Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 01.07.1999, Side 18

Fréttir - Eyjafréttir - 01.07.1999, Side 18
18 Fréttir Fimmtudagur l.júlí 1999 Fyrir fimmtán árum - sumarið 1984 Meistaraflokkur ÍBV í knattspyrnu lék í 2. deild árið 1984, féll úr 1. deild (sem nú heitir úrvalsdeild) árið áður. Þjálfari liðsins á tíma- bilinu var Einar Frið- þjófsson. Miklar væntingar voru gerðar til liðsins og þess nánast krafist að það næði aftur sæti í 1. deild. En gengi liðsins var slakt og ekki í samræmi við það sem vænst hafði verið af því. Einar þjálfari var í opnu- viðtali í Fréttum 28. júní og var þá m.a. spurður um móralinn í liðinu en einhverjir leikmenn höfðu sýnt óánægju sína með að vera teknir út af í leikjum. Því svarar Einar þannig: „Margir þeirra eru ungir og eiga erfitt með skap, em hreinlega ekki búnir að læra hvað er að gerast. Það verða allir að sætta sig við það að vera teknir út af, það getur enginn leikmaður lejjft sér það að verða trylltur við slíkt. Eg líð það alls ekki.“ Þá er þjálfarinn spurður hvort hluti leikmanna hafí verið drukkinn þegar komið var heim úr síðustu keppnis- ferð. Því svarar hann: „Þeir voru ekki drukknir. Hins vegar skal ég viðurkenna að einhveijir þeiira höfðu fengið sér áfengi á leiðinni. Eg er búinn að ræða það mál og ég fór fram á að slíkt kæmi ekki fyrir aftur. Hins vegar eru það hreinar línur frá minni hálfu að ég er engin bamapía yfir þessum peyjum og hafi þeir ekki þroska til að skilja hvað um er að vera þá er það þeirra mál. Eg get ó- mögulega verið að þvarga í full- orðnum mönnum dag eftir dag út af hinu og þessu.“ En gengi ÍBV batnaði lítt og í byijun ágúst var Einar látinn taka pokann sinn og hætta. Við þjálfun liðsins tóku þeir Kjartan Másson, Viktor Helgason og Páll Pálmason. Jónas Sigurðsson í knattspyrnuráði vildi ekki kalla þjálf- arann sökudólg en sagði að Einar hefði ekki getað unnið með hópnum eða hópurinn með honum. Því hefði verið einfaldast að skipta um verkstjóra. Einar sagði í viðtali við Fréttir að hann væri sár yfir þessu og uppsögnin hefði komið sér á óvart. Sér þættu þetta kaldar kveðjur eftir margra ára starf að knattspymumálum í Eyjum og taldi að knattspymuráðsmenn væm að reyna að bjarga eigin skinni. Svo fór að ekki dugði að skipta um þjálfara og Eyjamenn sátu eftir í 2. deildinni þetta árið. En man Einar Fríðþjófsson eftirþessu sumri? „Já, ég man vel eftir því. Og það komu nokkur mögur ár eftir þetta hjá ÍBV áður en birti til á ný. En ég hélt mínu striki og hélt áfram að þjálfa í mörg ár eftir þetta. Arið eftir var ég á Seyðisfirði og svo í tvö ár hjá Fram í Reykjavík þar sem ég þjálfaði 3. flokk. Þá unnum við alla þá titla sem hægt var að vinna. Margir þeirra stráka em enn á fullu, t.d. Steinar Guð- geirsson, Anton Bjöm og Agúst Gylfason. Og ég var ekkert búinn að segja skilið við Eyjar því að ég varð framkvæmdastjóri Týs og sá um að þjálfa 3. flokk. Það ár urðum við ís- landsmeistarar innanhúss. Svo þjálfaði ég 2. flokk í nokkur ár. Eg hætti að þjálfa fyrir tveimur ámm en hef verið í nánu sambandi við boltann, er svona hálfgerður framkvæmdastjóri fyrir Shell- og Pæjumótin. Svo kenni ég við Framhaldsskólann á vetuma.