Morgunblaðið - 16.10.2014, Síða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2014
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • sími 580 3900 • www.fastus.is • opið mán - fös 8.30 - 17.00
F
A
S
TU
S
_E
_3
1.
08
.1
4
Muna að drekka vatn
Veit á vandaða lausn
• Venjulegt vatn + sódavatn
• Tengist beint við vatnslögn
• Sparar pláss þar sem ekki þarf vatnsdunk
• Hægt að stilla hitastig vatns frá 5-20°C
• Ljós kemur þegar þrífa þarf vél eða skipta um filter
Frábær vatnsvél fyrir fyrirtæki
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þótt þér finnist allt vera að fara úr
böndunum skaltu ekki örvænta því að útlitið
er ekki eins slæmt og þér sýnist. Skoðaðu
málið vandlega.
20. apríl - 20. maí
Naut Samskipti þín við fjölskylduna eru
kraftmikil og skemmtileg. Mundu að þótt
auðvelt sé að taka lán er erfiðara að borga.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hálfnað er verk þá hafið er. Hafðu
ekki áhyggjur, þú kannt öðrum betur að
eyða peningum á skynsaman máta. Veldu
þér gildismat sem hægt er að reiða sig á.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þó að niðurstöðurnar berist ekki jafn
skjótt og hrúturinn hefði kosið, á hann að
halda sig við efnið. Láttu þau samt ekki
buga þig því þú hefur nægan styrk til að
takast á við málin.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Áhugaverðir einstaklingar koma inn í líf
ykkar á næstunni. Okkur hættir til að taka
þessum dýrmætu stundum sem sjálfsögðum
hlut.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er erfitt að velja sér viðmæl-
endur þegar um flókin og viðkvæm mál er
að ræða. Galdurinn er að hafa frumkvæðið
sjálfur en ekki bara bíða byrsins.
23. sept. - 22. okt.
Vog Tunglið er í þínu merki í dag og ýtir
undir tilfinningasemi af þinni hálfu. Léttu á
huga þínum og þá öðlastu þá ró sem þú
þarfnast.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það getur reynst þér skeinu-
hætt að hlaupa í blindni eftir athugasemdum
annarra. Hvort sem þú velur í aðstæðum
dagsins mun það enda með hlátri.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Atburðarásin stigmagnast og þú
lætur berast með straumnum. Maður þarf
ekki endilega að samþykkja lífsmáta annarra
en það er líka alveg óþarfi að vera á móti.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hlustaðu á aðfinnslur starfsfélaga
þinna og taktu þær alvarlega. Tækifæri ligg-
ur í loftinu og gefst þeim sem er tilbúnastur
að grípa. Kannski læknast efinn ef þú gerir
einhverjum greiða.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Á tilfinningaþrungnu augnabliki
gæti reynst rétt að greiða götu einhvers,
gefa mikið þjórfé eða lifa hátt. Gerðu það
sem til þarf að koma þér í samt lag.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það verður ekki bæði sleppt og hald-
ið svo þú þarft að gera það upp við þig hvað
þú raunverulega vilt. Velgengni felst að
stórum hluta í réttri tímasetningu.
Jón Ingvar Jónsson kastaði framá Boðnarmiði:
Víða finnast vísnabullur
vorum heimi í.
Ætti ég að yrkja fullur
eða sleppa því.
Hreinn Guðvarðarson svaraði að
bragði:
Víða finnast vísnabullur
vorum heimi í.
Hver sem ekki yrkir fullur
ætti að sleppa því.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir
þessa gagaravillu, sem er það af-
brigði gagaraljóða þegar endarím-
ið er skothent:
Sjaldan Gunnu hendir happ.
hún fann nýjan blóðmörskepp.
Þá fór hún að þylja rapp
þar til hún var send á Klepp.
Í tilefni af haustvísum Jóns Arn-
ljótssonar sem hér birtust í gær,
þar sem talað var um að það mald-
aði yfir tún, segir Davíð Hjálmar
Haraldsson: „Þetta hef ég heyrt
þótt ekki sé mér orðið tamt og ekki
er það á meðal 730 veðurorða í dag-
bók föður míns. Er orðið ekki einn-
ig nothæft í limru?
„Með haustinu maldrar í móinn
og marjátlan hverfur og spóinn
en þótt kólni í bráð
þá kunnum við ráð
kvað Pétur og pissaði í skóinn.“
Páll Imsland segir skemmtilegt
að skilja loksins hvaðan þetta mal-
dur er sprottið og hver grunnmerk-
ing orðsins sé:
Á haustin úr muggunni maldar
svo móinn snöggt hrímhvítu faldar
og berin öll frjósa,
kýr leita fjósa
og frost bítur loppurnar kaldar.
