Morgunblaðið - 16.10.2014, Side 35
kaupa í Keflavík. Hann hefur nú
verið framkvæmdastjóri Eign-
arhaldsfélags Smáralindar frá
2010.
Sturla Gunnar var stjórnar-
formaður Sérleyfisbíla Keflavíkur
um langt árabil, situr í stjórn
Markaðsstofu Kópavogs og hefur
setið í fjölmörgum nefndum og
ráðum sem og stjórnum ýmissa
fyrirtækja í gegnum tíðina.
Sturla Gunnar var búsettur í
Njarðvík í 16 ár, með fyrri eigin-
konu sinni, Sigurlaugu Reynis-
dóttur, sem lést 2008 og dætrum
þeirra, Erlu Maríu og Svövu Rún.
Hann er nú nýkvæntur og býr í
Kópavogi með sinni heittelskuðu
eiginkonu, Ingibjörgu Gunnars-
dóttur, en þau giftu sig í sumar í
Kópavogskirkju.
Leiðsögumaður
fjölskyldunnar
Sturla Gunnar hefur ýmis járn í
eldinum þegar kemur að áhuga-
málum: „Ég hef stundað laxveiði
af kappi með vinum og fjölskyldu
um langt árabil, fer t.d. árlega
með gömlum skólabróður mínum,
Tryggva Leifi Óttarssyni, í Mið-
fjarðará. En ég á margar aðrar
uppáhaldsár sem er erfitt að gera
upp á milli, s.s. Norðurá, Langá á
Mýrum og Grímsá í Borgarfirði að
ógleymdri Stóru-Laxá í Hreppum.
Þá hef ég farið með félögum
mínum í Oddfellowreglunni í
Rangárnar á undanförnum árum.
Það er líka óviðjafnanlegt að fara
á skak fyrir vestan í góðu veðri.
Svo má ekki gleyma golfinu sem
ég spila með eiginkonunni. Auk
þess er ég aftur farinn að spila
brids eftir langt hlé.
Ég hef verið að lesa Íslendinga-
sögurnar hjá Endurmenntun HÍ
um langt árabil og hef alltaf jafn
gaman af þeim. Núna er ég að lesa
Orkneyjasögu og er sífellt að
tengja saman landið og söguna.
Við ferðumst mikið innanlands og
sagan gefur landinu líf og merk-
ingu. Ég hef því gaman af að segja
fjölskyldumeðlimum frá ýmsum
sögum og skemmtilegum fróðleik
þegar ekið er um landið, ekki síst
á Njáluslóðum á Suðurlandi og í
Dölunum, þar sem fornir kappar
og fagrar konur minna á sig við
hvert fótmál.“
Fjölskylda
Eiginkona Sturlu Gunnars er
Ingibjörg Gunnarsdóttir, f. 2.8.
1959, starfsmannastjóri Domino’s
á Íslandi.
Fyrri eiginkona Sturlu Gunnars
var Sigurlaug Reynisdóttir, f. 7.6.
1964, d. 12.4. 2008, fjármálastjóri,
bókari og umboðsmaður.
Dætur Sturlu Gunnars og Sigur-
laugar eru Erla María Sturludótt-
ir, f. 18.3. 1984, verkefnastjóri í
fjármálaráðgjöf, búsett í Reykja-
vík en maður hennar er Jónas
Guðni Sævarsson, knattspyrnu-
maður og sjálfstæður söluaðili, og
eru börn þeirra Sigurlaug Eva, f.
2009, Steinunn Kara, f. 2009, og
Jónas Adrian, f. 2013; og svo
Svava Rún Sturludóttir, f. 1.11.
1997, starfsmaður Domino‘s og
nemi við VÍ.
Börn Ingibjargar af fyrra hjóna-
bandi eru Pétur Benedikt Rafns-
son, f. 14.5. 1982, stöðvarstjóri hjá
Stofnfiski ehf., búsettur í Kópa-
vogi, og er dóttir hans Apríl Lea
Pétursdóttir Schally; Hjördís
Perla Rafnsdóttir, f. 15.2. 1986,
guðfræðingur og sálfræðinemi, bú-
sett í Leeds í Englandi, en unnusti
hennar er Kári Árnason, viðskipta-
fræðingur og knattspyrnumaður.
Systkini Sturlu Gunnars eru
Karl Einarsson, f. 21.2. 1963; Erla
Eðvarðsdóttir, f. 15.4. 1963; Eyþór
Eðvarðsson, f. 11.9. 1967; Sigrún
Edda Eðvarðsdóttir, f. 20.7. 1971;
Elsa Eðvarðsdóttir, f. 5.7. 1978.
