Fréttablaðið - 07.02.2013, Side 10
7. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Erum með nokkur eintök af góðum
bílum á tilboði í febrúar.
Kletthálsi 11 og Breiðhöfða -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
HYUNDAI SANTA FE II
Nýskr. 04/08, ekinn 102 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr.3.620.000
TILBOÐ kr. 2.790 þús.
LEXUS RX400h HYBRID
Nýskr. 06/08, ekinn 68 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr.5.990.000
TILBOÐ kr. 4.790 þús.
PORSCHE CAYENNE TURBO
Nýskr. 09/03, ekinn 77 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr.4.980.000
TILBOÐ kr. 3.590 þús.
ISUZU D-MAX
Nýskr. 03/08 ekinn 165 þús km.
dísil, beinskiptur.
Verð áður kr.2.390.000
TILBOÐ kr. 1.890 þús.
NISSAN PATHFINDER LE
Nýskr. 10/06, ekinn 93 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr.3.990.000
TILBOÐ kr. 2.990 þús.
VW TOUREG V6 DÍSIL
Nýskr. 08/07, ekinn 105 þús km.
dísel, sjálfskiptur.
Verð áður kr.5.880.000
TILBOÐ kr. 4.390 þús.
RANGE ROVER VOGUE
Nýskr. 01/05, ekinn 125 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 4.990.000
TILBOÐSVERÐ!
3.990 þús.
Rnr. 101892
Rnr. 140556
Rnr. 200490
Rnr. 130301
Rnr. 200853
Rnr. 200737
Rnr. 190676
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
KOMDU STRAX Í DAG! GERÐU FRÁBÆR KAUP!
TILBOÐ
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Samkvæmt 20. gr. laga VR auglýsir kjörstjórn félagsins eftir einstaklingsframboðum til
formanns og í stjórn félagsins og listaframboðum í trúnaðarráð.
Um er að ræða annars vegar einstaklingsframboð til formanns, sjö sæta í stjórn og þriggja til
vara og hins vegar listaframboð fyrir 41 sæti í trúnaðarráð. Skrifleg meðmæli 50 félagsmanna
þarf vegna einstaklingsframboðs til formanns og 15 vegna einstaklingsframboðs til stjórnar
og varastjórnar. Til að listi vegna trúnaðarráðs sem borinn er fram gegn lista Uppstillinga-
nefndar sé löglega fram borinn þarf skrifleg meðmæli 300 félagsmanna sem og skriflegt
samþykki frambjóðenda á listanum.
Framboðsfrestur er til kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 22. febrúar 2013. Framboðum og
framboðslistum skal skilað til kjörstjórnar á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.
Frambjóðendum er bent á heimasíðu VR www.vr.is, þar sem eyðublöð vegna framboða eru
aðgengileg og ítarlegari upplýsingar birtar um framboð til formanns, stjórnar og
trúnaðarráðs. Kjörstjórn VR veitir einnig frekari upplýsingar í síma 510 1700 eða með
tölvupósti til kjorstjorn@vr.is.
7. febrúar 2013
Kjörstjórn VR
Hefur þú áhuga á að
starfa í forystu VR?
MENNTAMÁL Blindir og sjón skertir
nemendur virðast mæta meiri
takmörkunum í háskólanámi en
aðrir hópar fatlaðra. „Í áratug hið
minnsta hefur enginn blindur eða
sjónskertur lokið hér háskólanámi,“
segir Hanna Björg Sigurjónsdóttir,
dósent í félags- og mannvísindadeild
Háskólans. Í nýrri rannsókn, sem
hún vinnur að með Knúti Birgissyni
doktorsnema, er sjónum beint sér-
staklega að möguleikum blindra og
sjónskertra til háskólanáms.
Hanna Björg segir þó að margt
hafi færst til betri vegar. Núna
stundi hér tólf blindir eða sjón-
skertir einstaklingar háskólanám,
fimm í Háskólanum í Reykjavík og
sjö við Háskóla Íslands. Enn þurfi
þó að færa ýmislegt til betri vegar.
Hún bendir á að háskólanám geri
ráð fyrir mjög miklum lestri og
hraðri skimun texta, sem sé útilok-
uð fyrir blint fólk og sjónskert. „Út
af þessu þurfa bókalistar kennara
að liggja fyrir nógu snemma til að
skanna megi inn bækur í tæka tíð.“
Hanna Björg segir oft takast vel
upp, en þó séu dæmi um að langt sé
liðið á misseri þegar nemendur fá
lesefni. Þá sé hér ekki í boði sjón-
túlkun fyrir blinda, en í sjóntúlkun
er lýst fyrir blindum þeim þáttum
í umhverfinu sem eyrað eitt nemur
ekki. „En aðgengi að námsefni
skiptir mestu máli.“
Úrræðið sem algengast er að
fólk nýti sér eru svokallaðir „glósu-
vinir“ en þá tekur samnemandi að
sér að skrifa niður glósur og senda
viðkomandi. Þá þurfi að haga fyrir-
lestrum þannig að það nægi að
hlusta á þá. Þá sé mikilvægt að allir
nemendur hafi aðgang að upptök-
um kennslustunda. Allur gangur sé
á hvernig þessu sé háttað.
Eins þurfi að taka á skipulagi
námsins því erfitt sé fyrir blinda
og sjónskerta að læra á nýja staði
og leiðir. „Svæði eru illa aðgengi-
leg, leiðarlínur vantar og jafnvel
í nýjustu húsunum er allt úr gleri,
húsgögn á miðju gólfi og erfitt að
komast um.“
Innan háskólanna segir Hanna
Björg hins vegar bæði skilning og
vilja til breytinga. Þá beri þeir nem-
endur sem þau Knútur hafi talað
við öllum vel söguna sem sinna við
þá stuðningi í náminu. Þess sé því
vonandi ekki langt að bíða að hér
ljúki blind eða sjónskert manneskja
námi. „Það er á okkar ábyrgð að
ryðja úr vegi hindrunum svo mögu-
leikar allra til náms séu jafnir.“
olikr@frettabladid.is
Blindir rekast á
hindranir í háskóla
Í áratug hið minnsta hefur enginn blindur eða sjónskertur nemandi lokið há-
skólanámi hér á landi. Innan Háskóla Íslands er unnið að rannsókn á aðstæðum
þessara nemenda. Víða er pottur brotinn þótt margt hafi færst til betri vegar.
Í HÁSKÓLANUM Þórsteinssjóður styrkir rannsókn Hönnu Bjargar Sigurjónsdóttur
dósents og Knúts Birgissonar doktorsnema á möguleikum blindra og sjónskertra til
háskólanáms. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI