Morgunblaðið - 16.10.2014, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014
Nokkrir ötulir skákáhugamenn
hafa komið saman til æfinga hjá
skákdeild KR í Frostaskjóli á
hverju mánudagskvöldi klukkan
hálfátta, allan ársins hring. Svo
bar til sl. mánudag að Einar S.
Einarsson skákfrömuður frestaði
æfingunni fram yfir landsleik Ís-
lendinga og Hollendinga með eftir-
farandi skilaboðum á facebooksíðu
skákdeildarinnar:
„Æfingin frestast fram yfir leik
sem fer 2-0 fyrir Ísland að sögn
Magga Pé.“
En Maggi Pé, Magnús V. Pét-
ursson, fv. milliríkjadómari, komst
síðan ekki á skákæfinguna og varð
að horfa á leikinn af sjúkrabeði,
rifbeinsbrotinn eftir slæmt fall þá
um morguninn.
„Ég fór út að morgni og var að
skafa héluna af rúðunum þegar
bíllinn rann af stað og ég lenti
svona illa undir honum,“ sagði
Magnús við Morgunblaðið í gær,
en þá var hann enn nokkuð kval-
inn. Hann sagðist hafa verið búinn
að segja fyrir um þessi úrslit með
nokkrum fyrirvara og sagt það
hverjum þeim sem heyra vildi.
„Síðan sagði ég sjúkraflutn-
ingamönnunum að við myndum
vinna 2-0 og líka lögreglumönn-
unum sem hingað komu út af
óhappinu.“
Aðspurður sagðist Magnús einn-
ig vera búinn að spá 2-0-sigri Ís-
lands gegn Tékkum í Prag, en
strákarnir þyrftu að gæta sín.
Mæta stoltir til leiks og ekki fara
að hlaupa á eftir Tékkunum.
„Síðan dreymdi mig að strák-
arnir í U-21 liðinu myndu vinna
Dani 1-0 og skora sigurmarkið í
lokin. Þeir gerðu það reyndar en
því miður var markið dæmt af og
Danirnir skoruðu.“ bjb@mbl.is
Sagði öllum sem heyra
vildu að Ísland ynni 2-0
Maggi Pé rifbeinsbrotnaði og missti af skákæfingu KR
Morgunblaðið/Golli
Getspakur Magnús V. Pétursson spáir einnig sigri gegn Tékkum í Prag,
2-0. Í bakgrunni má sjá teikningu Halldórs Péturssonar af Magnúsi.
nýrri og stærri knattspyrnuvelli er
að hlaupabrautin fari, og um það hef-
ur náðst samkomulag við frjáls-
íþróttahreyfinguna. Við teljum að
fjármögnun svona framkvæmda geti
ekki orðið að veruleika nema með að-
komu áhugasamra fjárfesta. Eignar-
haldið yrði hjá borginni, sem fengi
auknar tekjur af byggingarmagninu
en gerði afnotasamning til langs
tíma við rekstraraðilana,“ segir Geir.
Á meðfylgjandi mynd má sjá eina
útfærslu á nýjum velli, sem KSÍ hef-
ur látið vinna. Geir segir að með lok-
un vallarins og stúkum allan hring-
inn skapist góð aðstaða til að reka
völlinn og tengd mannvirki, s.s bíla-
stæði og jafnvel hótel.
Hann gefur ekki upp neinar tölur í
þessu sambandi, enda fari kostnað-
urinn alfarið eftir því hve mikið yrði
byggt. Á meðfylgjandi mynd er
gengið út frá nýjum byggingum upp
á fimm þúsund fermetra.
Bíða fundar með ráðherra
Þórgnýr Thoroddsen, formaður
íþrótta- og tómstundaráðs Reykja-
víkur, ÍTR, segir stefnumótunar-
skýrslu um Laugardalinn vera til
skoðunar hjá borgaryfirvöldum.
„Nokkrir valkostir hafa verið
nefndir í gegnum tíðina sem kostir
fyrir frjálsíþróttaþjóðarleikvang en
það er afar ótímabært að telja þá til
að svo komnu. Það sem er ljóst er að
ríkið verður að koma að slíkum fram-
kvæmdum með borginni, eigi þær að
verða að veruleika, það væri enn
fremur í takt við stefnu ríkisins í
þessum efnum. Viðræður við ríkið
hófust á síðasta ári og verður haldið
áfram á næstu misserum þegar við
fáum fund með mennta- og menning-
armálaráðherra til að ræða þessi mál
betur,“ segir Þórgnýr.
