Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Side 30
Matur
og drykkir
Góð ráð við sushigerð
Morgunblaðið/Eggert
Skapti Hallgrímsson
*Óhætt er að segja að hrísgrjón og gott hrá-efni sé lykilatriði sushi. Gott er að notast viðsérstök sushi-hrísgrjón og eru þau frá BlueDragon afar góð. Sushihrísgrjón eru kringlóttog mjólkurkennd á litinn. Mikilvægt er aðskola þau vel og láta þau þrútna þar til kjarn-inn hverfur.
Þá þarf að nota hrísgrjónaedik, sem magn-
ar upp bragðið af hrísgrjónunum, og sykur.
Þ
að tístir í Kristínu Pálmadóttur Thorlacius þegar blaðamaður slær á þráðinn og segist hafa
heyrt sögur af 12 ára matarsnillingi. Beef Wellington, frönsk súkkulaðihorn um helgar og
kjúklingaborgari marineraður í indversku kryddi, ekkert virðist of flókið fyrir þessa hæfi-
leikaríku stúlku. „Mér hefur alltaf þótt gaman að elda, alveg frá því ég var sex ára gömul,“
segir Kristín. Hún segir föður sinn, Pálma Jónasson, hjálpa sér við eldamennsku enda sé hann góður
kokkur. „Pabbi er flinkur í eldhúsinu og við eldum oft saman. Ég borða allan mat og er ekki matvönd.
Pabbi hefur alltaf sagt að ég borði meira að segja svolítið mikið miðað við krakka,“ segir hún og hlær
en sjö ára gömul óskaði hún sér sushi-potts í afmælisgjöf til að útbúa hrísgrjón, sem hún og fékk.
Eldar fyrir alla fjölskylduna
„Já, ég geri það bara nokkuð oft,“ svarar Kristín aðspurð hvort það komi oft fyrir að hún eldi fyrir
alla fjölskylduna. „Mér finnst mjög gaman að vinna með kjúkling og að elda pasta,“ útskýrir hún en
segir þó að kjötbollurnar sem hún gefur uppskrift að hér séu í miklu uppáhaldi. „Þetta er uppskrift
sem ég bjó til sjálf. Við pabbi ákváðum eitt kvöldið að matreiða kjötbollur og við kíktum á nokkrar
góðar uppskriftir og blönduðum nokkrum saman sem okkur leist best á sem kom mjög vel út.“ Pálmi
segir að unga matreiðslukonan breyti uppskriftum gjarnan eftir skapi og eftir því hvað er til í ís-
skápnum hverju sinni.
Kristín segist vera dugleg við að lesa og skoða matreiðslubækur og ýmsar uppskriftir og iðulega
bjóði hún vinkonum sínum heim þar sem þær hjálpast að við að elda saman og útbúa litla rétti. Hún
gengur í Melaskóla og eftir árið tekur Hagaskóli við. Það vekur athygli að Kristín kærir sig kollótta
um að eiga farsíma, hvað þá snjallsíma. „Já, ég bara nenni ekki að hringja. Ég læt alltaf vita hvert
ég er að fara svo ég þarf ekki að nota símann,“ segir Kristín sem er hvorki á Facebook né öðrum
samskiptamiðlum sem mörg ungmenni stunda af krafti.
Að lokum segist Kristín vilja sjá sjálfa sig sem afbragðskokk í framtíðinni. „Mig mundi langa að
verða mjög góður kokkur, kokkur sem margir vilja koma og borða hjá og þekkja nafnið mitt.“
Hljómar vel!
Uppskriftin sem Kristín gef-
ur er tekin saman úr mörg-
um öðrum uppskriftum.
Faðir hennar, Pálmi, segir að
hún styðjist yfirleitt ekki við
uppskriftir heldur eldi frem-
ur eftir tilfinningu.
Morgunblaðið/Ómar
Þær eru fjórar systurnar, frá vinstri: Hera, Áslaug, Kristín og Auður.
ÁHUGI FYRIR ELDAMENNSKU KOM VIÐ SEX ÁRA ALDUR
Sjö ára vildi hún sushi-pott
Kristín með foreldrum sínum, Sigrúnu Thorlacius og Pálma Jónassyni.
KRISTÍN PÁLMADÓTTIR THORLACIUS ER UNG OG EFNILEG STÚLKA SEM
GERIR SÉR LÍTIÐ FYRIR OG ELDAR FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA, AÐEINS 12 ÁRA
GÖMUL. HÚN SEGIR MATARÁHUGANN HAFA KOMIÐ SNEMMA OG VILL Í
FRAMTÍÐINNI VERA AFBRAGÐSKOKKUR SEM KITLAR BRAGÐLAUKA FÓLKS MEÐ
NAFNI SÍNU EINU.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Kjötbollur:
700 gr nautahakk
1-2 dl parmesan
3 hvítlauksrif
1 egg
1 brauðsneið
Krydd eftir smekk (Yfirleitt nota ég slatta
af blóðbergi, basil eða óregano)
Öllu blandað saman. Pipra vel en salt er
óþarft vegna parmesanostsins sem er salt-
ur. Móta litlar bollur og baka í ofni við ca.
200 gráður
Heimagerð tómatsósa:
1 tómatdós
2 hvítlauksrif
1 tsk hunang
1 tsk rósmarín, eða eftir smekk
1 lárviðarlauf
vatn/vín
salt, pipar
Hvítlaukurinn hitaður í smá olíu með
rósmaríni og lárviðarlaufi. Restin sett út í
og látið malla lengi, helst klukkutíma.
Nokkrir dropar af rauðvíni eða púrtvíni
gera sósunni gott og yfirleitt þarf að bæta
við vatni ef sósan fær að malla lengi.
Pasta er soðið samkvæmt leiðbein-
ingum og öllu blandað saman. Sítrónubát-
ar, svartur pipar og parmesan er sett á
toppinn.
KJÖTBOLLUPASTA KRISTÍNAR