“ Nú andaði fyrir fimmtán ámm heldur köldu milli þín og ýmissa aðila, t.d. knattspymuráðs ÍBV. Hefur gróið þar um heilt síðan? „Já, ég held að ég eigi mér enga óvildarmenn í dag og sjálfur ber ég engan kala til neinna af þessum aðilum. Tveir þeirra starfa meira að segja með mér í dag að Shellmótunum og það samstarf gengur hið besta. Auðvitað hrista menn svonalagað af sér, það gengur ekki að vera í ein- hverri fýlu,“ sagði Einar Friðþjófsson. EINAR Friðþjófsson, fyrrum þjálfari meistaraflokks IBV. Fyrir fimmtán árum - sumarið 1989 Ný verslun á 15 ára fresti í byrjun júlí 1984 opnuðu þeir frændur Aðalsteinn Jónatansson og Geir Sigurlásson frá Reynistað, nýja húsgagnaverslun og bólstrun í nýju og glæsilegu húsnæði í Lautinni við Vesturveg. í Fréttum þann 11. júlí segir svo um opnunina: „Fyrirtæki þeirra frænda er ekki orðið gamall þrátt fyrir mikil umsvif. 1981 hófu þeir rekstur húsgagnaverslunar og bólstrunar að Skólavegi 13 og hlaut fyrirtækið nafnið Reynistaður. Fljótlega kom í ljós að þjónusta þeirra naut mikilla vinsælda svo að húsnæðið við Skólaveg varð of þröngt. Bmgðu þeir þá á það ráð að efna til húsgagnasýninga í húsnæði Vemdaðs vinnustaðar við Faxastíg. Þessar sýningar mælt- ust vel fyrir og urðu til að ýta undir hugmyndir þeirra um að ráðast í byggingu verslunarhúss í Lautinni. Ohætt er að segja að mjög ör vöxtur hafi verið í fyrirtæki þeirra frænda því að nú, þremur ámm eftir stofnun þess em þeir fluttir í þetta glæsilega eigið húsnæði á fomum slóðum Reyni- staðarættarinnar og má segja að hinn nýi Reynistaður sómi sér vel við Vesturveginn." „Þú segir nokkuð," sagði Geir Sigurlásson þegar við slógum á þráðinn til hans sl. föstudag. „Em fimmtán ár síðan? Það hittist vel á. Við vomm nefnilega að opna nýja verslun á Selfossi í morgun, stóra og mikla, 460 fermetra í mjög góðu húsnæði að Eyrarvegi 5, beint á móti hótelinu. Við emm búin að vera með hús gagnaverslun í eitt ár á Selfossi í öðm húsnæði, svo misstum við það en fengum í staðinn þetta líka fína pláss, akkúrat í miðri traffíkinni." Geir og fjölskylda hans eiga og reka verslunina Reynistað og auðvitað heitir verslunin á Selfossi sama nafni. Aðalsteinn hætti í rekstrinum 1988, býr nú í Los Angeles, þar sem kona hans er viðskiptafræðingur en sjálfur vinnur hann við tölvutalningu á lagemm fyrir stórfyrirtæki og unir hag sínum vel úti í sólinni hjá fræga fólkinu. „Þetta hefur gengið ágætlega á þessum fimmtán ámm, auðvitað er þetta alltaf bamingur rétt eins og í öllum rekstri en ég hef ekki ennþá komist í auglýsingamar í Lögbirtingi. Svo höfum við verið að smáfæra út kvíamar. Við höfum lengi verið með veggfóður og skrautlista, teppi og flísar og ákváðum að stíga skrefið til fulls í vor og emm nú með málningu líka.“ „Nei, ég veit nú ekki hvort þetta verður fastur liður hjá Reynistað að opna nýja verslun á fimmtán ára fresti en þó er aldrei að vita. Alla vega gengur þetta vel, bæði í Eyjum og á Selfossi svo að það er aldrei að vita nema Reynistaður skjóti víðar rótum á lands- byggðinni," sagði Geir Sigurlásson. GEIR, kaupmaður á Reynistað.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.