Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.09.2014, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.09.2014, Blaðsíða 43
7.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43 ekki verið slæmt að skála í morgun- kaffi við Sveppa og Villa uppá- klædda við kaffivélina á Torginu en þeir hafa verið að taka upp nýjustu myndina sína í húsinu. Leiðindin ekki að þvælast þar fyrir.“ Glöð með andann í húsinu Hvað húsgögn varðar segir Andrea þetta einkum og sér í lagi hafa ver- ið spurningu um að einfalda og end- urraða. Þá sé alltaf gott að geta leitað í smiðju til leikmunadeildar RÚV. Allskyns mublur hafa fengið nýtt hlutverk. Spurð hvernig fólk hafi tekið hús- næðisbreytingunum kveðst Andrea ekki verða vör við annað en ánægju almennt. „Það tekur alltaf tíma að vinna traust starfsfólksins en ég er ofsalega glöð með andann í húsinu. Fólk er upp til hópa mjög jákvætt í garð þessara breytinga. Auðvitað taka breytingar mismikið á fólk al- mennt og mikið er ég þakklát þegar fólk er til í að gefa hugmyndum sem eru í mótun smá séns. Breyt- ingarnar hér í Efstaleitinu hefðu ekki gengið svona vel án gefandi samvinnu deilda og iðnaðarmanna en þessar tilfærslur hafa gefið mér tækifæri til að kynnast starfsfólkinu hraðar og betur en ella. Fyrir það er ég þakklát. Ég hef mikinn metn- að, fyrir mína eigin hönd og ann- arra, en það er líka mikilvægt fyrir mannauðsstjóra að hlusta á fólk. Það er engin tilviljun að við erum með tvö eyru en bara einn munn. Húsnæðismálin hafa verið mest áberandi hlutverk mitt sem mann- auðsstjóri RÚV en að sjálfsögðu er ég að sinna klassískum mannauðs- málum sem ég er ráðin til. Ég er mikið fyrir fullorðið fólk. Þetta snýst um réttindi og skyldur og mér finnst afar skemmtilegt að hjálpa fólki að nota gáfur sínar í starfi og einkalífi. Mínar dyr standa alltaf opnar og ég hvet fólk til að leita til mín með hvaðeina sem því liggur á hjarta. Engin spurning er asnaleg!“ Andrea lofar að mæta sínum verkefnum af auðmýkt og gleði. „Þú getur ekki lýst upp myrkur með myrkri og gleði er því fagmennska fyrir mér. Ég hef tileinkað mér gleðina í mínum störfum en ef fólk kærir sig ekki um þá nálgun virði ég það líka. Ég hef slípast í þessu gegnum árin og fagna fjölbreytileik- anum. Þetta snýst að mínu viti um að velja sér viðhorf á morgnana, ef við mætum klyfjuð í vinnuna á hverjum morgni er hætta á því að við spriklum bara í fósturstelling- unni. Það eru allir með sín verkefni í lífinu og mörg þeirra langt frá því að vera karamelluhúðuð. Hver og einn einstaklingur er heill heimur útaf fyrir sig.“ Örugglega sá kurteisasti Nýi útvarpsstjórinn, Magnús Geir Þórðarson, er ekki síður þekktur fyrir jákvæðni og gleði, þar sem hann hefur stjórnað, og Andrea kveðst hlakka til að vinna áfram með honum. „Við þekktumst sáralít- ið áður en ég hef aldrei unnið með stjórnanda sem hefur jafn mikinn áhuga á öllum þáttum rekstursins og Magnús Geir. Hann er einn já- kvæðasti maður sem ég hef kynnst og örugglega sá kurteisasti og nær- gætnasti. Það er kúnst að vera inni- legur og tapa ekki gleðinni í mikl- um hraða en hér er fagmaður á ferð. Hann hefur þessa útgeislun og metnað fyrir hönd RÚV. Og eftir höfðinu dansa limirnir.“ Andrea er með BA-gráðu í fé- lags- og kynjafræði og meistara- gráðu í mannauðsstjórnun frá Há- skóla Íslands. Áður en Andrea hóf störf hjá RÚV starfaði hún sem verkefnisstjóri hjá Hjallastefnunni en frá 2010-13 var hún for- stöðumaður mannauðssviðs Tals. Andrea hefur einnig víðtæka reynslu úr fjölmiðlum sem dag- skrárgerðarkona og framleiðandi. Spurð hvers vegna hún hafi sóst eftir starfi mannauðsstjóra RÚV svarar Andrea því til að henni hafi alltaf þótt vænt um Ríkisútvarpið og eigi bjartar minningar því tengd- ar, allt frá því hún hlustaði á morg- unleikfimina með ömmu sinni þegar hún var lítil. Þá kveðst hún elska lógó stofnunarinnar. Yfir því sé stíll „enda verðlaunað vörumerki“. „Ég kom fyrst til RÚV til að starfa við unglingaþátt fyrir tuttugu árum, löðrandi í slími,“ rifjar hún upp skellihlæjandi. „Síðan kom ég aftur fyrir nokkrum árum til að stjórna menningarþættinum 07/08 Bíó-leikhús með Þorsteini Joð og fleirum. Þá var ég búin að vinna í flestum deildum 365 um nokkurt skeið. Ég hef því nokkuð góða til- finningu fyrir ferlunum eða hef ágæta innsýn sem er mikilvægt. RÚV er eftirsóttur vinnustaður og ég skil það vel.“ Konur hér, konur þar ... Í vor var ný framkvæmdastjórn ráðin hjá stofnuninni en hún er skipuð jafnmörgum konum og körl- um. „Magnús Geir byrjaði strax á því að taka kynjahlutfallið föstum tökum og það hefur nú verið jafnað, ekki bara í framkvæmdastjórninni heldur hefur konum verið fjölgað á kjörtíma í loftinu. Það hefur fallið í góðan jarðveg. Jafnréttismál hafa sjaldan þótt sexý en Magnús Geir hefur margsýnt að hann hefur hug- rekki til að takast á við þau. Auðvit- að ætlar enginn vísvitandi að ala á misrétti og fordómum en menn gera það samt ómeðvitað. Ef það vantar sérfræðing í þátt í útvarpi eða sjón- varpi er einfaldast að hringja bara í strákana sem þú ert með í bolt- anum. Ekki satt? Jafnréttið kemur ekki að sjálfu sér og ekki á einni nóttu en fyrir þessu er góð stemn- ing í húsinu.“ Í þeim töluðum orðum kasta um- sjónarkonur æfingabúða fyrir stelp- ur sem vilja taka þátt í spurn- ingakeppni framhaldsskólanna Gettu betur! í framtíðinni kveðju á Andreu. Þær búðir voru í útvarps- húsinu um liðna helgi og heppn- uðust að sögn aðstandenda vonum framar. „RÚV er sameign þjóðar- innar og það á að vera jákvæð upp- lifun að koma til okkar. Það boðar á gott að fá góðar og innilegar mót- tökur hvort sem þú ert gestur eða starfsmaður,“ segir hún. „Meint yfirtaka kvenna gengur mjög hægt,“ segir Andrea og glott- ir. „Konur eru helmingur mannkyns og það á því ekki að vera flókið að stuðla að jafnari kynjahlutfalli í fjöl- miðlum. Jafnrétti á að vera hluti af ímynd RÚV og það er mjög mikil- vægt að dætur okkar og synir hafi fyrirmyndir af báðum kynjum í fjöl- miðlum til að máta sig við og lesa kyn sitt inn. Mér finnst full ástæða til að ljá krafta mína í að gera heiminn betri,“ segir Andrea. Andi jafnréttis svífur sannarlega yfir vötnum í Efstaleitinu. Mannauðurinn mikill Vegur kvenna verður ekki bara meiri á RÚV á