14. ágúst
2014.
Foreldrar hans
eru Eygló Ólöf
Haraldsdóttir hús-
móðir, f. 22. júní
1932, d. 13. ágúst
2002, og Reynir Jó-
hannesson múrari, f. 30. mars
1929. Reynir og Eygló giftust
16. maí 1953, en skildu. Eygló
giftist 1. apríl 1961 Óla Kr.
Jónssyni skólastjóra, f. 21. sept-
ember 1925, d. 26. apríl 2004.
Reynir giftist 23. febrúar 1963
Hjördísi Sturlaugsdóttur, f. 28.
maí 1936, d. 24. janúar 2007, en
eftir skilnað þeirra hóf hann
sambúð með Kristínu Jóns-
dóttur, f. 30. júní 1933, d. 24.
janúar 2007.
Albræður Jóhannesar eru a)
Birgir Reynisson, húsasmíða-
meistari, f. 26. janúar 1951, m.
Ragnhildur Bjarnadóttir, b)
Marteinn Ari Reynisson, bygg-
ingarfræðingur, f. 23. febrúar
1973, gift Ara Guðmundssyni.
Börn þeirra eru Kolbrún Eva,
Sandra og Andrea. 2) Eva,
starfsmaður Grand Banks, f.
20. maí 1977 gift Gary Keating.
Barn þeirra er Jersey Kiljan. 3)
Gísli, nemi í húsgagnasmíði, f.
25. júlí 1985.
Með Róslindu Jenny Sancir
eignaðist Jóhannes soninn Pét-
ur Reyni, verkstjóra, f. 5. mars
1973, í sambúð með Sigrúnu
Áslaugu Guðmundsdóttur. Börn
þeirra eru Emilía Ósk og Helgi
Snær. Áður eignaðist Pétur
Reynir soninn Atla Fannar með
Unni Ásu Atladóttur.
Jóhannes ólst upp fyrstu árin
í Heiðargerði, en síðan í Auð-
bekku í Kópavogi frá 7 ára
aldri hjá móður sinni og stjúp-
föður Óla Kr. Jónssyni. Jóhann-
es gekk í Kópavogsskóla og
Gagnfræðaskóla Kópavogs og
fór síðar í Iðnskólann í Reykja-
vík að læra bakaraiðn án þess
þó að ljúka því. Hann fór fljót-
lega á sjóinn og starfaði sem
sjómaður til fjölda ára. Seinna
fór hann að starfa við múrverk
hjá Einari J. Ólafssyni múr-
arameistara og lauk hann prófi
í þeirri iðn 1989. Við það starf-
aði hann hjá Ríkisspítölunum,
en auk þess tók hann að sér
fjölda verkefna í múriðn fyrir
aðra.
Útför Jóhannesar hefur farið
fram í kyrrþey að hans ósk.
1954, m. Gitana Mi-
seviciute. Sam-
feðra eru c) Sigrún
Reynisdóttir, arki-
tekt, f. 25. október
1961, m. Tryggvi
Gunnar Guðmunds-
son, d) Anna Soffía
Reynisdóttir kenn-
ari, f. 20. sept-
ember 1968, m.
Jónas Freyr Harð-
arson. Sammæðra
eru e) Jón S. Ólason aðalvarð-
stjóri, f. 9. október 1960, m.
Kristín Sigríður Jónsdóttir, f)
Haraldur Kr. Ólason leigubíl-
stjóri, f. 1. október 1965, m.
Anna Þóra Bragadóttir.
Jóhannes kvæntist 29. des-
ember 1973 Kolbrúnu Stef-
ánsdóttur móttökuritara hjá
UMS, f. 3. janúar 1953. For-
eldrar hennar voru Helga Sig-
tryggsdóttir, starfsmaður al-
þingis, f. 23. ágúst 1921, d. 11.
júlí 2007, og Stefán Valberg
Halldórsson, sjómaður, f. 22.
