Morgunblaðið - 16.10.2014, Síða 18

Morgunblaðið - 16.10.2014, Síða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 2014 Á FERÐ UM ÍSLAND MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014 VIÐTAL Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Ísland er okkar heimili núna,“ segja hjónin og Kópavogsbúarnir Pornwadee Rattanapaitoonchai og Wirach Yodsurang frá Taílandi sem hafa verið búsett hér á landi í nokk- ur ár. Þau hafa starfað hjá upplýs- ingatæknifyrirtækjum víða um heim undanfarin 20 ár, núna starfa þau á upplýsingatæknisviði Arion banka og segja Ísland vera góðan og öruggan stað til að ala upp börn. Pornwadee sem yfirleitt er köll- uð Oy er kínversk en ólst upp í Bangkok í Taílandi og Wirach er fæddur og uppalinn á landsbyggð- inni. Hingað komu þau fyrst árið 1998 og störfuðu þá hjá upplýsingatæknifyrirtækinu EJS. Þau fóru aftur til heimalands síns árið 2002, en árið 2007 sneru þau aftur hingað, fóru þá að starfa á upplýsingatæknisviði Kaupþings og starfa nú hjá Arion banka. Velferð sonarins Thanawin, sem að öllu jöfnu gengur undir nafninu Mart, hafði mikið að segja um þessa flutn- inga. Upphafið má rekja til Hong Kong. Þar störfuðu tölvufræðing- urinn Oy og tölfræðingurinn Wirach fyrir alþjóðlegt upplýsingatæknifyr- irtæki. Þau kynntust Íslendingum sem störfuðu á vegum íslenska upplýsingatæknifyrirtækisins EJS í Hong Kong og það leiddi til þess að Oy var boðið starf hjá EJS hér á landi. Wirach kom síðan nokkrum mánuðum síðar. „Ég kom hingað í febrúar 1998,“ segir Oy sem hafði aldrei áður komið til Evrópu. „Þá var snjór og frost, ég hafði aldrei séð snjó áður með berum augum og verð að viðurkenna að ég var hrædd. Þessi munur á árstíðunum var al- gjörlega framandi. Mér hefur alltaf fundist Ísland vera sitt hvort landið eftir því hvort það er sumar eða vet- ur.“ Eiginmaðurinn kom svo síðar og þau störfuðu hjá EJS til ársins 2002. Þá lá leiðin aftur til Taílands, þar sem þau hófu störf hjá þarlendu símafyrirtæki sem var í eigu fyrr- verandi forsætisráðherra landsins. Hafa alltaf unnið saman Þegar Mart fæddist árið 2004 fóru þau að huga að annarri búsetu. „Við bjuggum í Bangkok og það tók okkur þrjá tíma á dag að komast til og frá vinnu,“ segir Wirach. „Við höfðum líka áhyggjur af öryggi Marts, þó að við byggjum í lokuðu Morgunblaðið/Eggert Ánægð Oy og Wirach með Mart á milli sín. Þau segja Ísland góðan stað til að búa á, hafa ferðast talsvert um landið og finnst allir staðir á landinu fallegir. Öðruvísi á góðan hátt  Fluttu til Íslands frá Taílandi og una hag sínum vel í Kópavogi  Segja Ísland góðan og öruggan stað til að ala upp börn  Hreinskilni Íslendinga þægileg  Ekki er vitað með vissu af hvaða Bessa Bessastaðir á Álftanesi draga nafn sitt. Á Vísindavef Há- skóla Íslands segir að danska fræðikonan Jenny Jochens telji að Snorri Sturluson, sem þar bjó á þjóðveldisöld, hafi nefnt staðinn eftir tengdaföður sínum Bersa Ver- mundarsyni á Borg. Eftir að Snorri var veginn í Reykholti komust Bessastaðir í eigu Noregskonungs og á síðari hluta miðalda var þar aðsetur æðstu fulltrúa erlends valds hér á landi. Samkvæmt vefsíðu forsetaemb- ættisins hafa fornleifarannsóknir leitt í ljós að búseta hófst þar á landnámsöld og árið 1668 urðu Bessastaðir embættisbústaður full- trúa konungs, landfógeta og amt- manns. Sjálf Bessastaðastofa var byggð 1761-1766, árið 1805 fluttist Hóla- vallaskóli sem þá var eini lærði skóli landsins til Bessastaða og hlaut þá heitið Bessastaðaskóli. Á þeim tíma sóttu skólann ýmsir leiðtogar sjálfstæðisbaráttu Íslend- inga og Fjölnismenn. Skólinn var fluttur til Reykjavíkur 1846 og eftir það bjuggu ýmsir á Bessastöðum, þeirra á meðal skáldið Grímur Thomsen. Árið 1941 keypti Sig- urður Jónasson forstjóri Bessa- staði og afhenti þá íslenska ríkinu að gjöf svo þar mætti verða bú- staður ríkisstjóra og síðar forseta- setur. annalilja@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Bessastaðir Þeir eiga sér langa og merka sögu allt frá landnámi. Hver var hann, þessi Bessi? Morgunblaðið/Golli Við borðið Þegar ný stjórn tekur við er tekin mynd á Bessastöðum. „Við framleiðum heildarlausnir í flakavinnslu fyrir hvítfisk,“ segir Helgi Hjálmarsson, framkvæmda- stjóri tæknifyrirtækisins Völku í Kópavogi. Valka var eitt þeirra fyrirtækja sem hlutu á dögunum verðlaun Íslensku sjávarútvegssýningarinnar fyrir framúrskarandi árang- ur. Fyrirtækið hannar jafnt sem framleiðir tæki og búnað fyrir fiskvinnslur, allt frá stökum tækjum yfir í heildarkerfi. „Við erum orðin ellefu ára,“ seg- ir Helgi. „Við vorum tveir við þetta í upphafi. Síðan hefur fyrirtækið vaxið og dafnað og nú eru starfs- mennirnir tuttugu.“ Í rúmgóðri starfsstöð fyrirtækisins við Víkurhvarf í Kópavogi er unnið að hönnun, forritun, verkefnastjórn og samsetn- ingu auk sölu og þjónustu. Einstaka verkþættir eru unn- ir af undirverktökum en allt eft- ir leiðsögn starfsmanna Völku og á grundvelli hönnunar þeirra. Viðskiptavinirnir eru sjávar- Stefnir í 600 milljóna króna veltu Völku  Er með heildarlausnir í fiskvinnslu Tækni Í starfsstöð Völku er unnið að hönnun og samsetningu búnaðarins. Einnig sölu og markaðssetningu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.