Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.10. 2014 H in áhrifamikla bók Sally Magnusson, Handan minninga, er komin út í ís- lenskri þýðingu. Bókin kom út í Englandi í janúar á þessu ári og vakti mikla athygli, fékk afar góða dóma og fór á met- sölulista. Í bókinni rekur Sally fjöl- skyldusögu sína með megináherslu á móður sína, Mamie Baird sem lést árið 2012 og hafði síðustu árin þjáðst af heilabilun. Mamie var þekktur blaðamaður á Bretlandi, gift íslenska sjónvarpsmanninum Magnúsi Magnússyni sem hafði ungur flutt til Skotlands en hélt alla tíð mikilli tryggð við Ísland. Sally er þekkt fjölmiðlakona sem hefur hlotið verðlaun fyrir blaða- mennsku og útvarpsþáttagerð og starfað sem fréttaþulur hjá BBC í mörg ár, auk þess að skrifa bæk- ur. Hún er fyrst spurð um tilurð bókarinnar. „Ég byrjaði að skrifa hana sem dagbók þegar mamma gat enn tjáð sig og persónuleiki hennar var að mestu eins og hann hafði alltaf verið, en var samt að breytast og ég vissi að hann ætti eftir að gjörbreytast,“ segir hún. „Ég var að skrifa fyrir sjálfa mig til að varðveita minningar um móður mína, en smám saman átt- aði ég mig á því að sú reynsla sem ég var að upplifa væri birting- armynd þess sem milljónir fjöl- skyldna um allan heim ganga í gegnum. Þá hugsaði ég með mér: Ég hef hæfileika til að skrifa og mér ber skylda til að ræða um þetta málefni og miðla reynslu minni.“ Bókin hefur vakið mikla athygli, segðu mér frá þeim áhrifum sem hún hefur haft? „Hún hefur haft mikil áhrif. Ég er djúpt snortin og full auðmýktar yfir þessum góðu viðtökum. Bókin varð við útkomu í Bretlandi í jan- úar bók vikunnar hjá Radio 4 og það varð til að vekja mikla athygli á henni. Fólk skrifaði mér, sendi póst á BBC og sagði að það væri dásamlegt að einhver væri að tala um þessa hluti. Bókin fór að selj- ast og mér var boðið á hátíðir og viðburði þar sem mörg hundruð manns mættu og ég talaði um bók- ina. Á eftir stóð fólk í biðröð, ekki bara til að fá áritun, heldur til að segja mér hversu miklu máli því fyndist það skipta, ekki bara að einhver hefði komið í orð sársauk- anum sem fylgir því að sjá mann- eskju sem maður elskar fá heila- bilun, heldur sýndi líka að þótt fólk sem þjáist af heilabilun kunni að virðast farið þá er það ekki þannig. Fólk sagði: Takk fyrir að sýna að það er ennþá ein- staklingur þarna.“ Kona með sterka sjálfsmynd Hvernig var móðir þín áður en hún veiktist? „Móðir mín var afskaplega hlý manneskja, glaðlynd og hlát- urmild og átti mjög auðvelt með að gera grín að sjálfri sér. Hún var gáfuð, fyndin og hnyttin í til- svörum og kom fólki til að veltast um af hlátri yfir sögum sem hún sagði af sjálfri sér. Hún var hug- rökk kona sem upplifði harmleik þegar bróðir minn dó ellefu ára gamall í bílslysi. Hún leiddi okkur systkinin í gegnum það, ákveðin í því að sá hörmungaratburður skyldi ekki eyðileggja líf okkar. Hún var leiðtogi, huguð og æv- intýragjörn. Og hún var besti vin- ur minn.“ Móðir þín var þekkt blaðakona sem sneri sér síðan að uppeldi barna, fannst henni einhvern tím- ann að hún væri í skugga manns- ins síns? „Aldrei. Hún var kletturinn í fjölskyldunni. Pabbi var um- hyggjusamur faðir og ástríðu- fullur maður sem lifði sig inn í verkefni sín og var á stöðugum ferðalögum meðan hún var heima. Síðustu árin varð hann ráðsettari, eyddi meiri tíma heima, varð rólegri og mýkri. Mamma var ekki ákafur femín- isti, hún talaði ekki um kvenna- póltík en hafði gríðarlegt sjálfs- traust og sterka sjálfsmynd. Hún hafði verið fjölmiðlakona sem skapaði sér farsælan feril, og þén- aði meira en flestir karlkyn- skollegar hennar. Þegar þau faðir minn hittust var hún stjörnu- blaðamaður en hann fátækur námsmaður en þetta breyttist og hann varð mjög áberandi fjöl- miðlamaður. Hún leit svo á að hún hefði átt farsælan feril sem blaðamaður og væri nú í nýju starfi við að ala upp börn og þar nýtti hún alla orku sína. Eftir að börnin voru komin á legg fór hún að halda fyrirlestra og skrifaði bækur. Hún valdi sína eigin leið og það var góð leið.