Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Blaðsíða 4
Allt hverfist um liðsheild- ina og spennustigið 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.10. 2014 „Ég hef litla trú á því að Fram bjargi sér,“ segir Sigmundur spurð- ur um fallbaráttuna milli Fram og Fjölnis. Þórsarar eru sem kunnugt er þegar fallnir. „Framarar hafa sjaldan leikið eins lélega knattspyrnu og í sumar og falldraugurinn vofir yfir þeim. Það varð ljóst þegar liðið tapaði fyrir Fjölni heima á dögunum – í hreinum úrslitaleik um sæti í deild- inni,“ segir hann. Stjórn Fram og nýi þjálfarinn, Bjarni Guðjónsson, veðjuðu á marga unga leikmenn í sumar og Sigmundur segir þá áhættu einfald- lega ekki hafa borgað sig. „Fram varð bikarmeistari í fyrra og komst þar með í Evrópukeppni. Hvað gera menn þegar þeir fara í Evr- ópukeppni? Þeir styrkja sig. Fram valdi að fara aðra leið.“ Sigmundur segir erfiða tíma framundan hjá Fram falli liðið í 1. deild um helgina. „Fram kemur örugglega ekki til með að leika á Laugardalsvellinum í 1. deild – leik- ir liðsins fara þá líklega fram á gervigrasvelli Fram Úlfarsárdal. Þá verður að hafa hröð handtök að byggja upp aðstöðu fyrir áhorf- endur.“ Hann segir marga Framara ugg- andi. „Fari liðið niður gerist það á vakt útfararstjóra,“ segir Sigmund- ur en Sverrir Einarsson útfar- arstjóri er formaður knatt- spyrnudeildar Fram. „Og allir vita að það sem útfararstjórar setja nið- ur kemur ekki upp aftur! Nema menn trúi þá á uppvakninga.“ Fram tapaði fallslagnum gegn Fjölni. Morgunblaðið/Golli Það sem út- fararstjóri setur niður kemur ekki upp aftur Enda þótt Íslandsmótið í knattspyrnu hafi verið jafnt og spennandi í sumar segir Sigmundur gæðin oft hafa verið meiri. „Við erum ekki með nein stjörnuljós í deildinni. Engin lið sem geisla. Það er svo sem ekkert undarlegt; allir okkar bestu menn leika erlendis.“ Á móti kemur að fjölmargir útlendingar leika hér á landi um þessar mundir. „Því miður styrkja þessir menn deildina ekki nóg og maður veltir fyrir sér hvers vegna þeir eru að halda ungum og efnilegum ís- lenskum leikmönnum fyrir utan liðin. Á móti kemur að það er dýrt að falla og þess vegna sækja liðin í reynslumeiri leikmenn.“ ÍBV verður eina landsbyggðarliðið í efstu deild næsta sumar (ÍA telst það varla lengur). Sigmundur segir þetta áhyggjuefni. „En svona er þetta peningarnir eru hérna fyrir sunnan. Síðan maka lið eins og FH og Stjarnan krókinn í Evrópuleikjum og fyrir vikið breikkar bilið milli bestu liðanna og þeirra næstbestu ennþá meira. Hefði Stjarnan komist inn í Evrópudeildina í haust hefði varla þurft að spila Íslands- mótið næstu árin. Stjarnan hefði safnað til sín bestu leikmönnum landsins – yfirburðirnir hefðu þá orðið miklir. Það hefði enginn getað keppt við lið sem ætti mörg hundruð milljón krónur í kassanum.“ Þ að er algjör veisla að fá hreinan úrslitaleik um Íslandsbikarinn. Það lyftir knattspyrnunni upp á hærra plan; styrkir hana og eykur aðdrátt- araflið. Það græða allir á svona leikjum,“ segir Sigmundur Ó. Steinarsson, höfundur bókanna um 100 ára sögu Íslandsmótsins í knattspyrnu, um úrslitaleik FH og Stjörnunnar á Íslandsmótinu. FH og Stjarnan eru bæði tap- laus eftir 21 umferð sem Sigmundi þykir með miklum ólíkindum. „Það segir auðvitað allt sem segja þarf um yfirburði þessara tveggja liða í sumar,“ segir hann. Engum ætti að koma á óvart að FH sé að berjast um Íslands- meistaratitilinn í lokaumferð móts- ins. Liðið hefur verið á eða við toppinn undanfarinn áratug. Stjarnan hefur komið