Morgunblaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.09.2014, Blaðsíða 16
VESTFIRÐIR2014Á FERÐ UMÍSLAND MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2014 VI TINN 2014 VITINN Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Framleiðslan okkar er enn á al- gjöru tilraunastigi. Þetta er hrein nýsköpun. En okkur gengur vel. Varan selst vel og horfurnar eru góðar.“ Þetta segir Garðar Stef- ánsson, framkvæmdastjóri Norður & Co., sem fyrir ári síðan hóf rekstur saltverk- smiðju í nýbyggðu 540 fermetra húsi við höfnina á Reykhólum. Starfsemin hefur þeg- ar skapað sjö störf, fjögur á staðnum, tvö í Reykjavík og eitt í Dan- mörku. Ekki er ólíklegt að þeim eigi eftir að fjölga þegar fram líða stundir. Hugmyndir um salt- vinnslu úr sjónum við Reykhóla eru ekki nýjar af nálinni. Nefnd sem Kristján 7. Danakon- ungur skipaði árið 1770 til að gera tillögur um bættan hag landsmanna, stakk upp á því að hafin yrði saltvinnsla á Reykhólum. Framleiða gæðasalt á Reykhólum  Endurvöktu hugmynd um atvinnusköpun frá 1770 Ljósmynd/Norður & Co. Saltvinnsla Við eimingu í heitu vatni verður saltið eftir. Því er síðan pakkað í handhægar neytendaumbúðir. Vill orkuvinnslu vestra  Landsnet hefur á síðustu misserum fjárfest fyrir um þrjá milljarða króna í svæðiskerfi raforku á Vestfjörðum. Í síðustu viku var nýtt tengivirki Lands- nets og Orkubús Vestfjarða tekið í notkun og í nóvember verður vara- aflsstöð í Bolungarvík tilbúin. Þá hef- ur svonefnd Tálknafjarðarlína verið styrkt. „Það er ljóst að orkuöryggi fjórðungsins verður ekki viðunandi til framtíðar nema ný orkuvinnsla komi til sögunnar innan svæðisins,“ sagði Ragnheiður Elín Árnadóttir iðn- aðarráðherra við þetta tilefni. Hún segir ennfremur að þótt flutnings- kerfið vestra verði styrkt sé ljóst að ný orkuvinnsla upp á 5-10 MW geti skipt sköpum um rekstraröryggi. „Slíkt getur orðið til þess að koma í veg fyrir tíðar truflanir og straumleysi í kjölfar útleysinga og bilana á Vest- urlínu. Er það von mín að til nýrrar orkuvinnslu komi sem fyrst.“ Minna framleitt en notað er Stóru drættirnir í raforkumálum á Vestfjörðum eru þeir að þar er fram- leitt minna rafmagn en þar er notað. Eina tenging svæðisins við byggðalín- una er um svokallaða Vesturlínu. Af- hendingaröryggi raforku er því ekki nógu gott og hjá Landsneti hefur ver- ið lagt kapp á að bæta úr því. Komið hefur verið upp fjarvörnum á öllum línum Landsnets á Vestfjörðum sem dregur úr líkum á straumleysi og auð- veldar bilanaleit. Tálknafjarðarlínan hefur verið styrkt og bætt og þá sér, sem fyrr segir fyrir endann á bygg- ingu varaaflsstöðvarinnar í Bolung- arvík sem er verkefni upp á um hálfan annan milljarð. Þar verður hægt að framleiða allt að 11 megavött (MW) inn á svæðiskerfið með sex dísil- vélum. Þá lauk byggingu nýja tengi- virkisins á Ísafirði síðsumars. Það er staðsett á iðnaðarsvæðinu á Skeið, innan við Ísafjarðarkaupstað við hlið kyndistöðvar Orkubús Vestfjarða. Þörfin fyrir það var brýn. Gamla tengivirkið þar var úr sér gengið tæknilega, auk þess sem það er á snjóflóðahættusvæði í Stórurð og er þar í vegi fyrir nýjum ofanflóðavarn- argarði. Vestfirðir áherslumál Sem áður segir má virða Vest- fjarðapakka Landsnets á um þrjá milljarða króna. Til þess að setja hlut- ina í eitthvert samhengi þá voru heildarfjárfestingar fyrirtækisins í fyrra sjö milljarðar króna, að því er fram kemur í tilkynningu. Má af því ráða að Vestfirðir hafi verið áherslu- mál hjá Landsneti. sbs@mbl.is Ljósmynd/Árni Þórður Jónsson Opnun Þórður Guðmundsson, framkvæmdastjóri Landnets, Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra og Kristján Haraldsson frá Orkubúi Vestfjarða. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Slæmar samgöngur á sunnan- verðum Vestfjörðum hamla framþróun þar og samstarfi á milli sveitarfélaga á svæðinu. Torsótt getur verið að sækja grunnþjón- ustu og löngu tímabært að taka samgöngumál á svæðinu föstum tökum. Þetta segir Ólafur Sæ- mundsson, formaður Patreksfirð- ingafélagsins, sem ásamt Guð- mundi Bjarnasyni, formanni Arnfirðingafélagsins, sendi öllum þingmönnum bréf fyrir skömmu þar sem skorað var á þá að beita sér fyrir vegabótum við Vest- fjarðaveg nr 60, milli Bjarkalundar og Melaness, þannig að hann liggi í gegnum stuttan kafla í Teigsskógi í Þorskafirði. Þessi vegagerð hefur verið bit- bein í mörg ár, hún er sögð raska skóglendi, málið hefur verið á borðum fjölmargra ráðherra og endað fyrir Hæstarétti. Sveitar- stjórnir á svæðinu hafa lagt áherslu á að lagður verði láglend- isvegur um svæðið. Í sumar sendi Vegagerðin Skipulagsstofnun til- lögu að matsáætlun, þar sem m.a. kemur fram að vegurinn yrði lagð- ur í gegnum 2,15 km kafla í gegn- um skóginn, en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir talsvert lengri kafla í gegnum skóginn. Að sögn Hreins Haraldssonar vegamálastjóra hefur svar við til- lögunni enn ekki borist frá Skipu- lagsstofnun, en þess sé líklega að vænta innan tíðar. Hreinn segir samgöngubætur á sunnanverðum Vestfjörðum afar mikilvægar og að þessi tiltekni kafli sem hér um ræð- ir sé eini hluti Vestfjarðavegar sem eftir sé að hefja framkvæmdir við. Áætlað sé að vegagerð í Kjálkafirði og Kerlingarfirði ljúki á næsta ári, en koma eigi umferð á veginn þar núna í vetur, þó að slitlag verði ekki komið þar á. Sammála heimamönnum „Þetta er sá kafli í vegakerfinu sem er síðastur á dagskrá og satt best að segja átti að vera búið að klára þetta,“ segir Hreinn um Vest- fjarðaveginn. Hann segir forgangs- röðun vegaframkvæmda ráðast að miklu leyti af umferð. „Þarna er til- tölulega lítil umferð miðað við aðra staði. Þegar lagt var upp með fram- kvæmdir á þessu svæði var þetta svo stór biti; þarna var gamall og ónýtur vegur alla leið. Við höfum tekið hann í áföngum, sem hver og einn hefur verið mjög dýr. Við hjá Vegagerðinni erum 100% sammála heimamönnum um að þessar vega- bætur hefði þurft að fara í miklu fyrr.“ Segir göng dýran kost „Málið hefur verið á byrjunar- reit í 12 ár og ástæðan er að frið- unarsjónarmið í Teigsskógi hafa haldið málinu í gíslingu,“ segir Ólafur. „Vegur um Teigsskóg upp- fyllir öll skilyrði sem eru gerð um umferðaröryggi, snjómokstur og viðhald. Hann er á láglendi og kostnaður við rekstur vegarins yrði í lágmarki. Umhverfissinnar hafa lagt til jarðgöng, sem kosta 3 millj- örðum meira en að leggja þennan veg. Fyrir þá peninga væri t.d. hægt að tvöfalda nokkrar brýr eða kaupa ný tæki á hjartadeild Land- spítalans. Eru trjáplöntur, kræki- berjalyng og þessir tveir sumarbú- staðir í Teigsskógi virkilega 3.000 milljóna króna virði? Fyrir utan það að vegurinn myndi taka óveru- legan hluta af skóginum.“ Nýir þingmenn áhugasamir Spurður um hvort viðbrögð hafi borist við áðurnefndu bréfi segir Ólafur nokkra þingmenn hafa svarað, flestir séu þeir nýir á þingi og þeir hafi sýnt málinu talsverðan áhuga. „Ég held að flestir vilji að umferðaröryggi í þessum lands- Segir slæma vegi hamla framförum  Brottfluttur Patreksfirðingur berst fyrir betri samgöngum á Vestfjörðum Ólafur Sæmundsson Vestfjarðavegur Loftmyndir ehf. Ný veglína umTeigsskóg samkvæmt nýjustu tillögu Vegagerðarinnar. Hreinn Haraldsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.