Skírnir Garðarsson segist á
Leirnum ekki ætla að malda í mó-
inn, en getur um grein eftir dr.
Gunnar Kristjánsson um ár séra
Matthíasar á Móum á Kjalarnesi.
Þau voru honum mjög erfið og seg-
ist Skírnir nýlega hafa lesið um þær
hremmingar og sorglegu atburði
sem lauk með því að séra Matthías
missti konu sína Elínu Knudsen,
sem hann tók mjög nærri sér. – En
„eitthvað hressilegt verður þó að
yrkja hér“, bætir hann við:
Á tölvumáli væri titillinn:
„Moaar mattajoch.“
Móaárin Matta Jokka
mögur vóru á nesi kjalar,
oft þó færi út að skokka
ekki naut hann þeirrar dvalar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísnabullur og
maldað í móinn
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG VONA AÐ ÞÚ HAFIR SENT JÓNI
ÁRSÆLI REIKNINGINN FYRIR TIMBRINU.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að segja það með
blómum
ÞÚ GETUR
VALIÐ UM
VEKJARAHLJÓÐ
ÞENNAN MORGUN
HVORT VILTU
GAMANMÁL
EÐA FRÓÐLEIK?
GAMANMÁL
HEFURÐU HEYRT
ÞENNAN UM
KÖTTINN OG
SLÁTTUVÉLINA?
ÉG HATA
MORGNA
ÞVÍ MIÐUR –
ÞESSI KASTALI
ER REYKLAUS!!
BROS Í BRÚSA,
100 KR.
Víkverji var stöðvaður af lögregl-unni um daginn. Víkverji var á
heimleið eftir langan vinnudag og var
víst orðinn nokkuð stressaður á að
komast heim fyrir leikinn gegn Hol-
lendingum. Fór Víkverji því nokkuð
greitt og neyddist til að snögghemla
þegar hann áttaði sig á því að göngu-
ljós nokkur voru rauð en ekki græn.
Áður en Víkverji vissi hvað hafði
gerst hafði hann náð að lulla yfir á
rauðu ljósi með mótor-
hjólalögreglumann á næstu akrein.
x x x
Sá var skiljanlega nokkuð svekkturút í Víkverja og spurði hvað hann
hefði verið að hugsa. Víkverji gat
ekki útskýrt það með öðru en að sig
hefði gripið „stresspaník“. Lög-
reglumaðurinn atyrti Víkverja nokk-
uð fyrir háttalagið, skiljanlega, enda
vissi hann upp á sig alla skömmina.
Líklega sá lögreglumaðurinn aumur
á þessum stressaða blaðamanni, því
að eftir að hann hafði skoðað öku-
skírteinið, og spurt hvort Víkverji
hefði neytt áfengis síðdegis á mánu-
degi, leyfði hann honum að halda
áfram leið sinni án frekari eftirkasta.
„Það þýðir ekki að vera stressaður í
umferðinni. Það verður að fara var-
lega,“ voru lokaorð lögreglumanns-
ins og vill Víkverji koma þeim til skila
við alþjóð.
x x x
Þetta er í annað sinn sem Víkverjihefur verið stöðvaður af lögregl-
unni á sínum ökumannsferli. Í fyrra
sinnið hafði Víkverji náð þeim
árangri að hann „keyrði of vel“ við
hliðina á lögreglubíl, með þeim afleið-
ingum að þá fór að gruna að ökumað-
urinn væri annaðhvort próflaus eða
drukkinn – nema hvort tveggja væri.
Sem betur fer var Víkverji hvorugt.
x x x
Enn af umferð. Móðir Víkverja varað keyra út úr innkeyrslunni
heima hjá sér þegar hún var hárs-
breidd frá því að keyra niður hjól-
reiðamann á götunni. Var þar um að
kenna því „sparnaðarráði“ borg-
arinnar að kveikja helst ekki á götu-
vitum nema í svartasta myrkrinu.
Vonandi verður ekki áframhald þar
á, nú þegar drunginn færist yfir. vík-
verji@mbl.is
Víkverji
Að óttast Drottin er upphaf speki, þeir
vaxa að viti sem hlýða boðum hans.
Lofstír hans stendur um eilífð.
(Sálmarnir 111:10)