Morgunblaðið - 11.09.2014, Page 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2014
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Karls J. Sighvatssonar, organista og
tónskálds, verður minnst á Karls-
vöku, stórtónleikum í Eldborg í
Hörpu á morgun kl. 21. Á þeim
koma fram margir af þekktustu tón-
listarmönnum landsins: Mugison,
Megas, Ólafur Arnalds, Gunnar
Þórðarson, Davíð
Þór Jónsson og
hljómsveitirnar
Apparat Organ
Quartet, Flo-
wers, Mannakorn
og Hjaltalín.
Karl lést á
Borgarspítal-
anum 2. júní árið
1991, fertugur að
aldri, af völdum
áverka sem hann
hlaut í bílveltu á Suðurlandsvegi við
Hveradali. Hann var brautryðjandi í
notkun Hammond-orgels í íslenskri
tónlist og lék á Hammond og fleiri
hljómborð með fjölda íslenskra
hljómsveita og tónlistarmanna á
ferli sínum, m.a. Trúbroti, Flowers,
Mannakornum, Þursaflokknum,
Tónum og Dátum og samdi tónlist
fyrir hljómplötur, leikrit og kvik-
myndir. Fyrstu minningartónleika-
rnir um Karl voru haldnir í Þjóðleik-
húsinu mánuði eftir að hann lést og
voru þeir teknir upp og gefnir út á
plötu. Á þeim léku margar af vinsæl-
ustu hljómsveitum þess tíma sem og
hljómsveitir og tónlistarmenn sem
starfað höfðu með Karli. Hefur
þeirri hefð verið haldið við í áranna
rás.
„Hammond-orgía“
Lög Karls og lengri verk verða
flutt á tónleikunum annað kvöld auk
annarra, m.a. „Blómið“ og „At-
ómstöðin“ og nokkrir af fremstu
organistum landsins munu snúa
bökum saman og leika á Hammond-
orgel í dagskrárlið sem nefndur er
„Hammond-orgía“ í fréttatilkynn-
ingu. Ágóði af miðasölu á tónleikana
mun renna í Minningarsjóð Karls J.
Sighvatssonar sem hefur allt frá
árinu 1991 veitt ungum tónlist-
armönnum styrki til framhalds-
náms, orgelkaupa, nótna- og plötu-
útgáfu o.fl. Tilkynnt verður um
styrkþega ársins að loknum tón-
leikum en fjöldi þeirra frá upphafi
styrkveitinga er nú orðinn á fjórða
tug, að sögn Sigurjóns Sighvats-
sonar, bróður Karls, sem kemur að
skipulagi tónleikanna og átti frum-
kvæðið að stofnun sjóðsins.
Sigurjón segir Karlsvökuna í ár
verða þá langumfangsmestu til
þessa. Myndir frá ferli Karls og
myndefni úr safni sjónvarps, tekið
saman af Agli Eðvarðssyni, verði
sýnt samhliða flutningi á tónlist
Karls. Þá verði það nýjung á tónleik-
unum í ár að löng tónverk eftir Karl
verða flutt, m.a. „Hallgrímur kvað?“
í nýrri útsetningu Viktors Orra
Árnasonar úr Hjaltalín fyrir stærri
kammersveit og rafmagnaða hryn-
sveit. Á fyrri Karlsvökum hafa að-
eins verið leikin lög og styttri verk
eftir Karl. „Við flytjum hin verkin í
allt öðruvísi útsetningum en þessum
hefðbundnu þannig að það er annað
form á þessu, enda er þetta í Eld-
borg í Hörpu. Það var ákveðið að
leggja meira í þetta,“ segir Sigurjón
og bendir á að minningartónleika-
rnir hafi verið haldnir í miklu minni
sölum í gegnum árin, m.a. í Gamla
bíói.
Gat talað við alla um allt
„Hann var mjög lifandi og afar
skemmtilegur og þess vegna átti
hann svona marga vini og kunn-
ingja,“ segir Sigurjón, spurður að
því hvernig maður Karl bróðir hans
hafi verið. „Oft eru listamenn frekar
mikið inni í sér en hann var hið
gagnstæða, hafði þennan hæfileika
að geta talað við alla um allt. Strax í
æsku var hann þessi opni persónu-
leiki og hafði áhuga á öllu. Seinna
var það nú meira tónlistin en svo
hafði hann mikinn áhuga á mataræði
og fleiru, hann var t.d. með fyrstu
mönnum sem þorðu að stunda jóga,“
segir Sigurjón. Karli hafi verið annt
um eigin heilsu.
Miðasala á Karlsvöku fer fram á
midi.is og harpa.is.
Umfangsmesta Karlsvakan til þessa
Tónleikar til minningar um Karl J. Sighvatsson fara fram í Eldborg í Hörpu á morgun Opinn
persónuleiki sem hafði áhuga á öllu, segir Sigurjón Sighvatsson um bróður sinn sem lést árið 1991
Hinsta kveðja Karl lék við messu í Þorlákskirkju daginn sem hann lést og var þessi ljósmynd tekin af honum fyrir utan kirkjuna að lokinni messu með
kirkjugesti, Guðbjörgu Magnúsdóttur Thorarensen. Guðbjörg varð nýlega 91 árs og bjó í um hálfa öld í Þorlákshöfn. Þau Karl voru góðir vinir.
Sigurjón
Sighvatsson
Víkingur Heiðar Ólafsson leikur ein-
leik í fyrsta píanókonsert Ludwigs
van Beethoven á tónleikum Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands í kvöld kl.
19.30 undir stjórn Pietari Inkinen.
„Fyrsti píanókonsert Beethovens
er fullur af glettnislegu fjöri, mel-
ódískri heiðríkju og ungæðislegum
krafti,“ segir m.a. í tilkynningu frá
hljómsveitinni, en þar bent á að Vík-
ingur Heiðar sé á líku reki og
Beethoven var þegar hann frum-
flutti konsertinn í Vínarborg árið
1801. Í byrjun þessa árs vakti flutn-
ingur Víkings Heiðars á fyrsta pí-
anókonsert J. Brahms í Eldborg
verðskuldaða athygli. „Víkingur
Heiðar er leiðandi afl í íslensku tón-
listarlífi og hefur vakið alþjóðlega
athygli fyrir persónulega og fágaða
túlkun á fjölbreyttum viðfangs-
efnum,“ segir í tilkynningu.
Á efnisskrá kvöldsins er einnig
Largo mistico eftir Pál Pampichler
Pálsson frá árinu 2012 og 6. sinfónía
Sergejs Prokofíev, sem er stórbrotið
tregaljóð til minningar um hörm-
ungar síðari heimsstyrjaldarinnar.
Finnski hljómsveitarstjórinn Pietari
Inkinen stendur í sjötta sinn á
stjórnendapalli Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands í kvöld.
Morgunblaðið/Ómar
Fágaður Píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson hefur vakið alþjóðlega
athygli fyrir persónulega og fágaða túlkun á fjölbreyttum viðfangsefnum.
Víkingur Heiðar leikur
einleik í Eldborg