Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Page 57
5.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Kvikmyndahátíðinni RIFF
lýkur um helgina og er boð-
ið upp á sýningar á fjölda
áhugaverðra mynda. Þar má
nefna Vive la France eftir Helga Felix-
son og The Great Museum en
höfundar hennar sitja fyrir svörum.
2
Sviðslistahátíðin All
Change Festival er haldin í
Tjarnarbíói um helgina.
Áhersla er lögð á ólíka
sköpun leiksýninga og tekist á við
spurninguna „Hvað er leikrit?“ Há-
tíðin byggist á alþjóðlegu samstarfi og
fer fram á sama tíma í Reykjavík,
London, Augsburg, New York og
New Orleans.
4
Nú um helgina lýkur sýningu
Kristínar Pálmadóttur
myndlistarkonu, „Hlýnun“, í
sýningarsal félagsins Íslensk
grafík í Hafnarhúsinu. Kristín vinnur
með ljósmyndaætingar og málar og
myndefni hennar í báðum miðlum
tengjast náttúrunni, krafti hennar og
breytingum.
5
Páfugl úti í mýri – orða-
ævintýri, sýning um lestrar-
gleði fyrir alla fjölskylduna
verður opnuð í Norræna
húsinu á laugardag klukkan 14. Ævin-
týrið er ávöxtur samstarfs Davíðs
Stefánssonar rithöfundar og Krist-
ínar Rögnu Gunnarsdóttur mynd-
listarkonu. Sýningin er hluti af lestrar-
hátíð Reykjavíkur Bókmenntaborgar.
3
Rakel McMahon hefur opn-
að áhugaverða sýningu, „Red
Direction“ í Týsgalleríi við
Týsgötu. Þráhyggja gagnvart
leiðbeiningum er kveikja verkanna en
listakonan veltir fyrir sér listgildi leið-
beiningabæklinga.
MÆLT MEÐ
1
Það eru alltaf alvörutímar!“ segir Jó-
hanna V. Þórhallsdóttir og hlær þegar
spurt er út í heitið á nýrri sólóplötu
hennar sem ber heitið Söngvar á alvöru-
tímum. Jóhanna býður til útgáfutónleika í
Iðnó á sunnudagskvöldið með lunganum
úr hljómsveitinni sem leikur með henni á
plötunni, þar á meðal Kjartani Valdimars-
syni píanóleikara, Gunnari Hrafnssyni
bassaleikara, Jóhanna Hjörleifssyni
trommara og Matta Kallio harmónikku-
leikara en hann útsetti tónlistina fyrir
upptökurnar.
„Heiti plötunnar er annars tilvísun í
eitt ljóðanna á plötunni,“ segir hún. „Það
heitir „Einskonar eftirmáli“ og er eftir
Guðmund Sigurðsson revíuskáld. Í lokin
segir: „og Goethe kallinn, sem grúskaði
þó í flestu, á gamalsaldri taldi oss það
fyrir beztu:// að taka lífinu létt á hverju
sem gengi,/ maður lifir svo skammt og er
dauður svo óralengi“,“ segir Jóhanna.
Á plötunni eru lög eftir hana, við texta
Guðmundar, Þorvaldar Þorsteinssonar, og
Nínu Bjarkar Árnadóttur. Þá eru einnig
lög eftir Matta Kallio, Kjartan Ólafsson,
Villa Valla og Árna Ísleifs, auk revíulaga
og söngva úr leikritum. Meðal annarra
textaskálda eru Þórarinn Eldjárn, Guð-
mundur Ólafsson og Villi Valli (Vilberg
Vilbergsson).
„Ég er með talsvert revíu- og leikhús-
kennd lög,“ segir Jóhanna og hljómsveitin
ber keim af því. „Ég hef spilað með öllu
þessu fólki áður, á langri ævi. Egill
Ólafsson ætlar að syngja með mér eitt
eða tvö lög á tónleikunum og Hildigunn-
ur Einarsson, dóttir mín og söngkona,
raddar með vinkonum sínum. Svo er
leynigestur…“ segir hún dularfull.
Hún segir að þetta sé sú tónlist sem
hún finni sig best í núna. „Ég byrjaði
þarna, fór svo út í klassíska tónlist, söng
nútímatónlist og dramatískan Brahms og
Schumann, sem var gaman, en svo fer
maður í hring. Maður nennir ekki alltaf
að æfa alla skalana.“ Hún hlær.
„En mér finnst svo gaman að syngja.
Maður verður að tjá sig. Ég hef rosalega
tjáningarþörf.“
Söngvar á alvörutímum er þriðja sóló-
plata Jóhönnu en á löngum ferli hefur
hún meðal annars sungið með Hrekkju-
svínum, Diabolus in Musica, Sinfóníu-
hljómsveit Íslands, Kammersveit Reykja-
víkur og Íslensku hljómsveitinni. Þá
hefur hún stjónað mörgum kórum og
kennt söng.
JÓHANNA V. ÞÓRHALLSDÓTTIR MEÐ ÚTGÁFUTÓNLEIKA Í IÐNÓ
„Ég hef rosalega tjáningarþörf“
„ÉG ER MEÐ TALSVERT REVÍU- OG
LEIKHÚSKENND LÖG,“ SEGIR JÓ-
HANNA V. ÞÓRHALLSDÓTTIR UM
TÓNLISTINA Á NÝRRI PLÖTU.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
„Mér finnst svo gaman að syngja,“ segir Jó-
hanna. Hún hefur sungið allskyns tónlist.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
uð út úr húsi þá hugsa ég: „Oj, það á enginn eftir að
horfa á mig. Ég verð eins og hundaskíturinn á göt-
unni sem allir sveigja hjá …“
Það fyrsta sem ég geri þegar ég vakna á morgn-
ana er að mála mig. Síðan þegar ég er búin að borða
í hádegishléinu, þá mála ég mig. Svo í lok dagsins þá
laga ég málninguna.
Mig langar að verða nektardansmær eða sýningar-
stúlka. Ég held að það væri gaman að dansa með
brjóstin ber. Það er markmiðið mitt. Ef ég get gert
það, þá get ég gert hvað sem er.“
Hannah var þrettán ára þegar myndin af henni og
þremur vinkonum, sem sjá má að ofan, var tekin.
Þær voru á leið í samkvæmi hjá sjöunda bekk og
hún hafði verið í þrjá tíma að hafa sig til.
„Við í hópnum eru mun meira málaðar en aðrar
stelpur … Til að vera vinsæl stelpa í skólanum okkar
þá þarftu að líta vel út, eiga flottustu fötin og strák-
arnir þurfa að vera skotnir í þér.“ Hún bætir við:
„Ég lít kannski út fyrir að vera eldri en ég er, en
undir þessu öllu er ég bara þrettán ára. Það er frek-
ar óhugnanlegt …“
Hin 15 ára gamla Sheena mátar föt í verslun í San Jose, Kaliforníu, meðan Amber vinkona hennar fylgist með. Sheena vill verða nektardansmær.
©Lauren Greenfield/INSTITUTE
Vinkonurnar Alli, Annie, Hannah og Berit, sem allar eru 13 ára og búa í Edina í Minnesota,
fyrir fyrsta sjöunda bekkjar partíið. Hannah segist hafa verið þrjá tíma að hafa sig til.