Morgunblaðið - 11.09.2014, Page 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2014
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum
(Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum.
Er á Facebook
Bólgur eða
verkir?
www.annarosa.is
Tinktúran túrmerik og engifer
bæði bólgu- og verkjastillandi og hefur
gefist afar vel við slitgigt, liðagigt og
álagsmeiðslum. Túrmerik og engifer er
hvort tveggja einnig þekkt fyrir að lækka
blóðþrýsting, blóðsykur og blóðfitu.
Inniheldur svartan pipar
sem eykur upptöku túrmeriks.
þykir
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands og leiðtogi Íhaldsflokks-
ins, fór til Edinborgar í gær og skor-
aði á Skota að greiða atkvæði gegn
því að Skotland yrði sjálfstætt ríki
eftir að hafa verið hluti af Bretlandi í
307 ár. Stjórnmálaskýrendur telja að
fast verði lagt að forsætisráðherran-
um að segja af sér ef Skotar sam-
þykkja sjálfstæði í þjóðaratkvæða-
greiðslu sem fram fer á fimmtu-
daginn kemur.
Leiðtogar Verkamannaflokksins
og Frjálslyndra demókrata fóru
einnig í heimsókn til Skotlands til að
styðja sambandssinna í baráttu
þeirra fyrir því að landið verði áfram
hluti af Hinu sameinaða konungsríki
Stóra-Bretlandi og Norður-Írlandi.
Alex Salmond, forsætisráðherra
skosku heimastjórnarinnar og leið-
togi Skoska þjóðarflokksins, sagði að
afskipti leiðtoga þriggja stærstu
flokka Bretlands af þjóðaratkvæðinu
væru til marks um „ofsahræðslu“
þeirra vegna síðustu skoðanakann-
ana sem benda til þess að stuðn-
ingurinn við sjálfstæði Skotlands
hafi stóraukist. Ein þeirra bendir til
þess að sjálfstæðissinnar séu nú með
tveggja prósentustiga forskot og
önnur að fylkingarnar standi hníf-
jafnar að vígi.
Cameron til trafala?
John Prescott lávarður, sem var
aðstoðarforsætisráðherra í stjórn
Verkamannaflokksins í Bretlandi
1997 til 2007, lagði einnig sam-
bandssinnum lið í baráttunni og
sagði að stuðningur Davids Came-
rons væri þeim líklega til trafala
frekar en til framdráttar.
Forsætisráðherrann sagði í ræðu í
Edinborg að hann væri oft spurður
að því hvort ekki væri auðveldara
fyrir Íhaldsflokkinn að ná meirihluta
á breska þinginu ef Skotar lýstu yfir
sjálfstæði. Hann skírskotaði til þess
að flokkurinn fékk aðeins eitt þing-
sæti af 59 í Skotlandi í síðustu kosn-
ingum til breska þingsins. „Svar mitt
við því er að mér þykir miklu vænna
um landið mitt en flokkinn minn.
Mér þykir gríðarlega vænt um þetta
stórkostlega land, Hið sameinaða
konungsríki sem við höfum byggt
upp saman,“ sagði hann. „Það myndi
valda mér djúpum harmi ef þessi
fjölskylda þjóða sundraðist – þessi
þjóðafjölskylda sem hefur gert svo
stórkostlega hluti saman.“
Cameron hefur sagt að hann ætli
ekki að segja af sér embætti for-
sætisráðherra ef Skotar samþykkja
sjálfstæði. Fréttaskýrandi AFP seg-
ir að ef Skotar segi skilið við Bret-
land verði Cameron í stöðu sem eigi
sér ekki fordæmi frá árinu 1782 þeg-
ar Frederick North lávarður sagði af
sér eftir að Bretar biðu ósigur í bar-
áttunni um nýlendur þeirra í Amer-
íku.
Breski sagnfræðingurinn John
Barnes telur líklegt að Cameron
þyrfti að óska eftir atkvæðagreiðslu
á þinginu um hvort stjórn hans nyti
enn trausts meirihlutans ef Skotar
segja skilið við Bretlandi. Biði
stjórnin ósigur í atkvæðagreiðslunni
væri hún fallin. „Ég tel að hann
myndi ekki komast upp með minna
en það vegna þess að ella myndu ein-
hverjir þingmenn beita sér fyrir því
að honum yrði vikið úr embætti for-
sætisráðherra,“ sagði Barnes í við-
tali við breska ríkisútvarpið.