“ Eins og heimurinn hryndi Það erfiðasta sem getur hent for- eldra er að missa barn. Hvernig tókust foreldrar þínir á við miss- inn? „Við systkinin vorum fimm, ég var elsta barnið, svo voru tvær systur, bróðir minn, Siggy, sem dó og yngri sonur. Við lifðum mjög hamingjuríku fjölskyldulífi en skyndilega var eins og heimurinn hryndi. Maður kveður manneskju að morgni og sér hana ekki aftur. Ég var sautján ára þegar Siggy dó, það var skelfilegur atburður sem hefur markað mig æ síðan og hefur orðið til þess að þegar börn- in mín segja bless þegar þau eru að fara út þá verð ég að kyssa þau og faðma. Þau segja: Láttu ekki svona mamma, ég kem aftur eftir klukkutíma! En hluti af mér spyr: Er víst að þú komir aftur? Faðir minn talaði ekki um sorg og tilfinningar en eftir að Siggy dó man ég að hann las Sonartorrek Egils Skallagrímssonar aftur og aftur og fann mikla tengingu við kvæðið. Stundum eru það skáldin sem lýsa best því sem gerist í hjarta mannsins. Mamma lét okk- ur börnin aldrei sjá sig gráta. Hún sagði mér seinna að hún hefði oft farið upp í svefnherbergi þar sem hún sat á gólfinu, og setti fæturna fyrir hurðina til að koma í veg fyr- ir að eitthvert okkar barnanna kæmist þangað inn og sæi hana. Þarna sat hún og veinaði, svo þerraði hún tárin, kom fram og hló og brosti og varð eins og okkur fannst hún alltaf hafa verið. Hún sagði að pabbi hefði sagt við hana fljótlega eftir að bróðir minn dó: Þessi fjögur börn sem eru eftir hafa misst bróður sinn, ekki láta þau líka missa móður sína. Hún lagði þessi orð á minnið og lifði samkvæmt þeim en það var ekki án fórna. Ég hef velt því fyrir mér hvort heilabilunin sem varð 30 ár- um seinna, gæti að hluta til hafa stafað af því að hún bældi sorg sína og neitaði sér um að gráta op- inberlega. Kannski var það ekki gott fyrir heilann.“ Leiftur af henni sjálfri Stundum segir fólk sem á ástvin sem þjáist af heilabilun: Ég vildi frekar að hann/ hún myndi deyja fremur en að lifa svona. Þú ert ekki sammála því. „Nei, ég hugsa ekki þannig og hef aldrei gert. Við systurnar gát- um annast mömmu heima og okk- ur fannst aldrei að við hefðum misst hana algjörlega. Alveg fram undir það síðasta sáum við bregða fyrir leiftri af henni sjálfri. Hún var alltaf mjög söngelsk og gat enn sungið og um leið og hún byrjaði að syngja varð umhverfið notalegra og hún átti til að segja hnyttna hluti. Það voru margir erf- iðir dagar þar sem hún virtist vera órafjarri en svo sagði hún skyndi- lega eitthvað, alveg eins og hún Leiftur af henni sjálfri SALLY MAGNUSSON RÆÐIR UM BÓK SÍNA, HANDAN MINNINGA, ÞAR SEM HÚN REKUR SÖGU MÓÐUR SINNAR SEM ÞJÁÐIST AF HEILABILUN SÍÐUSTU ÁRIN SEM HÚN LIFÐI. HÚN SEGIR EINNIG FRÁ FJÖLSKYLDUHARMLEIKNUM SEM HEFUR MARKAÐ HANA OG RÆÐIR UM VIÐHORF TIL ELLI OG DAUÐANS. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is * Fjölskyldusaga mín hefur neytt migtil að horfast í augu við dauðleikann.Manneskjan deyr og stundum alltof snemma. Dauði bróður míns var í mótsögn við allt sem er eðlilegt og gott í heiminum. Barn ætti ekki að þurfa að deyja. Svipmynd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.