komandi misserum, landsbyggðinni verður líka gert hærra undir höfði. Efla á starfs- stöðvarnar úti á landi og í því skyni hefur verið auglýst eftir nýjum svæðisstjóra á Akureyri sem leiða mun þá vinnu. Andrea segir þetta gæfuspor enda sé RÚV útvarp allra landsmanna, hvar í sveit sem þeir eru settir. „Það var starfsdagur hérna um daginn og að sjálfsögðu sameinast allir RÚVarar á svoleiðis stundum. Þá komu allir sem gátu af landsbyggðinni í Efstaleitið sem er eina vitið,“ segir hún. Síðasti vetur var RÚV mjög erf- iður en fjöldauppsagnir vegna niður- skurðar fóru ekki framhjá nokkrum manni. „Þetta var skelfilegt!“ segir Andrea alvarleg á svipinn. Í fram- haldinu var skipt um útvarpsstjóra og boðskapur Magnúsar Geirs hefur verið sá að sóknarfæri séu í stöð- unni sem upp er komin. „Þar er ég sammála Magnúsi Geir,“ segir Andrea. „Eðlilega koma inn nýjar áherslur með nýju fólki en síðan er hollt að endurskoða sig annað slagið og skerpa á stefnu og ímynd. Blóð- takan var mikil síðasta vetur en það kom mér á óvart þegar ég byrjaði hversu jákvætt fólkið er hérna al- mennt og staðráðið í að horfa fram á veginn. RÚV er ótrúlega mikilvæg stofnun og það sem hér fer fram skiptir þjóðina miklu máli. Það er ánægjulegt hve mikla skoðun lands- menn hafa á starfseminni og dag- skránni en litlar breytingar, sem gjarnan eru vel undirbyggðar, geta valdið miklu umtali og slíkt eykur oft álag hjá fólkinu í húsinu. Það er óhætt að segja að starfsfólk er stolt af Ríkisútvarpinu og vill veg þess sem mestan. Mannauður RÚV er sannarlega mikill. Það eru forrétt- indi að vinna með öllu þessu frá- bæra skapandi fólki og gaman verð- ur að freista þess að hræra alla þessa þekkingu og reynslu saman við nýja og ferska strauma. Bjart- sýni og gleði hefur aldrei skemmt fyrir held ég. Það eru spennandi tímar framundan!“ Maðurinn rosalega 2014 Andrea segir alltaf mikilvægt að gæta jafnvægis milli vinnu og einka- lífs en á móti komi að hún hafi vitað út í hvað hún var að fara. „Ég hef ekki verið neitt rosalega virk í saumó undanfarið,“ segir hún. Hún á tvo drengi, tæplega sex og þriggja ára, með sambýlismanni sín- um, Jóni Þór Eyþórssyni, og viður- kennir að hún vildi gjarnan sjá meira af þeim þessa dagana. „Þarna er spurning um gæði en ekki magn. Að vera á staðnum og leggja sím- ann frá sér til að skapa gæðastund- ir. Annars hefur þetta gengið ágæt- lega þar sem ég á mann sem er rosalega 2014. Hann er góður pabbi og við eigum mjög auðvelt með að skipta með okkur verkum. Ekki spillir heldur fyrir að eiga ofur- ömmu í næstu götu, fjallageitina Möggu meiriháttar,“ segir Andrea og á þar við móður sína, Margréti Árnadóttur. Margt breyttist þegar börnin fæddust. „Upphaflega áttu börnin að koma inn í mitt líf. Ég hafði ferðast mikið og ætlaði að halda því áfram – með drengina á bakinu. Svona einfalt er þetta hins vegar ekki. Allt í einu vorum við komin með lifandi vekjaraklukkur inn á heimilið og forsendur breyttust. Svefn er munaður í dag og ég hef hvorki tuggið matinn minn almenni- lega né talað í heilum setningum í sex ár,“ segir hún hlæjandi. Ekki svo að skilja að hún telji það eftir sér. „Ég elska krúttkögglana mína skilyrðislaust og uppeldi þeirra er í senn skemmtilegasta og mest krefjandi verkefni sem ég hef tekist á hendur um dagana. Þeir eru mínir kennarar. Eitt knús er nóg til að bræða mig. Það er best í heimi!