Bresk dagblöð segja að þingmenn
í Íhaldsflokknum séu farnir að ræða
hvort leggja eigi fram tillögu um
vantraust á stjórn Camerons ef
Skotar samþykkja sjálfstæði.
Myndi veikja Bretland
Talið er að það myndi veikja mjög
stöðu Bretlands á alþjóðavettvangi
ef Skotar segja skilið við það. Þar
með myndi Bretland missa þriðjung
af landsvæðum sínum, auk þess sem
kjarnavopn Breta eru geymd í Skot-
landi. Tíu af 52 forverum Camerons í
embætti forsætisráðherra fæddust í
Skotlandi.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands á árunum 1990-97, segir í
grein í The Times að aðskilnaður
Skotlands myndi veikja Bretland
innan Evrópusambandsins og á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna. Stuðn-
ingurinn við aðild að Evrópusam-
bandinu er meiri í Skotlandi en á
Englandi og ef Skotar samþykkja
sjálfstæði eykur það líkurnar á því
að Bretland gangi úr ESB.
Íhaldsflokkurinn hefur lengi átt
undir högg að sækja í Skotlandi,
meðal annars vegna óánægju Skota
með efnahagsstefnu flokksins í
valdatíð Margaret Thatcher á árun-
um 1979 til 1990. Segi Skotar skilið
við Bretland er líklegt að það veiki
Verkamannaflokkinn á breska
þinginu og torveldi honum að ná
meirihluta.
Salmond skírskotaði til hagsmuna
Camerons og bresku flokkanna í
deilunni um sjálfstæði Skotlands og
sagði að leiðtogar þeirra hefðu mest-
ar áhyggjur af því að missa atvinn-
una.
Skoski forsætisráðherrann sagði í
ræðu í Edinborg að Skoski þjóðar-
flokkurinn legði mikla áherslu á at-
vinnumál í baráttunni fyrir sjálf-
stæði. „Við höfum hug á að fá öflugt
þing sem getur skapað störf í Skot-
landi. Westminster-liðið virðist að-
eins einsetja sér að bjarga eigin
störfum.“
Skoskir sjálfstæðissinnar sögðu
að afskipti leiðtoga bresku flokkanna
myndu snúast í höndum þeirra og
verða sjálfstæðissinnum til fram-
dráttar. „Í hvert sinn sem leiðtog-
arnir í Westminster taka þátt í bar-
áttunni hérna eykst stuðningurinn
við sjálfstæði,“ sagði einn sjálf-
stæðissinnanna, Michael Granados.
Gæti orðið Cameron að falli
Breski forsætisráðherrann reynir að bjarga sambandi Bretlands og Skotlands – og sjálfum sér
Gæti þurft að segja af sér ef Skotar samþykkja sjálfstæði í mjög tvísýnu þjóðaratkvæði í næstu viku
AFP
Tvísýn barátta Nicola Sturgeon, aðstoðarforsætisráðherra skosku heimastjórnarinnar (standandi til vinstri), og
Alex Salmond forsætisráðherra (krjúpandi til hægri) á útifundi sjálfstæðissinna í Edinborg í gær.
Vilja halda pundinu
og drottningunni
» Skoski þjóðarflokkurinn vill
halda pundinu og að Elísabet
2. Bretadrottning verði áfram
þjóðhöfðingi Skotlands.
Flokkurinn vill einnig að Skot-
land verði í Evrópusambandinu
og Atlantshafsbandalaginu.
» Leiðtogar bresku stjórn-
málaflokkanna segja að ekki
komi til greina að semja um
myntbandalag við Skota til að
þeir geti haldið pundinu.
» Leiðtogar skoskra sjálf-
stæðissinna segja að Skotland
geti haldið pundinu og neitað
að taka við hluta af skuldum
Bretlands ef ekki næst sam-
komulag um myntbandalag.
» Embættismenn Evrópusam-
bandsins hafa sagt að Skot-
land geti ekki fengið aðild að
því ef landið heldur pundinu án
samnings um myntbandalag
eða án eigin seðlabanka.
AFP
Gæti misst embættið David Cameron á fundi í Edinborg. Hann skoraði á Skota að segja ekki skilið við Bretland.