Foreldrar Sturlu Gunnars eru
Eðvarð Sturluson, f. 23.3. 1937,
lengst af bifreiðastjóri á Suður-
eyri, og Arnbjörg Jóna Bjarna-
dóttir, f. 4.10. 1943, lengst af hús-
freyja á Suðureyri. Þau búa nú í
Kópavogi.
Úr frændgarði Sturlu Gunnars Eðvarðssonar
Sturla Gunnar
Eðvarðsson
Elísabet María Andrésdóttir
húsfreyja á Flateyri
Friðrik Þórður Bjarnason
sjóm. á Flateyri
Bjarni G. Friðriksson
vitavörður og sjóm. á Suðureyri
Sigurborg Sumarlína
Jónsdóttir
húsfreyja á Suðureyri
Arnbjörg Jóna Bjarnadóttir
húsfreyja á Suðureyri
Arnfríður Guðmundsdóttir
húsfreyja á Suðureyri
Jón Hálfdán Guðmundsson
b. og sjóm. á Suðureyri
Elías Mar
skáld og rithöfundur
Cæsar Benjamín
Hallbjarnarson Mar
kaupm. og
rithöfundur í Rvík
Sigrún Sigurðardóttir
húsfreyja á Suðureyri
Hallbjörn E. Oddsson
b. og kennari á Suðureyri, ættfaðir
Hallbjarnarættar, af ætt Skúla fógeta
Kristey Hallbjarnardóttir
húsfreyja á Suðureyri
Sturla Jónsson
útgerðarm. og hreppstj.
á Suðureyri
Eðvarð Sturluson
bifreiðastj. og oddviti á
Suðureyri
Kristín Kristjánsdóttir
húsfreyja á Suðureyri
Jón Einarsson
íshússtj. og skipstj.
á Suðureyri
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014
95 ára
Stefán Sigurðsson
90 ára
Bjarni Sigurðsson
85 ára
Margrét H. Sveinsdóttir
Sigríður Sigurjónsdóttir
80 ára
Björn H. Haraldsson
Erla Jónatansdóttir
Guðlaug Rakel Pétursdóttir
Hreinn Sigurðsson
Inga Hulda Eggertsdóttir
Ragnar Pétursson
75 ára
Baldur Garðarsson
Guðný Ósk Óskarsdóttir
Guðrún Friðgerður
Samúelsdóttir
Jóhannes Viggósson
Ólafur Fr. Mixa
Pétur Vatnar Hafsteinsson
Sara Sigurðardóttir
70 ára
Auður Franklín
Ásgerður Gísladóttir
Gísli Pálsson
Gunnhildur Þórhallsdóttir
Hafdís Ellertsdóttir
Hulda Stefánsdóttir
Jóhann Runólfsson
Katrín Pálsdóttir
Steinunn Hjartardóttir
60 ára
Agustin Navarro Cortes
Ástríður E.
Guðmundsdóttir
Einar Sólonsson
Helga Sigurjónsdóttir
Kristín A. Samúelsdóttir
Kristín Hallsdóttir
Theodór Júlíus Sólonsson
Tryggvi Þormóðsson
50 ára
Aníta Hannesdóttir
Fatima Ait Caid
Guðný Sigríður
Sigurþórsdóttir
Gunnar Þór Gunnarsson
Jóhanna Rútsdóttir
Jón Benediktsson
Lára Elísabet Eiríksdóttir
Mariusz Tomasz Piasecki
40 ára
Abigael Sörine Rakel
Kaspersen
Andri Ottó Ragnarsson
Ari Már Ólafsson
Gísli Steinar
Jóhannesson
Israel Martin Concepcion
Sigríður Árnadóttir
Sólveig Þórdís Einarsdóttir
30 ára
Anna Rún Austmar
Steinarsdóttir
Arnar Sigurgeirsson
Ágúst Þór Birnuson
Elísa Kristín Arnarsdóttir
Guðný Andrésdóttir
Kristrún Anna
Skarphéðinsdóttir
Sigurdís Halldóra
Erlendsdóttir
Sólveig Ingadóttir
Thomas Piraud
Yoan Lyubenov Vidyov
Til hamingju með daginn
30 ára Sigurlaug ólst upp
í Kaupmannahöfn og síð-
an í Reykjavík, býr þar,
lauk BA-prófi í myndlist
frá LHÍ, er tónlistarkona
sem kemur fram undir
nafninu Mr. Silla og leikur
með hljómsveitinni Múm,
Snorra Helgasyni og Low
Roar.
Foreldrar: Katrín Guðrún
Sigurðardóttir, f. 1947,
fyrrv. stuðningsfulltrúi, og
Gísli Ólafsson, f. 1947,
fyrrv. alþingisvörður.
Sigurlaug
Gísladóttir
30 ára Ósk ólst upp á
Sauðárkróki og býr þar,
lauk sveinsprófi í kjötiðn
frá VMA og er kjötiðn-
aðarmaður hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga.
