Morgunblaðið - 16.10.2014, Side 10

Morgunblaðið - 16.10.2014, Side 10
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég eignaðist mínarfyrstu vínylplötur þegareldri bræður mínir létumér eftir það sem þeir höfðu viðað að sér. Síðan hef ég bætt í safnið, alveg frá fermingu,“ segir Reynir Berg Þorvaldsson sem á glæsilegt rúmlega tvö þúsund platna vínylsafn heima hjá sér. Nú er hann á fullu að pakka þeim í kassa og flytja í miðbæinn þar sem hann ætlar að opna nýja plötubúð á morgun klukkan tíu á Klapparstíg 35. „Fyrst safnaði ég einvörðungu Bubba Morthens, enda mikill aðdá- andi hans, en svo vatt þetta upp á sig og nú er kominn tími til að ég selji þetta allt frá mér.“ Seldi bílinn til að fjármagna Plötusafnið geymir góða breidd í tónlist, frá gömlu góðu Rolling Stones, Pink Floyd og Led Zeppel- in, til indírokks, pönks og djass. „Þegar ég vann í Lucky Record þá smitaði eigandinn þar mig af djass- áhuga, blues, soul og fönki, og slík- ar plötur hafa því bæst í safnið mitt og gefið því aukna vídd,“ segir Reynir og viðurkennir fúslega að það muni verða erfitt að láta sumar plöturnar frá sér. „Ég verð eflaust gráti nær stundum í búðinni,“ segir hann og hlær, en bætir við að hann sé að láta gamlan draum rætast með því að opna sína eigin plötu- búð. „Ég seldi annan bílinn til að fjármagna þetta, keypti húsgögn og græjur í Góða hirðinum og Ikea, smíðaði sjálfur hillur og nota skrif- borðið mitt sem ég hef lært við í áraraðir sem afgreiðsluborð, en það er gamla skrifborðið hans pabba. Ég er með BA og MA í sagnfræði og er líka með kennsluréttindi fyrir framhaldsskóla, þannig að ef búðin gengur ekki, þá fer ég bara að kenna.“ Reynir segir að búðin eigi að vera lítil og notaleg. „Fólk getur fengið persónulega aðstoð, spjallað og hlustað á plöturnar, fengið sér kaffi og notið. Ég verð með mínar eigin bækur sem tengjast vínyl fyr- ir fólk til að glugga í. Þetta verður félagsmiðstöð, mér finnst sjálfum gaman að fara í plötubúðir þó ég eigi ekki krónu, bara til að skoða, finna og hlusta.“ Góðærið var gullaldartími Reynir segir að vinsældir vín- ylplatna séu á mikilli uppleið og hann hefur trú á að vínyllinn lifi. „Fólk spáði því að kertin mundu hverfa þegar ljósaperan kom, en svo varð ekki. Flestar íslenskar hljómsveitir gefa núna út á vínyl, enda finnst fólk gaman að hafa plötuspilara í stofunni og hlusta á tónlist af vínyl, hún hljómar allt öðruvísi. Plötuspilarar eru orðnir vinsælar fermingargjafir og krakk- ar fara upp á háloft að sækja vínyl í kössum frá foreldrunum.“ Reynir hefur viðað að sér plötum í gegnum tíðina frá hinum ýmsu stöðum. „Ég keypti margar í Lucky Records þar sem ég var að vinna og þegar ég er í útlöndum fer ég alltaf á markaði og í plötubúðir og ég panta og kaupi líka af netinu. Góðærið var gullaldartími fyrir vínylsafnara eins og mig, því fólk losaði sig þá við allt Ég verð eflaust stundum gráti nær Þeir eru margir gullmolarnir sem leynast í plötusafni Reynis Bergs Þorvaldssonar en í því eru um tvö þúsund vínylplötur. Það er saga á bak við hverja plötu, stund- um hafa fáklæddar konur leynst í umslögunum. Plötur Bubba Morthens voru þær sem hann safnaði fyrst og fékk átrúnaðargoðið til að árita þær. Nú hefur hann ákveðið að nota plötusafnið til að stofna nýja plötubúð, Reykjavík Record Shop. Morgunblaðið/Kristinn Dýrmæti Hér horfir Reynir í gegnum gat 45 snúninga plötu frá 1966 með Hljómum sem kölluðu sigThors’ Hammer á útlendum markaði. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014 Á hverju fimmtudagskvöldi fram að jólum mæta tveir höfundar í Gunn- arshús við Dyngjuveg í Reykjavík og spjalla um nýjar bækur sínar. Hverju kvöldi fylgir nýr spyrjandi sem ræðir við höfundana. Höfundarnir lesa kafla og verður spurningatími. Í kvöld kl. 20 ætla Guðrún Eva Mínervudóttir og Ármann Jakobsson að fjalla um glæný verk sín. Bók Ármanns, Síðasti galdrameistarinn, fyrsta barnabók hans, er spennandi ævintýrasaga sem sækir í sagnabrunn norrænna miðaldabókmennta og segir frá Kára sem kann ekki að galdra. Skáldsaga Guðrúnu Evu, Englaryk, segir frá Ölmu sem hittir Jesú í sumarfríi fjöl- skyldunnar á Spáni. Þegar Alma ein- setur sér að fylgja fordæmi frelsar- ans, bjóða hinn vangann og hjálpa sínum minnsta bróður, hrindir hún af stað atburðarás sem hneykslar bæjarbúa. Vefsíðan www.Facebook/Húsráð Gunnarshúss Morgunblaðið/Golli Skáld Guðrún Eva Mínervudóttir mun lesa úr nýrri bók sinni, Engalryki. Galdrameistari og Englaryk Hljómsveitin Árstíðir hefur átt góðu gengi að fagna bæði hér heima og í útlandinu. Nú ætla þeir félagar að halda tónleika á Kaffi Rósenberg í kvöld kl. 21, en þó nokkuð er síðan hljómsveitin hefur haldið tónleika í borginni, því undanfarna mánuði hef- ur hún einbeitt sér að túrum erlendis og upptökum á sinni þriðju breið- skífu, Hvel. Hljómsveitin sendi nýver- ið frá sér nýtt lag og myndband er nefnist Things You Said. Fjórmenn- ingarnir sem skipa hljómsveitina eru þeir Daníel Auðunsson, Gunnar Már Jakobsson, Karl James Pestka og Ragnar Ólafsson. Endilega … … njótið tón- leika Árstíða Árstíðir Gleðja með lifandi tónum. Krónan Gildir 16.- 19. okt verð nú áður mælie. verð Folaldagúllas eða snitsel ................................. 1.498 1.998 1.498 kr. kg Folaldapiparsteik ............................................ 2.198 3.398 2.198 kr. kg Folaldainnralæri .............................................. 2.198 3.399 2.198 kr. kg Folaldafile ...................................................... 2.998 3.998 2.998 kr. kg Folaldalundir .................................................. 3.598 4.798 3.598 kr. kg Folaldahakk.................................................... 459 598 459 kr. kg Kjarval Gildir 16.- 19. okt verð nú áður mælie. verð SS Ítalskt lambaribeye..................................... 3.898 4.898 3.898 kr. kg SS saltkjöt valið .............................................. 1.998 2.575 1.998 kr. kg Holta kjúklingabr. 100% hreinar ....................... 2.398 2.998 2.398 kr. kg Argentínu-sósur 2 teg. 330 ml.......................... 389 598 389 kr. stk. Fanta orange 2 ltr............................................ 298 399 298 kr. stk. Fjarðarkaup Gildir 16.- 18. okt verð nú áður mælie. verð Nauta innralæri úr kjötborði ............................. 2.898 3.598 2.898 kr. kg Grísahnakki úrb úr kjötborði ............................. 1.098 1.598 1.098 kr. kg Grísasíða m/puru............................................ 745 998 745 kr. kg Hamborgarar 2x115g m/brauði ....................... 490 540 490 kr. pk. Lambabógur frosinn ........................................ 898 1.149 898 kr. kg Ísfugl 1/1 frosinn kjúklingur ............................. 698 798 698 kr. kg KF lambalæri ófrosið ....................................... 1.398 1.498 1.398 kr. kg Nóatún Gildir 17.- 19. okt verð nú áður mælie. verð Lamba prime úr kjötborði ................................. 2.998 3.798 2.998 kr. kg Grísabógur hringskorinn úr kjötb. ...................... 699 798 699 kr. kg Ungnautahamborgari 120 g úr kjötb. ................ 269 298 269 kr. pk. Langa, roð- og beinlaus úr fiskb. ....................... 1.598 1.798 1.598 kr. kg FERSKIR kjúklingalæri úrb. ............................... 2.198 2.659 2.198 kr. kg Helgartilboðin Getty Images/iStockphoto Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. JEPPADEKK Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is Vönduð og endingargóð vetrardekk sem koma þér örugglega hvert á land sem er

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.