Samkvæmt fjárhagsáætlun þessa
árs átti að setja 70 milljónir króna í
bráðabirgðaframkvæmdir á Laugar-
dalsvelli í tengslum við Smáþjóða-
leikana næsta sumar. Þórgnýr segir
þá áætlun hafa staðist, peningarnir
hafi verið settir í lagfæringar á
frjálsíþróttavellinum og kastsvæð-
inu, auk tækjakaupa.
Vilja hefja framkvæmdir eftir ár
KSÍ með útfærslur á nýjum þjóðarleikvangi á teikniborðinu Upphitaður völlur og yfirbyggðar
stúkur allan hringinn Viðræður við borgina Formaður ÍTR segir ríkið verða að koma að málinu
Samsett mynd/Bjarni Snæbjörnsson arkitekt og Þorvaldur Örn Kristmundsson.
Séð úr lofti Ein af þeim tillögum sem KSÍ er með til skoðunar og kynningar. Yfirbyggðar stúkur allan hringinn,
upphitaður völlur og möguleikar á fjölbreyttri aðstöðu fyrir rekstraraðila Laugardalsvallar, m.a. hótel.
60% horfðu á leikinn
» Samkvæmt bráðabirgðatöl-
um frá RÚV var 60% upp-
safnað áhorf á leik Íslands og
Hollands á mánudagskvöld.
» Meðaláhorf var 35% og í lok
leiks voru 50% þjóðarinnar að
horfa.
» Til samanburðar var 47%
meðaláhorf á úrslitaleik HM í
sumar en um 25% á leiki Ís-
lands gegn Tyrkjum og Lettum.
» Hafa ber í huga að um 10
þúsund manns voru á Laug-
ardalsvelli á leiknum sjálfum.Laugardalur Svona liti völlurinn út séð frá Engjavegi og ljóst að hæð bygg-
inganna héldi sér miðað við núverandi aðalstúku að vestanverðu.
Samsett mynd/Bjarni Snæbjörnsson arkitekt og KSÍ.
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ,
hefur til skoðunar útfærslur á nýjum
þjóðarleikvangi í Laugardal, sem
gerir ráð fyrir upphituðum grasvelli
og yfirbyggðum stúkum sem tækju
a.m.k. 15 þúsund manns í sæti.
Starfshópur á vegum Reykjavík-
urborgar skilaði af sér tillögum til
borgarstjóra í fyrra, þar sem mótuð
er framtíðarsýn fyrir íþróttasvæðin í
Laugardal. Meginniðurstaða starfs-
hópsins, sem m.a. formaður KSÍ og
FRÍ sátu í, var að hlaupabrautin á
Laugardalsvelli yrði fjarlægð og
byggður nýr leikvangur undir frjáls-
ar íþróttir í Laugardal. Ekki hefur
fundist lausn í þeim efnum en ákveð-
ið var að ráðast í bráðabirgðafram-
kvæmdir á Laugardalsvelli vegna
Smáþjóðaleikanna næsta sumar, þar
sem lagfæra á hlaupabrautina, kast-
svæðið og endurnýja tækjabúnað.
Aðkoma fjárfesta nauðsynleg
Að sögn Geirs Þorsteinssonar, for-
manns KSÍ, liggur fyrir styrkur frá
UEFA, sem ætlaður er til að skipta
um gras og gera völlinn upphitaðan.
„Þetta teljum við okkur ráða við
og viljum að byrjað verði á þessu að
ári, þegar Smáþjóðaleikunum er lok-
ið og undankeppni EM. Riðlakeppn-
inni lýkur í október og ef Ísland
lendir í umspili fara þeir leikir fram í
nóvember. Við myndum kjósa að
hlaupabrautin yrði fjarlægð í leiðinni
en um þetta eigum við eftir að ræða
betur við borgina,“ segir Geir og
bendir á að mjög tæpt hafi verið
núna í vikunni að leikirnir gegn Hol-
landi og Danmörku gætu farið fram í
Laugardal. Völlurinn ráði enn síður
við að leikið yrði í nóvember eða
mars, en sú staða geti komið upp hjá
landsliðunum í undankeppnum fyrir
EM eða HM.
„Við höfum ekki fjárhagslegt bol-
magn til að standa einir að bygging-
um á Laugardalsvelli, höfum nóg
með okkar rekstur. Forsendan fyrir
Kringlan - Sími: 577 7040 | www.loccitane.com
T
il
bo
ði
n
gi
ld
a
16
.-
20
.o
kt
ób
er
20
14
eð
a
m
eð
an
bi
rg
ð
3.150,-
ANDVIRÐI 4.150,-
Box með 3x30 ml handáburði. Þrjár ilmtegundir :
Lime, Vanilla og Rose.
Handkremsþrenna
Hvað er nýtt í haust?