Fréttablaðið - 07.02.2013, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 07.02.2013, Blaðsíða 6
7. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 með því að talsverður kostnaður hafi hlotist af endurskipulagningu og endurútreikningi lána og sam- skiptum við eftirlitsaðila. SE varar við því í skýrslunni að auknum rekstrarkostnaði hafi ekki verið gefinn mikill gaumur í opinberri umræðu enda hafi bank- arnir hagnast vel við endurmat á lánum. Þetta kunni að breytast þegar endur matið skili sér ekki lengur í reikninga bankanna. Þá segir að laun bankastarfs- manna hafi hækkað meira en flestra annarra stétta. Jafnframt hafi rekstrarkostnaður bankanna hækkað um fimmtán prósent á milli áranna 2009 og 2010 á meðan rekstrarkostnaður um 26 þúsund fyrirtækja landsins hækkaði um rúm sex prósent á sama tíma. Ekkert bendi til þess að rekstrar- kostnaður banka í nágrannaríkj- um Íslands hafi hækkað á sama tímabili. stigur@frettabladid.is SAMKEPPNISMÁL Rekstrarkostn- aður stóru bankanna þriggja jókst um ellefu milljarða króna á milli áranna 2011 og 2012, úr 61 millj- arði í 72. Samkeppniseftirlitið (SE) telur kosta of mikið að reka bank- ana og að mikilvægt sé að draga úr þeim kostnaði. „Viðskiptavinir bankanna greiða rekstrarkostnaðinn dýru verði með óhagstæðum viðskiptakjör- um,“ segir í skýrslu SE um fjár- málaþjónustu á Íslandi sem kynnt verður í dag. Þar segir að rekstrar kostnaður bankanna sé mikill í alþjóðlegum samanburði. Þannig hafi hann numið 2,3 prósentum af eignum bankanna árið 2011, samanborið við 0,6 til 1,5 prósent hjá fimm- tán litlum norrænum bönkum og stórum evrópskum bönkum. SE segir að þrátt fyrir hagræðingar aðgerðir hafi ekki tekist að ná rekstrarkostnaðinum niður og að hann hafi hækkað um tíu prósent að meðaltali á hverju ári frá 2009. „Að hluta til má rekja þessa hækkun til þess að bankarnir hafa stækkað með yfirtöku Landsbank- ans á SpKef og yfirtöku Íslands- banka á Byr auk þess sem Val- itor varð dótturfélag Arion banka. Skýra má um helming af hækk- un rekstrarkostnaðar bankanna til samruna við Valitor, SpKef og Byr og er þá gengið út frá þeirri forsendu að samrunarnir hafi ekki leitt til rekstrarhagræðingar í bankakerfinu,“ segir í skýrslunni. Þá hafi aukin skattheimta kost- að bankana einn og hálfan millj- arð síðustu þrjú ár og reikna megi 72 milljarðar er áætlaður rekstrarkostnaður bankanna þriggja í fyrra. Fylgjast með áhrifum flúormengunar 1 REYÐARFJÖRÐUR Matvælastofnun vill að fylgst verði áfram með áhrifum sem flúormengun í Reyðarfirði gæti hafa haft á ung dýr. Ekki er hægt að útiloka að mengunin geti haft neikvæð áhrif á tannheilsu dýra og því hefur verið óskað eftir aukinni vöktun Umhverfisstofnunar á svæðinu. Flúormengunin varð frá álveri Alcoa Fjarðaráls síðastliðið sumar. Matvæla- stofnun telur ekki tilefni til að ætla að fólki stafi hætta af neyslu dýraafurða eða matjurta af svæðinu. Ánægja með Árborg 2 ÁRBORG Ánægja með þjónustu Sveitarfélagsins Árborgar eykst milli ára að því er fram kemur í könnun sem Gallup gerði á þjónustu sveitarfélaga í lok síðasta árs. „Sambærilegar kannanir hafa verið gerðar árlega um nokkurt skeið og lenti Sveitarfélagið Árborg í 13. sæti árið 2010, í 12. sæti árið 2011 og í 9. sæti árið 2012,“ segir í tilkynningu Árborgar og er bent á að aukin ánægja sé með aðstöðu til íþróttaiðkunar, þjónustu leikskóla, gæði umhverfis, skipulagsmála og hvernig sveitarfélagið sinnir menningarmálum. Skipaumferð kallar á stækkun 3 NESKAUPSTAÐUR