Morgunblaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2014 Fréttastofa RÚV hefur eftir nafn-lausum „lögspekingum“ að af- staða innanríkisráðherra til þess hver hafi farið með rannsókn svokallaðs lekamáls sé einföld- un og jafnvel að hún byggist á grundvall- armisskilningi. Í þessu sambandi hef- ur fréttastofan eftir ríkissaksóknara að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi farið með fram- kvæmd rannsókn- arinnar á málinu.    Einnig er reynt aðgera svar inn- anríkisráðherra tor- tryggilegt með því að vitna í texta þess um að lögreglustjór- inn hafi ekki ráðið rannsókninni, en svo vill til að lýsingar ráðherra eru í samræmi við þær sem er að finna í bréfi umboðsmanns Alþingis til ráð- herra hinn 26. ágúst sl.    Þar er haft eftir lögreglustjór-anum að hann hafi hugað að hæfi sínu til að koma að rannsókn málsins og að „[h]ann hefði rætt þetta við ríkissaksóknara og það hefði orð- ið niðurstaðan að ríkissaksóknari hefði alltaf formlega ábyrgð og stjórn á lögreglurannsókninni en embætti lögreglustjórans legði til lögreglumenn til að vinna að rann- sókninni.    Ríkissaksóknari hefði sagst hafafyrirkomulag rannsóknarinnar í þessu formi í ljósi stöðu L[ög- reglustjóra] sem væri skipaður emb- ættismaður af ráðherra með tíma- bundna skipun en ekki stöðu eins og dómarar eða ríkissaksóknari sjálfur. L[ögreglustjóri] tók fram að síðan hefði rannsóknin farið í gang og hann hefði ekkert verið að fylgjast með henni frá degi til dags.“    Gat þetta verið eitthvað skýrara? Sigríður Friðjónsdóttir RÚV og nafnlausu „lögspekingarnir“ STAKSTEINAR Stefán Eiríksson Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Sérfræðingar í líkamstjónarétti Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is www.skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms- lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar- lögmaður Veður víða um heim 10.9., kl. 18.00 Reykjavík 12 skýjað Bolungarvík 10 skýjað Akureyri 15 léttskýjað Nuuk 4 skýjað Þórshöfn 13 þoka Ósló 17 léttskýjað Kaupmannahöfn 16 skýjað Stokkhólmur 17 heiðskírt Helsinki 17 léttskýjað Lúxemborg 15 skýjað Brussel 17 léttskýjað Dublin 17 léttskýjað Glasgow 21 léttskýjað London 18 skýjað París 20 heiðskírt Amsterdam 16 skýjað Hamborg 18 léttskýjað Berlín 17 skýjað Vín 20 skýjað Moskva 17 heiðskírt Algarve 23 léttskýjað Madríd 31 heiðskírt Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 28 léttskýjað Róm 23 léttskýjað Aþena 26 léttskýjað Winnipeg 8 skýjað Montreal 21 skýjað New York 21 heiðskírt Chicago 23 alskýjað Orlando 30 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 11. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:40 20:10 ÍSAFJÖRÐUR 6:41 20:19 SIGLUFJÖRÐUR 6:24 20:02 DJÚPIVOGUR 6:08 19:40 „Við teljum að þetta muni koma illa niður á neytendum og þá sérstaklega láglaunahópum auk þess sem við telj- um þetta skerða samkeppnisstöðu innlendrar búvöruframleiðslu,“ segir Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, en samtökin leggjast alfarið gegn fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á mat úr 7% í 12%. Sindri segir fjárlaga- frumvarpið ganga þvert gegn fyrri yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar um eflingu innlendrar matvælafram- leiðslu þar sem í því sé gert ráð fyrir ýmiss konar niðurskurði til íslensks landbúnaðar, t.a.m. til framleiðni- sjóðs. Þá segir Sindri niðurskurð til Landbúnaðarháskóla Íslands vera sérlega undarlegan enda hafi menntamálaráðherra lofað auknum fjármunum þegar umræðan um sam- einingu skólans við Háskóla Íslands hafi staðið sem hæst. „Þegar hann áttaði sig á því að það væri ekki póli- tískur meirihluti fyrir sameiningunni sneri hann við blaðinu,“ segir Sindri og bætir við að ekki sé hægt að skilja niðurskurðinn öðruvísi en svo að refsivöndur ráðherrans sé kominn á loft. „Það er undarlegt að skólinn fái ekki byr í seglin. Háskóli á sviði landbúnaðar hlýtur að vera mik- ilvægur ef efla á matvælafram- leiðslu.“ Leggjast gegn hækkun virðisaukaskatts  Bændasamtökin segja fjárlagafrum- varpið ganga gegn fyrri yfirlýsingum Undarlegt Sindri Sigurgeirsson furðar sig á niðurskurði til LBHÍ. Slæm staðsetning sorptunna víða um borgina veldur miklu óhagræði, skapar lélegt starfsumhverfi og í sumum tilvikum slysahættu fyrir starfsmenn sorp- hirðunnar og sums staðar er aðgengið beinlín- is óviðunandi samkvæmt úttekt sem Þröstur Ing- ólfur Víðisson gerði fyrir um- hverfis- og skipu- lagssvið Reykja- víkurgborgar. Umhverfis- og skipulagsráð fundaði um málið í gær og í kjölfarið hvetur ráðið íbúa Reykjavíkur til samvinnu við borgina um að bæta aðgengi starfsfólks sem sinnir tæm- ingu úrgangsíláta við heimili í borg- inni. Fram kemur að margir þættir geti torveldað aðgang að úrgangs- ílátum. Þá einkum tröppur, erfitt undirlag, hindranir, lofthæð og stað- setning. Önnur atriði séu breyt- ingum háð en hafi engu að síður áhrif. Til að mynda snjór, hálka, birta og lausir hundar. Aðgengi að sorptunnum oft slæmt  Íbúar hvattir til að bæta aðgengi Rusl Tunnumál í ólestri í borginni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.