Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.09.2014, Blaðsíða 23
7.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
N
afn: Anna Björk Kristjánsdóttir
Gælunafn: Ein sem kallar mig Spói, annars
ekkert.
Íþróttagrein: Fótbolti.
Anna Björk Kristjánsdóttir er uppalin í Vesturbænum
og spilaði knattspyrnu með KR upp alla yngri flokkana
þar til hún fór yfir í Stjörnuna 2009 þar sem hún hefur
verið síðan.
Hún er Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík og er
nú á öðru ári í sjúkraþjálfun í Háskóla Íslands auk þess
að þjálfa stelpur hjá Gróttu og KR.
Hversu oft æfir þú á viku?
Yfir sumartímann æfi ég 5-6 sinnum í viku og spila einn
leik, en á vetrartímanum fer ég á 5 fótboltaæfingar og
reyni að lyfta 2-3 yfir vikuna.
Hver er lykillinn að góðum árangri?
Mæta á allar æfingar og leggja sig 100% fram. Aukaæf-
ingar eru alltaf góðar en mikilvægast er að gera æfing-
arnar vel. Gæði fram yfir magn. Svo er líka mikilvægt að
hugsa vel um sig, mataræði og svefn. Alltaf að hafa trú á
því að maður geti gert betur og náð lengra.
Hvernig er best að koma sér af stað?
Erfiðasti parturinn við að fara að hreyfa sig er að koma
sér af stað. Ég mæli með að finna sér æfingafélaga og
byrja rólega. Gott er að hafa einhvern sem rekur þig
áfram og öfugt. Setja sér
raunsæisleg markmið.
Hvað ráðleggurðu fólki
sem vill hreyfa sig
meira?
Prufa sig áfram og finna
hvað hentar þeim. Ekki
festast í einhverju einu.
Hvernig heldurðu þér í
formi þegar þú ferð í frí?
Ég reyni að taka æfingar sem
tengjast ekki fótboltanum
beint. Prufa nýja tíma og halda
mataræðinu góðu.
Ertu almennt meðvituð/ur um mat-
aræðið? Verð meir og meir meðvituð með
tímanum. Reyni að borða mikið og hollt í
kringum æfingar og leiki.
Hvað borðarðu til að halda þér í formi?
Ég byrja daginn alltaf á því að fá mér hafragraut, svo
borða ég t.d. mikið af kjúklingi, salati, hnetum og boozti.
Hvaða óhollusta freistar þín?
Domino’s er minn veikleiki. Gæti aldrei tekið það alveg
út af mataræðinu mínu. Fæ mér stundum Domino’s
eftir leiki.
Hafragrautur alla
morgna
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill bæta
mataræðið?
Aldrei að byrja of ákaft og ætla sé að taka
alla óhollustu út í einu. Taka það í skrefum,
þetta er oft spurning um hvað þú venur þig
á. Ekkert að því að leyfa sér óhollustu við og
við.
Hvaða gildi hefur hreyfing fyrir þig?
Hún hefur mjög mikið gildi í mínu lífi. Ég næ
að losa vissa spennu við að hreyfa mig, fæ útrás og
mér líður illa ef það líður of langur tími milli æfinga. Ég
finn fyrir þreytu og leti ef ég fer ekki reglulega á æf-
ingar.
Hvað eru algeng mistök hjá fólki við æfingar?
Ætla sér að ná of miklum framförum á of
stuttum tíma og byrja of geyst.
Oft nauðsyn að fá hjálp frá fag-
fólki.
Hverjar eru fyrirmyndir
þínar?
Bjarni Páll, bróðir minn, og
foreldrar mínir.
Morgunblaðið/Ómar
Fyrir kyrrsetufólk er nauðsynlegt að gera æfingar til að auka hreyfan-
leika liða. Liðir í fingrum mega ekki verða útundan og fyrir þá sem nota
lyklaborð grimmt er gott að taka hlé inn á milli til að rétta vel úr fingr-
um og kreppa hnefa til skiptis. Gott er að endurtaka 15-20 sinnum.
Meiri kraft í að rétta en kreppa* Eina leiðin til að halda heilsunni er að borðaþað sem þér þykir ekki gott, drekka það semþig langar ekki í og gera það sem þú vilt ekki gera.
Mark Twain rithöfundur.
Hlaup hjálpa til við að koma í veg
fyrir hjartasjúkdóma, jafnvel þótt
aðeins sé hlaupið í nokkrar mín-
útur á dag, samkvæmt niður-
stöðum nýlegrar rannsóknar sem
birt var í tímaritinu Journal of the
American College of Cardiology
nýverið. Rannsakendur skoðuðu
55 þúsund einstaklinga á aldrinum
18 til 100 ára og fylgdust með
heilsufari þeirra yfir 15 ára tímabil.
Skoðað var hversu lengi fólk lifði,
hverjar dánarorsakir voru og hvort
viðkomandi stundaði hlaup eða
ekki. Dánartíðni úr hjartasjúkdóm-
um var 45% lægri hjá hópnum sem
stundaði einhvers konar hlaup en
hjá þeim sem aldrei hlupu. Þá
sýndu niðurstöður að hlauparar
lifðu að meðaltali þremur árum
lengur en þeir sem ekki stunduðu
hlaup, jafnvel þótt tekið væri tillit til
aldurs, kyns, reykinga, þyngdar og
annarra þátta sem gætu haft áhrif.
Þannig sýndu niðurstöður að
manneskja í ofþyngd sem hljóp
reglulega var ólíklegri til að fá
hjartasjúkdóm en manneskja í kjör-
þyngd sem aldrei reimaði á sig
hlaupaskó.
Hlaup í nokkrar mínútur á
dag við hjartasjúkdómum
Hlauparar hafa ástæðu til að gleðjast. Ný rannsókn sýnir að þeir lifa lengur en
þeir sem ekki hlaupa og eru í minni hættu á að fá hjartasjúkdóma.
Morgunblaðið/Eggert
Grunnur að góðri máltíð
www.holta.is
HO
LTA
KJÚKLINGUR
100% kjúklingur
Allur Holta kjúklingur er 100% náttúrulegur.
Þú getur verið viss um að þegar þú kaupir Holta
kjúkling ertu að fá vöru sem nýtur virðingar hjá
meistarakokkum, hvar sem þá er að finna.
KEMPA VIKUNNAR ANNA BJÖRK KRISTJÁNSDÓTTIR KNATTSPYRNUKONA