ágúst 1920, d. 4. október 1994.
Börn Jóhannesar og Kolbrúnar
eru 1) Helga, þjónustufulltrúi
hjá Arion banka, f. 1. október
„Ertu búin að hella upp á?“ er
það fyrsta sem pabbi sagði þegar
hann gekk inn um dyrnar þegar
hann kom í heimsókn. Hjarta
mitt þyngist við tilhugsunina um
að ég heyri þessi orð aldrei aftur
af hans vörum.
Sem barn leit ég upp til pabba
með mikilli aðdáun, mér fannst
hann svo duglegur, klár og mynd-
arlegur. Ég var svo heppin að fá
að vera handlangarinn hans og
fylgja honum í hin ýmsu verk
sem hann vann að, hvort sem það
var að flísaleggja gólf eða bóna
bíl. Mér lærðist fljótt að pabbi
var mjög vandvirkur, eiginlega
smámunasamur, allt skyldi vera
akkúrat upp á millimetra. Ég
man hvað ég var stolt þegar fólk
talaði um hvað hann væri vand-
virkur og flinkur, hann var hetjan
mín. Þetta eru minningarnar sem
ég vil halda á lofti um pabba
minn.
Takk fyrir þetta og svo margt
annað, elsku pabbi minn. Takk
fyrir allar bíóferðirnar með þér,
bara við tvö, popp, kók og góð
hasarmynd. Takk fyrir allar úti-
legurnar og ferðalögin. Takk fyr-
ir óeigingjarna hjálp í hvert sinn
sem mér datt í hug að standa í
framkvæmdum, flutningum eða
húsakaupum, þá varst þú mættur
með öll þín verkfæri og tæki og
jafnvel aukamannskap til að
hjálpa stelpunni þinni. Takk fyrir
að fylgja mér upp að altarinu
þegar við Ari giftum okkur. Takk
fyrir að spilla stelpunum mínum
með nammi frá ungaaldri, þrátt
fyrir mótmælin frá mér, það eru
góðar minningar fyrir þær núna.
Takk fyrir yndislega útilegu þeg-
ar við vorum saman um verslun-
armannahelgina, drukkum kakó
og Stroh og fórum síðust að sofa.
Takk fyrir að hafa knúsað mig
bless þegar við kvöddumst þá
helgi, í hinsta sinn. Ég kveð þig
með þessum orðum, pabbi minn.
„Þú hefur gengið meðal okkar og
skuggi anda þíns hefur verið ljós okkar.
Heitt höfum við unnað þér. En ást okk-
ar var hljóð og dulin mörgum blæjum.“
(Kahlil Gibran.)
Þín
Helga.
Elsku pabbi, ég á eftir að
sakna þín það sem eftir er ævi
minnar.
Þó þú vissir það líklegast ekki
var alveg óteljandi margt sem þú
kenndir mér. Þú kenndir mér að
mála, að vera nákvæm, að vera
sjálfstæð, að vinna öll verk vel, að
skapa með höndunum, að nýta
vel það sem til staðar var og svo
margt annað. Fyrir það er ég
endalaust þakklát.
Ég hef alla mína ævi verið
hreykin af því hversu handlaginn
þú varst. Þú gast smíðað, flísa-
lagt, múrað, pússað, málað og
gert falleg listaverk úr grjóti. Og
svo byggðir þú heilan sumarbú-
stað. Þegar ég sit hér inni í eld-
húsinu hjá mér og skrifa til þín er
ég umkringd vinnu þinni. Gólfið
sem þú flísalagðir. Eldhúsinn-
réttingin sem við gerðum saman.
Gluggakistan. Kertastjakinn.
Þú kallaðir mig alltaf litlu
prinsessuna þína þegar ég var lít-
il og mér fannst ég eiga þig ein –
þangað til Gísli bróðir fæddist –
þá tók litli prinsinn við, haha.
Eva.
