Morgunblaðið - 16.10.2014, Page 25

Morgunblaðið - 16.10.2014, Page 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014 Hestamennirnir Gunnar Arnarson og Kristbjörg Eyvindsdóttir geysast fram á ritvöllinn í Fréttablaðinu sl. þriðjudag til að tjá sig um staðsetn- ingu Landsmóts hestamanna. Í upphafi greinar fara þau Gunnar og Kristbjörg raunar með rangt mál og segja að senn verði tekin ákvörð- un um hvar halda skuli Landsmót hestamanna árið 2016. Staðreyndin er sú að Landssamband hesta- mannafélaga (LH) auglýsti árið 2011 eftir stað undir landsmótin 2014 og 2016 og rann umsóknarfrestur um mótshaldið út 30. nóvember 2011. Meðal þeirra sem sóttu um að halda Landsmót 2016 voru hestamanna- félögin í Skagafirði sem buðu fram Vindheimamela í Skagafirði, sem er sá staður sem Landsmót hesta- manna hafa oftast verið haldin á. Samþykkti stjórn LH að mótið 2014 skyldi haldið á Hellu og mótið 2016 á Vindheimamelum. Staðsetning Landsmóts hestamanna 2016 hefur því verið ákveðin og verður mótið haldið á Vindheimamelum í Skaga- firði. Í kjölfar þessarar samþykktar stjórnar LH hafa forsvarsmenn Landssambands hestamannafélaga, Landsmóts ehf., hestamannafélag- anna í Skagafirði og sveitarfélag- anna í Skagafirði fundað nokkrum sinnum um mótið 2016 og hafið und- irbúning þess. Til stóð að fjárhags- legur undirbúningur mótsins hæfist sl. vor með sameiginlegri yfirferð að- ila yfir praktíska hluti, s.s. mati á við- haldi og frekari uppbyggingu svæð- isins, tekju- og útgjaldaliðum mótsins og mögulegri skiptingu þeirra á aðila, markaðssetningu mótsins o.fl. Stjórn Landsmóts ehf. ákvað hins vegar að bíða með form- lega samningagerð fram yfir lands- mótið sl. sumar vegna anna við und- irbúning þess og til að betur lægi fyrir hvað þyrfti að hafa í huga við samningagerðina. Til staðfestingar vilja Landsmóts ehf. um að halda mótið á Vindheimamelum 2016 kom formaður LH, sem einnig er formað- ur stjórnar Landsmóts ehf., ásamt öðrum stjórnarmanni LH til Sauð- árkróks í maí sl. og ritaði þar því til áréttingar undir viljayfirlýsingu um að halda glæsilegt og skemmtilegt landsmót hestamanna dagana 27. júní til 3. júlí 2016 á Vindheimamel- um í Skagafirði. Var við það sama tækifæri ákveðið að hestamanna- félögin í Skagafirði og sveitarfélögin í Skagafirði yrðu við áskorun þess- ara stjórnarmanna LH um að vera með sérstakan kynningarbás á landsmótinu á Hellu til að kynna næsta Landsmót hestamanna á Vindheimamelum árið 2016. Það sem er rétt í grein Gunnars og Kristbjargar er hins vegar það að 1. ágúst sl. auglýsti LH eftir umsókn- um um stað fyrir Landsmót hesta- manna árið 2018. Umsóknarfrestur rann út 25. september sl. og má því senn búast við að tilkynnt verði hvaða staður verður fyrir valinu í það skiptið. Gjalda þarf varhug við boðskap þess efnis að Landsmót hestmanna eigi eingöngu að fara fram á einum stað á landinu og það aðeins í höf- uðborginni en ekki á landsbyggðinni. Fyrir liggur að gríðarleg reynsla er af skemmtilegu og vel heppnuðu mótahaldi víðar um landið og má nefna Hellu og Vindheimamela því til staðfestu en þar hafa verið byggð upp afar skemmtileg mótssvæði á