Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Page 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Page 15
hafði gert áður, og við hugsuðum: Hún er komin til baka. Ég hugsaði aldrei: Ég vildi að hún væri ekki hérna. Ég vildi hafa hana og ég saknaði þess að hún gæti ekki átt sömu ellidaga og aðr- ir. Ég varð stundum afbrýðisöm þegar ég sá konur á hennar aldri andlega hressar og starfsamar því ég óskaði þess svo heitt að hún hefði getað fengið að vera þannig. En þótt hún virtist vera víðsfjarri þá var hún sjálf þarna einhvers staðar og það var áskorun fyrir mig að muna það og gera það sem ég gat til að laða hana fram. Það kemur skýrt fram í bókinni að fólk á ekki að fyllast sektar- kennd ef það sendir ættingja sína á hjúkrunar- og dvalarheimili. Ég sá ekki fyrir mér að móðir mín gæti dafnað fjarri fólkinu sem hún elskaði og húsinu sem hún þekkti, þótt það hús yrði fyrir henni smám saman að ókunnum stað. Við viss- um að hún þyrfti 24 tíma umönnun og ekkert hjúkrunarheimili í heim- inum getur boðið upp á slíka þjón- ustu. Það er mikið álag á starfs- fólki á þessum heimilum, vistmenn eru fjölmargir og starfsfólk hefur margt ekki þekkingu á heimi hins heilabilaða. Ég reyndi að skilja eins vel og mögulegt var hvað væri að gerast í höfði móður minnar og vil með bókinni sýna fagfólki að það er líf og kraftur í manneskju með heila- bilun og þennan kraft ætti að laða fram og styrkja. Fagfólk hefur haft samband við mig eftir að hafa lesið bókina og segir: Ég vissi ekki að þetta væri mögulegt. Skosk kona sem vinnur á deild fyrir gam- alt fólk með heilabilun skrifaði mér fallegt bréf og sagði: Ég hef verið lengi í þessu starfi og ég hélt að það hrærðist svo lítið innra með því fólki sem er í umsjá okkar. Ég hef reynt að gera mitt besta en vissi ekki að það væri mögulegt að ná til manneskjurnar sem virðist vera víðs fjarri. Bókin þín hefur gjörbreytt því hvernig ég haga starfi mínu, ég hef gefið þessu fólki meira og fengið meira til baka.“ Eigum að hætta að hræðast dauðann Í bókinni segir þú frá því þegar þú misstir bróður, síðan föður og móður. Trúir þú á líf eftir dauð- ann? „Ég hugsa um það en á ekki mörg svör. Í grunninn er ég krist- in manneskja og í kristinni trú býr von um líf eftir dauðann. Faðir minn trúði því að eina form ódauð- leikans væri orðstír mannsins, eins og segir í Hávamálum. Ég heiðra minningu móður minnar með því að skapa eitthvað gott úr því sem var að mörgu leyti skelfilegt og heiðra föður minn með því að hafa í hávegum svipaða hluti og hann virti. Það á örugglega víðar við en bara í bresku samfélagi að fólk hræðist dauðann. Við viljum ekki ræða um hann, ekki verða vitni að honum, við viljum að dauðinn eigi sér stað á spítölum og annars stað- ar þar sem við þurfum ekki að verða vitni að honum. Ég var við dánarbeð foreldra minna sem var mjög mikilvægt og gott því það kenndi mér að óttast ekki dauða- ferlið, enda er það ekki alltaf ógn- vænlegt. Þegar ég sá móður mína deyja minnti það mig á þegar ég var að fæða barn, þarna voru hríð- ir til að framkalla dauðann. Í nútímaþjóðfélagi erum við svo upptekin af því að vilja líta út fyrir að vera ung eins lengi og hægt er. Við viljum ekki horfast í augu við ellina, reynum að forðast hana eins lengi og við getum. Fjölskyldusaga mín hefur neytt mig til að horfast í augu við dauðleikann. Manneskjan deyr og stundum alltof snemma. Dauði bróður míns var í mótsögn við allt sem er eðlilegt og gott í heiminum. Barn ætti ekki að þurfa að deyja. Annað á við um foreldra mína, það var óhjákvæmilegt því slíkur er lífsins gangur og við verðum að undirbúa okkur fyrir dauðann og hætta að hræðast hann. Hræðslan við ellina hefur gert það að verkum að mín kyn- slóð hefur ekki gætt að því að hugsa um gamalt fólk og skapa því möguleika og tækifæri, en nú líður að því að við verðum sjálf gömul. Það ætti að vera okkar að bæta og efla heilbrigðiskerfið og stuðla að því að gamalt fólk fái betri umönn- un.“ Langar að skrifa skáldsögu Það kemur fram í bókinni að móð- ir þín tók upp íslenska siði og það er líka greinilegt að Ísland og það sem íslenskt er, er þér mjög kært. „Mamma lagði sig fram við að kynna sér íslenska siði og reyndi að læra tungumálið en gafst upp eins og svo margir. Hún flaggaði íslenska fánanum á þjóðhátíð- ardaginn og haldið var upp á jólin að íslenskum sið. Hún áttaði sig á því að Ísland hafði gert pabba að þeim manni sem hann var. Sjálf reyni ég að koma eins oft til Ís- lands og ég get og hér á ég ætt- ingja og vini. Börnin mín elska Ís- land og eru stolt af íslenskum uppruna sínum. Árið 2006 fórum við fjölskyldan á ættarmót á Laxa- mýri og það tókst svo vel að við ákváðum að hafa það næsta í Skot- landi og í júlí síðastliðnum var fjöl- mennt ættarmótt í Skotlandi og við sáum börnin í ættinni bindast vinaböndum.“ Ég veit að þú varst að gefa út barnabók. Finnst þér gaman að skrifa skáldskap? „Já, mér finnst það gaman og það veitir mikið frelsi. Nýja barna- bókin er sú þriðja í ritröð sem ég skrifa og heitir Horace and the Christmas Mystery og ég vona að þær verði fleiri. Svo langar mig til að skrifa skáldsögu fyrir fullorðna og það yrði líklega söguleg skáld- saga. Ég hef ekki enn fundið rétta efnið en tek öllum ábendingum fagnandi.“ Morgunblaðið/Kristinn „Sjálf reyni ég að koma eins oft til Íslands og ég get og hér á ég ættingja og vini. Börnin mín elska Ísland og eru stolt af ís- lenskum uppruna sínum,“ segir Sally Magnusson. 5.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Áttu fullt af græjum sem liggja ótengdar? Leyfðu okkur að aðstoða! S: 444 9911 – hjalp@taeknisveitin.is – www.taeknisveitin.is Tengjum heimabíóið Setjum upp þráðlaust net Standsetjum nýju tölvuna Tengjum saman ólíkar græjur Sjónvarpsmerki í öll sjónvörpin Lagnavinna á heimilinu ...og margt, margt fleira! Hvað gerum við? TÆKNISVEITIN til þjónustu reiðubúin! Við komum til þín, veitum ráðgjöf, setjum tækin upp, gerum við, leggjum lagnir, tengjum tækin saman við önnur og fáum allt til að virka. Svo færðu kennslu líka ef þörf er á því.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.