Jóhannes Þórir
Reynisson
Hin margvíslegu
tímabil ævinnar skilja eftir sig
ólík spor hjá hverjum og einum.
Við, sem vorum samferða um
nokkurra ára skeið í Mennta-
skólanum við Sund, eigum ljúfar
og góðar minningar um bekkinn
okkar og tímann okkar saman.
Þetta var fámennur og samheld-
inn hópur þar sem Jói var einn
af þremur strákum í sautján
nemenda bekk. Stelpurnar voru
ákveðnar og stjórnsamar og
strákarnir ljúfir og afskaplega
þolinmóðir og umburðarlyndir.
Jói var skapgóður, glettinn og
hrókur alls fagnaðar, jafnt inn-
an skóla sem utan. Strax þá var
Unnur hluti af lífi hans, og þar
með okkar, því hún tók virkan
þátt í félagslífi bekkjarins.
Að loknu stúdentsprófi hélt
hópurinn áfram að hittast í maí
á hverju ári. Á þessum anna-
sömustu árum ævinnar hjá
mörgum féll aldrei niður sam-
verustund bekkjarins þó mis-
margir gætu mætt. Sumir héldu
til náms og starfa erlendis en
tóku upp þráðinn þegar heim
var komið. Jói mætti stundum
en oft hittist þannig á að hann
var að fljúga. Alltaf var þó spurt
frétta og fylgst með félögunum.
Samveran og samskiptin í
litla bekknum okkar áttu sinn
þátt í að móta okkur sem ein-
staklinga. Við erum þakklát fyr-
Jóhannes
Helgason
✝ JóhannesHelgason
fæddist í Reykjavík
16. júní 1958. Hann
lést á Landakots-
spítala 17. ágúst
2014.
Útför hans fór
fram frá Lang-
holtskirkju 28.
ágúst 2014.
ir þann tíma sem
við vorum samferða
Jóa og minnumst
hans með hlýju.
Við sendum okk-
ar innilegustu sam-
úðarkveðjur til
Unnar og fjölskyld-
unnar allrar. Megi
allar fallegar minn-
ingar um góðan
dreng lifa í hjörtum
okkar.
Fyrir hönd bekkjarsystkin-
anna í 4-B 1978.
Bergþóra Valsdóttir.
Mig langar með þessum orð-
um að kveðja æskuvin minn, Jó-
hannes Helgason, sem nú er lát-
inn, langt fyrir aldur fram. Við
Jói, eins og hann var alltaf kall-
aður, vorum bekkjarfélagar í
Réttarholtsskóla og vorum
sendir í sveit á sumrin í Hlíð
undir Eyjafjöllum. Jói var mús-
íkalskur og spilaði á harmon-
ikku og gítar. Hann kenndi mér
á gítarinn í sveitinni og um
haustið vorum við búnir að
stofna skólahljómsveitina Fa-
tímu ásamt Guðmundi Eyjólfs-
syni og Hilmari Erni Hilmars-
syni. Það var sérstök ánægja að
rifja þetta upp fyrir nokkrum
árum þegar haldið var upp á 50
ára afmæli skólans. Við hitt-
umst annað slagið og alltaf var
gaman að tala við Jóa og rifja
upp gamla tíma. Jói greindist
með alzheimer fyrir rúmum
fjórum árum. Það var erfitt og
reyndi mikið á hans nánustu.
Við spilafélagarnir komum til
með að sakna þín og vottum fjöl-
skyldu þinni samúð okkar.
Genginn er góður drengur.
Minningin lifir.
Birgir Ottósson.
Nú er komið að
því að kveðja elsku
ömmu Dúu sem
mér þótti alltaf svo
vænt um. Hún var að miklu
leyti fyrirmynd mín í lífinu
enda var hún mikill karakter,
skemmtileg og hjartahlý mann-
eskja með bein í nefinu. Eitt af
því sem mér fannst einkenna
ömmu var hvað hún hafði ótrú-
lega mikinn kraft og lífsvilja og
dauðinn var bara ekkert á dag-
skrá hjá henni og sást það vel
daginn sem hún lést en ég hafði
talað við hana í síma aðeins tíu
mínútum áður en hún lést. Það
stóð til að ég myndi sækja hana
á Sólvelli á Eyrarbakka og fara
með hana heim til sín á Rauð-
holtið. Hún sagðist vera frekar
slöpp svo við ákváðum að fresta
þessu um einn dag, ég skyldi
bara sækja hana á morgun. Ég
þarf ekki að hugsa meira en
einn dag til baka til að koma
með annað svona dæmi, þar
sem lífsviljinn kemur eins
sterkt fram.
Við Hjálmar höfðum verið í
heimsókn hjá henni kvöldið áð-
ur, hún talaði aðeins um að hún
hefði verið slöpp síðustu daga
en vonaði að hún yrði búin að
ná þessu úr sér fyrir haustið,
svo við gætum farið saman að
spila í Þingborg. Hún hafði
rosalega gaman af því að spila
félagsvist og ég held að ég hafi
ekki verið nema 12 ára þegar
ég fór að fara með henni á
spilakvöld. Ég hafði gaman af
því hvað það var mikið keppn-
isskap í henni og þegar spilað
Guðríður
Magnúsdótir
✝ GuðríðurMagnúsdóttir
(Dúa) fæddist 30.
júní 1926. Hún lést
18. ágúst 2014.
Guðríður var jarð-
sungin 30. ágúst
2014.
var á sama borði
og hún var eins
gott að gera enga
vitleysu því hún
hikaði ekki við að
skamma fólkið og
það var ekki hægt
annað en að taka
mark á henni enda
átti hún alltaf síð-
asta orðið.
Ömmu Dúu leið
alltaf best í sveit-
inni sinni, Flögu. Þangað fór ég
oft með henni og á margar góð-
ar minningar þaðan, amma og
afi byggðu sumarbústað í Flögu
og þau fóru þangað nánast dag-
lega þegar þau höfðu heilsu til
þess. Amma Dúa er búin að
gróðursetja mikið þarna í
kringum bústaðinn sinn en hún
hafði alltaf mikinn áhuga á
garðrækt og vildi hafa fallegt í
kringum sig enda var garður-
inn hennar á Rauðholtinu
nokkrum sinnum tilnefndur til
verðlauna.
Amma átti það til að vera
svolítið ráðrík og man ég t.d.
eftir því þegar ég bjó í Dan-
mörku og Guðjón frændi minn
var að fara þangað í frí. Amma
Dúa hringdi í hann og skipaði
honum að heimsækja mig, lét
mig svo vita að frændi minn
væri að koma! Hún passaði allt-
af upp á að fjölskyldan héldi
sambandi sín á milli og að eng-
inn væri skilinn útundan.
Amma Dúa var alltaf góð við
alla og það var alltaf pláss fyrir
fleiri manneskjur í faðmi henn-
ar. Hún fylgdist alltaf vel með
öllu vinafólki mínu og það köll-
uðu hana allir ömmu Dúu og
það þótti henni vænt um. Ég er
þakklát fyrir að hafa átt hana
að og allar minningarnar hjálpa
mér í gegnum sorgina. Bless í
bili amma Dúa, ég á alltaf eftir
að sakna þín.
Steinunn Dúa.
