Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Blaðsíða 29
Hjónin Björg og Halldór fengu arkitektinn Ólaf Axelsson
til þess að teikna húsið þegar þeim bauðst að byggja á
grunni gamla bæjarins á Kálfaströnd I.B
jörg Jónasdóttir, flugfreyja hjá Ice-
landair, og Halldór Þorlákur Sig-
urðsson, fyrrverandi flugstjóri hjá
Icelandair, nú bóndi á Kálfaströnd I
Mývatnssveit, eiga einstaklega fagurt heimili
sem Rut Káradóttir hannaði að innan og
Ólafur Axelsson arkitekt teiknaði.
Heimilið er fallega innréttað og sækja
hjónin innblástur til ýmissa staða, hönn-
unarverslana, tímarita og annarra fallegra
heimila. „Það gerðist þannig að við tókum
eftir fallegu húsi sem Ólafur hannaði, þegar
okkur síðan bauðst að byggja á grunni gamla
bæjarins á Kálfaströnd I lá beinast við að
hafa samband við Ólaf. Ég tel aðstoð fag-
fólks mikilvæga ef mögulegt er. Við höfum í
okkar sambúð ávallt leitað til Rutar Kára-
dóttur innanhúsarkitekts þegar til fram-
kvæmda hefur komið, okkar samstarf hefur
verið einkar farsælt,“ útskýrir Björg. Að-
spurð hverju mikilvægast er að huga að við
innréttingu heimilisins segist Björg hafa
mikla trúa á Feng Shui hvað varðar heimilið.
„Íslenskar húsmæður hafa verið meðvitaðar
um það í gegnum aldirnar, hvað vor- og jóla-
hreingerningarnar skipta miklu máli fyrir
heimilið. Að vera duglegur að losa sig við
gamalt dót og ná í nýja orku inn í heimilið
sem næst með þessum vor- og jólahreingern-
ingum. Lífið er breytingum háð, því er mikil-
vægt að heimilið breytist og þróist með
heimilisfólkinu.“
Björg segir hjónin versla úti um allt, þar
sem hlutir heilla en stóru hlutina aðallega
heima á Íslandi og er Flagline-stóllinn ofar-
lega á óskalistanum.
Spurð hver sé griðastaður fjölskyldunnar á
heimilinu er svarið einfalt: „Heima er best.“
Eldhúsið er fagurblátt
og opið en þaðan er
hægt að opna út á pall.
Hjónin fundu spýtuna í fjárhúsinu, sög-
uðu hana í tvennt og festu hanka á.
Skemmtilegur skúlpúr eftir Línu Rut.
Heima er best
BJÖRG JÓNASDÓTTIR OG HALLDÓR ÞORLÁKUR SIGURÐSSON HAFA
KOMIÐ SÉR VEL FYRIR Í EINSTÖKU EINBÝLISHÚSI Í MÝVATNSSVEIT.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
MIKILVÆGT AÐ HEIMILIÐ ÞRÓIST MEÐ HEIMILISFÓLKINU
Hreindýrabakki frá Finnlandi sem
hjónin fengu að gjöf.
Fallega trébekkinn fékk Björg að láni frá vinkonu sinni en
gæran er finnskt hreindýr og púðarnir koma frá Bairut.
Á fallegu borði, úr versluninni ABC í
New York, hvílir mest lesna bókin í
augnablikinu.
Trélambið eftir Aðalheiði Eysteins-
dóttur er starfslokagjöf Bjargar til
Halldórs. Þegar hann hætti sem flug-
stjóri hjá Icelandair.
5.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Faxafeni 5, Reykjavik, S: 588 8477 | Skeiði 1, Ísafirði, S: 456 4566 | Dalsbraut 1, Akureyri • S: 558 1100 • www.betrabak.is
TIMEOUT STÓLLINN
Hannaður með fagurfræði
og þægindi að leiðarljósi.
Hönnuður: Jahn Aamodt