Fréttablaðið - 07.02.2013, Side 12
7. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR |
Starfshópur á vegum Reykjavíkur-
borgar hefur kortlagt hvaða mögu-
leikar eru á byggingu íbúða innan
borgarlandsins. Niðurstaðan er sú
að á næstu þremur til fimm árum
verða reistar 2.500 íbúðir mið-
svæðis í Reykjavík. Fram til árs-
ins 2030 verða íbúðirnar 14.500.
Dagur B. Eggertsson, formaður
borgarráðs, er formaður starfs-
hópsins. Hann segir vinnuna, sem
staðið hefur yfir í tvö ár, einkenn-
ast af því að reynt sé að draga lær-
dóm af hruninu.
„Í fyrsta lagi með því að í nýju
aðalskipulagi er verið að þróa
borgina inn á við, um það er mjög
skýr stefna. Í öðru lagi hefur
borgarstjórn sameinast um nýja
húsnæðisstefnu sem kallar eftir
fjölbreyttari og öruggari húsnæð-
ismarkaði með áherslu á leiguíbúð-
ir, búseturéttaríbúðir og aukna
fjölbreytni.
Í þriðja lagi, og það kemur einn-
ig að því hvernig fólk kemst af,
erum við með þessu tvennu að
reyna að minnka rekstrarkostnað
heimilanna með því að gera fólki
kleift að búa þar sem það getur
dregið úr samgöngukostnaði.“
Í því skyni er gert ráð fyrir mun
minni fjölda bílastæða við íbúðirn-
ar en vaninn er.
Efla almennan leigumarkað
Framlag Reykjavíkurborgar verður
fyrst og fremst það að leggja fram
lönd og lóðir, en einnig í gegnum
skipulagið. Ekki er gert ráð fyrir að
fjármunir verði markvisst settir í
uppbygginguna frá borginni.
„Við höfum þó áskilið okkur rétt
til að gera strategískar fjárfesting-
ar til að fylgja þessari stefnu fast
eftir. Við erum tilbúin til að beita
afli borgarinnar, bæði til að tryggja
okkur nauðsynleg lönd og lóðir, og
einnig til að þróa þessi svæði og
nýta skipulagsvaldið til þess. Þetta
er algjör lykilstefna hjá okkur.“
Möguleg leið í þessu er að um
hvern byggingarreit, eða nokkra
saman, verði stofnað félag sem
sér um uppbyggingu og rekstur.
Fundað hefur verið með þróunar-
félögum, verktökum, fjármögnun-
araðilum, bæði bönkum og lífeyris-
sjóðum, Félagsstofnun stúdenta,
háskólunum og öðrum sem hafa
verkefni í farvatninu sem gætu fall-
ið undir þessa stefnumótun.
Dagur segir að félög um slíkan
rekstur þurfi að lifa í áratugi, ef
ekki hundrað ár, og því þurfi að
vanda til verka.
„Það sem hefur vantað á Íslandi
er almennur leigumarkaður og við
viljum búa til öruggan leigu markað
fyrir venjulegt fólk sem vill það
sem valkost, jafnvel til langs tíma.
Þá þarf að tryggja ákveðið öryggi
og jafnvel að þú getir stækkað við
þig innan stórs leigufélags sem er
með margar og fjölbreyttar íbúða-
gerðir á sínum snærum, jafnvel
innan sama skólakerfis. Þetta er
í raun alveg gríðarlega stórt sam-
félagslegt verkefni um að búa
til öruggan húsnæðis- og leigu-
markað.“
Hætta á húsnæðiskreppu
Dagur segir að uppbyggingin muni
ekki tryggja það að leiguverð lækki.
Hins vegar muni hún vonandi skapa
betra jafnvægi á leigumarkaði.
„Það er ekki hægt að lofa
því að leiguverð í Reykjavík, á
eftirsóknar verðum stöðum, muni
lækka til framtíðar litið. Ef ekk-
ert verður að gert er hætt við því
að þróunin verði eins og víða í mið-
borgum, þar sem venjulegt fólk
á venjulegum launum hefur ekki
efni á að búa þar lengur. Við viljum
koma í veg fyrir það.“
Dagur segir úttektir sýna að það
stefni í húsnæðiskreppu ef ekkert
verður að gert. Ábyrg borgaryfir-
völd verði að setja fram áætlanir
um hvernig mæta eigi húsnæðis-
þörfinni, ekki til að skapa nýja
bólu á fasteignamarkaði heldur til
að tryggja það að allir eigi þak yfir
höfuðið á viðráðanlegu verði.
„Það verður aldrei ódýrt að búa
á besta stað í Reykjavík en við
eigum að gera það sem við getum
til að tryggja fjölbreytni. Við vilj-
um ekki einhver lúxussvæði fyrir
fáa heldur fjölbreytt svæði fyrir
alls konar fólk; fjölskyldufólk,
eldra fólk og yngra fólk.
Þar höfum við tæki í gegnum
skipulagið og í gegnum alls kyns
samvinnu. Við höfum verið að
beita borginni mjög markvisst, þó
það hafi kannski ekki farið mjög
hátt,“ segir Dagur.
Þar vísar hann í kaup borgar-
innar á Slippsvæðinu, þar sem rísa
munu 250 til 300 íbúðir, á lóð við
Keilugranda, þar sem vísa munu
um 60 íbúðir og á lóð við Tryggva-
götu þar sem fjöldi íbúða getur
risið. Borgin hafi til að mynda sett
500 milljónir í að kaupa hafnar-
svæðið.
Byggja fjölda leiguíbúða í borginni
Alls verða reistar 14.500 íbúðir í Reykjavík fram til ársins 2030 samkvæmt hugmyndum vinnuhóps um húsnæðismál. Borgin gæti komið að
félögum um uppbyggingu á hverjum reit fyrir sig. Borgaryfirvöld vilja beita skipulagsvaldi sínu til að tryggja uppbyggingu leigumarkaðar.
FORMAÐUR BORGARRÁÐS Dagur segir að ef ekki verði brugðist við húsnæðisþörf
í Reykjavík, sérstaklega varðandi leiguhúsnæði, sé hætta á húsnæðiskreppu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
BYKO-LÓÐ
Staða skipulags: Sam-
þykkt deiliskipulag
Eignarhald: Borgar-
lóð. Byggingarréttur
á hendi K. Steindórs-
son sf.
Áætluð uppbygging:
70 íbúðir í fj ölbýli.
Meðalstærð nýrra
íbúða 115-120 m2
(mögulegt að fj ölga
íbúðum á svæðinu?).
ÖSKJUHLÍÐ, HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK
Staða skipulags: Sam-
þykktar 300 íbúðir
í aðal skipulagi, sjá
einnig deiliskipulag
Háskólans í Reykjavík.
Eignarhald:
Borgarland og land
ríkis. Byggingarréttur
á hendi borgar/ríkis,
sjá þó samkomulag
við HR.
Áætluð uppbygging:
Yfi r 300 nemenda-
íbúðir
VEÐURSTOFUHÆÐ
Staða skipulags: Stofnana-
svæði í gildandi aðal-
skipulagi.
Eignarhald: Borgarlóð.
Byggingarréttur í höndum
ríkis o.fl .
Áætluð uppbygging: Eink-
um hugsað fyrir skrifstofur/
stofnanir. Meta þarf hvort
þarna mættu rísa íbúðir.
2012-2016 2.500 íbúðir 2016-2020 3.500 íbúðir 2020-2024 4.000 íbúðir 2024-2030 4.500 íbúðir
KEILUGRANDI
Staða skipulags:
Íbúðarsvæði í gild-
andi aðalskipulagi.
Heimilt að byggja
allt að 49 íbúðir.
Eignarhald: Borgar-
lóð. Byggingarréttur
í höndum borgar.
Áætluð uppbygg-
ing: 60-80 íbúðir.
HÉÐINSREITUR
Staða skipulags:
Samþykkt deili-
skipulag.
Eignarhald: Einka-
lóð. Byggingar-
réttur á hendi
Seljavegar ehf.
Áætluð uppbygg-
ing: 275 íbúðir í
fj ölbýli, hjúkrunaríbúða. Meðalstærð nýrra
íbúða innan við 100 m2.
HÖFÐATORG
Staða skipulags:
Samþykkt deiliskipu-
lag.
Eignarhald: Borgar-
lóð. Byggingarréttur á
hendi Eyktar.
Áætluð uppbygging:
Um 250 íbúðir í fj öl-
býli (möguleg lækkun
vegna hótels).
SLIPPASVÆÐI
Staða skipu-
lags: Samþykkt
deiliskipulag.
Endurskoðun í
undirbúningi.
Eignarhald: Lóðir
Reykjavíkurborgar
Einkalóð, Mýrar-
gata 26. Byggingarréttur á hendi Atafl s.
Áætluð uppbygging: 300 íbúðir í fj ölbýli,
miðað við forsendur í rammaskipulagi.
STJÓRNARRÁÐSREITUR
Staða skipulags:
Samþykkt deiliskipu-
lag fyrir skrifstofur
og stofnanir.
Eignarhald: Land
ríkis. Byggingarrétt-
ur á hendi ríkis.
Áætluð uppbygg-
ing: Alls um 25
þúsund m2. Fjöl-
breyttari notkun ef deiliskipulag verður
endurskoðað?
HÍ VESTAN SUÐURGÖTU
Staða skipu-
lags: Samþykkt
deiliskipulag fyrir
stofnanir og skrif-
stofur.
Eignarhald:
Lóðir Háskóla.
Byggingar réttur á
hendi Háskólans.
Áætluð uppbygg-
ing: Deiliskipulag
endurskoðað í
ljósi uppbyggingarmöguleika Háskólans
á svæði Vísindagarða, með fj ölbreyttari
byggð að leiðarljósi.
SÚÐARVOGS-DUGGUVOGSREITIR
Staða skipulags: Ósamþykkt. Til
skoðunar í nýju aðalskipulagi.
Eignarhald: Borgarlóðir að stærst-
um hluta. Byggingarréttur á hendi
Regins o.fl . Í söluferli.
Áætluð uppbygging: Um 400
íbúðir í þéttri borgarbyggð, auk
skrifstofa, verslunar og þjónustu,
handverks/léttur iðnaður.
GRAFÍK/KLARA
➜ Dæmi um þá reiti sem hópurinn hefur kortlagt, en þeir eru alls 32
ASKÝRING | 12
ÁÆTLUN UM UPPBYGGINGU Í REYKJAVÍK