Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.09.2014, Blaðsíða 34
H
vað er það sem þú fellur yfirleitt fyrir? Ég get ekki sagt að ég
falli fyrir einhverjum sérstökum fötum. Falleg efni og snið fanga
augað mitt.
Hvað er nauðsynlegt að eiga í fataskápnum sínum? Mér
finnst „den lille sorte“ aldrei klikka.
Eru einhver algeng mistök sem fólk gerir þegar kemur að klæðaburði?
Mér finnst ekki hægt að tala um mistök í klæðaburði, smekkur manna er
jafn misjafn og fólkið er margt. Það sem mér finnst ljótt finnst öðrum flott
og öfugt. Það er einmitt verst þegar fólk er of hrætt við að gera mistök,
ætli það sé ekki bara algengustu mistökin. Fólk má ekki vera hrætt við að
hugsa út fyrir kassann og taka áhættu á því að klæðast einhverju sem
heillar ekki alla. Það er svo hundleiðinlegt.
Hvað dreymir þig um að eignast? Þegar stórt er spurt þá er fátt um svör,
ég á allt. En líklega einhverja flotta yfirhöfn sem ég var að taka upp í Nost-
algíu, t.d. geggjaðan gervipels sem virkar við allt.
Hver er dýrasta flíkin í fataskápnum þínum? Það sem mér hefur verið
gefið af ást og kærleik er það dýrmætasta sem ég á í mínum fataskáp. Silf-
urgrár minkapels sem ég erfði frá ömmu minni, Ingu t.d.
Hvað vantar í fataskápinn þinn um þessar mundir? Skó og nóg af þeim.
Ég á yfirleitt bara eitt par sem ég nota þá við öll tækifæri, sem sagt dag-
lega þangað til ekkert er eftir af þeim.
Hver er best klædda kona í heimi að þínu mati? Sú kona sem klæðir sig
nákvæmlega eins og hún vill og rokkar það. Það skiptir ekki svo miklu máli
í hverju þú ert. Mun mikilvægara er að bera fötin vel og lifa þig
inn í stílinn þinn. Þetta snýst allt um sannfæringu. En ef ég ætti
að nefna eina sem er klassískur töffari þá er það hún Karen O.
Í hvað myndir þú aldrei fara? Ég myndi aldrei fara í diskó-
buxurnar sem voru svo vinsælar fyrir stuttu, spandexgallann.
Ég heillast sjaldnast af einhverju sem margir klæðast á
sama tíma. Þá verður það svo ópersónulegt.
Eru einhver tískuslys í fataskápnum þínum? Mögu-
lega einhverjir árekstrar en engin slys. Eða það finnst
mér ekki. Og ef
einhverjum þætti
það þá myndi ég
bara klæðast því aftur
og afsanna það.
Hvað finnst þér mest
heillandi í hausttískunni? Ég
heillast einmitt alltaf mun
meira af haust- og vetrartísk-
unni og get ekki beðið eftir að
klæðast kósí, þykkum peysum
yfir fallegar silkiskyrtur, ullar-
kápum og núna í haust ætla
ég að rokka tweed ofan á
tweed.
Inga væri til í að eiga einn
gervipels fyrir haustið.
MINKAPELS FRÁ ÖMMU AFAR KÆR
Inga Harðardóttir, versl-
unarstjóri Nostalgíu, er
óhrædd við að klæðast því
sem henni finnst flott enda
er hún ávallt smart til fara.
Morgunblaðið/Þórður
Hugsar út
fyrir kassann
INGA HARÐARDÓTTIR ER VERSLUNARSTJÓRI Í
NOSTALGÍU Á LAUGAVEGI. HÚN VEKUR ATHYGLI FYRIR
EINSTAKLEGA FLOTTAN OG PERSÓNULEGAN STÍL
ENDA FYLGIR HÚN ALFARIÐ EIGIN SANNFÆRINGU.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Tweed munstrið verður í fata-
skápnum hjá Ingu í haust.
Ingu þykir Karen O., sem er söngkona
rokksveitarinnar Yeah Yeah Yeahs, vera
með flottan stíl.
Það er mikilvægt að eiga fallegan
svartan kjól fyrir öll tilefni.
Tíska
Ostwald Helgason á tískuviku New York
AFP
*Einn stærsti tískuviðburður í heimi hófst í vikunni, Merce-des Benz Fashion Week í New York. Margir flottir hönn-uðir hafa nú þegar sýnt haustlínu sína en um helgina komafram nöfn á borð við Diane Von Fursternberg, Derek Lam,Thakoon, Victoria Beckham, DKNY og hálfíslenska tísku-merkið Ostwald Helgason. Ostwald Helgason saman-stendur af hönnunartvíeykinu Ingvari Helgasyni og Susanne
Ostwald. Saman hafa þau náð gríðarlega langt á sínu sviði
og gaman verður að fylgjast með þeim í framtíðinni.