Það er erfitt að
kveðja fólk sem
maður elskar. Jafn-
vel þótt það sé gam-
alt og þreytt og í
dauðanum sé ákveðin líkn. Þegar
Stína föðursystir mín skildi við
þennan heim var líkaminn búinn,
95 ára afmælið á næsta leiti en í
henni bjó sterkur persónuleiki
og undurfalleg sál. Nákvæmlega
á þeim degi varð mér hugsað til
hennar. Ég var á ferðalagi, stödd
á afar fallegum stað í Bandaríkj-
unum og mér datt í hug að senda
henni póstkort. Kannski var hún
að hnippa í mig. Kannski var hún
að kveðja mig. Stína var nefni-
lega ekki bara elskuleg frænka
mín sem dekraði við okkur í
heimsóknum og ég dáðist að í
fjölskylduboðum fyrir ljúf-
mennsku, fágaðan klæðaburð og
fegurð. Hún var vinkona mín. Ég
varð þeirrar gæfu aðnjótandi,
þrátt fyrir 44 ára aldursmun
okkar, að fá að kynnast henni
sem jafningja. Það byrjaði með
því að hún skaut yfir mig skjóls-
húsi á Verslóárunum þegar ég
hringdi í hana um miðja nótt, þá
strandaglópur í Reykjavík vegna
óveðurs. Ég leitaði til hennar og
hún opnaði faðminn. Við áttum
skemmtileg samtöl í þessari
Kristín Ágústa
Þorvaldsdóttir
✝ Kristín ÁgústaÞorvaldsdóttir
fæddist 24. ágúst
1919. Hún lést 22.
ágúst 2014. Útför
Kristínar var gerð
1. september 2014.
óvæntu heimsókn
og ég fann hvað ég
átti mikið í henni og
hún átti mikið í
mér. Eftir þetta
heimsótti ég hana af
og til. Alltof sjaldan
auðvitað, en við átt-
um það sem við átt-
um. Hún var fé-
lagslynd,
hreinskilin og opin
og þegar við hitt-
umst spjölluðum við um lífið og
tilveruna. Um núið og fortíðina.
Hún fylgdist líka afar vel með
pólitík, hafði skoðanir og þorði
að viðra þær. Hún var stálminn-
ug og ég fékk hana stundum til
að segja mér frá barnæskunni
fyrir vestan, fyrstu árunum í
Reykjavík og lífi þeirra Ása og
stórfjölskyldunnar á Njarðargöt-
unni. Þá fékk hún glampa í aug-
un. Hún var gáfuð og góð í gegn
og sýndi bæði í orðum og verki í
gegnum lífshlaup sitt að í henni
bjó hugrekki, heiðarleiki, dreng-
lyndi, frændrækni, vinnusemi,
staðfesta og styrkur svo fátt eitt
sé nefnt. Hún átti drauma. Sum-
ir rættust, sumir ekki. Stundum
lék lífið við hana, stundum ekki.
En hún var fyrst og fremst fjöl-
skyldukona – eiginkona og
mamma sem með ást og um-
hyggju stóð eins og klettur með
sínu fólki.
Með innilegri samúð til fjöl-
skyldunnar og hjartans þakklæti
fyrir allt sem hún Stína mín gaf
mér og kenndi.
Gunnþóra Ólafsdóttir.
✝
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir,
tengdamóðir, amma og systir,
ÁSDÍS ÁSGEIRSDÓTTIR,
Vopnafirði,
lést á Landspítala, Fossvogi sunnudaginn 7.
september.
Minningarathöfn fer fram frá Laugarneskirkju
föstudaginn 12. sept. kl.15.00.
Jarðsett verður frá Vopnafjarðarkirkju laugardaginn 20. septem-
ber kl.17.00.
Kristján Magnússon,
Ásgeir Sigurðsson,
Svandís Hlín V. Kjerúlf,
Elmar Þór Viðarsson, Linda Björk Stefánsdóttir,
barnabörn og systkini.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
BIRNA GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR
frá Setbergi á Hauganesi,
sem andaðist á dvalarheimilinu Dalbæ á
Dalvík fimmtudaginn 4. september, verður
jarðsungin frá Dalvíkurkirkju þriðjudaginn
16. september kl. 13.30. Jarðsett verður frá Stærri-Árskógskirkju.
Fyrir hönd aðstandenda,
börn hinnar látnu.