Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Page 33

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Page 33
FYLLTAR TORTILLASKÁLAR Mjúkar tortillakökur (minni tegundin) 1 bakki nautahakk 1 poki taco-krydd ca 1 dl vatn ca 1/2 krús tacosósa 1 dós refried beans rifinn cheddar-ostur Steikið nautahakkið á pönnu, kryddið með taco- kryddi og hellið ca 1 dl af köldu vatni yfir. Látið sjóða saman í nokkrar mínútur á pönnunni. Hrærið tacosósu og refried beans saman við og setjið til hliðar. Úðið olíu (ég nota PAM) í möffinsform og setjið tortillakökur í þau (það er allt í lagi þó þær standi upp úr), fyllið þær með nautahakksblönd- unni og stráið rifnum cheddar-osti yfir. Setjið í 200° heitan ofn í 10-15 mínútur, eða þar til ost- urinn er bráðnaður. Berið fram með góðu salati, nachos og sýrðum rjóma, guacamole og salsa- sósu. Föstudagur 5.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33 Framleiðendur bresku Rowlett brauðristanna hafa aldrei verið sammála því að brauðristar eigi að vera ódýrar, ónákvæmar og ónýtar alltof snemma. Þær hafa verið handsmíðaðar í tæp 70 ár og hvert einasta tæki er prófað áður en það fer úr húsi. Það hlýtur að vera öfundsvert starf að sjá um gæða- eftirlitið með öllu þessu ristaða brauði. J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Brauðristar- gæðaeftirlit KJÚKLINGAGRATÍN MEÐ TÓMAT- OG OSTASÓSU 800 gr kjúklingabringur Tómatsósa: 1 dós hakkaðir tómatar 3 msk tómatpuré ½ rauð paprika ½ gul paprika 1 tsk ferskt rautt chili (takið fræin úr fyrir mildari rétt) 1 hvítlauksrif salt og pipar Ostasósa: 1 msk smjör 1 msk hveiti 3 dl mjólk 50 gr sterkur gouda-ostur salt og pipar Toppur: 2 fín hakkaðir skarlottulaukar 1-2 dl kasjúhnetur fersk basilika Hitið ofninn í 200°. Byrjið á tómatsósunni. Skerið paprikur í teninga og fínhakkið chili og hvítlauksrif. Setjið í matvinnsluvél ásamt tómötum og tómatpuré og mixið saman í 10 sekúndur. Þetta er líka hægt að gera með töfrasprota. Saltið og piprið. Ostasósan: Bræðið smjörið í potti og hrærið hveitinu saman við. Setjið 1,5 dl af mjólk saman við og látið suðuna koma upp á meðan hrært er í pottinum. Bætið restinni af mjólkinni út í og látið suðuna koma aftur upp. Takið af hitanum og hrærið rifnum osti saman við. Saltið og piprið. Skerið kjúklingabringurnar í bita og legg- ið í eldfast mót. Saltið og piprið. Hellið tómatsósunni yfir kjúklingabitana og síðan ostasósunni. Stráið hökkuðum skarlottu- lauk og kasjúhnetum yfir. Bakið í ofni í 20- 25 mínútur, eða þar til kjúklingurinn er full- eldaður. Stráið ferskri basiliku yfir réttinn áður en hann er borinn fram. Berið fram með pasta, hrísgrjónum eða salati. Fimmtudagur Mjúk súkkulaðikaka með vanillukremi og kókos 2 egg 1½ dl sykur 2 tsk vanillusykur 2 msk kakó 2 tsk lyftiduft 75 gr smjör, brætt 3/4 dl mjólk 2 1/4 dl hveiti Til að strá yfir kökuna Kókosmjöl Hitið ofninn í 180°. Hrærið egg og sykur saman þar til er létt og ljóst. Bætið hinum hráefnunum saman við og hrærið snögglega saman í deig. Passið að hræra ekki of lengi því þá er hætta á að kakan verði þung í sér og seig. Setjið deigið í smurt form (um 24 cm í þvermál) og bak- ið kökuna í 15-20 mínútur, eða þar til prjónn sem er stungið í kökuna kemur hreinn upp. Glassúr: 1½ msk vanillusykur 3 dl flórsykur 35 gr smjör, brætt 2-4 msk vatn Glassúr: Hrærið öllum hráefnum saman í skál. Notið vatnið til að ná réttri áferð og þykkt á glassúrnum. Þegar kakan hefur kólnað þá er glassúrinn settur yfir hana og kókosmjöl stráð strax yfir glassúrinn. Með helgarkaffinu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.