Morgunblaðið - 11.09.2014, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 11.09.2014, Qupperneq 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2014 15% KYNNINGARAFS LÁTTUR ÞESSA VIK U! VER SLAÐU Á NETINUI WWW.GAP.ISNETTILBOÐ Á HVERJUM DEGI! HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS 147.815,- 2015 ÁRGERÐ 173.900,- Gríðarlega öflugt hjól og hraðskreitt með diskabremsum. Millibreið dekk flott fyrir mölina (Heiðmörk) og frábært á malbikið og setja má bretti og nagladekk á þetta hjól EIN ÓVÆNTASTA SPENNUMYND ÁRSINS FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA 10 JENNIFER ANISTON ISLA FISHER Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar 16 ÍSL. TAL L 12 12 12PARÍS NORÐURSINS Sýnd kl. 5:30 - 8 - 10 LIFE OF CRIME Sýnd kl. 8 TMN TURTLES 3D Sýnd kl. 5:30 LET´S BE COP´S Sýnd kl. 10:10 LUCY Sýnd kl. 8 AÐ TEMJA DREKANN 2D Sýnd kl. 5:30 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Alþjóðlega galleríkeðjan Opera hef- ur tekið málverk eftir Einar Há- konarson listmálara í umboðssölu. Nokkur verk fóru utan fyrir skemmstu og eru þau nú í Opera- galleríinu á New Bond Street í Lundúnum. „Þetta er gríðarlegur heiður og tækifæri fyrir föður minn og mikil viðurkenning fyrir hann sem lista- mann en Opera er ein stærsta gall- eríkeðja í heiminum,“ segir Hjálmar Einarsson, umboðsmaður Einars og sonur. „Við vitum auðvitað ekki ennþá hvaða þýðingu þetta kemur til með að hafa til lengri tíma litið en þær dyr sem nú hafa opnast fela sannarlega í sér mikla möguleika,“ bætir hann við. Hjálmar kom í galleríið í Lund- únum á dögunum og þótti ekki ama- legt að sjá verk föður síns hanga innan um verk meistara á borð við Van Gogh og Miró en Opera leggur jöfnum höndum áherslu á gamla meistara og núlifandi listamenn. „Þeir leggja mikinn metnað í að uppgötva málara sem ekki eru þekktir á alþjóðavettvangi,“ segir Hjálmar. Forsætisráðherra leit inn Fleiri Íslendingar hafa heimsótt Opera-galleríið í Lundúnum síðustu daga en Sigmundur Davíð Gunn- laugsson forsætisráðherra leit þar inn á leið sinni heim af Nato- fundinum í Wales um liðna helgi. Hitti þar galleristann, Jean-David Malat, að máli og skoðaði verk Ein- ars. Einar er annar íslenski listmál- arinn sem Opera tekur upp á sína arma en Óli G. Jóhannsson heitinn hélt fjölda sýninga á vegum gallerís- ins á sínum tíma og hefur það ennþá umboð fyrir verk hans. Einar Hákonarson er enginn ný- græðingur í myndlist en hann verð- ur sjötugur í byrjun næsta árs. Af því tilefni verður opnuð stór yfirlits- sýning á verkum hans á Kjarvals- stöðum í janúar og spannar hún fimmtíu ára tímabil í listsköpun mál- arans. Við sama tækifæri er áform- að að gefa út bók um list Einars. Skuggar Jean-David Malat gall- eristi og Sigmundur Davíð Gunn- laugsson forsætisráðherra við verk Einars, Skugga, í Opera-galleríinu í Lundúnum. Semur við Opera-galleríið  Alþjóðleg galleríkeðja tekur verk Einars Hákonarsonar upp á sína arma Morgunblaðið/RAX Listmálari Yfirlitssýning á verkum Einars Hákonarsonar verður opnuð á Kjarvalsstöðum í janúar í tilefni af því að hann verður sjötugur á næsta ári. Silja Hinriks opnar í dag sýningu í Grósku. „Ég hef tileinkað mér til- raunakenndar aðferðir við gerð málverkanna minna með því að prenta líkama minn á strigann með málingu eða notað hann til að fjar- lægja málingu af striganum og þó að verkið sé unnið með mínum eigin líkama tel ég að útkoman geti oft orðið fremur abstrakt. Líkams- prentunin leikur mikilvægt hlutverk í að kanna hver er raunveruleg birt- ingarmynd kvenlíkamans í myndlist en sýnir einnig mismunandi myndir líkamans,“ segir Silja um verk sín. Sýningin stendur til 14. september. Abstrakt Silja Hinriks við eitt verkanna sem hún sýnir í Grósku í Garðabæ. Málar með öllum líkama sínum Hálfur listamaður nefnist sýning Evu Ísleifs- dóttur sem opnuð verður í sýningarsal SÍM í Hafnarstræti 16 í dag milli kl. 17-19. „Hugmyndirnar sem ég kalla fram í þess- ari sýningu liggja í andstæðunum. Togstreitu við að gangast undir ábyrgð listamannsins gagnvart samfélagi sínu, útskýringar og ástæður hans fyrir tilvist sinni og tilvist verka sinna og öfgum hans í að reyna útskýra þær,“ segir Eva m.a. um sýningu sína. Sýningin stendur til 23. september og er opin alla virka daga kl. 10-16. Sýn Eitt verka Evu Ísleifsdóttur. Hálfur listamaður Frystiklefinn í Rifi sýnir Trúðleik eftir Hallgrím H. Helgason í Tjarnarbíói næstu þrjá sunnudaga í september kl. 14, sem og 12. október. „Trúðleikur er sprellfjörugur og hjartnæmur gamanleikur fyrir alla fjölskylduna. Þeir Skúli og Spæli eru trúðar sem hafa starfað saman langa- lengi. Skúli er ævinlega bjartsýnn, finnst yndislegt að sprella og getur ekki ímyndað sér neinn annan starfa, enda streyma hugmyndirnar og skemmtileg dellan upp úr honum eins og úr gosbrunni. Spæli er hins vegar krumpuð og tortryggin týpa. Fljótlega kemur babb í bátinn. Spæli kemst að því að þeir félagar hafi greinilega enn einu sinni lent á vitlausum áhorfendum sem hlæi á kolröngum stöðum.“ Með hlutverk Skúla og Spæla fara Benedikt Karl Gröndal og Kári Við- arsson, en leikstjórn er í höndum Hall- dórs Gylfasonar. Allar nánari upplýs- ingar eru á tjarnarbio.is. Fjör Benedikt Karl Gröndal og Kári Viðarsson fara með hlutverk trúðanna Skúla og Spæla í Trúðleik eftir Hallgrím H. Helgason í Tjarnarbíói. Hjartnæmur gamanleikur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.