Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Blaðsíða 23
5.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Niðurstöður rannsóknar sem Cornell Uni-
versity í New York gerði í vikunni og greint
var frá í tímaritinu Journal of the American
Medical Association eru um margt athygl-
isverðar. Mikið hefur verið fjallað um mik-
ilvægi þess að horfa ekki á sjónvarp meðan
setið er að snæðingi þar sem fólk gleymi sér
og borði of mikið því athyglin er öll á því sem
er að gerast á skjánum. Aðalatriðið sé að
horfa á matinn til að borða ekki yfir sig.
Samkvæmt þessari rannsókn vísindamanna
við Cornell-háskólans er það þó kannski ekki
aðalatriðið – heldur hvers konar efni það er
sem er á skjánum.
Þannig eru hasarmyndir ekki góðar því að
meðaltali innbyrðir fólk tvöfalt fleiri hitaein-
ingar en ef það horfir á rólegra efni. Þannig
eru Sylvester Stallone og Arnold Schwarze-
negger líklegri, óbeint, til að valda því að vigt-
in stígur upp. Rólegri viðtalsþættir eru mun
ákjósanlegra efni þurfi fólk að halda í við sig
því þá er það mun ólíklegra til að æsast upp í
átinu.
Þátttakendur höfðu ótakmarkað aðgengi
að öllu því M&M, smákökum, gulrótum og
vínberjum sem þeir vildu. Að meðaltali borð-
aði hasarmyndafólkið um 200 g af matnum
meðan þeir sem horfðu á spjallþátt um 100 g. Sylvester Stallone og hasarmyndafélagar hans eru ekki líklegir til að aðstoða þá sem eru í megrun.
Skiptir máli hvað horft er á
Með tilheyrandi kulda framundan
er trúlegt að einhverjir fari að
hósta og kvefast eins og gengur.
Hósti getur verið allavega og það
eru til mismunandi mixtúrur til að
slá á hann en hann getur verið sér-
staklega óþægilegur yfir blánóttina.
Ágætis heimilisráð til að sofa
betur þegar svona stendur á er til
að mynda að hækka undir höfðinu
meðan það versta gengur yfir og
svo er stundum mælt með því að
gleypa einfaldlega eina matskeið af
hunangi fyrir svefninn en hunangið
hefur róandi áhrif á hálsinn. Auð-
vitað skal þó alltaf leita læknis ef
hóstinn er þrálátur.
Hunang getur verið allra meina bót.
Morgunblaðið/Ómar
Margt hægt að
gera við hósta
Það er engin launung að daginn er
allskyndilega farið að stytta mikið
og verða dagarnir aðeins styttri og
styttri fram í desember.
Oft hefur verið fjallað um gagn-
semi þess að reyna að njóta eins
mikillar birtu og hægt er – fara út
að ganga meðan dagsbirtu gætir,
hafa góða lýsingu á heimilinu og svo
framvegis. Vísindamenn við Ore-
gon-heilsu- og vísindaháskólann
segja að allra mikilvægast sé hins
vegar að fá einhverja birtu á
morgnana, svo það er mikilvægt að
byrja daginn á því að kveikja á fal-
legri lýsingu og jafnvel lampa sem
gefur frá sér geisla sem minna á
dagsbirtu.
Daginn er tekið að stytta og gott að
huga að góðri lýsingu heima við.
Morgunblaðið/Eggert
Morgnarnir
mikilvægastir
www.gulimidinn.is
AF HVERJU SELDU BLEIKU GLASI RENNUR
TIL STYRKTAR BLEIKU SLAUFUNNAR.
Fyrir flottan málstað
er bleikur miði
hugsaðu um heilsuna
húð, bein og liði.
Fæst í apótekum, heilsuverslunum og stórmörkuðum.