Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Blaðsíða 18
Séð út frá hvelfingunni fram að afgreiðsluborðinu.
Ferðalög
og flakk
Herman Wouters
*WOW air verður með sex flugvélar í flotasínum næsta sumar en var með fjórar flug-vélar síðastliðið sumar. Nýju vélarnar verða af gerðinni AirbusA321, þrjár vélar eru af gerðinni AirbusA320 og ein af gerðinni Airbus A319. Fé-lagið mun hefja flug til þriggja nýrra áfanga-
staða í Evrópu næsta vor en það eru
Dublin, Billund og Róm.
Tvær nýjar vélar í flota Wow air
Hej! Ég get ekki sagt að ég sjái eftir að hafa pakkað fimm manna fjöl-
skyldu og flutt til Svíþjóðar í byrjun sumars en það var tími til kom-
inn að víkka aðeins sjóndeildarhringinn, lifa lífinu lifandi á nýjum
slóðum, kynnast nýjum hefðum, læra nýtt tungumál og taka nýjum
áskorunum fagnandi. Gautaborg varð fyrir valinu og höfum við
hreiðrað um okkur í hverfi sem heitir Skintebo. Við erum að tala um fá-
ránlega fjölskylduvænt hverfi þar sem allir virðast þekkjast. Húsin eru
byggð það nálægt hvert öðru að ég kemst ekki upp með að spjalla ekki
við náungann. Frekar kósí ef þið spyrjið mig, alla vega fyrir eina of-
virka sem vill ekki vera ein heima í fæðingarorlofi fyrsta árið á meðan
eiginmaðurinn massar háskólanámið. Vi ses allihopa.
Íris Dögg Pétursdóttir og strákarnir.
Nökkvi Dagur og Bjarki Leó á strönd nærri heimili sínu. Íris og Bjarki á leið í leikskólann.
Fáránlega fjölskylduvænt hverfi
Íris og Mikael Darri.
PÓSTKORT F
RÁ SKINTEB
O
E
f gerð væri mynd um
Harry Potter þar sem
hann væri fullorðinn
galdrakall þá myndi hann
setjast niður á Gordon’s Wine
bar þegar galdraverkefnum dags-
ins væri lokið. Barinn er sagður
elsti vínbar Lundúna en hann
var opnaður 1890 og er trúlega
eini staðurinn í borginni sem
kallast bar þar sem ekki er
hægt að fá bjór. Þar inni er
bara vín vín og aftur vín. Ekki
er mikið um ódýrt vín heldur er
meira leitast við að hafa fágað
gæðavín.
Inni á barnum er hægt að
setjast niður við kertaljós en inni
á staðnum er ekki mikið um raf-
magn. Borðhvelfingin er öll lýst
með kertum sem sett eru ofan í
gamlar vínflöskur og þó að sé
sól og blíða sé
úti er dimmt
og kalt inni. Á
barnum er gríð-
arlegt val um osta og lyktin inni
eftir því sem samblandast eld-
gamalli reykingalykt. Útisvæðið
er eins týpískt og það verður.
Plaststólar og lítil borð með að-
stöðu fyrir reykingafólk sem get-
ur askað við gamlar síldartunnur.
Barinn er yfirleitt fullur af
fólki og ekki séns að fá borð eft-
ir klukkan 17. Það er hins vegar
mun betra að kíkja í bröns og
anda að sér sögunni um
leið.
Barinn er skammt frá
Charing Cross-lestarstöð-
inni eða Embankment.
Þegar gengið er yfir Tha-
mes-ána á Hungerford
brúnni er barinn á
hægri hönd. Heim-
ilisfangið er 47
street London
WC2N 6NE. Með
Google map í sím-
anum er auðvelt
að finna þennan
elsta vínbar borg-
arinnar.
GORDON’S WINE BAR
Fyrir
aðdáendur
Harry Potter
ELSTI VÍNBAR LUNDÚNA ER SAGÐUR VERA
GORDON’S WINE BAR ÞAR SEM HÁVAXNIR REKA
HAUSINN Í. INNI ER LÁGT TIL LOFTS, GÓLFIÐ ER
ÓJAFNT OG LYKTIN INNI JAFNGÖMUL OG BAR-
INN SJÁLFUR SEM VAR OPNAÐUR 1890.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Í hvelfingu Gordon’s wine bar er afar lágt til lofts.
Barinn er ekki mjög áberandi í götumyndinni. Við hlið barsins, í gegnum hliðið, er gengið á útisvæðið.
Harry
Potter