Maki: Axel Sigurjón Eyj-
ólfsson, f. 1981, vélstjóri.
Börn: Anton Þorri, f.
2007, Bríet, f. 2010, og
Eydís Inga, f. 2014.
Foreldrar: Kristjana
Björg Frímannsdóttir, f.
1953, og Bjarni Hall-
dórsson, f. 1952.
Ósk
Bjarnadóttir
30 ára Sigrún ólst upp á
Akureyri og í Reykjavík,
býr þar og starfar hjá
Arion banka.
Sonur: Ásgeir Volkan, f.
2011.
Systkini: Bjarni, f. 1989;
Esther, f. 1991 og Jakob, f.
1992. Hálfsystir: Rannva
Björk, f. 2006.
Foreldrar: Jakob Bjarna-
son, f. 1960, viðskipta-
fræðingur, og Elísa Guð-
rún Ragnarsdóttir, f.
1959, félagsráðgjafi.
Sigrún Arna
Jakobsdóttir
Guðmundur Haukur Jörgensen hefur
varið doktorsritgerð sína við lækna-
deild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber
heitið Sértækur skortur á immúnó-
glóbúlíni A á Íslandi – Faraldsfræði,
sjúkdómsbirting og tengsl við arfgerð-
arbreytingar (Selective Immuno-
globulin A deficiency in Iceland – Epi-
demiology, clinical features and
genetic analysis).
Í dag eru þekktir yfir 200 meðfæddir
ónæmisgallar hjá mönnum. Oftast er
um galla í vessabundna ónæmiskerfinu
að ræða og er sértækur skortur á imm-
únóglóbúlíni A (SIgAD) þeirra algeng-
astur með algengi í kringum 1:600 í
hinum vestræna heimi. Meginmarkmið
þessarar rannsóknar var að meta al-
gengi SIgAD á meðal íslenskra blóð-
gjafa og í mismunandi sjúklingaþýðum
og að rannsaka heilsufar, lífsgæði og
vefjaflokka arfgerð einstaklinga með
SIgAD.
Rannsakaðir voru 43 einstaklingar
með SIgAD (32 fullorðnir og 11 börn) og
auk þess var hópur valinn af handahófi
úr þjóðskrá (63 einstaklingar), til sam-
anburðar við fullorðna einstaklinga
með SIgAD.
Algengi SIgAD á
meðal íslenskra
blóðgjafa var 1:572.
Samanborið við
viðmiðunarhóp, þá
fengu einstaklingar
með SIgAD bæði
oftar og alvarlegri
sýkingar í efri og
neðri öndunarvegi og höfðu oftar verið
greindir með ofnæmis- og sjálfs-
ofnæmissjúkdóma, með marktæk áhrif
á lífsgæði. Vefjaflokka arfgerðin HLA-
B8, DR3,DQ2 sem hefur þekkt tengsl
við ýmsa sjálfsofnæmissjúkdóma, var
algeng á meðal einstaklinga með SIgAD
og jafnframt reyndist algengi sjálfs-
ofnæmissjúkdóma aukið á meðal ætt-
ingja þeirra.
Niðurstöður rannsóknarinnar benda
til þess að heilsufarslegar afleiðingar
SIgAD séu meiri en áður hefur verið tal-
ið og gefa tilefni til að auka eftirlit með
þeim einstaklingum sem greinast með
SIgAD. Jafnframt gefa niðurstöður til
kynna að sameiginlegur erfðafræðileg-
ur bakgrunnur geti legið að baki mein-
myndun SIgAD og sjálfsofnæmis-
sjúkdóma.
Doktor í læknisfræði
Guðmundur Haukur Jörgensen er fæddur 1975 í Reykjavík. Hann lauk stúdents-
prófi af náttúrufræðibraut Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi árið 1995,
prófi í læknisfræði við Háskóla Íslands árið 2002 og sérnámi í heimilislækningum
árið 2009. Guðmundur hóf doktorsnám við Læknadeild Háskóla Íslands árið
2004 og hefur frá árinu 2011 starfað sem heimilislæknir í Uppsölum í Svíþjóð.
Foreldrar Guðmundar eru Róbert W. Jörgensen, fv. forstjóri, og Erla D. Lárus-
dóttir verslunarstjóri. Eiginkona Guðmundar er Ragna Hlín Þorleifsdóttir læknir
og eiga þau börnin Erlu Hlín, Þorleif Darra og Sögu Diljá.
Doktor
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
www.danco.is
Heildsöludreifing
Fyrirtæki og verslanir
Heildarlausnir í umbúðum
Kraftpappír litaður og
ólitaður
Skreytingaefni
Gjafa- og flöskupokar
Umbúðarúllur í öllum
stærðum og gerðum Mikið úrval af pakka-
böndum/krulluböndum