“ Æðislegt að eldast Árið hefur verið viðburðaríkt í vina- hópnum enda rekur hvert fertugs- afmælið annað. „Það er æðislegt,“ flýtir Andrea sér að segja. „Ég hef ekkert á móti því að eldast. Það er ekkert að því að vera gelgja á fimmtugsaldri!“ Hún hlær. „Grínlaust þá hef ég ekkert á móti því að verða fertug. Þegar ég hitti börn vina minna þá líður mér stundum eins og ég sé amma mín. Mikið óskaplega líður tíminn hratt. Aldurinn hefur kennt mér að hlusta betur á eigið brjóstvit og innsæið og það er búið að vera nóg að gera í að læra af mistökum. Eða við skulum orða það þannig að ég geri betur ef ég veit betur. Ég hlakka til þeirra verkefna sem framundan eru og held áfram að hamast í að vera besta útgáfan af mér.“ Spurð um áhugamálin utan vinnu er Andrea fljót að nefna tónlist. „Það er ekki til betra meðal en tón- list. Ég elska tónlist. Playlistinn minn er ómissandi, hvert sem ég fer. Hvað annað en geggjað lag læt- ur mann fá gæsahúð í fjörutíu stiga hita?“ Þegar Andrea sér furðusvipinn á blaðamanni bætir hún við: „Sjáðu til, ég var eitt sinn í nokkra mánuði í Asíu.“ Náttúran er annað sem Andrea gæti ekki verið án. Þau Jón Þór bjuggu um fimm ára skeið uppi í Hvalfirði og segir hún hvergi betra að hlaða rafhlöðurnar. „Ég ber mikla virðingu fyrir náttúrunni. Við fluttum hús þangað upp eftir í lítinn skóg og var tekið með kostum og kynjum af þessu dásamlega fólki í Kjósinni. Bændurnir voru fljótir að ættleiða mig og ég stofnaði klúbba úti um alla Kjósina; súpuklúbb, for- eldraklúbb og gönguklúbb. Ég er með klúbbablæti.“ Það er ekki bara náttúran, heldur ekki síður kyrrðin og friðurinn. „Það býr mikill sjarmi í kyrrðinni og þó að ég sé alla jafna atorkusöm finnst mér líka nauðsynlegt að slaka vel á. Það gerir maður hvergi betur en úti í náttúrunni. Það jafnast ekk- ert á við að vakna snemma, taka sultu og vera búin að baka hjóna- bandssælu fyrir níu á morgnana. Áður en maður vekur karlinn.“ Hún bregst strax brosandi við spyrjandi augnaráði. „Þetta er alveg satt, ég er mikil morgunmanneskja og elska mánudaga!“ Eldri drengurinn steig sín fyrstu skref í sveitinni og Andrea segir dagmóðurina í bænum hafa haft orð á því að hann hefði óvenju gott jafn- vægi. Enda lærði hann að ganga í þúfum en ekki á parketi. Fjölskyldan er nú komin aftur í bæinn og Andrea segir fjarlægðina hafa ráðið mestu þar um. Hún er á hinn bóginn opin fyrir því að flytja aftur í sveitina síðar meir. „Svei mér ef það blundar ekki í mér bóndi!“ * Mér hefuraldrei þóttóþægilegt að fara út fyrir rammann, reyna á mig og læra nýja hluti. „Mannauður RÚV er sannarlega mikill. Það eru forréttindi að vinna með öllu þessu frábæra skapandi fólki og gaman verður að freista þess að hræra alla þessa þekkingu og reynslu sam- an við nýja og ferska strauma,“ segir Andrea Róbertsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.