Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.09.2014, Blaðsíða 9
7.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
um það má benda á þegar Scarlett
Johansson lenti í svipuðu atviki árið
2011, þá loguðu netheimar einnig
en þó með öðruvísi yfirbragði, því
flestir vildu meina að leikkonan
fræga gæti sjálfri sér um kennt.
Twitter hefur hins vegar sýnt
fram á þróun í jákvæða átt en þar
deildu gríðarlega margir notendur
skoðunum þess eðlis að „hakkar-
inn“ væri í raun kynferðisbrota-
maður og glæpamaður. Eins svör-
uðu margir fullum hálsi þeim sem
vildu skella skömminni á þolendur
frekar en þann sem réðst að einka-
lífi þeirra.
Fagna viðhorfs-
breytingum
TÍMARITIÐ FORBES BIRTI Í LOK VIKU GREIN UM ÞAÐ
HVERSU ÁNÆGJULEG VIÐBRÖGÐ FÓLKS VORU VIÐ BIRT-
INGUM NEKTARMYNDA NOKKURRA STÓRSTJARNA. LENA
DUNHAM, LEIKKONA, VAR MEÐAL ÞEIRRA SEM HVÖTTU
FÓLK TIL ÞESS AÐ SKOÐA EKKI MYNDIRNAR, ÞVÍ ÞAÐ VÆRI
KYNFERÐISLEG ÁREITNI.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Nick Bilton, pistlahöfundur á tæknisviði New York Times, tísti um atvikið
þar sem hann gaf stórstjörnum þrenns konar ráð við því að forðast það
að lenda í svona framar. Ekki stóð á svörum.
Óhætt er að segja að netiðhafi logað eftir að óprúttn-ir aðilar birtu nektar-
myndir af nokkrum skærustu
stjörnum Hollywood, þar á meðal
Jennifer Lawrence, Kate Upton og
fleiri. Myndunum höfðu þeir rænt
úr einkatölvum þeirra með því að
hakka sig inn á harða diskinn. Það
sem vakti athygli eftir athæfið voru
viðbrögð fólks. Ummæli, sem hafa
þótt eðlileg við glæpum sem þess-
um hingað til, hljóða á þann veg að
þolendur eigi ekki að láta taka slík-
ar myndir af sér. Að fræga fólkið
þurfi nú að fara að læra. Til marks
Bilton endaði með því að afsaka tístið sitt. Ef þróunin heldur svona
áfram má ætla að við séum í fínum málum.