liðnum áratugum. Mikilvægt er að ekki verði enn frekar reynt að ala á sundrungu milli höfuðborgar og landsbyggðar og teygja þá umræðu inn á vettvang hestamanna. Nóg er nú samt af þeirri umræðu annars staðar í þjóðfélaginu. Landsmót hestamanna ekki aðeins fyrir suma hestamenn Eftir Jónínu Stefánsdóttur, Pétur Grétarsson og Harald Jóhannesson » Gjalda þarf varhug við boðskap þess efnis að Landsmót hestamanna eigi ein- göngu að fara fram á einum stað á landinu Undirritun Við undirritun viljayfirlýsingar um að Landsmót hestamanna 2016 skyldi haldið á Vindheimamelum í Skagafirði. Höfundar skrifa fyrir hönd Gullhyls, félags sem sér um mótahald á Vind- heimamelum í Skagafirði. • Barnalæsing • Mikil einangrun • CE vottuð framleiðsla • Sérsmíði eftir málum • Glerjað að innan • Áratuga ending • Næturöndun Sýningarsalur í Skipholti 35 • Seljabót 7, Grindavík • www.pgv.is • Sími 510 9700 Veldu viðhaldsfrítt PVC gluggar og hurðir - íslensk framleiðsla fyrir íslenskt veðurfar Fjárskortur tveggja stóru sjúkrahúsanna virðist vera stöðugt vandamál. Þeir auknu fjármunir sem settir voru inn í heilbrigðiskerfið hafa ekki náð að mæta nægilega vel fjárþörfum þess. Starfsfólk í heilbrigðis- kerfinu hefur kvartað í fjölmiðlum yfir slæmu ástandi lækningatækja auk þess sem viðhaldi hefur verið ábótavant. Þess vegna eru aðstæður sem starfsfólk býr við ekki nógu góðar. Atgervisflótti lækna er viðvar- andi og nú stefnir í að senn muni vanta krabbameinslækna. Hér með er skorað á hæstvirtan heilbrigðisráðherra, sem örugglega er hinn mætasti maður, og fjárveitingarvaldið að taka til hendinni myndarlega og veita aukna fjármuni til heilbrigðiskerfis og sjúkrahúsa. Núverandi ástand er ekki nógu gott. Sigurður Guðjón Haraldsson. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Fjárskortur Landspítalinn Mikill niðurskurður hefur verið í heilbrigðiskerfinu sl. ár. Alda Guðnadóttir – Hjördís Sigurjónsd. 56,3 Arngunnur Jónsd. – Stefanía Sigurbjd. 54,5 Bryndís Þorsteinsd. – María Haraldsd. 52,3 Gullsmárinn Spilað var á 10 borðum í Gullsmára fimmtudaginn 9. október. Úrslit í N/S: Björn Árnason - Auðunn R.Guðmss. 224 Guðrún Hinriksd. - Haukur Hanness. 222 Birgir Ísleifsson - Jóhann Ólafss. 180 A/V Gunnar Alexanderss. - Elís Helgason 216 Ernst Backman - Hermann Guðmss. 191 Samúel Guðmss. - Jón Hanness. 183 Spilað var á 11 borðum mánudag- inn 6. október.Úrslit í N/S: Kristín Óskarsd. - Unnar A.Guðmss. 221 Þórður Jörundss. - Jörundur Þórðarson 191 Guðlaugur Nielsen - Pétur Antonsson 183 Ernst Backman - Hermann Guðmss. 180 A/V Samúel Guðmss. - Jón Hannesson 212 Kristín Ísfeld - Óttar Guðmss. 192 Birgir Ísleifsson - Jóhann Ólafsson 184 Gunnar Alexanderss. - Elís Helgason 182 Íslandsmót í einmenningi Íslandsmótið í einmenningi fer fram 17.-18. okt. nk. Hefst spilamennska kl. 19 á föstu- dagskvöld og kl. 11 laugardaginn 18. október. Mótslok eru um 18:30. Hægt er að skrá sig í síma 587-9360 og á bridge@bridge.is. Kjartan Jóhannsson varð Íslandsmeistari í fyrra. Skráningu lýkur á miðnætti fimmtu- daginn 16. okt. Keppnisgjald er 3.000 krónur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.