Morgunblaðið - 16.10.2014, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014
Kaupmannahöfn. AFP. | Danska
fyrirtækið Lego er nú stærsti leik-
fangaframleiðandi heimsins og hefur
skotið keppinautum sínum ref fyrir
rass með mikilli sókn í Asíulöndum.
Lego skaust fram úr bandaríska
leikfangafyrirtækinu Mattel, sem
framleiðir meðal annars Barbie-
dúkkur, á fyrri helmingi ársins. Það
er meðal annars rakið til Lego-
kvikmyndar, sem varð til þess að
salan á lego-leikföngum jókst, en
einnig til þess að vinsældir leikfanga
á borð við Barbie-dúkkur hafa
minnkað.
Mikil samkeppni frá
stafrænum leikföngum
Það hefur þó ekki verið neinn
barnaleikur að ná þessum árangri.
Mörg hefðbundin leikfangafyrirtæki
hafa átt undir högg að sækja vegna
vaxandi samkeppni frá tölvuleikjum
og öppum sem mörg hver eru ókeyp-
is. Sum fyrirtækjanna hafa reynt að
snúa vörn í sókn með tölvuleikjum
og stafrænum leikföngum. Lego hef-
ur hins vegar farið aðra leið.
Niels Lunde, höfundur bókar-
innar „Miraklet i Lego“, segir að
fyrir um það bil áratug hafi stjórn-
endur fyrirtækisins óttast að lego-
kubbarnir myndu ekki standast
samkeppnina frá stafrænum leik-
föngum og tölvuleikjum. Fyrirtækið
hafi rambað á barmi gjaldþrots árið
2004 þegar Kjeld Kirk Kristiansen,
erfingi stofnanda fyrirtækisins, hafi
þurft að leggja 800 milljónir danskra
króna, sem svarar 16,5 milljörðum
íslenskra, í fyrirtækið.
Aftur til upprunans
Nýr forstjóri fyrirtækisins, Jörg-
en Vig Knudstorp, ákvað að færa
fyrirtækið aftur til upprunans með
því að leggja áherslu á framleiðslu
lego-kubbanna en auka jafnframt
tekjur af leyfisgjöldum, m.a. af
Legoland-skemmtigörðum.
„Umskiptin urðu þegar þeir átt-
uðu sig á því að plastkubbarnir eru
svo sannarlega frábær leikföng
ennþá,“ sagði Lunde.
Á fyrri helmingi ársins voru
tekjur Lego þrisvar sinnum meiri en
á sama tímabili árið 2008. Salan á
leikföngum Mattel heldur hins vegar
áfram að minnka, til að mynda um
9,1% á öðrum fjórðungi ársins.
Salan stórjókst í Kína
Lego hefur einkum sótt í sig veðr-
ið í Kína. Þar jókst salan á lego-
leikföngum um 50% á fyrri helmingi
ársins og fyrirtækið hóf byggingu
fyrstu lego-verksmiðjunnar þar í
landi.
James Button, sérfræðingur í
markaðsmálum í Kína, segir að
Lego standi vel að vígi þar í landi
vegna þess að kínverskir foreldrar
leggi mikið upp úr því að börnin leiki
sér að þroskandi leikföngum. „Kína
er land einkabarnanna og foreldr-
arnir eru tilbúnir að eyða miklum
peningum í leikföng handa þeim,“
segir Button.
Heimild: LEGO
LEGO sigrar heiminn
Ole Kirk Kristiansen
seldi tréleikföng sem
hann smíðaði sjálfur
Nafnið LEGO er
dregið af
orðunum
„Leg godt“
(leiktu vel
Plastkubbar
settir á
markað
Fyrsta
LEGOLANDIÐ
opnað:
625.000 gestir
á fyrsta ári garðsins
LEGO á meðal
tíu stærstu
leikfanga-
framleiðenda
heimsins
LEGO endurskipulagt
Rekstrarhalli
að andvirði
20 milljarða
íslenskra króna
Fólk
á að
meðaltali
11.755 starfsmenn.