Norðfjarðarhöfn, sem er ein Fjarðabyggðar- hafna, verður stækkuð umtalsvert á næstu tveimur árum. Höfnin er ein af stærstu fiskihöfnum landsins, en það markast að stórum hluta af starf- semi Síldarvinnslunnar. Á vef Síldarvinnslunnar kemur fram að á árinu 2012 voru skipakomur samtals 519, en smábátar eru þar ekki taldir. Komur fiskiskipa voru rúmlega ein á dag, eða 384. Komur flutningaskipa voru 89 og tankskipa 45. Vörur sem fóru um Norðfjarðarhöfn á árinu 2012 voru 140.040 tonn. Vörur frá höfn námu 116.675 tonnum og til hafnar 23.365 tonnum. Framkvæmdum er því ætlað að auka öryggi og gera afgreiðslu fiski- og flutningaskipa auðveldari. Áætlaður kostnaður er um 550 milljónir króna. SKÓLAMÁL Starfshópur frá grunn- skólanum í Engidal og leikskólan- um Álfabergi í Hafnarfirði leggja til að sameiningu Engidalsskóla við Víðistaðaskóla verði slitið og að fyrr- nefndu skólarnir verði sameinaðir í staðinn. Víðistaðaskóli og Engidalsskóli voru sameinaðir fyrir þremur árum. Í Engidal hafði fram að því verið kennt frá 1. upp í 7. bekk en í Víðistaðaskóla í öllum deildum, frá 1. bekk upp í 10. bekk. Í fyrravor ákvað fræðsluráð Hafnarfjarðar hins vegar að skipa starfshóp starfs- manna Engidalsskóla og Álfabergs sem átti að kanna samstarf að sam- einingu þar á milli. Í niðurstöðum þess starfshóps kemur skýrt fram að starfsfólkinu þyki sameiningin við Víðistaðaskóla hafa verið misráðin. „Þessi sameining reyndist starfs- fólkinu mjög erfið og gengið var í gegnum ákveðið sorgarferli fyrsta árið,“ segir starfshópurinn, sem vísar til fjarlægðar á milli skóla- bygginganna tveggja. „Það er mjög erfitt að tilheyra hópi sem maður hittir á starfsmannafundi einu sinni í mánuði.“ Þá er bent á að á sama tíma hafi leikskólinn Álfaberg verið fluttur í húsnæði Engidalsskóla. Starfs- hópurinn segir nær að sameina þetta tvennt í skóla með leikskóladeild og grunnskóladeild. Hvort skólastigið myndi hins vegar halda sínum skóla- stjóra og millistjórnanda. „Meiri vilji hefur verið fyrir því frá upp- hafi að auka samvinnu við þá sem maður hittir daglega í sínum störf- um,“ segir hópurinn. - gar Kennarar lýsa sameiningu Víðistaðaskóla og Engidalsskóla sem mislukkaðri: Starfsfólk upplifði erfiðleika í sorgarferli ENGIDALSSKÓLI Starfsfólki Víðistaða- skóla í Engidal finnst það litlu sambandi ná við vinnufélagana Víðistaðamegin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 1. Hverjum líkti John Grant við Serge Gainsbourg í blaðinu í gær? 2. Hversu mörg tonn af síld tíndu börnin frá Grundarfi rði í Kolgrafafi rði? 3. Hjá hvaða fyrirtæki störfuðu sjómennirnir sem var sagt upp vegna fíkniefnaneyslu? SVÖR1. Megasi 2. 25 tonn 3. Vinnslustöðinni ➜ Mun örari hækkun en hjá Landspítalanum Kostnaður á föstu verði 2012 í milljörðum króna 2009 2010 2011 2012 Þetta súlurit má finna í skýrslu Samkeppniseftirlitsins. Á því er borinn saman rekstrarkostnaður bankanna þriggja, níu stórra íslenskra fyrirtækja og Landspítalans. Tvöfalt meira kostaði að reka bankana en Landspítalann í fyrra. m ill ja rð ar k ró na 80 70 60 50 40 30 20 10 0 Þrír bankar Landspítalinn Níu fyrirtæki Á æ tl un Fj ár lö g Rekstrarkostnaður bankanna rýkur upp Sífellt meira kostar að reka íslensku bankana og Samkeppniseftirlitið telur brýnt að sporna við því. Kostnaðurinn eykst hraðar en hjá öðrum fyrirtækjum og stofn- unum og er úr takti við erlenda banka. Laun bankafólks hækka hraðar en annarra. VEISTU SVARIÐ? LANDIÐ 1 2 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.