Morgunblaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014 Að lifa í jafnvægi Holl fæða hjálpar okkur að skapa stöðugleika í líkamanum og lífinu. Ab vörurnar stuðla að lifandi jafnvægi. H V ÍT A H Ú S ÍÐ /S ÍA 14 -0 76 6 Kynningarfundur á verkefnum og viðburðum á næsta ári í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna var haldinn á Hallveigarstöðum í gær. Þar var vefsíða afmælisársins – www.kosningarettur100ara.is – opnuð með ávarpi ungs femínista, Ragnheiðar Davíðsdóttur. Á heima- síðunni auglýsir framkvæmda- nefndin styrki til verkefna tengdra afmælinu árið 2015. Umsóknir þurfa að hafa borist fyrir 15. nóvember. Formaður afmælisnefndar, Auður Styrkársdóttir, kynnti viðburði og verkefni á vegum nefndarinnar og fulltrúar Þjóðminjasafns, Lands- bókasafns, Listasafns Íslands og Sin- fóníuhljómsveitar Íslands ræddu verkefni sín. Morgunblaðið/Þórður Kynning 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna verður fagnað 2015. Vefsíða vegna afmælis kosningaréttar var opnuð Verið er að smíða tröppur og palla við Hjálparfoss í Þjórsárdal til að vernda gróður fyrir sívaxandi átroðningi ferðafólks. Gróður hefur mjög látið á sjá við Hjálparfoss síðustu ár, að því er fram kemur í frétt á heimasíðu Skógræktar ríkisins. Fossinn er í landi Skógræktarinnar sem hefur umsjón með svæðinu ásamt Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Sveitarfélagið og Skógrækt rík- isins fengu samtals 6 milljóna króna styrk úr Framkvæmdasjóði ferða- mannastaða vegna átaks við upp- byggingu á ferðamannastöðum sum- arið 2014. Fjárhæðin er notuð í þær framkvæmdir sem nú standa yfir og ganga vel. Við hönnun mannvirkjanna var leitast við að búa til leiðir og útsýn- isstaði þannig að fólk gengi sem minnst á gróðri. Reynslan sýnir að ef slík mannvirki eru vel gerð og skýrt afmörkuð er lítið traðk utan þeirra. Langstærstur hluti ferða- fólks heldur sig á afmörkuðum gönguleiðum. Þolir ekki fjölgun Haft er eftir Kristófer A. Tóm- assyni, sveitarstjóra Skeiða- og Gnúpverjahrepps, að svæðið sé ekki í stakk búið til að taka við vaxandi fjölda ferðafólks sem þangað leggur leið sína. Glæfralegri gönguleið sem myndast hefur upp malarkambinn vestan við fossinn yrði lokað vegna slysahættu og traðks. Reiknað er með að fram- kvæmdum ljúki í næsta mánuði. Hjálparfoss er í Fossá í Þjórs- árdal sem þar fellur fram í tveimur kvíslum. Fallegt stuðlaberg er í kringum fossinn. Þar er vinsæll án- ingarstaður ferðafólks. Morgunblaðið/Kristinn Hjálparfoss Umhverfið liggur undir skemmdum vegna átroðnings fólks. Ferðafólki beint á tröppur og palla  Umbætur við Hjálparfoss Ljósmynd/Skógrækt ríkisins Framkvæmdir Starfsfólk Skógræktar ríkisins var á starfsmannafundi og fór um leið að Hjálparfossi til að skoða framkvæmdirnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.