þeirra á meðal yfir 180 hönnuðir
söluaukning á fyrri
helmingi ársins miðað við
sama tímabil á síðasta ári
í 130 löndum
700 milljarðar
kubbafígúra
5 milljarðar
Sala
Kína
Stærsti leikfangaframleiðandinn
LEGO í tölum
Fyrri helmingur ársins 2014
milljarðar
íslenskra
króna
LEGO
256
milljarðar
íslenskra
króna
Mattel
243
Velta
25
20
10
5
15
2004 2007 2010 2013
Í milljörðum danskra króna
ma. ísl. kr.
50%
94 kubba
Fyrsta LEGO-
kvikmyndin
LEGO-fígúrur
á markað
25,4
523
Lego-kubbarnir í stórsókn
í landi einkabarnanna
Enn einn Norðmaðurinn er fallinn í
Sýrlandi. Samkvæmt fréttum
norska ríkisútvarpsins, NRK, í
fyrradag barðist hann með bókstafs-
trúarhreyfingunni Ríki íslams og er
tíundi maðurinn
með norskan bak-
grunn, eins og
það er orðað, sem
fellur þar í landi.
Öryggisþjónusta
norsku lögregl-
unnar, PST, telur
að alls hafi 60
manns farið frá
Noregi til að berj-
ast í Sýrlandi,
flestir í þágu Rík-
is íslams og hefur straumurinn vaxið
eftir að samtökin lýstu yfir stofnun
ríkis í sumar.
Af þessum 60 eru minnst tíu Norð-
menn, sem hafi snúist til íslams.
Lars Gule, sérfræðingur í öfga-
hreyfingum við Háskólann í Ósló og
Akershus, telur að sterkar tilfinn-
ingar búi að baki hjá þeim, vonbrigði
og beiskja. Þeim finnist þeir hafi ver-
ið óréttlæti beittir: „Um leið finnst
þeim að sannleikanum sé haldið frá
þeim, einmitt vegna þess að þeir
upplifa að heimurin sé óréttlátur.
Þeir halda að að um sé að ræða áróð-
ur og lygar.“
Gule bætir við í samtali við NRK:
„Þeir sem eru sannfærðir um að þeir
berjist í þágu guðs líta á þetta sem
píslarvætti. Það er kappsmál
margra. … Það er ekki víst að það
fæli frá að norskur vígamaður Ríkis
íslams hafi verið drepinn í Sýrlandi.“
Fjöldamorð og ánauð
Sameinuðu þjóðirnar greindu frá
því í fyrradag að Ríki íslams hefði
myrt fimm þúsund karla úr röðum
jasída í Írak með köldu blóði og
hneppt allt að sjö þúsund konur í
ánauð þegar þeir réðust á heimkynni
þeirra í Norður-Írak í ágúst. Var
verknaðinum líkt við tilraunina til
þjóðarmorðs í Srebrenica í Bosníu
1995. Jasídarnir nutu verndar 16
þúsund hermanna Kúrda, sem flúðu
þegar þúsund vígamenn Ríkis íslams
birtust.
Norðmaður
fellur í Sýrlandi
Straumur frá Noregi til Ríkis íslams
Fáni Ríkis íslams.
Réttarhöld hafa hafist að nýju í máli spretthlauparans Oscars Pistorius
sem var dæmdur í síðasta mánuði fyrir manndráp af gáleysi. Dómarinn í
málinu, Thokozile Masipa, á eftir að ákveða refsingu hans. Pistorius á yfir
höfði sér allt að fimmtán ára fangelsi fyrir að hafa orðið unnustu sinni,
Reevu Steenkamp, að bana en einnig er mögulegt að hann verði dæmdur í
skilorðsbundið fangelsi eða til greiðslu sektar. Faðir Steenkamp fylgist hér
með réttarhöldunum í Pretoríu.
AFP
Enn réttað í máli Pistorius
Hátúni 6a • 105 Reykjavík • Sími 552 4420 • www.fonix.is
Heimilistækjadagar20%
afslá
ttur