Fréttablaðið - 07.02.2013, Qupperneq 16
7. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR |16
Mikilvægt er að hafa réttan
búnað með í gönguferðir að
vetrar lagi, að sögn Jónasar Guð-
mundssonar, verkefnastjóra
slysavarna hjá Landsbjörg.
„Þeim fjölgar sífellt sem stunda
göngur að vetrarlagi og það er vel
en það þarf að hafa í huga að bún-
aður í slíkar ferðir þarf að vera
réttur. Á veturna þarf oft að vera
með mannbrodda og ísöxi og allt-
af ef haldið er til fjalla. Það hefur
borið á því að göngumenn láti
duga að nota svokallaða hálku-
brodda en notkun slíkra brodda
til fjalla gerir ekkert annað en að
bjóða hættunni heim. Sú hætta
felst meðal annars í því að á
hálkubroddum getur göngumaður
gengið inn á svæði sem eru erfið
yfirferðar og lent þar í sjálfheldu
eða dottið án þess að geta stöðv-
að sig. Hálkubroddar í fjallgöngu
veita falskt öryggi,“ segir Jónas.
Hann getur þess að mann-
broddar sem ætlaðir eru til
gönguferða í vetraraðstæðum séu
sérstaklega hannaðir til notkunar
til fjalla auk þess sem festingar
á þeim séu öruggari en á hálku-
broddum.
„Með ísöxi er hægt að höggva
spor í snjóinn ef á þarf að halda
og án hennar er líklegast erfitt að
stöðva sig ef maður fellur í hálli
fjallshlíð. Það er í raun betra að
vera eingöngu með ísöxi en að
nota hálkubrodda.“
Ferðaáætlun á alltaf að skilja
eftir hjá aðstandendum. Það má
einnig gera á www.safetravel.is,
vefsíðu sem rekin er af Lands-
björg, og liggur þá ferða áætlun
fyrir hjá björgunarsveitum ef
óhapp verður, að því er Jónas
bendir á. Á vefnum er tekið fram
að ekki sé fylgst með því að ferða-
menn skili sér á umræddum tíma
heldur sé það tengiliðs að gera
slíkt.
Tilkynningaþjónusta ferða-
manna er hugsuð fyrir stærri og
viðameiri ferðir. Þá mæta ferða-
menn á skrifstofu Lands bjargar
og fylla með starfsmanni út
ferðaáætlun auk þess sem farið
er í gegnum búnað viðkomandi.
Fylgst er sérstaklega með því að
ferðamenn skili sér á umræddum
tíma. ibs@frettabladid.is
Það hefur borið á því
að göngumenn láti duga
að nota svokallaða hálku-
brodda en notkun slíkra
brodda til fjalla gerir
ekkert annað en að bjóða
hættunni heim.
Jónas Guðmundsson, verkefnastjóri
slysavarna hjá Landsbjörg.
Réttur búnaður í göngur
Svokallaðir hálkubroddar í fjallgöngu veita falskt öryggi. Sérstaklega hannaðir mannbroddar og ísöxi
nauðsynlegur útbúnaður. Ferðaáætlun á að skilja eftir hjá aðstandendum. Einnig hægt á www.safetravel.is
Á GÖNGU Búnaður í göngur að vetrarlagi og við vetraraðstæður þarf að vera réttur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
■ Fylgjast þarf vel með
veðurspá.
■ Vatns- og vindheld hlífðar-
föt þurfa að vera með í för.
■ Gönguskór eiga að vera
hálfstífir svo hægt sé að
festa á þá mannbrodda.
■ Ísöxi þarf að vera hluti af
búnaði.
■ Snjóflóðaýlir, skófla og
snjóflóðaleitarstöng eru
nauðsynlegur búnaður.
■ Skilja þarf eftir ferða-
áætlun.
Fleiri upplýsingar um undirbúning
er að finna á www.safetravel.is.
Undirbúningur
fyrir göngu
að vetri
ASÍ varar neytendur við að versla
í verslunum Hagkaups, Kosts, Nóa-
túns og Víðis.
Í fréttatilkynningu frá ASÍ segir
að þessar verslanir neiti allar að
veita neytendum eðlilegar og sjálf-
sagðar upplýsingar um verðlag í
verslunum sínum með því að vísa
verðtökufólki frá Verðlagseftirliti
ASÍ út úr verslunum sínum.
Í tilkynningunni segir að ætla
megi að verslanirnar leiti skjóls til
verðhækkana í því að útiloka full-
trúa neytenda úr verslunum sínum
og gera þeim ókleift að sinna sjálf-
sögðu aðhalds- og upplýsinga-
hlutverki sínu.
Bent er á að Verðlagseftirlitið
gegni nú mikilvægu hlutverki við
eftirfylgni með samkomulagi sem
ASÍ og SA undirrituðu við fram-
lengingu kjarasamninga þann 21.
janúar síðastliðinn. Þar hafi aðil-
ar verið sammála um að beita sér
fyrir aðgerðum til lækkunar verð-
lags, meðal annars með aukni
aðhaldi að verðhækkunum.
Jafnframt segir að með þessu séu
launafólki sendar kaldar kveðjur.
Á Vísi er haft eftir rekstrar stjóra
Nóatúns, Bjarna Friðrikssyni, að
ASÍ sinni ekki athugasemdum við
villur í niðurstöðum.
ASÍ varar við viðskiptum við nokkrar verslanir:
Vísa verðtökufólki frá
MATVÖRUVERSLUN ASÍ segir launa-
fólki sendar kaldar kveðjur.
Notendur Bland.is geta nú
selt vörur sínar með uppboðs-
fyrirkomulagi. Söluaðilum gefst
jafnframt kostur á að setja inn
svokallað „Kaupa núna-verð“.
Það felur í sér að uppboðið fellur
niður um leið og einhver vill
tryggja sér vöruna á fyrir fram
ákveðnu lágmarksverði, að því er
segir í fréttatilkynningu. Til þess
að tryggja öryggi í viðskiptum á
vefsvæðinu býður Bland.is upp á
að notendur auðkenni sig gagn-
vart rekstraraðila vef-
svæðisins. Þrátt fyrir
auðkenninguna geta
notendur áfram notið
nafnleyndar gagn-
vart öðrum gestum.
Skráðir notendur
eru rúmlega
200
þúsund.
Í hverri
viku nýta
118 þúsund
notendur sér
kosti vef-
svæðisins.
Vörur seldar á upp-
boði á Bland.is
CE-merkið er skilaboð framleið-
enda til eftirlitsaðila um að varan
uppfylli þær reglur og þá staðla
sem um hana gilda. Merkingin
er ekki gæðastimpill, að því er
segir í frétt á vef Neytendasam-
takanna. Þar er greint frá því
að Evrópusamtök neytenda og
samstarfsvettvangur evrópskra
neytendasamtaka um staðla-
starf hafi opinberlega gagnrýnt
herferð Evrópusambandsins
sem snýr að leikfangaöryggi. Í
herferðinni er mikið lagt upp
úr því að CE-merkið sé trygging
neytenda fyrir því að leikfang
sé öruggt. Samtökin benda hins
vegar á að þar sem ekkert óháð
eftirlit fari fram á vörum sem
bera CE-merkið sé ekki um neina
slíka tryggingu að ræða. Bent er
á að á þessu ári hafi þegar borist
250 tilkynningar um hættuleg
leikföng í gegnum RAPEX-tilkynn-
ingakerfið. Nær öll þessi leikföng
bera CE-merkið.
CE-merkingin er
ekki gæðastimpill
15% afsláttur
Gildir út febrúar