Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Blaðsíða 38
ENGUM MYNDUM HEFUR VERIÐ LEKIÐ FRÁ
BRÚÐKAUPI GEORGE CLOONEY OG AMAL
ALAMUDDIN FRÁ SÍÐUSTU HELGI. CLOONEY
OG FRÚ SÖMDU VIÐ TÍMARITIN VOGUE,
HELLO OG PEOPLE UM EINKARÉTT AF MYND-
UM AF BRÚÐKAUPINU OG KOMU SKÖTUHJÚ-
INN Í VEG FYRIR LEKA MEÐ STRÖNGU EFTIRLITI
OG MEÐ ÞVÍ AÐ HORFA TIL FORTÍÐAR.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
B
rúðkaup George Clooney og lögfræðings-
ins Amal Alamuddin um síðustu helgi var
eitt af brúðkaupum ársins og eftirvænt-
ingin mikil að sjá þetta ofurpar ganga
í það heilaga.
Eftir að brotist var inn á fjölda skýreikn-
inga fræga fólksins og nektarmyndum af
þeim lekið á veraldarvefinn kom George
Clooney í veg fyrir myndleka úr brúð-
kaupi sínu um síðustu helgi með því að
horfa til fortíðar.
Engum myndum hefur verið lekið á
veraldarvefinn úr veislunni sem þykir
heldur óvanalegt nú á dögum. Hefur
komið í ljós að Clooney lét alla gesti sína,
sama hversu
stór stjarna það
væri, skilja sína eig-
in síma eftir á Aman-
hótelinu sem þau Clooney og
Alamuddin leigðu yfir brúðkaups-
helgina. Gestirnir þurftu að notast
við einnota síma, sem hefur enga
myndavél, og eins og er gert í svo
mörgum brúðkaupum þá fylgdi
einnota myndavél hverju borði.
Þannig fóru engar myndir á
svokallað ský heldur
þurfa Clooney og frú að framkalla allar mynd-
irnar sem gestirnir tóku.
Þetta kemur fram í breska blaðinu Sunday
Telegraph.
Kóði á hverri vél
Clooney og frú hvöttu gesti til að taka myndir í
veislunni en til að koma í veg fyrir leka var hver
einasta myndavél merkt með kóða sem var svo
hægt að rekja ef myndavélinni væri smyglað út og
myndum lekið til slúðurmiðla. „Þetta er okkar veisla,
okkar brúðkaup og við viljum að þetta séu okkar
myndir,“ á Clooney að hafa sagt í veislunni samkvæmt vefnum
TMZ sem sérhæfir sig í fréttum af fræga fólkinu.
Um 400 öryggisverðir gættu svo veislusvæðisins og 40 verðir
gengu reglulega í kringum það til að koma í veg fyrir að út-
smognir ljósmyndarar gætu náð myndum fyrir slúðurblöð
heimsins.
Gífurlegur áhugi er á myndum frá brúðkaupinu enda marg-
ar ofurstjörnur Hollywood og heimsins komnar saman til að
skemmta sér og skála fyrir brúðhjónum.
Clooney og Alamuddin ákváðu að selja Vouge, Hello og
People tímaritunum rétt á myndum úr veislunni og allar
myndir sem hafa birst voru teknar af atvinnuljósmyndara.
Upphæðin sem þau fengu fyrir myndirnar hefur ekki verið
gefin upp en Clooney og frú ætla að gefa allan peninginn til
góðgerðarmála.
Brúðurin, Amal Alamuddin, var í sérhönnuðum kjól eftir
franska hönnuðinn Oscar de la Renta í brúðkaupinu en Clooney
var í jakkafötum frá Armani.
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.10. 2014
Græjur og tækni
Microsoft svipti í vikunni hulunni af nýjasta
stýrikerfi sínu, Windows 10. Í því er sérstök
áhersla lögð á úrbætur fyrir fyrirtækjamark-
að, s.s. með betra notendaviðmóti, auknu
gagnaöryggi og öflugri aðgangsstýringum
auk fjölda annarra nýjunga.
Windows 10 með áherslu á fyrirtæki
Okkar
veisla, okkar
myndir
George Clooney og
Amal Alamuddin pöss-
uðu vel upp á öryggið.
AFP
Einnota
sími frá LG.
* Þetta erokkarveisla, okkar
brúðkaup og
við viljum að
þetta séu okkar
myndir.
Nærmynd af hring-
um sem Clooney
og frú settu upp.
Einnota myndavél eins og
Clooney og frú notuðu.
Parið hefur verið myndað
gríðarlega frá því að brúð-
kaupshátíðin byrjaði.