Morgunblaðið - 16.10.2014, Side 11
Úbs Þetta umslag Þeysara var bannað á sínum tíma.Fágæti Þeir sletta skyrinu … Þessi plata er árituð.
Morgunblaðið/Kristinn
Við plötusafnið Þau eru mörg gullin sem finna má í vínylsafni Reynis, þar á meðal eru Fræbblarnir og Trúbrot.
gamalt, Góði hirðirinn var fullur af
gullmolum.“
Kukl fyrir hundrað þúsund
Reynir ætlar ekki að halda
neinni plötu eftir, það er allt eða
ekkert. Hann segir erfitt að segja
hvaða plata sé dýrmætust í safninu,
en nefnir þó fyrstu pressu af Black
Sabbath sem og gamalt íslenskt
pönk, proggrokk, Trúbrot, Hljóma,
Svanfríði og Óðmenn og fleira í
þeim flokki. Ekki hefur Reyni tek-
ist að eignast allar þær vínylplötur
sem hann langar til, en sjaldgæft ís-
lenskt pönk er þar á meðal. „Ég
væri til í að fullkomna pönkasafnið
mitt með sjö tommu plötu Tauga-
deildarinnar og sjö tommu Kukls-
ins, Söngull, en hana er afar erfitt
að fá. Hún kostar sennilega ekki
minna hundrað þúsund kall,“ segir
Reynir og bætir við að sumir nán-
ast lifi fyrir söfnin sín og leitina að
réttu plötunum.
Naktar konur í
aukanærbuxunum
Sögurnar eru margar á bak við
plöturnar, hvernig hann eignaðist
þær og hvað kom á óvart. „Ég
keypti eitt sinn notaða plötu hér á
Íslandi með Bob Marley sem gefin
var út 1986 og þegar ég kom heim
og fór að skoða sá ég að henni
fylgdu aukanærbuxur, en það kall-
ast aukahulstur utan um plötuna.
Ofan í þessum aukabuxum var hell-
ingur af nosturslega útklipptum
myndum af nöktum konum.
Kannski hefur sá sem þetta átti fal-
ið þetta í plötusafninu sínu og stein-
gleymt að fjarlægja þegar hann lét
það frá sér,“ segir Reynir sem verð-
ur ekki einungis með gamlan vínyl
til sölu í búðinni sinni heldur líka
nýjar íslenskar plötur og geisla-
diska. „Ég verð líka með boli með
lógói búðarinnar og tautöskur.
Framtíðarplanið er að fá umboð
fyrir plötuspilara, góða en ekki of
dýra, en þangað til verð ég með
notaða spilara til sölu.“ Facebo-
ok.com/Reykjavík Records Shop
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014
Dr. Þórgunnur Snædal rúnafræð-
ingur flytur fyrirlestur í dag kl.
16.30 hjá Miðaldastofu Háskóla Ís-
lands í stofu 422 í Árnagarði. Fyr-
irlesturinn fjallar um 1000 ára sögu
rúnaleturs á Íslandi. Rúnir voru í
notkun frá upphafi landnáms. Í
Noregi lagðist rúnanotkun að
mestu af á 16. öld en hér á landi
héldu menn áfram að nota rúnir
eða afbrigði af rúnaletrinu langt
fram á 19. öld og safna og skrifa
upp ýmsan fróðleik um rúnir. Í
þessu 1000 ára ferli þróaðist og
breyttist rúnaletrið og einnig hve-
nær og hvernig þær voru ristar eða
höggnar, á kefli, stein, málm og
annað. Á fyrstu öldum Íslands-
byggðar er algengast að finna
rúnaristur á gripum, en um 1300 er
farið að höggva rúnir á legsteina.
Tölvert safn af lárum, trafakeflum,
prjónastokkum, að ógleymdum
Grundarstólnum frá 1551, er varð-
veitt í Þjóðminjasafni og víðar.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir.
Saga og þróun rúnaleturs
Snældusnúður Vilborgar Frá upp-
hafi 11. aldar, fannst við fornleifaupp-
gröft á Alþingisreitnum 2008.
Þúsund ár
á 35 mínútum
www.volkswagen.is
Atvinnubílar
HEKLA býður nú fyrirtækjum Volkswagen Transporter og Volkswagen Caddy
á einstaklega hagstæðri rekstrarleigu.
Í rekstrarleigu fá fyrirtæki bifreiðar til umráða í eitt ár* gegn föstu mánaðar-
gjaldi sem gefur fyrirtækjum einstaklega gott svigrúm til að aðlaga bílaflotann
að breyttum aðstæðum með lítilli skuldbindingu og lágmarksáhættu.
Nýjasta útfærslan af Caddy og Transporter er sú snjallasta til þessa
og betur búin en nokkru sinni fyrr. Þú getur til dæmis tíma- og
fjarstýrt olíumiðstöðinni og tryggt þér hlýja og notalega byrjun
á vinnudeginum með snjallsímanum.
Snjallari kynslóð atvinnubíla
á rekstrarleigu
Aukabúnaður í Snjall-Caddy
• Þráðlaust símkerfi
• Fjarlægðarskynjarar að aftan
• Stigalúga**
• Tveir fjarstýringarlyklar
• Fjarstýrð Webasto olíumiðstöð
með snjallsímabúnaði
• Sjúkrapúði
• Hraðastillir (Cruise Control)
Aukabúnaður í Snjall-Transporter
• Þráðlaust símkerfi
• Fjarlægðarskynjarar að aftan
• Tveir fjarstýringarlyklar
• Þjófavörn
• Viðarklæðning á gólfi flutningsrýmis
• Hraðastillir (Cruise Control)
• Fjarstýrð Webasto olíumiðstöð
með snjallsímabúnaði
• Sjúkrapúði
*Einnig er hægt að velja 24 og 36 mánaða leigusamning. **Ekki mögulegur aukabúnaður í Caddy Maxi
Volkswagen er mest
seldi atvinnubíllinn á Íslandi
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Transporter Vél Verð m. vsk án vsk m. vsk
Transporter stuttur 2,0 TDI 4.490.000 79.602 99.900
Transporter langur 2,0 TDI 4.650.000 83.586 104.900
Transporter langur 4Motion 2,0 TDI 5.690.000 107.490 134.900
Caddy
Caddy 1,2 TSI 3.250.000 79.602 99.900
Caddy 1,6 TDI 3.590.000 82.789 103.900
Caddy Maxi
Caddy Maxi, sjálfskiptur 1,6 TDI 3.990.000 87.570 109.900
Caddy Maxi 4Motion 2,0 TDI 4.190.000 90.757 113.900
12 mán. rekstrarleiga
VW SNJALL-BÍLAR