meira á óvart. „Heimir Guðjónsson er gríð- arlega reyndur þjálfari og mætir alltaf til leiks með vel skipulögð lið. FH hefur líka hefðina á sínu bandi, hefur gert þetta allt áður. Stjörnumenn koma örugglega til leiks ákveðnir, þar sem Stjarnan hefur aldrei orðið Íslandsmeistari. Rúnar Páll Sigmundsson hefur gert frábæra hluti á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari og árang- ur Stjörnunnar í Evrópukeppninni sýndi og sannaði að þar fer stemn- ingslið. Það er einstakur árangur að fara taplaus gegnum þrjár um- ferðir í Evrópukeppni og fá á end- anum alvöru andstæðing, Inter frá Mílanó. Lið af þeirri stærðargráðu kom hingað síðast 1990, þegar Fram tók á móti Barcelona.“ Sigmundur segir vissulega betra að hafa reynsluna sín megin í leik sem þessum og FH hafi enga af- sökun til að fara á taugum. Stjarn- an sé meira spurningamerki. „Spennustigið verður að vera rétt fyrir svona leik. Við sáum bara hvað kom fyrir strákana okkar í landsliðinu í Zagreb í fyrra. Þeir voru einfaldlega ekki tilbúnir í slaginn. Stjarnan gæti dottið í sama far um helgina en ég á samt síður von á því. Þeir hafa séð Ís- landsbikarinn tvisvar afhentan í Garðabænum; síðast 2010, þegar Breiðablik varð meistari. Það hlýt- ur að hafa kveikt í Stjörnumönn- um!“ Að þekkja sín takmörk Það er gömul saga og ný að knatt- spyrna hverfist um liðsheild og Sigmundur segir bæði Heimi og Rúnar Pál gera sér fulla grein fyr- ir því. Í þeirra liðum vinni menn saman. „Þessi leikur kemur ekki til með að vinnast á framtaki ein- staklinga, heldur liðsheild. Það er klárt mál. Vinni menn vel saman og þekki sín takmörk eru þeir á grænni grein.“ Sigmundur treystir sér ekki til að spá fyrir um úrslitin. „Þetta er algjör 50:50-leikur. Allt verður í járnum. Haldi Stjarnan stemning- unni og láti pressuna ekki bera sig ofurliði getur hún hæglega unnið leikinn. Verði spennustigið í liðinu hins vegar of hátt gæti FH leikið það grátt. Eins og Keflavík gerði við ÍBV 1971; vann 4:0 í hreinum úrslitaleik. Slík úrslit kæmu þó verulega á óvart nú.“ Hann gerir frekar ráð fyrir því að bæði lið fari varlega inn í leik- inn. Ætli annað þeirra að æða upp úr startblokkunum sé FH líklegra. Þeir séu á heimavelli. „Komist FH snemma yfir gæti það brotið Stjörnuna niður en nái Stjarnan á hinn bóginn forystunni færist pressan yfir á FH.“ Sigmundur er sammála því að það yrðu óvænt úrslit yrði Stjarn- an Íslandsmeistari. Fáir ef nokkur hafi reiknað með því fyrir mót. „Það yrði algjört ævintýri ef Stjarnan ynni.“ Beðinn að setja málið í sam- hengi segir Sigmundur þurfa að fara aftur til ársins 2001 til að finna eins óvænt úrslit á Íslands- mótinu. „Þá urðu Skagamenn meistarar eftir hreinan úrslitaleik í Eyjum. Það var ekki í kortunum það sumar en allt small saman hjá Ólafi Þórðarsyni og hans mönnum. Gott dæmi um sigur liðsheild- arinnar. Það voru engar stjörnur í Skagaliðinu þá. Sama má segja um Stjörnuna núna.“ Davíð Þór Viðarsson og Atli Jóhannsson glíma í fyrri viðureign FH og Stjörnunnar í sumar. Morgunblaðið/Ómar FH OG STJARNAN LEIKA HREINAN ÚRSLITALEIK UM ÍSLANDSMEISTARATITILINN Í KNATTSPYRNU KARLA Í KAPLAKRIKA Í DAG, LAUGARDAG, KL. 16. SIGMUNDUR Ó. STEINARSSON, EINN REYNDASTI SPARKSPEKINGUR ÞJÓÐARINNAR, SEGIR ÚTI- LOKAÐ AÐ SPÁ FYRIR UM ÚRSLIT. MÖGULEIKAR BEGGJA LIÐA SÉU JAFNIR. SPENNUSTIGIÐ MUN ÁN EFA VEGA ÞUNGT. ENGIN LIÐ SEM GEISLA * Það yrði algjört ævintýri ef Stjarnan ynni.Sigmundur Ó. Steinarsson rithöfundur. ÞjóðmálORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.