Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 01.07.1999, Qupperneq 28

Fréttir - Eyjafréttir - 01.07.1999, Qupperneq 28
Frétta- og auglýsingasími: 481-3310 * Fax 481-1293 ÍBV strákarnir í 6. flokki A stóðu uppi sem meistarar á Shellmótinu um síðustu helgi. Bls. 12og13 FUÍTNINGAR - VESTUANKAEYJUU Daglegar farilr hrort á land um w. Vöruafgreiðsla Skildingovagi 4 Sfnii 4S1 3440 Vöruafgreiðsla í Reyk|avík Aðolfiuiningar Höðinsgöta 2 Sfmi S81 3030 Sigmar hættur efflr brjá- tfu ár sem verslunarstjóri í dag taka nýir eigendur við rekstri verslunarinnar Vöruvals í Kúluhúsinu við Vesturveg. Sigmar Georgsson og Edda Angantýsdóttir hafa selt Ingimar, bróður Sigmars, og konu hans Hjördísi Arnars- dóttur, verslunina. „Við skrifuðum undir samninginn á mánudaginn var og Ingimar tekur við rekstrinum í dag, fimmtudag," sagði Sigmar. Þetta er búið að eiga sér nokkum aðdraganda. Ingimar hafði sýnt þessu áhuga og Edda var tilbúin að selja honum sín 50 prósent í versl- uninni. Svo fór ég að hugsa málið, ég er búinn að vera verslunarstjóri í 30 ár og líklega kominn tími til að prófa eitthvað nýtt svo að ég ákvað að stíga skrefið til fulls. Það hafa allir gott af því að breyta ul.“ Sigmar hefur rekið Vöruval í sex ár. Áður var hann verslunarstjóri á Tang- anum í fimmtán ár og þar áður í m'u ár hjá Kaupfélaginu. Ingimar hefur aftur á móti unnið í 20 ár hjá Heildverslun Karls Kristmanns. „Ingimar er svo sem enginn ný- græðingur í verslun. Hann þekkir vel inn á þessa hluti og hefur oft leyst mig af þegar ég hef farið í frí. Eg verð áfram héma í nokkra daga honum til aðstoðar en hætti svo alveg. Það verða í rauninni einu breytingamar að við Edda hættum, allt starfsfólkið verður áfram og reksturinn með svip- uðu sniði að ég held. Nei, ég er ekki að fara í útgerð," sagði Sigmar og hló við spumingunni. „Það er alveg óráðið enn hvað ég tek mér fyrir hendur en líklega verður það alls óskylt verslunarrekstri. Það verður bara að koma í ljós,“ sagði Sigmar. „Eg tek við Vöruvali í dag, raunar þarf ég að klára fyrra starfið af en Simmi verður mér innan handar í ein- hverja daga. Þetta er í sjálfu sér ekki nein bylting hjá mér, ég hef unnið við verslun nær alla ævi og ástæðan fyrir því að við fömm út í þetta er að mig langar til að skapa mér og fjöl- skyldunni atvinnu. Afkoman hefur líka verið góð hjá Vöruvali. Eg reikna ekki eð að miklar breytingar verði á rekstrinum, alla vega ekki til að byrja með. Kannski bryddum við upp á einhveijum nýmælum með haustinu,“ sagði Ingimar Georgsson, hinn nýi eigandi Vöruvals. Sumarstúlkan 1999 Undirbúningur fyrir Sumarstúlkukeppnina á laugardaginn er á lokastigi og stefnir í að úr verði glæsilegasta skemmtun ársins. í boði er skemmtun með kvöldverði af veisluhlaðborði frá Fjörunni, skemmtiatriðum, glensi og gríni, tískusýningu þar sem stúlkumar verða í aðalhlutverki og loks dansleik sem stendur fram á nótt. Eins og kemur fram í auglýsingu í miðopnu hefjast her- legheitin með því að Kiwanishúsið verður opnað kl. 19.30 og ljóst er að þama getur fólk á öllum aldri átt saman ánægjulega stund. Margir koma við sögu við undirbúninginn sem fram- kvæmdastjórinn, Bima Vigdís Sigurðardóttir, hefur stýrt af röggsemi. Þeir sem hafa lagt keppninni lið með Fréttum em m.a. íslandsflug, Vestmannaeyjabær, Spari- sjóður Vestmannaeyja, Eyjablóm, Sprett úr spori, Apótek Vestmannaeyja, Hárgreiðslustofa Guðbjargar, Kúltúra, Hressó, Eðalsport, Jazz, Selma Ragnarsdóttir, Fjaran, Smart, Snyrtistofan Anita, Rúnar Karlsson, Súsanna Georgsdóttir, Davíð Amórsson og Samvinnuferðir Landsýn. Eins og gefur að skilja em stúlkumar í öndvegi og fá þær allar myndarlegar gjafir auk þess sem Sumarstúlka Vestmannaeyja fær glæsileg verðlaun. Allar fá stúlkumar m.a. flugfar fyrir einn frá Islandsflugi, þjóðhá- tíðarlagadiskinn sem er að koma út, nýju Ecolylínuna frá Heildsölugallerínu og Hárgreiðslustofu Guðbjargar. Auk þess fær sigurvegarinn gjafir frá Apóteki Vestmannaeyja, Eðalsporti, Snyrtistofu Anitu. Hressó, gjafabréf frá Smart og síðast en ekki síst viku sólarlandaferð til Mallorka í haust frá Samvinnuferðum Landsýn. Dansleikur er á eftir með Hálft í hvom með Eyjólf Kristjánsson og Gunnar Inga í fararbroddi en urn mið- nætti verður Ijóst hver verður Sumarstúlka Vestmanna- eyja, Ljósmyndafyrirsætan og vinsælasta stúlkan. VlkulilhjCLá •k vikuna 1. júlí til 7. júlí Vara fyrir* eftir* Pepsi, 21 - 6 flöskur í kippu. Handklæði fylgir með. kr. 938,- Lenor mýkingarefni, 2x500ml kr. 335,- kr. 279,- Ariel Future, 2,5kg kr. 1.134,- kr. 889,- Bounty eldhúsbréf, 6 rúllur saman kr. 765,- kr. 429,- Mr. Propper eldhús og glerhreinsir kr. 275,- kr. 218,- Crest tannkrem, 3 á verði 2ja kr. 275,- kr. 218,- *Verðhrun Góð vers/o,? / alf lei0\ Vettmannabraut

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.